Tíminn - 09.09.1983, Qupperneq 9
Þorvarður Kjerulf Þorsteinsson
sýslumaður og bæjarfógeti
Fæddur 24. nóvember 1917
Dáinn 31. ágúst 1983
í dag föstudaginn 9. september 1983,
fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík
líkför Þorvarðar Kjerulf Þorsteinssonar
áður sýslumanns í ísafjarðarsýslu og
bæjarfógeta á ísafirði.
Þorvarður var fæddur á Egilsstöðum
á Völlum í Suður-Múlasýslu 24. nóvem-
ber 1917, sonur Þorsteins Jónssonar,
kaupfélagsstjóra og konu hans Sigríðar
Þorvarðardóttur Kjerulf, læknis og al-
þingismanns, er þá áttu heimili á Egils-
stöðum, en fluttu næsta árá Reyðarfjörð
og áttu þar heimili til dauðadags.
Þau hjónin eignuðust fjögur börn og
var Þorvarður elstur, en önnur eru:
Margrét kona þess er línur þessar ritar,
Jón yfirlæknir á lyflæknisdeild Land-
spítalans í Reykjavík og Þorgeir lög-
reglustjóri á Keflavíkurflugvelli.
Þá tóku þau hjónin í fóstur frá
barnæsku Ólaf Bjarnason, nú deildar-
stjóra við tollstjóraembættið í Reykja-
vík.
Þorvarður ólst upp með systkinum
sínum á Reyðarfirði, gekk þar í barna-
skóla, en var annars á sumrum í sveit hjá
föðurömmu sinni og frændum á Egils-
stöðum, en hann var ætíð mjög hneigður
fyrir búskap og hafði mikið dálæti á
hestum.
Eftir fermingu fór hann í Menntaskól-
ann á Akureyri, lauk þaðan stúdents-
prófi vorið 1938. Síðan lá leiðin í
Háskóla tslands, þar sem hann las lög,
og lagaprófi lauk hann með góðum
vitnisburði vorið 1944.
Síðla sumars það ár fór hann til starfa
í Stjórnarráði íslands, atvinnumálaráðu-
neyti, fyrst þar fulltrúi, en síðan deildar-
stjóri.
Árið 1973 var hann skipaður bæjar-
fógeti á ísafirði og sýslumaður ísafjarð-
arsýslu og var svo allt til hann í vor vegna
vanheilsu baðst lausnar og flutti suður
og bjó að Miklubraut 74, Reykjavík.
Árið 1944 kvæntist Þorvarður Önnu
Einarsdóttur, verkstjóra, frá Akranesi,
nú húsfrú að Kiðafelli í Kjós, en þau
hjónin skildu.
Börn þeirra eru:
Einar, umdæmisverkfræðingur á
Austurlandi, búsettur á Reyðarfirði.
Kona hans er Hallfríður Bjarnadóttir,
kennari.
Sigríður, ritari, gift Paul Newton,
verslunarmanni, búsett í Reykjavík.
Margrét, hjúkrunarfræðingur, gift
Árna Árnasyni, viðskiptafræðingi, bú-
sett í Kaupmannahöfn.
Guðbjörg, dýralæknir, nú starfandi í
Laugarási.
Þorsteinn, búfræðikandidat, nú í
Kaupmannahöfn.
Síðari kona Þorvarðar og eftirlifandi
er Magðalena Thoroddsen, Ólafs Thor-
oddsen, skipstjóra frá Vatnsdal.
Þau hjónin eiga tvær dætur:
Ólínu við nám í Háskóla íslands, gift
Sigurði Péturssyni frá ísafirði, háskóla-
nema.
Halldóra, guðfræðinemi, gift Sigur-
jóni Bjarnasyni, frá Hvoli í Ölfusi,
háskólanema.
Tvær dætur átti Þorvarður utan hjóna-
bands:
Dýrfinnu Sigríði, gift Garðari Einars-
syni, kjötiðnaðarmanni, Selfossi og Dag-
björtu Þyri, háskólanema, gift Guðna
Kristinssyni, lyfjafræðingi, búsett í
Reykjavík.
