Tíminn - 16.10.1983, Side 2
SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER 1983
2
eldhúskrókurinn
umsjón: Agnes Bragadóttir
■ „Það má segja að reynsla mín af því
að matreiða austurlenska rétti, svo til
daglega í 9 ár, geri það'að verkum að ég
er hingað kominn og stend fyrir elda-
mennskunni á Filippseyskum dögum,"
segir Filippseyingurinn Ning De Jesus,
þegar ég hitti hann að máli í eldhúsi
Hótel Loftleiða, þar sem hann stendur
og matbýr ljúffenga þjóðarrétti heima-
lands síns. Ning er Reykvíkingum að
góðu kunnur, því hann hefur um árarað-
ir rekið verslunipa Manila, sem hann
hefur reyndar selt núna, og snúið sér að
því að selja baunaspírur og kínverskar
vorrúllur um land allt. Ning hefur einnig
staðið fyrir matreiðslunámskeiðum á
filippseyskum mat.
Ég spyr Ning hvar hann hafi lært að
matreiða þjóðarrétti heimalands síns:
„Ég hef aldrei lært matreiðslu, a.m.k.
ekki í skóla, en reynslan hefur verið
minn skóli. Á meðan ég bjó ennþá á
Filippseyjum í Manila, þá vann ég við
hótelbransann, og á hóteli sem ég vann
mikið á, Hótel Sheraton lærði ég talsvért
um austurlenska matargerðarlist, auk
þe’ss sem ég kynnti mér alla bestu
veitingastaðina í Manila. Pað má víst
segja um mig að ég elski mat og ég hef
víst alltaf verið mikill sælkeri, þó að ég
beri það nú ekki beint utan á mér.
Nú, fyrir níu árum flutti ég hingað til
lands, og það má segja að það hafi verið
reiðarslag fyrir mig að uppgötva að
hérna væri ekki einn einasti austurlensk-
ur veitingastaður, og þcgar ég fór í
verslanir að kynna mér úrvalið, komst
Ning De Jesus hrærir i Súpu að hætti guðanna,
Timamynd—Arni Sæberg
Adobong Manok At Baboy Sa Gata
Hvað er nú það? Auðvitað þjóðarréttur Filippseyja
ég að raun um að úrvalið af austurlensku
kryddi, væri mjög svo takmarkað. Ég
settist því niður og skrifaði mömmu
minni og ég sagði: „Mamma, ég er
hræddur um að ég eigi eftir að verða
hungraður hér á þessu landi. Viltu vera
svo væn að senda mér eitthvað af
uppskrifum og eitthvað af kryddi.“ Þar
með hóf móðir mín að senda mér
uppskriftir, krydd og þess háttar, sem
gerði mér mögulegt að matreiða filipp-
eyskan mat."
- Það má því segja að þú, sem stendur
hér og stjórnar matreiðslunni í eldhúsi
Hótel Loftleiða, sért að mestu leyti
sjálflærður kokkur!
„Já, það má segja það, en á það er líka
að horfa, að við Austurlandabúarhöfum
tilfinninguna fyrir rétta bragðinu í tungu-
broddinum, ef svo má segja. Við getum
úrskurðað hvort rétta bragðið er af
matnum, eða hvort maturinn er yfir
höfuð góður, með því einu að lykta af
honum. Þetta er okkur einfaldlega í blóð
borið. Þegar við t.d. erum að elda og
lyktum af réttinum, þá geta flestir okkar
ákveðið hvað vantar með því einu, við
þurfum ekki einu sinni að smakka.“
- Ef þú þyrftir í örfáum orðum að lýsa
því hvað er einkennandi fyrir matargerð
heimalands þíns, hvað myndir þú segja?
„Filippseyskur matur er blanda af
kínverskum mat, spænskum mat og
arabískum mat. Við notum svo til sömu
krydd og þessar þjóðir, og ástæða þess
að ég nefni spænskan mat er sú, að við
vorum undir yfirráðum Spánverja í
fjögur hundruð ár, Kínverjar hafa verið
á meðal okkar frá ómunatíð, og þess-
vegna gætir kínverskra áhrifa mikið í
matreiðslu okkar, nú og við rekjum
okkar eigin uppruna að meira eða minna
leyti til Ai;aba. Það er því óhætt að
fullyrða að persónuleiki filipseyskrar
matargerðarlistar er margbrotinn."
