Tíminn - 29.11.1983, Side 5

Tíminn - 29.11.1983, Side 5
ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 1983 fréttir Sverrir Hermannsson idnadarráðherra um tillögur stjórnkerfisnefndar: ER HELDUR JAKVÆÐUR” ■ „Ég er heldur jákvæður í garð þess- ara tillagna stjornkerfisnefndarinnar," sagði Sverrir Hermannsson iðnaðarráð- herra er Tíntinn spurði hann hver afstaða hans væri til þeirra tiUaga sem stjóm- kerfisnefnd hefur gert um breytingar á lögum um Stjórnarráð íslands. Sverrir sagði jafnframt: „Mér sýnist margt horfa til bóta, en þó vil ég ekki dæma um ágæti tillögu eins og þeirrar að færa saman landbúnaðar- og sjávrút- vegsráðuneytin. Ég reyndar efast um ágæti þeirrar tillögu og bendi á að ekki er allt fengið með því að fækka ráðherr- um, því ekki þarf endilega að fylgja sparnaður í kjölfar þess.“ Sverrir sagðist telja að margar góðar tillögur væru gerðar þarna, svo sem tillagan um ráðherraritara, sem ættu að vera pólitískt ráðnir og fá meira valdsvið en aðstoðarmenn ráðherra hefðu nú. Auðvitað væri ekki ráð að leggja ráðun- eytisstjóra af, því einhver yrði að stjórna. Hér væri því fremur um það að ræða að embættisheitum yrði breytt, þannig að ef þetta nýja fyrirkomulag yrði tekið upp, þá yrði verksvið skrifstof- ustjóranna sennilega með svipuðum hætti og verksvið ráðuneytisstjóranna í dag. Sverrir sagðist telja tillöguna um að í hverju ráðuneyti verði sérstakur starfs- maður eða deild sem hafi með fjárlagatil- lögur að gera vera spor í rétta átt. Þá sagðist hann telja mikilvægt að embættis- mönnum yrði fækkað, æviráðning yrði afnumin og að hæfileg endurnýjun ætti sér stað með því að embættismenn flyttust á milli ráðuneyta. „Allt sýnist mér þetta vera í rétta átt svo og að Hagstofan verði utan við ráðuneytis- skipanir," sagði Sverrir jafnframt. Þá sagðist Sverrir ekki telja síður mikilvægt að ríkisendurskoðun færi und- ir Alþingi, þar og hvergi annars staðar ætti hún að vera. -AB Rætt við tvo fulltrúa fiskideilda á Suðurlandi á Fiskiþingi: „LEGGJUM HL AÐ ÞORSKAFUNN VERDI 280 MÍS. LESTIR” — og skiptist jafnt milli báta og togara Þeir Benedikt Thorarensen og Þorsteinn Jóhannesson. Tímamynd GE ■ „Ég er hræddur um að samdráttur- inn í aflamagninu hjá okkur sé veru- legur, miðað við tvö undanfarin ár, sérstaklega í þorskveiðum, ég hef að vísu ekki nákvæma töiu en tel að það nemi ekki undir 20%“ sagði Benedikt Thorarensen í samtali við Tímann er við ræddum við hann og Þorstein Jóhannes- son á Fiskiþingi en þeir eru fulltrúar fyrir Fjórðungssamband fiskideilda á Suður- landi. í máli þeirra kom fram að humarveið- ar hefðu gengið mjög vel í fjórðungnum á árinu, eða svipað og rækjuveiðar sem einnig hefðu verið góðar. Síldveiðar hefðu einnig gengið þokkalega en meira hefði verið af millisíld í aflanum en var í fyrra. Þeir sögðu að Fjórðungssamband myndi leggja til á þinginu að heildar- þorskaflinn á næsta ári yrði 280 þúsund lestir og að honum yrði skipt jafnt milli togara og báta. Hvað varðaði stöðuna almennt í fjórð- ungnum sögðu þeir að rekstrarskilyrði báta og togara hefðu verið misjöfn. Vegna raunvaxtastefnunnar hefðu þeir sem hefðu keypt eða átt ný tæki átt í miklum vandræðum og væri lausn þeirra vandamála ekki í sjónmáli nú. Þá sagði Þorsteinn að olíuskuldir sumra útgerðar- aðila á Suðurnesjum væru þeim óyfir- >fíganlegar en eins og fram kom í Tímanum