Þorvarður hefir átt miklu barnaláni að
fagna, öll eru börnin vel gefin og gegnir
þjóðfélagsþegnar.
Ég kynntist Þorvarði þegar í Mennta-
skólanum á Akureyri, vorum sambekk-
ingar, brautskráðir þaðan stúdentar vor-
ið 1938, en síðan samtímis í lagadeild
háskólans og lukum báðir lagaprófi vorið
1944.
Strax í menntaskóla varð Kjerulf, eins
og hann var ætíð nefndur af bekkjar-
félögum, mjög vinsæll.
Hann átti létt með nám, afburða
málsnjall og gamansamur, og því varð
hann fljótt vinsæll af öllum er honum
kynntust. Hann var hrókur alls fagnaðar
í bekknum.
Hann var óáreitinn, hreinlyndur og
vildi öllum vel. Fróður var hann með
afbrigðum um sögu Iandsins og ættfræði
var hans eftirlæti. Heyrt hefi ég fyrir
satt, að Árni heitinn Pálsson, sagnfræð-
ingur, er kynntist honum, hafi þótt
mikið til um sögufróðleik hans, ættfræði-
þekkingu, og hversu gjörhugull hann
var.
í háskóla var hann kosinn í stúdenta-
ráð, hinn fyrsti fulltrúi frjálslyndra, er
þá buðu fram í fyrsta sinn.
í starfi sínu í atvinnumálaráðuneytinu
féll honum vel að vinna að ýmsum
menningar- og framfaramálum landbún-
aðarins og þess er vert að geta að
Gunnar Bjarnason, áður skólastjóri á
Hólum ber honum gott orð í bók sinni
um samskipti hans við landbúnaðarráðu-
neytið.
Nokkru eftir að Þorvarður varð sýslu-
maður fór að bera á þeim sjúkdómi, er
leiddi hann til dauða.
Hann kvartaði þó aldrei, en sjúkdóm-
urinn ágerðist.
Því var það, að hann fékk leyfi frá
störfum fyrir þrem árum, nokkra mán-
uði, til að leita sér lækninga hér syðra,
en fór síðan og heimsótti börn sín, en
fjögur þeirra voru þá við nám erlendis í
Englandi og Danmörku.
Hann fékk nokkra hvíld og taldi sig
hafa fengið nokkurn bata og tók við
starfi sínu á ný.
Hjartasjúkdómurinn hélt þó áfram að
segja til sín og fyrir ári síðan fékk hann
alvarlegt áfall.
Eftir að hann af heilsufarsástæðum
hafði látið af starfi í vor og flutt suður
hugði hann gott til þess að njóta hvíldar
og gefa sig að sínum áhugamálum, lestur
sögu og ættfræði.
Hann hafði og áhuga á útivist, náttúru-
skoðun, átti lengi góða hesta, bæði hér
syðra og á ísafirði, og er hann hafði
fengið hest sinn að vestan í sumar fór
hann í ferðalög á hestum með bróður
sínum Jóni, og naut þess vel.
Þann 31. f.m. fór Þorvarður meðkonu
sinni, Magðalenu í ökuferð í Kollafjörð,
til náttúruskoðunar, en veður var þá
mjög gott, sól og hlýindi, fyrsti sumar-
dagurinn er sumir nefndu, eftir þetta
eftirminnilega rigningarsumar.
Þau hjónin óku upp fyrir Velli á
Kjalarnesi, Þorvarður gekk nokkuð frá
■ Þórátti hafra tvo, öndvegisdýrmikil,
og þrjá kostgripi. Einn þeirra var hamar-
inn Mjölnir, en með honum hefur hann
margan haus lamið á bergrisum og
hrímþursum. Annan grip á hann bestan,
megingjarðir, og er hann spennir þeim
um sig, þá vex honum ásmegin að hálfu.
Hinn þriðji hlutur voru járnglófar.
Þeirra má hann ekki missa við hamars-
skaftið.
Víkjum fyrst að megingjörðunum.