Matseðillinn sem Ning De Jesus töfr-
aði fram á Filippseyjadögum var sam-
settur af fjórum réttum, Sabaw Ng
Bathala, sem útleggst á íslensku Súpa að
hætti guðanna, Ginisang Togue, sem
hiaut íslenska nafnið Steiktur grænmet-
isréttur Manila og Adobong Manok At
Baboy Sa Gata er nefnist á íslensku
Þjóðarréttur Filippseyja (grís og kjúk-
lingur) og Gulaman, sem er sjávarrétt-
arhlaup í kókósmjólk.
Eftir að hafa snætt þennan fjölbreytta
og Ijúffenga matseðil, fór ég fram á það
við Ning að hann gæfi lesendum Tímans
uppskriftir að þeim tveimur réttum sem
mér féllu best, en það var grænmetisrétt-
urinn Ginisang Togue og þjóðarréttur
Filippseyja, Adobong Manok At Baboy
Sa Gata. Ning varð fúslega við beiðni
minni og hér fara uppskriftirnar á eftir:
Ginisang Togue
(Steiktur grænmetis-
réttur Manila)
1 msk. matarolía
1 stk. laukur, skorinn í sneiðar
1 stk. hvítlaukur, pressaður
200 grömm hvítkál, skorið í sneiðar
1 msk. soyja sósa
174 bolli kjúklingasoð eða kraftur af
tening
2 stk. nýir tómatar, skornir í sneiðar
1/2 agúrka, skorin í 4 centimetra teninga,
langsum
1 rauð paprika skorin í sneiðar og þær
svo hlutaðar
500 grömm nýjar baunaspírur
200 grömm rækjur
Salt og pipar eftir smekk.
Steikið hvítlauk og lauk, bætið tó-
mötum á pönnuna, og steikið þar til
mjúkir. Setjið kálið á pönnuna og soyja-
sósuna yfir. Bætið -þessu næst agúrku-
bifum og papriku á pönnuna og steikið í
eina mínútu. Hellið kjúklingasoðinu yfir
og hrærið í grænmetisblöndunni. Setjið
þessu næst rækjurnar út í og blandið
þeim vel saman við grænmetið. Setjið að
lokum baunaspírurnar, salt og pipar á
pönnuna og steikið í aðrar tvær mínútur.
Athugið að steikja þennan rétt alls ekki
of lengi, og hann verður að berast fram
eins fljótt og hægt er að eldamennsku
lokinni. Uppskriftin passar handa 4 til 6
sem forréttur.
(Ning benti á að í þennan rétt mætti
einnig nota grænmeti eins og blómkál,
gulrætur, brokkáli og sellerí, en þessar
grænmetistegundir þyrftu allar lengri
steikingartíma en þær sem nefndar eru í
réttinum.)
Adobong Manok At
Baboy Sa Gata (Þjóðar-
réttur Filippseyja grís
og kjúklingur)
1 meðalstór kjúklingur, hlutaður niður
500 grömm svínakjöt, skorið í 5 senti-
metra langa teninga
6 hvítlauksrif
1/2 bolli edik (best að nota hrísgrjóna-
edik)
1/4 bolli soyasósa
1/2 bolli nautakjöts- eða kjúklingakraft-
ur
1 lárv iðarlauf
1 teskeið svört piparkorn, möluð
50 grömm kókoshneturjómi
Salt eftir smekk
Marinerið kjötið í hvítlauk, ediki,
soyasósu, pipar og larviðarlaufi í eina
klukkustund, eða svo og snúið kjötinu
öðru hvoru. Látið þessu næst koma upp
suðu á réttinum, látið sjóða við meðal-
hita, þar til lítið er eftir af vökva. Hellið
kjötkrafti út í réttinn, í smáskömmtum.
Setjið kókoshneturjómann út í og látið
sjóða, þar til svínakjötið er meyrt og
soðið.
Berið fram soðin hrísgrjón með þess-
um rétti, en uppskriftin hér að ofan er
hæfileg fyrir 4 til 6. (Ning bendir á að
þessi réttur bragðast enn betur ef hann
er útbúinn deginum áður og hann geym-
ist ágætlega í ísskáp.)
Eigum dréttarbeisli fyrir margar
gerðir bifreiða, t.d.:
Subaru árg. '81 — '83
Volvo árg. '81 — '83
Saab 99 árg. 78-'83
Suzuki Fox árg. '80—'83
Galant árg. 79—'83
Dráttarkúlur 50 mm.
Verð kr. 370,-.
íslensk framleiðsla.
Vönduð vara.
Verð frá kr. 3.400.
G.S. varahlutir
Hamarshöfða 1.
Sími 36510.
PRENTUM
PLASTPOKA
PLASTPOKA OG PRENTUN FÆRÐU HJÁ