Tíminn - 22.11.1983, Page 5
ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1983
5
COODWYEAR
GEFUR ^RÉTTA GRIPÍÐ
PRISMA
Ríkisstjórn íslands:
Stjórn Kyprianous
ein lögmæt
■ Á fundi ríkisstjórnarinnar í gær-
morgun var Kýpurmálið á dagskrá. Taldi
ríkisstjórnin einhliða sjálfstæðisyfirlýs-
ingu tyrkneska þjóðarbrotsins á Kýpur
ganga í berhögg við samþykktir Samein-
uðu þjóðanna og tilraunir þeirra til að
finna lausn á sambúðarvandamálum á
Kýpur.
Ríkisstjórnin telur stjórn Kyprianous,
forseta, einu lögmætu stjórn lýðveldisins
Kýpur. _ bk
Kristmann
Gudmundsson
ríthöfundur
látinn
■ Kristmann Guðmundsson rithöf-
undur er látinn, 82 ára að aldri. Hann
var fæddur á Þverfelli í Lundareykjadal
23. október 1901. Hann stundaði nám
við Samvinnuskólann og síðar við Lýð-
háskóla í Noregi. Hann fluttist til Noregs
1924 og dvaldi þar að mestu óslitið fram
til ársins 1939, en auk þess dvaldi hann
um hríð í Kaupmannahöfn og Vínar-
borg. Fyrsta bók hans Ijóðabókin Rökk-
ursöngvar kom út í Reykjavík 1922, en
síðan gerðist hann rithöfundur í Noregi
og gaf þar út allmargar skáldsögur, sem
hann eða aðrir hafa síðan þýtt á íslensku.
Þeirra á meðal eru Morgunn lífsins,
Brúðarkjóllinn, Böm jarðar, Ármann og
Vildís, Ströndin blá og Gyðjan og uxinn.
Bækur Kristmanns hafa verið þýddar á
fjölmörg tungumál og telst hann með
víðlesnustu höfundum íslendinga.
Kristmann fluttist til íslands árið 1939
og bjó lengi framan af í Hveragerði.
Eftir heimkomuna skrifaði hann skáld-
sögur og þýddi nokkrar þeirra sem hann
hafði áður skrifað á norsku. Sjálfsævi-
saga hans í fjórum bindum á árunum
1959-1962. Heimsbókmenntasaga hans
kom út í tveimur bindum á árunum
1955-1956. Völuskrín, safn ljóða hans,
ritgerða og smásagna kom út 1961.
Hann þýddi nokkur verk úr erlendum
málum, s.a. Elskhugi Lady Chaterley
eftir Lawrence og Frú Mortu Oulie eftir
Sigrid Unset. f>á sneri hann Hel Sigurðar
Nordals á norsku. Er þá ógetið fjöl-
margra verka hans.
-JGK
SnWIIUN RÆKRIVEKIA BJARGAR 2
MIIUONUM ÞORSK- OG VSUSEHIA
■ Við síðustu könnun sem fram fór í
ísafjarðardjúpi veiddi rækjubáturinn,
sem kannaði svæðið að jafnaði um 2.500
þorsk- og ýsuseiði á rækjutonn. Vikuafl-
inn er 6 tonn af rækju, og veiddust því á
viku af einum bát að jafnaði um 15.000
þorsk- og ýsuseiði. 32 bátar granda þá á
viku tæplega hálfri milljón þorsk- og
ýsuseiða. Á þeim tæpum fjórum vikum
sem lokunin í raun gildir myndu bátamir
granda um 2 milljónum þorsk- og ýsu-
seiða. Sé gert ráð fyrir að helmingur
seiðanna sem veiðast nái 4 ára aldri.
Smásfld og smáloðna era í heldur meira
magni en þorsk og ýsuseiði, og ef gert er
ráð fyrir sömu forsendum, tapast um 4
þúsund tonn af þorski, ýsu, sfld og loðnu
samtals ef veiðar halda áfram næstu
fjórar vikur.
Þetta kom fram í svari Halldórs Ás-
grímssonar sjávarútvegsráðherra, er
hann svaraði fyrirspurn frá Karvel
Pálmasyni um hv'ort ekki hefði verið
eðlilegra að loka takmörkuðum svæðum
í Djúpinu fyrir rækjuveiðum en öllum
rækjumiðunum. Hann kvað það koma
mjög illa við sjómenn og þá sem stunda
rækjuvinnslu í landi að veiðarnar væru
með öllu stöðvaðar.
