Tíminn - 09.12.1983, Page 10
BIFREIMDEILD SAMBANDSINS
BÍLASALA HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 39810
GÆÐAEFTIRLIT MEÐ GÆÐAVORU
■ Bergsveinn Skúlason.
Bergsveinn Skúlason: Breiðfirskar sagn-
ir 1-2.
Víkurútgáfan 1982. Önnur útgáfa aukin.
284-276 bls.
Auglýsing
ÞÖRF
ENDUR-
ÚTGÁFA
ISUZU TROOPER
Díesel 640.000.- Uppseldur.
Bensín 587.000.- Nokkrum bílum
óráðstafað.
Missið ekki af lestinni, því eins og þið sjáið eru bílarnir að seljast upp.
■ Á árunum 1959-1966 sendi Berg-
sveinn Skúlason frá sér Breiðfirskar
sagnir í þrem bindum. Þær hlutu ágætar
viðtökur og hafa nú lengi verið ófáanleg-
ar. Á næstliðnu ári gaf Víkurútgáfan
ritin út öðru sinni, en nú nokkuð aukin
og í tveim bindum í stað þriggja.
Breiðfirskar sagnir Bergsveins Skúla-
sonar er safnrit margskyns fróðleiks úr
Breiðafirði. Hér ægir öllu saman, þjóð-
sögum. frásögnum af fólki, lýsingum á
horfnum atvinnu- og búskaparháttum,
kveðskap af ýmsu tagi, frásögnum af
eftirminnilegum atburðum, og svo mætti
áfram telja.
Enginn skyldi ganga þess dulinn, að
með ritverki þessu hefur Bergsveinn
Skúlason unnið þarft verk. Hann hefur
haldið til haga ýmsum gömlum fróðleik,
sem illa mátti glatast og á þann hátt lagt
sitt af mörkum til að auka þekkingu
okkar á fortíðinni. Verða bækur sem
þessar æ því mikilsverðari sem lengra
líður og sá fróðleikur spm þær hafa að
geyma fágætari.
Ekki vibég dæma um einstaka þætti í
OPEL KADETT
250.000.-
Uppseldur
OPEL ASCONA
359.000.-
Nokkrum bílum óráöstafað.
OPEL REKORD
Dísel frá 383.000.- Nokkrum
bílum óráðstafaö til atvinnubílstjóra.
Bensín frá 420.000.- Nokkrum bílum
óráðstafað.
ISUZU PICK UP
Dísel 373.000.- Uppseldur
Bensín 330.000,- Uppseldur
ISUZU WFR
430.000.- til atvinnubílstjóra.
Einum bíl óráðstafað. 540.000.-
Sitthvað úr útvarp-
inu og af vellinum
Vilhelm G. Kristinsson: Komiði sæl.
Vilhelm G. Kristinsson ræðir við Sigurð
Sigurðsson útvarpsmann um lífshlaup
hans og ævintýri.
Vaka 1983.
294 bls.
■ Sigurður Sigurðsson fyrrverandi
fréttamaður er án alls efa einhver vinsæl-
asti útvarpsmaður íslenskur. Hann var
einstakur íþróttamaður, sem hafði lag á
að lýsa jafnhvel hundleiðinlegum keppn-
um með þeim hætti, að þeir, sem ekki
sáu hvað var að gerast, en hlýddu aðeins
á útvarpslýsinguna urðu stórspenntir.
Þetta átti við um ýmislegt annað en
lýsingar á íþróttakappleikjum. Ég minn-
ist þess t.d., að þegar Sigurður var að
fjalla um skák, sem hann gerði stundum
á árum áður, gat hann gert hundleiðin-
legar jafnteflisskákir að geisispennandi
viðureignum, afleiki að snilld og vel-
þekkta „teóríu" að nýjungum, sem
öllum áttu að hafa komið á óvart.
Ekki veit ég hvað veldur þessu, en
Sigurður virtist oft hafa þann eiginleika,
að lifa sig svo inn í það sem hann var að
lýsa, að hann gleymdi bæði stund og
stað, varð fullgildur þátttakandi í
leiknum. Aldrei man ég þó til að hafa
heyrt hlutdrægni í lýsingum hans, miklu
frekar að hann ætti í erfiðleikum með að
berjast jafnt með báðum.
