Tíminn - 06.10.1983, Síða 3
„DATT EKKi I HUG AÐ VESR-
ID GÆTI ORÐIÐ SVONA VONT’
segir einn þremenninganna sem lentu í hrakningunum í Loðmundarfirdi um helgina
■ „Það var óneitanlega gott að fá
björgunarsveitarmennina til að fylgja
okkur til baka. Þá var svo vont skyggni
að við þurftum að ganga með símalínun-
um og rýna í næsta staur. Eg skal ekki
segja hvort við hefðum komist af eigin
rammleik til baka og við hefðum sjálf-
sagt getað drepið okkur í Kirkjuá sem
við þurftum að vaða yfir, því hún var
alltaf að vaxa“, sagði Sigurður Bragason
frá Grímsstöðum á Fjöllum, einn
menntaskólapiltanna sem lentu í hrakn-
ingum í Loðmundarfirði um helgina.
„Það var svo sannarlega gott að kom-
ast í húsið í Stakkahlíð því við vorum
orðnir ansi blautir og kaldir. Að vísu
gekk illa að þurrka fötin þarna inni, þar
sem loftið var svo rakt og kalt. Það er
olíukynding í húsinu, en við kunnum
ekki á hana og það var heilmikið stíma-
brak að fá hana til að loga. Við vorum
lengi að prófa okkur áfram. Það tókst
þó að lokum og eftir það vorum við t'
góðu yfirlæti. Þarna vareinnig matur, en
við vorum orðnir uppiskroppa með nest-
ið sem við höfðum með okkur.“
„Qkkur datt hreinlega ekki í hug að
veðrið gæti orðið svona vont", sagði
Sigurður þegar hann var spurður hvort
þessi ferð hefði ekki verið hættuspil.
„Þetta var nú eitt mesta vatnsveður sem
hefur komið hér lengi og síðan snjóaði á
heiðinni."
- GSH.
■ „Það er mjög sérstætt ef
settur embættismaður fær ekki
skipun, ef ekki koma fram kvart-
anir yfir störfum hans, og það
hafar ekki svo vitað sé verið
gerðar athugasemdir við em-
bættisfærslu Aslaugar Brynjólfs-
dóttur. Fari svo nú hlýtur það að
vera alvarlegt mál fyrir mjög
marga, t.d. kennara og aðra
embættismenn ríkisins. í annan
Kári Arnórsson skólastjóri Fossvogsskóla um fræðslustjóramálið:
„ÓAFSAKANLÍGT AB MÁLH)
SKIIU EKKIFRAGENGB”
stað þá virðist sem yfirvöld rugli
saman í þessu máli tveim at-
riðum, annars vegar skipun núv.
fræðslustjórans í Reykjavík í
embætti og hins vegar þeim
breytingum sem meirihluti borg-
arstjórnar hefur viljað gera á
skipan fræðslumála í Reykjavík,
þau telja að ekki sé hægt að
ganga frá ráðningu fræðslustjóra
Tónfestival
á Hótel Borg
■ í kvöld fimmtudaginn 6. október
verður haldið tónfestival á Hótel Borg.
Tápið verður ffá klukkan 22:00-01:00.
Ætlunin er að reyna að mynda þarna
séríslenska djöfullega stemmningu og
mun fólk grannt sem bústið, ungt sem
aldrað dansa við leik tónsveitanna,
Svart-hvíts draums, Vonbrigða og
Qtzji, Qtzji, Qtzji.
Komið, komið og bergið á kokkteil
gulblárra mannvera. Auk þess er hægt
að fá sér í gler, ef fólk kærir sig um.
■ Kári Arnórsson.
án þess að fyrst sé gengið frá
samkomulaginu. En hér er um
óskyid atriði að ræða sem ekki á
að blanda saman,“ sagði Kári
Arnórsson skólastjóri Fossvogs-
skóla í gær þegar Tíminn spurði
hann álits á þeirri stöðu sem upp
er komin í sambandi við stöðu
fræðslustjórans í Reykjavík og
greint var frá í blaðinu í gær.
