Tíminn - 29.11.1983, Blaðsíða 2

Tíminn - 29.11.1983, Blaðsíða 2
ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 1983 Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra, á Fiskiþingi í gær: SKIPHNG AFLflNS LEIÐI EKKI TIL LflNDSNLUTA-TOGSTREITU ■ „Afturkippurinn í sjávarútvcginum scm liófst 1982 hcfur haft víðtæk áhrif á cfnahagslífíð í landinu. Þær upplýsingar sem nú berast frá fiskifræðingum um ástand þorskstofnsins cru ógnvckjandi“ Þannig hóf Halldór Ásgrímsson sjávar- útvegsráðherra ávarp sitt við setningu 42. Fiskiþings í húsnæði Fiskifélags Islands þar sem þingið er haldið. Síðan sagði Halldór: „1 þjóðhagsáætl- un fyrir árið 1984 var gert ráð fyrir sömu aflabrögðum og á þcssu ári. Við þær aðstæður var áætlað að sjávarafurðir yrðu 77% af útflutningstekjum þjóðar- innar. Ef farið verður eftir tillögum fiskifræðinga um 100 þúsund tonna minni þorskafla á næsta ári þá þýðir það 15% samdrátt í sjávarafurðaframleiðsl- unni eða 2.300 milljónir kr. sem er um 10-11% samdráttur í hcildarútflutnings- framleiðslu þjóðarinnar. Þær ákvarðanir sem nú þarf að taka unt mótun fiskveiðistefnu fyrir næsta ár eru því viðkvæmar og erfiðar. Sérhver einstaklingur í þjóðfélaginu á hagsmuna að gæta. A þessu ári hafa kjörin rýrnað vegna minnkandi þjóðartekna, þannig að nú þykja þau nánast óbærileg. Ef við þurfum á næsta ári að búa við enn skertan hlut vegna minnkandi afla og minni þjóðartekna crum við komin í alvarlega stöðu. Því ber ekki að leyna að 100 þúsund tonna samdráttur í þorskafla scm ekki cr bættur upp með öðrum veiðum og annarri framleiðslu hlýtur að leiða til nokkurs atvinnuleysis .“ Síðan fjallaði ráðherra í máli sínu ýtarlcga um markaðsmál okkar á er- lcndum mörkuðunt og þá einkum á Bandaríkjamarkaði þar scm við eigum í harðri samkeppni við Kanadamenn og höfunt larið ntjög halloka. „Árið 1982 seldu Island og Kanada 84,4% af innflutningsmagni, en hlutur að það væri æskilegt að gera tilraun með kvótafyrirkomulag fyrir togarana á næsta ári. Mér er það ljóst að það er ýmsum annmörkum háð. Hins vegar myndi slíkt fyrirkomulag vera líklegt til að auka gæði afurðanna. Það er mikil- vægt að skipting aflans verði ekki til þess að auka togstreitu á milli einstakra landshluta. Við þurfum að koma okkur saman í landinu í heild. Kvótar á sérhvern landshluta gætu t.d. orðið til þess að auka togstreitu milli landshluta. Líklegt er, að atvinnuuppbyggingin í iðnaði verði misjöfn eftir landshlutum í framtíðinni og er þá eðlilegt að þeir landshlutar sem telja sig verða útundan í því sambandi myndu vilja fá aukna hlutdeild á fiskimiðunum. Það er hætt við, að slíkar deilur gætu orðið erfiðar viðfangs. Ég er ekki trúaður á að það sé auðveldara að koma sér saman innan einstakra landshluta en landinu í heild. Að undanfömu hefur mikið verið rætt um, að nauðsynlegt væri að fækka skipum á miðunum til þess að önnur hefðu betri rekstrargrundvöll. Þetta er vissulega rétt, er erfiðlega gengur að benda á þau skip sem helst ættu að stöðvast. Að sjálfsögðu hafa skip stöðvast vegna óhagkvæms reksturs og lélegrar fjár- hagslegrar afkomu. Sú hugmynd hefur komið upp að rétt væri að aðstoða aðila við að leggja skipum a.m.k. um stundar- sakir og því er eðlilegt að spurt sé hverja á að aðstoða til þess. Það er einnig sjálfsagt að það verði gengið úr skugga um hvort mögulegt sé að koma fiskiskipum okkar til veiða innan landhelgi annarra þjóða. Það virðast vera vissir möguleikar í banda- rískri lögsögu. Það tekur hins vegar langan tíma að koma slíkum samningum á og skipum til veiða og þess er ekki að