Sjávarútvegsráðherra sagði að eðli-
lega kæmi það sér illa fyrir þá sem stunda
rækjuveiðar að þær eru stöðvaðar, en
annars kostar væri ekki völ þar sem
seiðaganga í Djúpið er svo mikil sem
raun ber vitni. Svæðisbundin lokun kæmi
vart til greina þar sem seiðin ganga fram
og til baka um Djúpið og engin leið að
segja fyrir um hvar þau eru hverju sinni.
Hann tók það fram að ekki væri verið að
skerða kvóta rækjubátanna með þessu.
Um áramótin ganga seiðin úr Djúpinu ef
að vanda lætur en rækjan verður eftir og
þá verður hægt að veiða hana án þess að
drepa fiskseiðin.
Fiskifræðingar áætla að nú séu um 27
milljónir þorsk- og ýsuseiða í Djúpinu
og heldur meira af smásíld og smáloðnu
og hefur slík seiðamergð ekki verið í
ísafjarðardjúpi síðan haustið 1978.
Sagði Halldór Ásgrímsson að þetta
væri gleðilegur vottur um að klak þorsks
og ýsu hafi tekist bærilega s.l. vor, og
ekki væri verjandi að leyfa seiðadráp
eins og nú horfir. Taldi hann eðlilegt að
í framtíðinni hæfust rækjuveiðar í Djúpi
ekki fyrr en eftir áramót.
Garðar Sigurðsson sagðist styðja sjáv-
arútvegsráðherra enda teidi hann rangt
að leyfa veiðar á rækju og öðrum
sjávardýrum þegar mikið seiðadráp
fylgdi slíkum veiðum.
-OÓ
R-
- . 77C-
REYKJAVÍK:
Gúmmtvinnustofan, Skipholti 35
Otti Sæmundsson, Skipholtl, 5
Höfðadekk, sf, Tangarhöfða 15
Hjólbarðastöðin, Skeifunni 5
Hjólbarðahúsið, Skeifunni 11
Hjólbarðahöllin, Fellsmúla 24
AKRANES:
Hjólbarðaviðgerðin hf, Suðurgötu
Hjólbarðaþjónustan, Dalbraut 13
BORGARNES:
Kaupfélag Borgfirðinga
ÓLAFSVÍK:
Marls Gilsfjörð
Hermann Sigurðsson
BÚÐARDALUR:
Dalverk hf.
ÍSAFJÖRÐUR:
Hjólbarðaverkstæðið, Suðurgötu
BOLUNGARVÍK:
Vélsmiðja Bolungarvlkur
VÍÐIDALUR:
Vélaverkstæðið Vlðir
BLÖNDUÓS:
Bllaþjóni
VA
V.
ísi
41
SAUÐÁRKRÓKUR:
Kaupfélag Skagfiröinga
Vélsmiðjan Logi
HOFSÓS:
Bllaverkstæðið Pardus
DALVÍK:
Bllaverkstæði Dalvlkur
ÓLAFSFJÖRÐUR:
Bllaverkstæðið Múlatindur
SIGLUFJÖRÐUR:
Ragnar Guðmundsson
AKUREYRI:
Hjólbarðaþjónustan, Hvannarvöllum
Höldur sf, Tryggvagötu 14
HÚSAVÍK:
Vlkurbarðinn, Garðarsbr. 18 A
KELDUHVERFI:
Vélav. Har. Þórarinssonar, Kvistási
EGILSSTAÐIR;
Dagsverk sf.
Véltækni sf.
ESKIFJÖR
Bifrv.
14 B
kl ■•■‘L.'b 't'-v ~ '^-•3*1*2
STÖOVARFJÖRÐUR:
Sveinn Ingimundarson
HÖFN:
Dekkja- og smurþjónustan, Hafnarbr.
KIRKJUBÆJARKLAUSTUR:
Gunnar Valdimarsson
FLÚÐIR, HRUNAMANNAHREPPI
Viðgerðarverkstæðið, Varmalandi
HVOLSVÖLLUR:
Erlingur Ólafsson
SELFOSS:
Kaupfélag Árnesinga
VESTMANNAEYJAR:
Hjólbarðastofa v/Strandv.
ÞORLÁKSHÖFN:
Bifreiðaþjónustan
HVERAGERÐI:
BJarni Snæbjörnsson
GRINDAVÍK:
.arðaverkstæði Grindavlkur
.
Mélm- :?!
EKLAHF
i 170-172 Sími 21240