nýverið þá nema þessar skuld- ir þegar á heildina er litið nú yfir 100 milljónum kr. „Ég get ekki séð að nokkur grundvöllur sé fyrir hendi í dag hvað varðar rekstur báta eða togara án þess að breytingar verði á lánskjörum okkar og raunvaxtastefnunni að við- bættum sölucrfiðleikunum" sagði Þor- steinn. Benedikt sagði að honum fyndist tillaga sjávarútvegsráðherra um að hefja ekki netaveiðar fyrr en 15. febrúar fullrótæk. „Ég vil heldur skipta á maí- dögum fyrir skammdegisdaga í janúar" sagði hann. -FRI Kortsnoj— Kasparov: ■ Kortsnoj valdi Katalónska byrjun í ijórðu einvígisskákinni, sem tefld var s.l. sunnudag. Kasparov hefur aldrei teflt þessa byrjun fyrr svo vitað sé, enda fékk hann heldur þrengra tafl í byrjun. Kortsnoj komst út í endatafl, sem var heldur betra fyrir hann, en Kasparov varðist af öryggi. Þegar skákin fór í bið eftir 41. leik Kortsnojs áttu keppendur hvor kóng, hrók og sex peð, og þó að staða Kortsnojs væri virkari, fann hann ekki vinningsleið. Jafntefli var því samið í gær án frekari taflmennsku. Nú er lokið þriðjungi einvígisins og hefur Kortsnoj vinningi meira. Honum hefur tekist að halda Kasparov niðri, svo að sá síðarnefndi hefur ekki fengið tækifæri til að sýna sóknarsnilld sína. Kasparov, sem í dag er stigahæsti skák- maður heims, verður að fara að snúa gangi mála sér í hag, ef hann ætlar að komast í einvígi við Karpov heimsmeist- 4. skákin Hvítt: Kortsnoj. Svart: Kasparov Katalónsk byrjun. 1. d4 d5 Kasparov finnst ekki enn kominn tími til að beita uppáhaldsbyrj- unum sínum, Ben-Oni og Kóngsind- verskri vörn. 2. c4 e6 3. Rf3 Rf6 4. g3-I skákinni kom upp Tarrasch-vörn eftir 4. Rc3c5. Nú ertefld rólegogörugg byrjun, sem nefnist Katalónsk byrjun. 4. - Be7 5. Bg2 0-0 6. 0-0 dc4 7. Dc2 a6 8. Dxc4 b5 9. Dc2 Bb7 10. Bd2 Be4 11. Dcl Rc6 12. Be3 Rb4 13. Rbd2 Bb7 14. Bg5 Hc8 Svartur undirbýr 15. - c5 til að losna við bakstæða peðið á c7 og angra drottningu hvíts á cl. 15. a3 Rbd5 16. Rb3 — Hvíti riddarinn hefur auga með tveim viðkvæmum reitum í herbúðum svarts, a5 og c5. 16. - h6 17. Ra5 Ba8 18. Rc6—Eftir 18. Bxf6 Bxf6 19. Rc6 De8 (eða jafnvel 19. - Dd6 20. Ra7 Hcd8 21. e4 Db6 með góðu spili fyrir svart) 20. Rce5 Be7 ásamt 21. — c5 og svartur stendur vel. 18. — Bxc6 19. Bxf6 Bb7 20. Bxe7 Dxe7 21. Dc5 - Svartur verður að koma í veg fyrir 21. - c5, en eftir 21. b4 gæti svartur leikið 21. - a5 22. bxa5 c5 með góðu spili. 21. — Dxc5 22. dxc5 Re7 23. a4 b4. Svartur má ekki leyfa opnun a-línunnar. 24. Rd4 — Til greina kom einnig 24. Re5 Bxg2 25. Kxg2 f6 ásamt 26. - Rc6 og hvítur kemst lítið áleiðis. 24. — Bxg2 25. Kxg2 Hfd8 26. Hfdl Hd5 27. Rc2 Hb8! Með þessum sterka leik valdar svartur peðið á b4, hótar að vinna hvíta peðið á c5 og hótar við tækifæri að leika b3. 28. Hxd5 Rxd5 29. Rd4 Re7 30. Hdl Kf8 Kasparov hættir ekki á riddaraendataflið eftir 30. - Hd8 ásamt 31. - e5, enda gæti svartur lent í vandræðum, þegar hvíti kóngurinn kemst til c4. 31. Rb3 Rc6 32. f4 — Ekki 32. Hd7 Hb7 ásamt 33. - Ke8 og hvíti hrókurinn verður að hörfa 32. — Ke7 33. Kf3 g6 34. Hd2 f6 Svartur getur ekkert gert annað en að bíða. 35. Ke4 f5t 36. Kd3 e5 37. e4 - Eftir 37. Kc4 Ke6 kemst hvítur ekkert áfram. 