vænta að veiðar gætu hafist þar nema með löngum undirbúningi. - FRI ■ Frá 42. Fiskiþingi. í ræðustól er Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra. Timamynd GF íslands hafði þá hrapað úr 50,7% 1979 í 26,1% af innflutningi 1982. Hlutur Kan- ada jókst frá 35,0% í 58,3% innflutnings á sama tíma. Magnhlutfall þessara tveggja ríkja hafði algerlega snúist við á 3 árum. Áætlað er að hlutdeild okkar verði 23,0% 1983 en Kanadamenn komnir í 63,0%. Þannig hefur ísland tapað magn- forystu sinni á Bandaríkjamarkaði og fær hana vart aftur .“ Ráðherra fjallaði nokkuð um orsakir þessarar þróunar og sagði m.a. að á þessu tímabili sem hér um ræðir hefði þorskafli íslendinga minnkað um 100 þúsund tonn á sama tíma og afli Kan- adamanna hefði aukist úr 430 þúsund tonnum í rúmlega 6(K) þúsund tonn á þessu ári. Ekki rétt að hef ja netaveiði fyrr en 15. feb. í máli ráðherrans kom fram að erfið- asta verkefnið sem nú lægi fyrir væri án efa að marka fiskveiðistefnu sem tryggir hámarks gæði afla og bærilega afkomu útgerðar og sjómanna. Fiskveiðistefnan þyrfti að taka mið af því að tryggja sem best heildarhagsmuni landsmanna. „Margvíslegir hagsmunaárekstrar koma fram þegar stjórn veiðanna er rædd. Milli landshluta, tegunda veiði- skipa, tegunda veiðafæra ots.frv. Ef við höfum það hinsvegar að leiðarljósi að auka gæðin eins mikið og kostur er og tryggja atvinnu sem flestra, gefur það margar vísbendihgar. Við vitum það t.d. að dragnót og lína skila betra hráefni en net. Þess vegna er sjálfsagt að draga úr netaveiðinni en auka línu- og dragnótar- veiðarnar þar sem því verður við komið. Þess vegna hef ég sagt að ekki væri rétt að hefja netaveiði fyrr en í fyrsta lagi 15. febrúar. Fiskveiðistefnan verður hins- vegar vart ákveðin fyrr en í lok ársins og mikilvægt að sem bestur fyrirvari sé um slíkt og að flestra dómi er skynsamlegt að stytta netavertíðina m.a. vegna þess að mikil óvissa ríkir um sölu á ufsa, bæði frystum og söltuðum." Kvótafyrirkomulag fyrir togara Undir lok ávarps síns sagði Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra svo: „Ég hef áður sagt sem mína skoðun. Sjávarútvegsráöherra svarar fyrirspurnum á Fiskiþingi um fækkun togara: „Það eru möguleikar á að leggja einhverjum skipanna” ■ „Samkvæmt áætlun Fiskifélagsins gæti hcildarafli landsmanna á þcssu árí orðið nánast sá sami og í fyrra, cða á hilinu 785-790 þúsund lestir, en Var 1982, 785.603 lestir. í áætluninni verður að sjálfsögðu að setja spurningarmerki við loðnuna. Viö áætlum hana 100 þúsund lestir, en var 13 þúsund lestir s.l. ár. Þorskaflinn mun trúlega minnka um liðlega 90 þúsund lestir, úr 382 í uni 290 þúsund lestir og ufsaaflinn nálægt 10 þúsund, úr 65 í um 55 þúsund lestir. Á öðrum tcgundum botnfíska munar litlu“, sagði Þorsteinn Gíslason físki- málastjóri m.a. í ávarpi sínu scm hann flutti við sctningu 42. Fiskiþings. í máli sínu fjallaði Þorsteinn almennt um stöðu útgerðarinnaren hún ervægast sagt dökk um þessar mundir. „Frá því við vorum saman fyrir ári „Heildarafli lands- manna gæti orðið sá sami í ár og ’82“ — sagði Þorsteinn Gíslason fiskimálastjóri ■ Þorsteinn Gíslason fískimálastjóri flytur ávarp sitt. Tímamynd GE. síðan hefur syrt hastarlega í álinn hjá íslenskri fiskiskipaútgerð og cnn erum við minnt á hve háð við erum svipulum sjávarafla og að vandi útgerðarinnar er vandi þjóðarinnar allrar. Rætur vanda sjávarútvegs eru marg- þættar, sumar óviðráðanlegar, aðrar heimatilbúnar. Þyngst vegur að sjálf- sögðu hin geigvænlega olíuverðshækkun undanfarinna ára, en þungt vegur að sjálfsögðu