Þór hefur verið sannfærður um kraftauk-
andi verkan þeirra - og trúin er máttug
eins og alkunnugt er.
í Gamla testamentinu er mönnum oft
sagt að gyrða lendar sínar er eitthvað
mikilvægt skyldi starfa.
Einu sinni var Þór ginntur, án kost-
gripanna, til jötuns í Geirröðargörðum,
en var varaður við á leiðinni og fékk
lánaðar megingjarðir og járngreipar.
Geirröður jötunn lét kalla Þór í höll sína
til leika. Þar voru eldar stórir eftir
endilangri höll og tók Geirröður með töng
járnsíu glóandi og kastar að Þór, en Þór
tók á móti með járngreipum og kastar
aftur. Hættulegur leikur hefur þetta
verið! Járnglófar og járngreipar hafa
e.t.v. verið eins konar stríðshanskar til
hlífðar höndunum, og oft er getið um
stríðshanska í frásögnum. Þeir voru
sannarlega staðreynd. Kunnugt er og
máltækið að kasta stríðshanska til ein-
hvers í ögrunar eða áskorunarskyni.
Hamar Þórs hefur kannski verið allur
úr járni, miklu betra vopn en steinham-
ar. Stríðshamar var lengi algengt vopn,
t.d. höfðu riddarar gjarnan einn eða tvo
hangandi við söðulbogann. Stríðshamar
var bæði notaður til höggs og honum
varpað að andstæðingnum. Högg af
honum gat m.a. beyglað brynjur og gert
bílnum til skoðunar, en þá kom kallið,
hann hneig niður og var þegar örendur.
Genginn er gegn og góður maður og
bið ég honum guðsblessunar og þakka
samfylgdina.
Ekkju hans, Magðalenu, börnum,
vandamönnum og ættingjum votta ég
dýpstu samúð.
Björn Ingvarsson.
t
Sú harmafregn barst út nú um nýliðin
mánaðamót að Þorvarður K. Þorsteins-
son, sem til skamms tíma var sýslumaður
í ísafjarðarsýslum og bæjarfógeti á
ísafirði, hefði orðið bráðkvaddur.
Þorvarður var ættaður af Austurlandi
og kominn af mjög þekktu fólki og
merku. Hann fæddist á Egilsstöðum á
Völlum og var elsta barn hjónanna
Þorsteins Jónssonar, sem tók við kaup-
félagsstjórn á Reyðarfirði árið sem Þor-
varður fæddist og gengdi því starfi í
meira en fjóra áratugi, og Sigríðar
Þorvarðardóttur Kjerúlf. Þorsteinn
kaupfélagsstjóri var_sonur Jóns stór-
bónda á Egilsstöðum Bergssonar og
konu hans Margrétar Pétursdóttur. Á
Egilsstöðum býr ennþá sú hin sama ætt,
eins og mörgum er kunnugt. Sigríður,
móðir Þorvarðar, var dóttir Þorvarðar
Kjerúlfs læknis og alþingismanns á
Ormarsstöðum í Fellum og seinni konu
hans Guðríðar Ólafsdóttur.
Þorvarður K. Þorsteinsson ólst upp á
Reyðarfirði hjá foreldrum sínum ásamt
yngri systkinum, Jóni, Þorgeiri og Mar-
gréti, en þau eru öll þjóðkunn. Ungur
var hann settur til mennta, og lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum á
Akureyri vorið 1938, og var hann í hópi
28 stúdenta frá skólanum það ár. Þor-
varður átti margar góðar minningar frá
Akureyrarárunum og minntist skóla-
systkina sinna þar með miklum hlýhug.
Hann bjó þar á Gömlu vistum, sem síðar
voru svo nefndar, uppi í skólahúsinu.
Leiðin lá nú til Reykjavíkur, og þar
settist hann í lagadeild Háskóla íslands
og lauk lögfræðiprófi árið 1944. Héraðs-
dómslögmaður varð hann árið 1950.
Mjög skömmu eftir að hann lauk laga-
■ Kastfleygur (bumerang)
þær ónothæfar.
