Tíminn - 09.12.1983, Qupperneq 2
FÖSTÚDAGUR 9. DESEMBER 1983
Erlent lán til
flugstöðvarinnar
■ Stjórnarfrumvarp um lántöku er-
lendis vegna byggingar flugstöðvar á
Keflavíkurflugvelli hefur verið lagt fram.
Þar er farið fram á heimild til að taka allt
að 616 millj. kr. lán, eða sem svarar 22
millj. dullara. Þá er farið fram á að felld
verði niður eða endurgreidd aðflutnings-
gjöld, fímabundið vörugjald og sölu-
skattur af efni tækjum og búnaði til
framkvæmdanna.
Hlutur Islands vegna kostnaðar við
bygginguna er 22 millj. dollara á móti 20
millj. dollara framlagi Bandaríkjanna.
Greiðslur skiptast þannig að á næst ári
munu Bandaríkin greiða 67% af fram-
kvæmdakostnaði en Island 33%. Frá
ársbyrjun 1985 verður greiðsluhlutfall
Bandaríkjanna um það bil 60% af bygg-
ingarkostnaði. Gert er ráð fyrir að
hlutur íslendinga verði fjármagnaður á
byggingatímanum með lántökum er-
lendis. Árlegar lántökur eru áætlaðar
295 þúsund dollarar 1983, 2.9 millj.
dollarar 1984, 4.5 millj. dollarar 1985,
9.5 milljón dollarar árið 1986 og 4.7
millj. dollarar 1987.
Lántökuupphæð á hverju ári verði
tekin með hliðsjón af fjárfestingar- og
lánsfjáráætlun hverju sinni.
Niðurfelling aðflutningsgjalda o.fl. er
til þess gerð að fjármagn til flugstöðvar-
innar nýtist sem best og að liðka fyrir að
byggingin verði tilbúin á tilskyldum
tíma.
Húsnæðismálin á Alþingi:
Stefnt að hækkun
lána um áramót
■ Alexander Stefánsson félagsmála-
ráðherra mælti í gær fyrir frumvarpi um
Húsnæðismálastofnun ríkisins. I því
felast talsverðar breytingar á húsnæðis-
málalánkerflnu sem miða m.a. að því að
hækka lánin verulega og lengja iánstím-
ann.
Stefnt er að því að frumvarpið verði
samþykkt fyrir jólafrí þingmanna og að
lögin taki gildi um áramótin. Þá munu
öll lán hækka um 50%. Lán til þeirra
sem byggja í fyrsta sinn verða veitt fyrr
en nú er. Nýbyggingalán lengist úr 26
árum í 31 ár. Öll lán verða afborgunar-
laus fyrstu tvö árin og gjalddögum
húsnæðislána verðurfjölgað í fjóraáári.
Mörg nýmæli eru í frumvarpinu, svo
sem ák\ æði um byggingasamvinnufélög
með búseturétti og fleira.
Alexander sagði í framsöguræðu sinni
að ríkisstjórnin mundi standa viðýfirlýst
markmið um að hækka lánin í 80% af
byggingarkostnaði á næstu árum og að
lánstíminn yrði lengdur enn frekar.
Hann gat um fjáröflunarleiðir sem eru
í undirbúningi til að standa undir stór-
auknum húsnæðislánum, sumar þeirra
cru þegar ákveðnar eins og fram hefur
komið og verið er að athuga aðrar, sem
cnn er of snemmt að skýra frá.
Afgreiöslukössum fjölgað um
þriðjung í Miklagarði:
,EKKERT LÁT
HEFUR ORÐ-
IÐ Á ÖSINNI
FRÁ OPNUN’
— segir Jón Sigurdsson,
framkvæmdastjóri
■ „Það hafa myndast miklar biðraðir
við kassana hjá okkur, það er rétt, en
það stendur nú allt til böta, því við erum
að fara að setja upp flmm kassa í viðbót,
þannig að þeir verða 19 talsins,“ sagði
Jón Sigurðsson forstjóri Miklagarðs er
Tíminn spurði hann í gær hvort biðrað-
irnar við kassana í Miklagarði, væru ekki
til vandræða á stundum. Jón sagði að
geysilega mikið hefði verið að gera, frá
því að Mikligarður opnaði, en hann vildi
ekki upplýsa hver velta einnar viku væri,
ekki að svo stöddu. Hann sagði að
ekkert lát hefði orðið á ösinni, frá því að
Mikligarður hefði opnað, en upphaflega
hefði hann allt eins átt von á því að
örtröðin yrði mest fyrstu dagana á
meðan fólk væri að koma og skoða, en
raunin hefði hins vegar orðið sú, að
biðraðir væru við kassana alla daga.
