Tíminn - 09.12.1983, Side 3
FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1983
fréttir
Fréttatilkyrmingin umdeilda í kærumáli Skafta Jónssonar:
„ÉG ER NÖFUNDUR NENNAR
segir Hallvarður Einvardsson, rannsóknarlögreglustjóri ríkisins
77
The day after
ekki sýnd í sjón-
varpinu í bráð:
■ „Þessi fréttatilkynning er frá mér og
ég er höfundur hennar,“ sagöi Hallvarð-
ur Einvarösson, rannsóknarlögreglu-
stjóri ríkisins, er Tíminn spurði hann í
gær, hver hjá embætti hans væri höf-
undur fréttatilkynningar þeirrar, sem
embættið sendi frá sér til fjölmiðla í
svokölluðu Skaftamáli í fyrradag og birt
var í Tímanum í gær ásamt mótmælum
eins aðalvitnanna.
Hallvarður var spurður, hvers vegna
vitnisburði annarra en dyravarða, lög-
regluþjóna, Skafta, eiginkonu hans, og
vinkonu þeirra hjóna væri í engu getið í
fréttatilkynningunni, og sagði Hallvarð-
ur þá: „Ja, ég hef nú ekkert frekar fram
að færa í þessu máli á þessu stigi."
Blaðamaður spurði þá hvort eðlilegt
væri, að sá starfsmaður Rannsóknarlög-
reglu ríkisins, sem verið hafði yfirmaður
þess lögreglumanns, sem einkum var
kærður fyrir meint harðræði, er sá
starfaði hjá rannsóknarlögreglunni s.l.
sumar, hafi fengið rannsókn málsins til
meðferðar. Hallvarður svaraði: „Pað
var ákaflega eðlilegt að fela Arnari
Guðmundssyni deildarstjóra rannsókn
þessa máls og hann vann að þeirri
rannsókn og stjórnaði þeirri rannsókn
svo að til fyrirmyndar var."
- Vill rannsóknarlögreglustjóri útskýra
fyrir mér þann mismun, sem fram kemur
í fréttatilkynningu rannsóknarlögregl-
unnar og í yfirlýsingu vinkonu eiginkon-
unnar? Spurði blaðamaður. Hallvarður
svaraði: „Nei.“
Þá var Rannsóknarlögreglustjóri
spurður, hvort blaðamaður gæti fengið
leyfi til þess að skoða vitnisburð allra
þeirra, sem borið hefðu vitni í þessu
máli, og sagði hann þá: „Nei, ekki á
þessu stigi."
-Hver er þín skýring, Rannsóknarlög-
reglustjóri, spurði bláðamaður, en
Rannsóknarlögreglustjórinn greip þá
framm í fyrir honum og sagði: „Heyrðu,
ég er ekkert til yfirheyrslu hjá Tím-
anum.“
- Blaðamaður sagðist vita það ósköp
vel, en hann væri aðeins að spyrja
spuminga sem blaðamaður og svaraði
Rannsóknarlögreglustjóri þá: „Já, mér
heyrist það.“
Blaðamaður sagði: - ég vildi bara
spyrja, hvernig þú skýrir það... og enn
greip Rannsóknarlögreglustjóri framm í
fyrir blaðamanni og sagði: „Ég hef ekki
neinar frekari skýringar á þessu stigi
fram að færa.“
Blaðamaður spurði hvort hann mætti
ekki biðja Rannsóknarlögreglustjóra um
skýringar og svaraði hann þá: „Jú, þú
mátt það, en ég svara ekki frekari
fyrirspurnum af þessu tagi."
Þegar Rannsóknarlögreglustjóri var
spurður, hvers vegna vitnað væri í
framburð dyravarða og lögreglumanna í
fréttatilkynningu Rannsóknarlögreglu-
stjóra, sem um staðreyndir væri að ræða,
en þegar vitnisburðar Skafta væri getið,
væri sagt „Skafti heldur fram“, eða „því
er haldið fram“, þá sagði Rannsóknar-
lögreglustjóri, áðuren blaðamaðurhafði
lokið spurningu sinni: „Já, jæja, ég held
að ég ræði þetta ekki frekar, og vertu nú
sæl,“ og Rannsóknarlögrcglustjóri
skellti á. -AB
Kvikmynda
húsin hafa
forgang
■ „Það er rétt að sjónvarpið hefur
verið að reyna að fá þessa mynd til
sýningar og ég sendi telex til ABC
sjónvarpsstöðvarinnar í Bandaríkjunum
en fékk þau svör að þótt þetta væri
sjónvarpsmynd væri hugmyndin að
reyna að selja hana til kvikmyndahúsa í
Evrópu og þau hefðu forgang, sjón-
varpsstöðvarnar yrðu að bíða,“ sagði
Elínborg Stefánsdóttir dagskrárfulltrúi
hjá sjónvarpinu í samtali við Tímann í
gær. Myndin sem um er að ræða er The
day after, sem fjallar um afleiðingar
kjarnorkustyrjaldar og hefur vakið
mikla athygli, umtal og ugg í Bandaríkj-
ununi.