Allt fyrrgreint um vopnabúnað Þórs
getur verið rétt. En ein náttúra hamars-
ins hefur lengi þótt alllygileg. Kom
hamarinn til Þórs aftur, er hann hafði
kastað honum - ?
{ Snorra-Eddu stendur m.a. um ham-
arinn Mjölni, að ef Þór kastaði honum
mundi hann „aldrei fljúga svo langt, að
eigi myndi hann sækja heim hönd“. Ætla
má að þetta eigi ekki við hamarinn
sjálfan, heldur hafi Þór einnig átt kast-
fleyg (boomerang), og þá verður frá-
sögnin næsta eðlileg og sönn.
Ástralíunegrar notuðu kastfleyg (bu-
merang) til veiða og bardaga þegar
prófinu varð hann fulltrúi í atvinnumála-
ráðuneytinu og síðar deildarstjóri í
landbúnaðarráðuneytinu. Árið 1973
breytti hann um umhverfi og gerðist
sýslumaður í ísafjarðarsýslum og bæjar-
fógeti á ísafirði. Því starfi gegndi hann í
áratug, og bjó hér í bænum með fjöl-
skyldu sinni að Hrannargötu 4, en þar
höfðu aðrir sýslumenn búið á undan
honum. Hinn 1. maí 1983 lét hann af
sýslumannsstörfunum, enda orðinn
fullra 65 ára að aldri og farinn að kenna
vanheilsu. Fluttist hann þá aftur til
Reykjavíkur, og settust þau hjónin á ný
að í íbúðsinni að Miklubraut 74 nú ívor.
Þorvarður var tvíkvæntur. Fyrri kona
hans var Anna Einarsdóttir, og voru
börn þcirra fimm, Einar, Sigríður,
Margrét, Guðbjörg og Þorsteinn. Anna
og Þorvarður slitu samvistir. Síðari konu
sinni, Magdalenu Thoroddsen frá
Vatnsdal í Rauðasandshreppi, kvæntist
Þorvarður í ársbyrjun 1958, og höfðu
þau því verið gift í rúman aldarfjórðung,
þegar hann andaðist. Þau áttu saman
tvær dætur, Ólínu og Halldóru. sem
báðar eru nú við nám í Háskóla íslands.
Utan hjónabanda sinna eignaðist Þor-
varður tvær dætur, Dýrfinnu Sigríði og
Dagbjörtu Þyri.
Undirritaður kynntist Þorvarði fyrst á
sýslumannsárum hans á ísafirði. Sem
yfirvald var hann mildur og mannlegur
og vildi gera gott úr sem allra flestu,
enda varð mörgum ísfirðingum hlýtt til
hans. Hann var mjög umtalsgóður og
vildi leggja gott til fólks. Hann þekkti
mjög marga og átti auðvelt með að
kynnast fólki. Þorvarður tók umtals-
verðan þátt í félagsmálum í kaupstaðn-
um, og starfaði m.a. talsvert í Framsókn-
arfélagi ísafjarðar.
Af bókum hafði Þorvarður mest dálæti
á Sturlungu og var sífellt að blaða í
henni, enda kunni hann hana að miklu
leyti utan að. Hann var yfirleitt óvenju-
lega ætt- og persónufróður og hafsjór af
fróðleik á því sviði. Ættfræðibækurvoru
honum mjög að skapi, svo og rit um
íslenska staðfræði, enda var hann ákaf-
lega staðkunnugur víða um land.
Þorvarður hafði mikinn áhuga á land-
búnaði og þó einkum á hestum. Má
raunar fullyrða að hestamennskan hafi
Evrópumenn komu til landsins-ognota
hann jafnvel enn. Fyrr á öldum var þetta
undursamlega tæki notað víðar um
heiminn, t.d. á Indlandi og víðar í Asíu.
Einnig meðal Indíána í Ameríku - og í
Evrópu fyrir óra löngu. Kastfleygur
hefur fundist í jörð í Danmörku (Brab-
rand í Jótlandi). Og sérstök gerð kast-
fleyga kemur aftur ef hann hittir ekki
markið, sé honum réttilega kastað.
