Tíminn - 03.11.1983, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1983
■ Á tali.
Elli í bókarformi
frá Vöku fyrir jólin
■ Sú landsfræga persóna, Elli, mun fyrir
jólin birtast þjóðinni óvænt í bók frá bókaút-
gáfunni Vöku. Hingað til hefur hann einungis
verið til umræðu opinberlega í Útvarpinu,
nánar tiltekið í þættinum „Á tali“, sem þær
Edda Björgvinsdóttir og Helga Thorberg
hafa annast við fádæma vinsældir.
Þessi jólabók mun einfaldlega heita EUi í
höfuðið á aðalpersónu bókarinnar, en að
sjálfsögðu koma flest skyldmenni Ella og
vinir við sögu eins og í útvarpsþáttunum.
Þess má geta, að þátturinn „Á tali“ varð
hæstur að því er snertir hlustun í nýlegri
■ hlustendakönnun Ríkisútvarpsins og vin-
sældir hans, Ella og annarra, sem þar hafa
verið til umræðu, með eindæmum, enda telja
margir sig kannast við þær mannlífsmyndir
og persónur, sem þær Edda og Helga hafa
dregið upp. Svipað mun eflaust verða uppi á
teningnum í bók Vöku um Ella, en auk efnis
þeirra Helgu og Eddu, sem búið hefur verið
í nýstárlegt form til þess að henta þessum
nýja miðli, verða í bókinni teikningar eftir
Ragnheiði Kristjánsdóttur, sem samkvæmt
upplýsingum forlagsins gefa bókinni aukið
gildi.
Bók Vöku um Ella hefur verið í vinnslu
frá því snemma sumars, þótt hljótt hafi
tarið, en stefnt mun að því að hún komi á
markað um miðjan nóvember.
Afmælisrit
Matthíasar Jónassonar
■ Hinn kunni uppeldisfræðingur dr. Matt-
hías Jónasson, prófessor, varð áttræður fyrir
rösku ári og af því tilefni er nú komið út ritið
Athöfn og orð til heiðurs honum. Að útgáf-
unni standa: Háskóli íslands, Kennarahá-
skóli íslands, Kennarasamband íslands, Hið
íslenska kennarafélag, Sálfræðingafélag. ís-
lands og Skólarannsóknadeild menntamála-
ráðuneytisins, en þessi samtök og stofnanir
hafa lengi notið starfskrafta dr. Matthíasar.
Var afmælisbarninu afhent ritið í húsakynn-
um Háskólans hinn 13. okt. sfðastliðinn við
hátíðlega athöfn.
Athöfn og orð er 287 síður í stóru broti,
gefið út hjá Máli og mcnningu sem gefið
hefur út flestar bækur dr. Matthíasar. í ritinu
eru alls sautján greinar af fræða- og áhuga-
sviði Matthíasar eftir kunna fræðimenn, auk
skrár um rit hans eftir Einar Sigurðsson
háskólabókavörð. Um uppeldis-og skólamál
skrifa Andri ísaksson, Edvard Befring,
Gerður G. Óskarsdóttir, Hrólfur Kjartans-
son, Jónas Pálsson, Margrét Margeirsdóttir,
Ólafur J. Proppé, Sigmar Ólafsson, Sigríður
Þ. Valgeirsdóttir, Sigurjón Björnsson, Þór-
ólfur Þórlindsson og Þuríður J. Kristjánsdótt-
ir. Um sálarfræði skrifa Grétar Marinósson,
Kristinn Björnsson og Magnús Kristjánsson.
Sagnfræðilegar greinar skrifa Loftur Gutt-
ormsson og Lýður Björnsson. Grein um
málþroska barna eiga saman Indriði Gísla-
son, Randa Mulford og Ásgeir S. Björnsson.
Fremst í ritinu er greinin Athöfn og orð eftir
Brodda Jóhannesson um ævi og störf Matthí-
asar Jónassonar.
Ritstjóri verksins var Sigurjón Björnsson,
prófessor. Það er unnið að öllu leyti í
Prentsmiðjunni Odda hf.
BÍLAPERUR
ÓDYR GÆÐAVARA FRÁ
MIKIÐ ÚRVAL
ALLAR STÆRÐIR
HEILDSALA - SMÁSALA
[hIheklahf
L.HKEIV. 170 17? Sm ii 2 12 40