Tíminn - 09.12.1983, Side 1
Dagskrá ríkisfjölmiðlanna næstu viku - Sjá bls. 17
FJÖLBREYTTARA
OG BETRA BLAÐ!
Föstudagur 9. desember 1983
286. tölublað - 67. árgangur
Siðumula 15 — Postholf 370 Reykjavík—Ritstjorn 86300—Augtýsingar 18300— Afgreiðsta og askrift 86300 — Kvöldsímar 86387 og 86306
615 nefndir störfuðu á vegum ríkisins í fyrra:
NEFNDARSTÖRFIN KOSTUÐII
UM 22 MIUJÓNIR KRÓNA!
— af 171 nefnd menntamálaráduneytis luku aðeins 18 störfum á árinu
■ Samtals störfuðu 615 nefndir
á vegum ríkisins á síðastliðnu
ári, og kostaði reksturinn á þeim
rúmar 22 milljónir króna, og í
þeim sátu 3152 menn. Lang-
stærstur hluti kostnaðar var
nefndarþóknun, en hún nam
18.2 miUjónum króna, en annar
kostnaður 4.13 milljónum
króna. Flestar nefndir störfuðu
á vegum menntamálaráðuneytis-
ins eða 171 talsins, en aðeins 18
þeirra luku starfi á árinu 1982.
Alls starfaði 891 maður í nefnd-
um á vegum menntamálaráðu-
neytisins, og var heildarkostnað-
ur af ncfndum þess ráðuneytis
rámar 2.5 milljónir króna.
Athvgli vekur að aðeins störf-
urðu 23 nefndir á vegum forsætis-
ráðuneytisins á síðastliðnu ári,
með samtals 118 nefndar-
mönnum, en heildarkostnaður
af þessum nefndarekstri er samt
sem áður rúmar 2.3 milljónir
króna, þannig að ekki munar
nema rúmum 200 þúsund krón-
um í kostnaði á 171 nefnd
menntamálaráðuneytisins og 23
nefndum forsætisráðuneytisins.
Þessar og tleiri upplýsingar
koma fram í skýrslu fjármála-
ráðuneytisins um sljórnir, nefnd-
ir og ráð á vegum ríkisins á sl. ári.
Þá kemur þar fram að nefnda-
rekstur á vegum heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytisins var dýr-
astur, þegar skipt er á milli
ráðuneyta, en samtals kostaði að
reka 61 nefnd með 311 nefndar-
mönnum rúmar 4.1 milljón
króna. Númertvö í nefndafjölda
var iðnaðarráðuneytið, með 73
nefndir, með 350 starfsmönnum,
og kostaði rekstur þeirra rúmar
2.7 milljónir króna. Rétt er að
geta þess að nefndir á vegum
iðnaðarráðuneytis, félagsmála-
ráðuneytis. fjármálaráðuneytis,
Hagstofu lslands og fjárlaga- og
hagsýslustofnunar kostuðu ekk-
ert í rekstri nema nefndaþóknun
en annar kostnaður við nefnda-
rekstur hjá öðrunt ráðuneytum
var frá því að vera óverulegur
upp í það að vera hærri en
nefndaþóknunin.
-AB
Rannsóknin á kærumáli
Skafta Jónssonar:
VAR EÐULEGAST.
AÐFELA SETUDOM-
ARA RANNSOKNINA?
— rætt viö Baldur Möller
■ „Ég held að það sé óheppi-
legt á þessu stigi að vera með
nokkrar lýsingar um hlut, þar
sem sönnunarstaðan er ekki orð-
in með neinum hætti ljós“, sagði
Baldur Möller, ráðuneytisstjóri
í dómsmálaráðuneytinu, er Tím-
inn ræddi við hann í gær um
fréttatilkynningu Rannsóknar-
lögreglunnar og annað upplýs-
ingastreymi um svonefnt
Skaftamál.
Baldur var spurður hvort hann
teldi eðlilegt að rannsókn þessa
máls hefði verið í höndum Rann-
sóknarlögreglu ri'kisin- undir
stjórn deild-jr^tióra. sem verið
hefur yfirmaður eins lögreglu-
mannanna sem kærður hafði verið
fyrir meint harðræði - hvort ekki
hefði verið eðlilegra að skipaður
yrði setudómari í málinu, og
rannsóknin þar með tekin úr
höndum Rannsóknarlögregl-
unnar: „Ég heyrði nú af því á
miðjum degi í dag, að lögreglu-
maðurinn hefði starfað undir
stjórn þessa deildarstjóra hjá
RLR og þótti nú lakara," sagði
Baldur, „þvíþetta hveturauðvif-
að til meiri aðgátar. En nú var
kært til Rannsóknarlögreglu-
stjóra, þannig að hann hefði þá
þurft að hafa eitthvert frum-
kvæði í málinu, annað hvort að
biðjast beinlínis undan, eða að
leggja það undir saksóknara.