En hvaðerkastfleygur (bumerang)?
Þetta er stafur, venjulega íbjúgur, en
gat verið sigðlaga. Önnur hliðin flöt en
hin (í kastinu sú efri eða vinstri) dálítið
hvelfd. Greinarnarekkieins, þ.e. snúnar
mismunandi, (sjá mynd).
verið hans hclsta áhugamál og tóm-
stundagaman. Ætíð átti hann fáeina
hesta, sem hann hugsaði vel um. Ef hann
hcfði ekki gengið menntaveginn hefði
hann ugglaust sómt sér vel sem gildur
bóndi. líkt og afi hans á Egilsstöðum.
Að frátöldum æsku- og skólaárum á
Reyðarfirði og Akureyri hafa ísafjarðar-
árin sennilega verið bestu ár Þorvarðar.
Börn hans voru þá að mestu uppkomin
og fjárhagurinn heldur rýmri en áður.
Hann gat því leyft sér að halda uppi
mikilli og ágætri risnu, en slíkt var
honum mjög að skapi. í þeim efnum
munaöi mjög um Magdalenu konu hans,
scm er ekki aðeins fádæma góð húsmóðir
og einkar gestrisin að eðlisfari, heldur
einnig prýðilega orðsnjöll, enda hafði hún
í allmörg ár verið blaðamaður í Rcykja-
vík. I samciningu voru þau óvcnju
skemmtilegir gestgjafar og góðir vinir
vina sinna.
Hin síðustu ár hafði Þorvaröur kennt
nokkurrar vanhcilsu, en þó kom snögg-
legt fráfall hans flestum á óvart. Vinir
hans og ættingjar munu sakna hans
mjög. Mcstur harmur cr þó kveðinn að
konu hans og börnum. Þcim eru hér með
scndar innilegar samúðarkveðjur frá
ísafirði.
Kastfleygur var gerður úr hörðum,
þungum við víðast hvar. I lndlandi
stundum úr fílabeini. Venjulega var
kastfleygur 5-6 sm breiður, 7-10 mm
þykkur og lengdin 50-80 sm. Mikla
æfingu og lag þarf til að kasta honum að
gagni. Á fluginu snýst hann um þyng-
darpunkt sinn, flýgur upp á við og í
sveig, kemur aftur ef hann hittir ekki.
í orustu gat hann verið skeinuhættur
vegna snúningsins, komið á hlið við
skjöld, sem menn báru fyrir sér, eða
jafnvel komið aftan að! Á jörð getur
hann endastungist með miklum hraða
áður cn hann hefur sig á loft. Ef kastað
er Iárétt eða niður á við sveiflast hann
allhátt upp, jafnvel 50 fet. Egyptar fornu
notuðu kastfleyg til fuglaveiða. Kunnur
var hann einnig með Grikkjum og Róm-
verjum.
Nú er kastfleygur sportgripur og
spreyta allmargir sig á honum.
Athugasemd við Byggt og búið - 371
Prentvillupúkinn brá sér á leik í
þættinum „Margt geyma dönsku mýr-
arnar“ 25,ágúst. Sagt var að fundist hafi
yfir hundrað vel varðveitt lík, en hann
bætti því við, að þau hefðu verið í
hrúgum - og mörg hundruð.
Valla-Ljótur gekk í brúnum kyrtli, -
ekki hatti;
En fundist hafa beinagrindur margar
saman eftir orrustu, t.d. ein riddarasveit
á Jótlandi og hópur bænda á Gotlandi.
Örvaroddar sýndu, að bændurnir höfðu
verið skotnir niður. Menn hugleiða á
hinn bóginn hvernig bændur og borgarar
hafa getað ráðið niðurlögum vel vopn-
aðrar sveitar með hesta, brynjur og
önnur góð vopn.
Björn Teitsson.
Byggt og búið T gamla daga — 372 ^"illllngólfur Pavlðsson:
Átti Ása-Þór kastfleyg (bumerang)?