Jón sagði er blaðamaður ræddi við
hann um þreytandi bið í biðröðum við
kassa. „Þó skaltu athuga það að það
tekur ekki nema tvær til þrjár mínútur
að koma hverjum viðskiptavin í gegnum
kassann, og þaðámesta annatimabilinu,
sl. föstudag, milli kl. 4 og 5, en þá fór
hálft sjötta hundrað viðskiptavina í
gegnum kassaafgreiðslu hjá okkur.“
Jón var spurður hvað væri hæft í því
að starfsfólk hefði einfaldlega verið flutt
sjúkt á brott, vegna vinnuálags og hann
einfaldlega skellihló þegar hann heyrði
spurninguna, en bætti svo við: „Ég hef
hcyrt að það hafi liðið yfir fólk í
biðröðunum, starfsfólkið liggi hér hist
og her vegna vinnuálags, en það sanna
er að ekkert slíkt hefur komið upp á.
Það er rétt, að það er mikið álag á
starfsfólkinu, en þetta er gott og duglegt
fólk og hér hefur enginn veikst vegna
vinnuálags."
Jón var spurður hvort ekki væri hætt
við því, að þegar Miklagarður væri
búinn að festa sig svolítið í sessi, þá
hækkaði vöruverð, og yrði þannigekkert
lægra en í öðrum stórmörkuðum: „Það
tel ég ekki vera, því mismunurinn á
okkar verslun og öðrum er sá, að okkar
verslun er hönnuð til þess að vera með
minni tilkostnað, auk þess sem við erurn.
með stærri innkuup en flestir aðrir,
þannig að við getum náð í mörgum
tilfellum hagstæðara innkaupsverði.
Þegar þetta hvorttveggja fer saman,
lægri tilkostnaður og hagstæðara vöru-
verð, þá hljótum við að geta verið með
lægri álagningu, og því munum við halda
áfrarn," sagði Jón.
MRF SKRIFLEGA TIL-
KVNNINGU TIL AB A-
BYRGMN FALLI NHNIR
■ Nú cru greiðslukortaviðskiptm
komin á fullt skrið og hafa tvö fyrirtæki
farið af stað; Kreditkort s/f, en eigend-
ur þess eru Útvegsbankinn, Verslunar-
bankinn og Kort h/f, og Vísa ísland,
en eigendur þess eru fimm bankar og
þrettán sparisjóðir víðs vegar af land-
inu.
Þegar skoðaðir eru samningar sem
fyrirtæki gera við korthafa vekur ýmis-
legt athygli. Ef þú týnir korti eða því
cr stolið af þér er ekki nóg að tilkynna
tapið tafarlaust í gegnum síma. Það
stendurskýrum stöfum í samningunum
að eigandi kortsins beri fulla ábyrgð á
úttektum þar til skrifleg tilkynning
hefur borist fyrirtækinu. Efíir þann
dag bcr korthafi ekki ábyrgð á mis-
notkun. Ekkert þakeráþessari ábyrgð
eiganda kortsins, eins og tíðkast er-
lendis. Þctta þýðir að ef korti er stolið
af þér þá gæti þjófurinn gengið niður
Laugarveginn og „kostað“ í hverri búð
og þó að þak sé á hverri úttekt þá geta
upphæðirnar orðið verulegar í heild
sinni, og eigandinn ber ábyrgð á öllu
saman þangað til daginn eftir að hann
hefur skilað inn skriflcgri skýrslu.
Einkum væri þetta alvarlegt í byrjun
helgar þar sem kreditkortafyrirtækin
hvorki taka á móti skeytum, né svara í
síma nema á almennum búðartíma.
Ábyrgðin er því samkvæmt samning-
unum á herðum eigandans þangað til á
þriðjudegi, daginn eftir að skrifleg
tilkynning berst, þess ber að gæta að
ábyrgð gæti legið hjá verslunarcig-
anda, s.b.r. viðtali við Einar S. Einars-
son hér til hliðar.
Þá vekur það athygli að búðarcig-
endur eru ekki skyldaðir til að krefjast
nafnskírteinis og gerir það ólögmæta
notkun kortsins auðveldari en ella.
Það er mjög slænit í Ijósi þess hve
afdrifaríkar afleiðingar stuldur getur
haft fyrir korthafa. Á kortunum er að
vísu undirskriftarsýnishorn, en engin
mynd.
Þá er óhætt að segja að 3ja grein c
liður í samningi VÍSA ÍSLANDS veki
athygli. Þar segir að korthafi sé ábyrg-
ur fyrir öllunt úttektum, sem kort hans
hefur verið notað til, enda þótt undir-
skrift hans vanti. Með örðum orðum:
Óheiðarlegur búðarþjónn getur sent
nótur á Pétur og Pál til Vísa ísland.
Með öðrum orðum gengið í hanka-
reikning korteiganda að vild.
Hérlendis er ekki hægi að írygeja sig
fyrir hugsanlegum skaöa. Hjá Al-
mennum Tryggingum og Samvinnu-
tryggingum voru menn sammála um
það að heimilistrygging myndi væntan-
lega ekki bæta annaö tjón en kortið
sjálft, væri þvi stolið á heimili manns.
Þó hefði ekki reynt á þessa túlkun.
