Tíminn - 29.11.1983, Page 12
ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 1983
ENGIN NÝ BANKAÚTI
BÚ NÆSTU ÞRJÚ ÁR
— segir í samþykkt frá kjördaemisþingi Framsóknarmanna í Suðurlandskjördæmi
■ Kjördæmisþing fram-
sóknarmanna í Suður-
landskjördæmi var haldið
í Félagsheimilinu í Vest-
mannaeyjum dagana 19.-
20. nóvember. Um 60
manns sóttu þingið og er
það meiri fjöldi en verið
hefur undanfarin ár. Kon-
ur voru óvenju fjölmenn-
ar á þinginu. Mun allt að
þriðjungur þingfulltrúa
hafa verið konur. Svo
virðist sem samþykkt sú
sem framsóknarkonur
gerðu á landsþingi sínu á
Húsavík á dögunum og
mikið verið fjallað um í
fjölmiðlum, hafi haft víð-
tæk áhrif og konur flykk-
ist nú til starfa fyrir
flokkinn.
Guðni Ágústsson formaður kjör-
dæmissambandsins sctti þingið og flutti
skýrslu stjórnar. í skýrslu um kjör-
dæmisblaðið Þjóðólf kom fram að
töluverður hagnaður hefur verið á
blaðinu á s.l. ári og útlit fyrir hagnað á
þessu ári.
Jón Helgason landbúnaðarráðherra
og þingmaður kjördæmisins flutti
ávarp á þinginu og ræddi um stjórn-
málaviðhorfið. Hann rakti aðdraganda
myndunar núverandi ríkisstjórnar og
taldi að markmið þau sem stjórnin
setti sér hafi náðst, en þau voru fyrst
og frcmst að halda fullri atvinnu í
landinu, koma verðbólgunni niður,
halda genginu stöðugu og stöðva
skuldasöfnun erlendis. Jón sagði full-
yrðingar stjórnarandstöðunnar um, að
ríkisstjórnin hefði skert kjör almenn-
ings í landinu, vera hugsanaskekkju.
Ytri aðstæður settu þjóðarbúinu og
þar með fólkinu í landinu þessar
skorður.
Haukur Ingibergsson, framkvæmda-
stjóri flokksins flutti ávarp og ræddi
um flokksstarfið. Hann hvatti fram-
sóknarfólk til að líta inn á skrifstofu
flokksins.þegarþaðætti leiðíborgina.
Inga Þyrí Kjartansdóttir, starfsmað-
ur flokksskrifstofunnar flutti einnig
ávarp. Var það hvatningarávarp til
kvenna um að gefa kost á sér til
trúnaðarstarfa fyrir flokkinn, svo og
að taka virkan þátt í hinu almenna
flokksstarfi.
Helstu samþykktir þingsins voru
m.a. breytingar á lögunum sem stór-
auka tölu fulltrúa á kjördæmisþingum,
þannig að félög ungs fólks og fram-
sóknarkvenna fá sama rétt og almenn
flokksfélög.
Þá var samþykkt á þinginu að
prófkjör skuli fara fram fyrir næstu
Alþingiskosningar. Kosin var nefnd til
að semja prófkjörsreglur, sem leggja
skal fyrirstjómir félaganna í kjördæm-
inu og síðan leggja fullmótaðar fyrir
næsta kjördæmisþing.
Samþykkt var áskoran til þingmanna
Framsóknarflokksins, að nú þegar verði
stöðvuð fjölgun á bönkum og bankaút-
ibúum og gildi sú stöðvun í allt að þrjú
ár.
Þingið samþykkti að beina þeirri
áskorun til stjómvalda, að afnuminn
verði söluskattur af búvélum fram-
leiddum innanlands.
■ Fylgst með af athygli.
Hinn almenni flokksmadur
á stóru hlutverki að gegna
■ Kjördæmisþing framsóknarmanna
í Suðurlandskjördæmi 1983 telur að
öflugt flokksstarf sé stjórnmálaflokki
mikilvægt. Lifandi umræða og fjöl-
breytt starfsemi á sem flestum sviðum,
varðveita hugsjónir flokksins og
marka nýjar leiðir með breyttum
tímum. Hinn almenni flokksmaður á
stóru -hlutverki að gegna og verður
ávallt að gæta vöku sinnar. Mikilvægt
er að sem flestir einstaklingar taki þátt
í starfi stjórnmálaflokkanna sem eru
hornsteinar lýðræðisins, því er nú
mikilvægara en fyrr að Framsóknar-
flokkurinn kynni stefnu sína og stórefli
sitt innra starf. Kjördæmisþingið vill í
því sambandi benda á eftirfarandi:
Efla flokksstarf, íhuga fjölgun flokks-
félaga s.s. í öllum þorpum og á hinum
stærri svæðum, athuga má hvort allt
framsóknarfólk eigi ekki samleið í
sama félagi.
Störf flokksfélaga þarf að marka á
nýjan hátt þannig að tekið sé mið af
starfi hinna frjálsu félaga sem náð hafa
fjöldaþátttöku í sínu starfi.
Þingið telur mikilvægt að efla mál-
gögn flokksins. Dagblaðið Tíminn hef-
ur verið sverð ogskjöldur Framsóknar-
flokksins um áratugaskeið. Mikilvægt
er að þær breytingar sem nú standa
fyrir dyrum á Tímanum takist vel svo
blaðið styrkist fjárhagslega og geti af
meiri krafti hafið nýja sókn fyrir stefnu
Framsóknarflokksins og sókn umbóta-
aflanna í landinu. Þingið leggur
áherslu á að héraðsblaðið Þjóðólfur og
Framsóknarblaðið í Vestmannaeyj-
um, sem eru málgögn Framsóknar-
stefnunnar á Suðurlandi, verði efld og
stuðningsmenn flokksins auki skrif st'n
í blöðin. Þingið fagnar fyrirhuguðu
námskeiði til að þjálfa flokksmenn til
að skrifa blaðagreinar.
Flokksfélögin eru hvött til að auka
námskeiðahald og þjálfun félaganna
einnig telur þingið samkomuhald
mikilvægan lið s.s. árshátíðir, spila-
kvöld og kvöldvökur.
Þingið fagnar aukinni þátttöku
kvenna í þjóðmálabaráttunni og hvet-
ur þær til starfa í flokksfélögum Fram-
sóknarflokksins um allt land.
Stjórn KSFS verður nú þegar að
íhuga leiðir til að marka sambandinu
fastar tekjur svo hægt verði að auka
útbreiðslu og erindrekstur. Aðildarfé-
lögum sambandsins skulu þökkuð góð
störf á liðnu ári, ekki síst þáttur þeirra
í kosningabaráttunni.
Þingið telur að kjördæmissamband-
ið eigi að skipuleggja fundi í kjördæm-
inu á komandi vetri. Væri í því
sambandi hægt að hugsa sér laugar-
dagsfundi þar sem snæddur yrði hádeg-
isverður.
Þingmönnum flokksins í kjördæm-
inu eru þakkaðir svonefndir viðtals-
fundir sem nú eru fastir liðir á ári
hverju og hafa verið vel sóttir.
(Ályktun um flokksstarf)
■ Jón Helgason landbúnaðarráð- | Þórarinn Sigurjónsson alþingis-
berra. maður.
■ Guðni Ágústsson formaður kjör- ■ Haukur Ingibergsson fram-
dæmissambandsins. kvæmdastjóri.