„Ingvar Gíslason f.v. menntamálaráð-
herra hafnaði þessum samkomulags-
drögum eins og kunnugt er s.l., vor, en
borgarstjóra var engu að síður falið að
hrinda þeim í framkvæmd í samráði við
ráðuneytið. Ef svo mikið Iá við að
samkomulagsdrögunum væri hrint í
framkvæmd átti auðvitað að vinna að
því strax. En ekki er vitað til að
fræðsluráð hafi gengið eftir því við
menntamálaráðherra þá fjóra mánuði
sem hún hefur setið í starfi. Það er með
öllu óafsakanlegt að ekki skuli hafa
verið gengið frá skipum fræðslustjóra
áður en setningartímabil Áslaugar
Brynjólfsdóttur var liðið. Málið snertir
ekki aðeins það embætti heldur einnig
þá stöðu sem hún gegndi áður. Það má
gjarna koma fram að ég óskaði eftir því
í bréfi til fræðsluráðs s.l. vor að gengið
yrði frá stöðu yfirkennara við Foss-
vogsskóla, en Áslaug var í Ieyfi frá því
starfi. Þá var talið að ekki lægi á þar sem
Áslaug var settur fræðslustjóri til 1.
október. Ég ítrekaði þetta í samtali við
starfsmann fræðsluráðs 15. ágústs.l.. En
ekkert var aðhafst og það kemur sér
mjög illa, þar sem þetta hefur keðj uverk-
andi áhrif inn í skólastarfið.
En það sem ég tel alvarlegast í þessu
máli er þessi framkoma gagnvart á-
kveðnum embættismanni. Hvað sem
mönnum kann að finnast um ráðningu
Áslaugar Brynjólfsdóttur, sem menn
geta að hluta kallað pólitíska ef þeir
kjósa svo, þá véfengir enginn rétt ráð-
herrans til að setja hana í starf. Og hún
hefur gengt því án þess að að væri
fundið.
Ég tel að þá lágmarkskröfu verði að
gera til ráðuneytisins að viðkomandi
embættismaður fái greidd laun þar til
gengið hefur verið frá stöðu hans,“ sagði
Kári Arnórsson skólastjóri að lokum.
- JGK.
Björgunarsveit-
armennirnir
af Héraði:
Voru átta
og hálfan
tíma á
leiðinni
— sem venju-
lega tekur 3-4
klukkutíma
■ Þrír menn úr Björgunarsveit
Fljótsdalshéraðs voru átta og hálfan
klukkutíma yfir Hjálmárdalshciði milli
Seyðisfjarðar og Loðmundarljarðar á
ntánudag, en þangaö fnru þeir til að
sækja þrjá menntaskólapilta sem urðu
veðurtepptir í Stakkahlíð í Loðmund-
aríirði. I góðu færi er þessi leið gengin
á 3-4 tímurn, en sökum ófærðar gekk
feröin svona seint. Hópurínn kont til
baka með piltana á þriðjudagskvöld og
þá tók feröin sjö og hálfan tíma.
Að sögn Baldurs Pálssonar björgun-
arsveitarmanns ú Egilsstöðum fóru
piltarnir gangandi frá Scyðisfiröi til
Loðmundarfjarðar á föstudagskvöld.
Þá lentu þcir í ausandi rigningu og
voru því mjög blautir þegar þeir komu
til Stakkahlíðar. Stakkahlíð er haldið
vel við þó ekki sé búið þar, og piltarnir
létu vita gegnum síma að þeir ætluöu
að láta fyrirberast þar á laugardag til
aö þurrka föt sín.
Piltarnir lögðu síðan aftur af stað á
sunnudag, en hrepptu þá vont veður
með rigningu og snjókomu þegar ofár
dró. Einnig var skyggni rrijög slæmt.
Þeir sncru síðan viö aftur þegar þcir
sáu fram á að þeir kæmgst aldrei yfir
heiðina í björtu og létu aftur vita af sér
til Scyðisfjarðar.
Morguninn eftir var hringt í Stakka-
hlfð, en piltarnir sváfu og heyrðu ekki
í srmanum. Þá föru björgunarsveitar-
menn af stað með hlífðarföt og mat
handa piltunum. Eins og áður sagði
var færðin ntjög slæm og það tök
mennina þrjá tíma að komast upp á
heiðina, en hún er |50 metra há.
Hópurinn lagði stöan af stað aftur á
þriðjudag og var komið til Selsstaða í
Seyðisfirði um kl. 19.00. Engum hcfur
orðið meint af volkinu.
- GSH.
i i
TREtSIUW TWGGJUiyi
LYORÆOI SWININCSRETf
SKRIFUM UNDIR!
Grétar Jónsson, Jón Kjartansson, Pétur Sigurösson, Sigfinnur Karlsson,
Sigrún D. Elíasdóttir, Þóra Hjaltadóttir.