Óiafur Björgvinsson hjá Almennum
Tryggingum sagði að þetta væri ekki
inn í tryggingunni hér. Það þekktist
hinsvegar erlendis t.d. í Englandi að
þetta væri inní heimilistryggingunni,
en þá þyrfti að biðja sérstaklcga um
það.
Menn sem blaðamaður ræddi við úr
„kerfinu" voru sammála um að þessi
atriði þyrftu skoðunar við. Þeir voru
sammála um að þcssi skilvrði væru
strangari en þau sem tíðkuðust erlend-
is. T.d. væri yfirlcitt þak á ábyrgð
eiganda erlendis, ef hann glatar korti
sínu og t.d. félli ábyrgð korthafa niður
um leið og hringt væri hjá Eurocard í
Damiiorku.
-“BK.
„Símtalid
dugir í
reynd,,
■ „í reynd hefur þetta verið þannig
hjá okkur að símtalið gildir þó að hitt
sé rétt að annað standi í samningnum“
sagði Gunnar Bæringsson hjá Euro-
card. „Sömuleiðis er hægt að senda
staðfest skeyti og það er tekið gilt, og
ef þú ert á ferð erlendis þá getur þú
gefið skriflega skýrslu um stuldinn í
næsta banka sem hcfur þessi við-
skipti“. Gunnar sagði það rétt vera að
ekki væri hægt að ná í fyrirtækið nema
á búðartíma og því gæti verið bagalegt
að týna kortinu um helgar. Hann
staðfesti að ekkert þak væri á ábyrgð
eigenda korts, ef illa færi. - BK.
KREDITKORT
KREDITKORT
VELKOMIN
VELKOMIN
Samvii
nnubankinn
1/JCa
1
„Abyrgðin gæti legið
hjá söluaðilanum”
— segir Einar S. Einarsson, framkvæmdastjóri
Vísa ísland
■ „Mér þykir þú gera allt of mikið úr
hugsanlegum þjófnaöi og ntisferli"
sagði Einar S. Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Vísa íslands, er blaða-
maður bar þetta mál undir hann.
„Maður sent að týnir korti sínu eða því
■ Þórður ólafsson hjá Bakaeftirlit-
inu sagðist hafa séð þessa samninga,
en hann vildi ekkert tjá sig um einstak-
ar greinar þeirra. Hann sagði „að ef
Bankaeftirlitið kæmist að þeirri niður-
stöðu að einstakar greinar í samning-
um fyrirtækjanna brytu í bága við
eðlilega viðskiptahætti þá myndi eftir-
litið telja sér skylt að gera viðkomandi
aðildarbönkum grein fyrir sjónarmið-
um sínum. Bankaeftirlitið telur ástæðu
til að skoða einstakar greinar nánar".
er srolið frá honum, það er nú ekki þar
með sagt að þjófurinn komist langt
með það. geri hann það, þá cr það að
mikli...... ■ ábyrgð verslunareigand-
ans. Maðurinn verður að skrifa nafnið
sitt við og verslunareigandinn á að
bætti Þórður við.
Þórður sagði ennfremur að fuil á-
stæða væri til þess aðsetja starfssemi
kreditkortafyrirtækja ákveðinn ramma
í formi löggjafar og sama gilti um
önnur fyrirtæki sem væru með fjár-
mögnunarstarfssemi, verðbréfaversl-
un, ávöxtun fjár o.þ.h. Hagsmunir
almennings væru í engan hátt sams-
konar gagnvart þessum fyrirtækjum og
gagnvart innlánsstofnunum.
- BK.
ganga eftir því og ekki að afhenda
kortið fyrr en hann er búinn að sann-
færa sig um það sjálfur að undirskriftin
á nótunni sé sú sama og á kortinu.
Þetta kemur fram í samningi okkar við
söluaðila. Því fcr ekki illa, nema það
séu rithandarsnillingar á ferðinni. Svo
er þetta með tilkynningarskylduna.
Þetta er nú ekki framkvæmt svona
stíft. Það er nóg að láta vita símieiðis,
engu að síður verða menn að staðfesta
þetta með bréfi.“ Einar gat þess að ef
menn týndu korti í útlöndum þá nægði
að tilkynna það næsta Vísa banka.
„Það er þó ekki hægt á nóttunni og
helgidögum eins og alltaf er í við-
skiptum,“ sagði Einar. „Það er ekkert
nýtt t.d. ef menn týndu ávísanahefti
sínu á dans!eik“. í sambandi við 3. lið
c, „ef undirskrift vantar", sagði Einar,
að þetta væri sett inn því að oft kæmi
það fyrir að menn gleymdu að skrifa
nafnið sitt. Kortið er aðalatriðið. En
séu þjófar á ferð og skrifi ekki nafnið
þá er ábyrgðin kaupmannsins“, sagði
Einar að lokum.
BK
Bankaeftirlitið um samningana:
„Ástæða til að skoða
einstaka greinar”
-AB