37. - Ke6 38. Ke3 exf4t 39. gxf4 g5 40. Rd4t — Þessi leikur einfaldar taflið enn frekar, en ekki er auðvelt að benda á betri leik fyrir hvít. 40. — Rxd4 41. Hxd4 — STOÐUMYND í þessari stöðu lék Kasparov biðleik. Staða Kortsnojs er virkari, en erfitt er að sjá, hvernig hann getur unnið þessa stöðu enda var jafntefli samið án frekari taflmennsku. Hugsanlegt framhald væri 41. -gxf4t 42. Kxf4 fxe4, en sumir telja 41. - a5 öruggasta leik svarts. Staðan: Kortsnoj 2V2 Kasparov IV2 Bragi Kristjánsson Sfldin bjarg- vættur Grind- víkinga ■ í Grindavík hefur verið mikil vinna nú í haust. Segja má að síldin hafi verið okkar bjargvættur það sem mikið af henni barst á land hjá okkur. Mikill meirihluti hefur farið í salt, en einnig nokkuð í frystingu. Alls hafa borist á land í kring um 9000 lestir, sem komið cr. Nokkrir bátar hafa verið á línu, netum og fiskitrolli, en mikil ördeyða hefur verið hjá þeim flestum. Miklar umræður hafa orðið manna á milli' vegna tillagna fiskifræðinga um há- marksþorskafla næsta ár. Alveg cr Ijóst að verði farið að tillögum þeirra þá verður mikill samdráttur á tekjum þeirra sem byggja sína afkomu alfarið á fiskveiðum en það eru allflestir íbúar Grindavíkur. Fullyrða má að ekkert sveitarfélag á Suöurnesjum byggi sína afkomu eins ntikið á fiskveiðum og Grindvíkingar. Rækjuveiðar hafa vcr- ið stundaðar i litlum mæli frá Grinda- vík en gjöful rækjumið virðast vera útfrá Reykjanesinu og má því telja eðlilegt að með minnkandi þorskafla ættum við að fá úthlutað verulegum skammti af rækju til þess að vega upp á móti samdrætti í þorskveiðum. Á þessu ári er ísfclag Grindavíkur að byggja myndarlegt hús á Hafnargarð- inum í Grindavík undir ísframleiðslu. Þeir sem standa aö byggingunni cru fiskframleiðendur, útgerðarmenn og Grindavíkurbær. Fyrirhugað er að hægt vcrði að afgreiða ís frá henni í byrjun næsta árs, og verður mikil bót fyrir útgerðarmenn og sjómenn því að mikinn hluta af ísnum hefur þurft að sækja til annarra byggðarlaga. Hefur hlotist mikill kostnaður af. Formaður fsfélags Grindavíkur er Eiríkur Tómas- son. Fyrsta loðnan barsl til Grindavíkur fyrir helgina. Þá kom Hrafn GK mcð 640 lestir. Gunnar/BK Landhelgin 12 mílur samkvæmt áfengis- lögum ■ Jón Hclgason hefur mælt fyrir frumvarpi um breytingu á áfengis- lögurn og felur í sér að breytt verði reglum um meðferð varnings í skipum og öðrum farkostum er til landsins koma, þannig að ekki verði skylt að innsigla tollskyldan varning, sem er umfram það sem hcimilt er að hafa til frjálsra afnota. Þá verður fellt úr gildi ákvæði ágengislaga um víðáttu landhelgi. Með breytingunni cr landhelgin samkvæmt áfengislögum 12 sjómílur frá grunn- línu. Frumvarpið er flutt til samræmis við ákvæði í frumvarpi um breytingu á lögum um tollheimtu og tolleftirlit. -OÓ Tónleikar Musica Nova í kvöld ■ Fyrstu tónleikar Musica Nova á þessum vetri verða í kvöld í Bústaða- kirkju kl. 20.30. Verða þar frumflutt fjögur ný tónverk eftir jafnmörg ís- lcnsk tónskáld, öll samin að beiðni flytjendanna. Flutt verða Dansardýrð- arinnar, fyrir gítar og fjögur hljóðfæri eftir Atla Heimi Svemsson, samið að beiðni Péturs Jónassonar gítarleikara, Hendur, fyrir strengjasveit eftir Pál P. Pálsson, samið að beiðni Nýju strengj- asveitarinnar, Ástarsöngur, fyrir barí- tónrödd og kammersveit, samið að beiðni John Speight barytónsöngvara og loks, Myndhvörf, fyrir málmblás- arasveit eftir Áskel Másson, samið að bciðni Þóris Þórissonar. -JGK

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.