mesti bölvaldur aldarinnar, okkar heimatilbúna verðbólga og hcnnar fylgikvillar og kolvitlaust vísitölukerfi. Eignarstaða fyrirtækja hefur stór- versnað. Þetta er bein afleiðing af geng- isþróun og vaxtastefnu. Gengisfellingar og gengissig hafa verið framkvæmd til að fá fleiri krónur fyrir afurðirnar og aukið hraða vitleysunnar ógnvekjandi. Lánsfé er orðið dýrara og vandfengn- ara til fjárfestinga í sjávarútvegi hefur erlent lánsfé stóraukist. Þeir baggar sem við höfum bundið alltof mörgum fyrir- tækjum með þessum aðgerðum eru nú svo þungir að ekki verður risið undir nema með sameiginlegu átaki, eigi sjá- varútvegurinn að halda áfram að afla þjóðinni milli 75 og 80% gjaldeyristekj- anna.“ -FRI ■ Að loknu ávarpi Halldórs Ágríms- sonar sjávarútvcgsráðherra á Fiskiþingi var mönnum frjálst að beina fyrirspum- um til ráðherra og gerðu nokkrír það. Ingólfur Arnarson fulltrúi Fiskideidlar Reykjavíkur, Hafnarfjarðar og nágrenn- is spurði ráðhcrra hvort alvara væri á bak við það að stöðva ætti 30 togara og hvort ráðhcrra teldi að sú stöðvun ætti að vera á þéttbýlissvæðum. Sagði hann að á því svæði sem hann værí fulltrúi fyrir væru geröir út 31 togari, sem veitti 570 sjómönnum atvinnu og sköpuðu störf fyrir 1200 manns í fiskverkunar- stöðvum. Ingólfur vildi vita hvort ríkisstjórnin og alþingi hefðu fjallað um þetta mál og hvort ráðherrann teldi að þar væri víð- tæk samstaða um það annarsvegar og hinsvegar vildi hann spyrja um, að ef þessi togarafloti yrði stöðvaður, hvaða stuðningur kæmi þá á móti frá hinu opinbera. Halldór sagði að hann hefði hvergi látið hafa það eftir sér, að leggja ætti 30 togurum. Hann vildi hinsvegar að menn hugleiddu hvernig ætti að standa að því. „Ég er orðinn leiður á tali um að leggja skipum án þess að sagt sé hvar og hvernig. Hjá þessu verður ekki komist og þetta eru spurningar sem verður að svara. Mörgutn skipum verður ekki lagt en það eru möguleikar á að leggja einhverjum þeirra,“ sagði ráðherrann. ■ Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráð- herra svarar fyrirspurnum á Fiskiþingi. Tímamynd GE Marteinn Friðriksson, fulltrúi Fjórð- ungssambands fiskideilda á Norður- landi, beindi fyrirspurn til ráðherrá um það hver væri þeirra vilji í að hækka þorskmagnið fyrir árið 1984 frá þeirri tillögu sem Hafrannsóknarstofnun hefur sett fram. Einnig spurði hann ráðherra um hvaða veiðiskipulag hann hefði hugs- að sér til að ná settum markmiðum. Hvað varðaði fyrri spurninguna sagði Halldór, að ekki væri tímabært að svara henni nú, en stjórnin gerði sér grein fyrir mikilvægi málsins. Hvað seinni spuminguna varðaði, sagði ráðherann að hann hefði engan áhuga á að taka einn ákvörðun um það og mundi ekki gera slíkt. Ráðuneytið hefur í sjálfur sér ekki heimild til að setja kvóta, þannig væri t.d. vafasamt að það hefði heimild til að banna veiðar með flotvörpu eins og fram hefði komið í þessu sambandi. Það væri alþingis að fjalla um þetta mál og taka afstöðu. Aðrar fyrirspurnir voru t.d. um hvort ríkisstjórnin myndi aðstoða menn til að breyta skipum sínum til annarra veiða en á þorski og sagði ráðherann að erigar ákvarðanir hefðu verið teknar um það, eti hann teldi það koma til greina. Þá kom fyrirspurn um hvernig stjórn- völd hygðust leysa rekstrarvanda tog- ara. Halldór sagði í svari við þeirri fyrirspurn, að það væri spurning um að hve miklu Ieyti það væri hlutverk ríkis- valdsins að leysa vanda einstakra skipa. „Eina leiðin til að minnka vandann er að minnka kostnaðinn við sóknina og auka

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.