„Það er því Ijóst að þessi mynd verður
ckki sýnd hjá okkur á næstunni, en við
munum halda tilraunum okkar áfram,“
sagði Elínborg. -JGK
Olafur áritar
Ólafsbók
■ í dag, föstudag, áritar Ólafur Jó- 4-6.
hannesson, fv. ráðherra, ÓLAFSBÓK í Þeir sem þegar hafa eignast bókina,
Bókaverslun ísafoldar kl. 2-4, og í 8eta komið a fyrrgreinda staði með
Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar kl. bækur sínar lil Þess að fa >ær áritaðar.
Alltaí i skemmtilegum íélagsskap
Theresa Charles
Meö einhverjum öörum
Rósamunda hrökklaðist úr hlutverki „hinnar
konunnar", því það varð deginum ljósara að
Norrey mundi aldrei hvería írá hinni auðugu
eiginkonu sinni, - þrátt iyrir loíorð og fullyrðing-
ar um að hann biði aðeins eítir að íá skilnað.
Hversvegna ekki að byrja upp á nýtt með ein-
hverjum öðmm?
Else-Marie Nohr
Einmana
Lóna á von á barni með unga manninum, sem
hún elskar, og hún er yíir sig hamingjusöm. En
hún haíði ekki minnstu hugmynd um, að hinar
sérstöku aðstœður í sambandi við þungunina
haía stoínað lííi bœði hennar sjálírar og barns-
ins í hœttu. - Hugljúí og spennandi ástarsaga.
ELSE-MflHIE IVIOHR
CINMANA
. ErikNcrkv
ASTOG
BLEKKING
Erik Nerlöe
Ást og blekking
Súsanna var íoreldralaust stoínanabarn, sem
látin var í svokallaða heimilisumönnun hjá
stjúpíoreldrum Torbens. Með Torben og henni
takast ástir og hún verður óírísk. Þeim er stíað
sundur, en mörgum ámm seinna skildi hún að
hún heíur verið blekkt á ósvííinn hátt. Og það
versta var, að það var maðurinn, sem hún haíði
giízt, sem var svikarinn.
Else-Marie Nohr
Systir María
Nunnan unga var hin eina, sem möguleika
haíði á að bjarga ílugmanninum sœrða, sem
svo óvœnt haínaði í vörzlu systranna. En slíkt
björgunarstarí var lífshœttulegt. Yfir þeim, sem
veitti óvinunum aðstoð, vofði dauðadómur, -
og ílugmaðurinn ungi var úr óvinahernum. Æsi-
lega spennandi og íögur ástarsaga.
SVSTIR MARl A
Sartland
Segðu jjá.
Samantha
Barbara Cartland
Segðu já, Samantha
Samantha var ung og saklaus og gœdd sér-
stœðri fegurð og yndisþokka. Grœn augu henn-
ar virtust geyma alla leyndardóma veraldar.
Sjálí áttaði Samantha sig ekki á því fyrr en hún
hitti David Durham og varð ástíangin aí honum,
að hún var aðeins íáfróð og óreynd lítil stúlka,
en ekki sú líísreynda sýningarstúlka, sem mynd-
ir birtust af á síðum tízkublaðanna.
Eva Steen
Hann kom um nótt
Bella vaknar nótt eina og sér ókunnan mann
standa við rúmið með byssu í hendi. Maðurinn
er hœttulegur morðingi, sem er á ílótta undan
lögreglunni og œtlar að þvinga hana með sér
á ílóttanum. Hún hatar þennan mann, en á
nœstu sólarhringum verður hún vör nýrra og
hlýrri tilíinninga, þegar hún kynnist ungum syni
morðingjans.
EuoStcen
Hflnn Hom
um norr
SIGGE STARK
Engir karlmenn.
takk
Sigge Stark
Engir karlmenn, takk
í sveitarþorpinu var hlegið dátt að þeim, íurðu-
íuglunum sex, sem höíðu tekið Steinsvatnið á
leigu. Þœr hugðust reka þar búskap, án aðstoð-
ar hins sterka kyns, - ekki einn einasti karlmað-
ur átti að stíga íœti inn íyrir hliðið. - En Karl-
hataraklúbburinn fékk íljótlega ástœðu til að
sjá eítir þessari ákvörðun,
Sigge Stark
Kona án íortíðar
Var unga stúlkan í raun og vem minnislaus,
eða var hún að látast og vildi ekki muna íortíð
sína? Þessi íurðulega saga Com Bergö er saga
undarlegra atvika, umhyggju og ljúfsárrar ástar,
en jaíníramt kveljandi afbrýði, sársauka og níst-
andi ótta. En hún er einnig saga vonar, sem ást-
in ein elur.
ÁN FOR
KONA
KTIÐAR
Já, þœr eru spennandi ástarsögurnar írá Skuggsjá