í þessari bók rifjar Sigurður upp eitt
og annað frá löngum starfsferli í útvarp-
inu. Hann bregður upp skemmtilegum
svipmyndum af lífi og starfi útvarps-
manna á fyrri árum er tækni var löngum
frumstæð og starfsaðstæður erfiðar. Að
því leyti er bókin nokkur heimild um
vaxtarsögu Ríkisútvarpsins.
Tilgangur bókarinnar mun þó alls
ekki hafa verið sá að segja sögu útvarps-
ins. Þetta er bók, sem virðist fyrst og
fremst vera sett saman í þeim tilgangi að
lífga upp á tilveruna í svartasta skamm-
deginu. Sigurður segir margar óborgan-
legar sögur af sjálfum sér og samferða-
mönnunum og sá maður hlýtur að vera
illa dauður, sem ekki getur hlegið inni-
lega við lestur hennar. Allt er þó
gamanið græskulaust og ætti engan að
geta móðgað nema einna helst Sigurð
sjálfan.
Skrásetjarinn, Vilhelm G. Kristins-
son, hefur unnið sitt verk vel. Hann
hefur gott lag á að fá sögumann til að
segja frá og ritar bókina á þægilegu og
lipru máli.
Sem sagt, bráðskemmtileg og læsileg
bók.
Jón Þ. Þór.
Siggi Sig.
KVÖLDGEST-
IR JÓNASAR
Kvöldgestir Jónasar Jónassonar. Guðni
Kolbeinsson bjó til prentunar.
Vaka 1983.
229 bls.
■ Á undanförnum árum hefur það
mjög færst í vöxt í ýmsum nágranna-
löndum okkar, að efni, sem orðið hefur
vinsælt í öðrum fjölmiðlum, sé gefið út
á bók svo sem til frekari varðveislu.
Þessi siður - góður eða vondur - hefur
nú einnig færst hingað tii lands.
Enginn skyldi draga í efa, að þáttur
Jónasar Jónassonar, Kvöldgestir, er eitt-
hvert vinsælasta útvarpsefni, sem flutt
hefur verið um langa hríð. Þátturinn
hefur stungið skemmtilega í stúf við allt
það glamur og hávaða, sem svo mjög
hefur færst í vöxt í bæði útvarpi og
sjónvarpi, fólk hefur ræðst þar við í
rólegheitum og hreinskilni, gestir hafa
sagt frá ýmsu sem á dagana hefur drifið
og Jónas haft einstök tök á að ljúka upp
jafnvel leyndustu sálarafkimum viðmæl-
enda sinna.
f þessari bók eru birtir átta valdir
þættir, sem gefa dágóða spegilmynd af
Kvöldgestunum. Viðmælendur Jónasar
eru þessir: Garðar Cortes og Manuela
Wiesler, Haukur H. Ingólfsson og Ómar
Ragnarsson, Róbert Arnfinnsson og
Stella Guðmundsdóttir, Ingólfur Guð-
brandsson, Kristján frá Djúpalæk og
Valgerður Bjarnadóttir, Hulda Á. Stef-
ánsdóttir og Snorri Ingimarsson, Helena
Eyjólfsdóttir og Sigurður Pétur
Björnsson, Guðrún Svava Svavarsdóttir
og sr. Gunnar Björnsson.
Ýmsir, þar á meðal Jónas sjálfur,
■ Jónas Jónasson.
munu hafa dregið í efa, að þetta efni ætti
erindi á bók, og víst má um það deila,
hvort útvarpsefni eigi yfirleitt erindi í
bækur. Því er þó ekki að leyna, að ég fæ
ekki betur séð, en að Kvöldgestirnir
njóti sín ágætlega í þessum nýja búningi.
Með einhverjum hætti hefur tekist að
flytja stemninguna yfir á ritmálið og allt
það, sem gestirnir höfðu frá að segja
kemst vitaskuld engu síður til skila í
þessu formi en hinu fyrra. Það er því
trúa mín, að margir fastir hlustendur
Jónasar eigi eftir að rifja upp skemmti-
legar minningar við lestur þessarar
bókar.
Jón Þ. Þór.