Það er eitt af mörgu, sem
embættismaður eins og Rann-
sóknarlögreglustjóri á að skoða,
hvort hann telur rétt að fjalla um
mál.“
Sjá einnig bls. 3.
Fylgirit viö ríkisreikning:
134 MILUÓNIR
■ Ferða- og risnukostnaður
síðastliðins árs, samkvæmt fylgi-
riti ríkisreiknings fjármálaráðu-
neytisins fyrir árið 1982 var um
134 milljónir króna. Undir risnu
koma einkum útgjöld vegna mat-
ar- og kalfiveitinga og annarra
veitinga sem ríkisaðilar greiða
vegna gestaboða, eins og segir í
fylgiritinu.
Ferða- og risnukostnaður
utanríkisráðuneytisins var á sl.
ári rúmar 10 milljónir króna,
heilbrigðis- og tryggingaráðu-
neytisins rúmar 10 milljónir,
menntamálaráðuneytisins tæpar
11 milljónir, forsætisráðuneytis-
ins rúm milljón króna og
embættis forseta íslands um 1.5
milljón króna.
Risnukostnaður er mestur hjá
utanríkisráðuneytinu, af skiljan-
legum orsökum, en á sl. ári var
hann um 3.5 milljónir króna,
forsetaembættið var með um
hálfa milljón króna risnukostn-
að, Alþingi 931 þúsund krónur
og ríkisstjórnin rúm 400 þúsund
krónur. Hagstofa íslands var
engan risnukostnað með á sl.
ári.
-AB
■ í gær var þetta glæsilega jólatré reist á Austurvelli, en tréð er gjöf Oslóarborgar til Reykvíkinga.
Davíð Oddsson borgarstjóri mun kveikja á trénu við hátíðlega athöfn á sunnudaginn kí. Í5.30, og
ætti þá að birta til á Austurvelli því ekki færri en 1300 perur eru á trénu. Tímamynd Róbert
„NAUÐSYN-
LEGT ER AÐ
VIÐ NÝTUM ÞÁ
MÖGULEIKA
SEM VIÐ
HÖFUM”
■ „Ég held að nauðsynlegt
sé að við nýtum þá möguleika
sem við höfum á þessu sviði en
hinsvegar vitum við kannski
ekki enn nægilega mikið til að
ráðast út í stórframkvæmdir*',
sagði Jón Helgason landbún-
aðarráðherra í samtali við Tím-
ann er við forvitnuöumst um
sjónarmið hans um aukið lax-
eldi hér á landi en í Tímanum
nýlcga var greim frá frumáætl-
un sem gerð hefur verið á um
680 tonna fiskeldisstöð á
Kistu, Reykjanesi sem kynnt
var á Hótel Loftleiðum nýlega
fyrir fullu húsi gesta.
„Við erum sem óðast að
öðlast aukna reynslu á þessu
sviði og sjálfsagt er að nýta sér
hana og halda áfram eins og
kostur er“, sagði Jón Helga-
son.
í máli hans kom einnig fram
að hann teldi æskilegt að við
gerðum þetta sjálfir, en ekki í
samvinnu erlendra aðila. Að
öðru leyti var afstaða hans til
aukins laxeldis mjög jákvæð.
-Sjá bls. 5. -FRI
Albert og
tollstjóri
funda:
„MARGT
ÞEGARKOMID
ÍGANG”
— segir fjár-
málaráðherra
■ „Ég átti fund með tollstjór-
anum í morgun og við munum
halda áfram viðræðum á næst-
unni," sagði Albert Guð-
mundsson, fjármálaráðherra,
er hann var spurður um fund
hans með tollstjóra í gærmorg-
un.
Aðspurður um hvort ágrcin-
ingur væri milli hans og toll-
stjóra um hvaða endurskipu-
lagningu þyrfti að gcra á toll-
Stjóraembættinu og þeim toll-
afgreiðsluháttum sem þar
tíðkast, sagði fjármálaráð-
herra: „Nei, það er enginn
ágrciningur. Tollstjóri er þegar
buinn að láta framkvæma ýms-
ar af þeim breytingum, sem
átti að gera, þannig að margt af
því, sem ég bað hann um að
athuga, er þegar komið í
gang.“