Tíminn - 09.12.1983, Síða 16
16
FOSTUDAGUR 9. DESEMBER 1983
heimilistíminn
( umsjón B.St. og K.L.
■ Hilda Torfadótlir er borinn og
barnfæddur Reykvíkingur. Samt hefur
það nú æxlast svo, að síðustu 12 árin
hefur hún verið búsett utan höfuðborg-
arinnar. Fyrst lá leiðin til Hveravalla,
en þar dvaldist hún, ásamt manni
sínum, Hauki Ágústssyni, í 1 ár við
veðurathuganir og annað. Síðan dvöld-
ust þau í Vopnafirði, þar sem Haukur
gegndi prestsskap og sat að Hofi í 8 ár.
Þaðan fluttust þau til Eiða, þar sem
Haukur var skólastjóri í 1 ár, og
síðustu tvö árin hafa þau verið búsett
á Laugum í Suður-Þingeyjarsýslu, þar
sem Haukur er skólastjóri.
Hilda er talkennari að mennt og
hefur stundað kennslustörf þar sem
hún hefur verið búsetl hverju sinni.
Auk kennslunnar er hún leiðbeinandi
í íslensku á Norðurlandi eystra, og þarf
því að fara milli skóla í umdæminu
reglulega.
Þau Hilda og Haukur eiga einn son,
Ágúst Torfa, sem er 9 ára.
Dagarnir í lífí mínu
eru ákaflega mismunandi
viðburðaríkir
Hvernig er hægt að skrifa um dag í
lífi sínu? Hvað er það, sem gerist á
venjulegum degi í lífi eins manns, sem
er þess virði, að það komi fyrir augu
annarra? Eitthvað mun það misjafnt
eftir því hver í hlut á og dagarnir í lífi
mínu eru ákaflega mismunandi við-
burðaríkir. Suma daga er ég heima hjá
mér í rólegheitum, sinni búi og barni
og eiginmanni, þegar hann getur gefið
sér tíma til þess að vera með fjölskyld-
unni. En trúlega er það ekki einn
þessara daga, sem ætlast er til að ég
greini hér frá. Föstudagarnir eru út-
varpsdagarnir mínir - þá ek ég til
Akureyrar og tek upp þættina mína -
það eru ekki heldur sérlega spennandi
undubekkingar en einhverjir verða
greinilega of seinir í dag.
Anægjulegir nemendur
- og viljann vantar ekki
Ég legg fyrir þau verkefnið og brátt
eru þau öll niðursokkin í vinnu. Ég
geng á milli og aðstoða eftir þörlum.
Þetta eru ánægjulegir nemcndur -
getan auðvitað misjöfn, en viljann
vantar ekki. Klukkan hringir og allir
drífa sig í morgunmatinn. Nú hefur
fjölgað á kennarastofu og við spjöllum
saman yfir kaffibolla. Næsti tími er
líka enskutími í 9. bekk. Hópurinn er
annar, en sagan endurtekur sig. Þau
spyrja, hvort búið sé að ákveða hvenær
jólafríið byrji og ég segi þeim, að það
verði ákveðið á kennarafundi í dag, en
trúlega fái þau að fara heim 16.
desember, en framhaldsdeildarnem-
endur ekki fyrr en þann 20. Þá dettur
mér í hug, að ekki verði of mikill tími
til jólaundirbúnings hjá mér í ár, en
hvað um það - þetta tekst allt eins og
venjulega.
Skráning á bókasafninu
og vélritunarpróf
Nú er eyða í kennslunni hjá mér og
ég fer á bókasafnið. Ég er að vinna við
skráningu á safninu og það er mjög
spennandi verkefni. Ég hefi opið og
nemendur líta inn og ná sér í bækur -
aðrir eru í tíma og koma í frímínútun-
um. Sumir eru að skrifa ritgerð í sögu
og koma til að leita sér að viðbótar-
heimildum. Það er leitt að hafa ckki
aðstöðu til þess að hafa bókasafnið
opið allan daginn og þá helst í sam-
bandi við lesstofu. Það er draumur,
sem gæti ræst einhvern tíma í framtíð-
inni, hver veit.
Næsti tími er vélritun hjá 9. bekk.
■ Hilda Torfadóttir hefur mörg jám i eldinum. Hennar aðalstarf er kennsla við
Laugaskóla, en auk þess hefur hún umsjón með íslenskukennslu í fræðsluumdæm-
inu. Þá kannast landsmenn við hana sem umsjónarmann útvarpsþáttarins Á
sveitalínunni.
út að leika sér, en ég fer aftur niður í
skóla. Þar bíða mtn störf á skrifstof-
unni, bókasafnið og kennarafundur
klukkan 4.
Vonandi komast
krakkarnir heim í jólafrí
á réttum tíma
Tíminn er fljótur að líða og brátt
kominn kennarafundur. Þá fáum við
kaffi og kökur, nýbakaðar úr eldhús-
inu. Það er aðallega verið að ræða um
próftöfluna og jólafríið. Vonandi verð-
ur veðrið sæmilegt þegar krakkarnir
eru búnir svo að þeir komist strax heim
og verði ekki innlyksa eins og í fyrra,
en þa ■ styttist jólafrí sumra um 2 daga.
Þá var ákveðið að halda lokaskemmt-
un og ball laugardaginn 10. des.þar
sem nemendur fara heim á mismun-
andi tíma og ekki hægt að enda á
skemmtun eins og við gerðum í hitteð-
fyrra með mjög góðum árangri.
Að loknum kennarafundi held ég
aftur inn á bókasafn - þar er mikið
starf óunnið og ég held áfram að
plasta. Eins og venjulega, þegar safnið
er opið koma nemendur og fá sér
bækur. en það er lesnæði og ró og
friður hvílir yfir öllu. Ágúst Torfi lítur
inn, hann hefur verið að leika sér.
Klukkan sjö loka ég safninu og við
förum í mötuneytið og fáum okkur að
borða. Það er góður matur hér og því
freistandi að fá sér bita, þegar tíminn
er naumur. Þegar við erum búin að
borða förum við heim. Ágúst Torfi fer
að læra, en ég fer mað kassa, með
náttúrubasti, sem ég var að fá í
jólaföndrið, inn á bað, hengi það upp
og ætla að rennbleyta það - en þá er
allt í einu ekkert vatn. Frostið í dag fór
upp í 16 stig og það fraus í vatnsleiðsl-
Bið guð að halda
verndarhendi yfir
unglingunum mínum
dagar til frásagnar. Enn aðrir dagar
fara í heimsóknir í skóla í fræðslu-
umdæminu - ekki held ég að lýsing á
slíkum degi sé hér við hæfi. Og þá er
komið að þeim dögum, sem ég dvel í
skólanum því næst frá morgni til
kvölds og þannig degi ætla ég að lýsa -
degi í heimavistarskóla - frá sjónarhóli
kennara.
Enn er myrkur í
flestum herbergjum
Það er þriðjudagsmorgunn og
klukkan hringir klukkan korter gengin
í átta. Ég fer á fætur og stilli klukkuna
aftur á korter ^fir átta, en þá þarf
Ágúst Torfi 9 ; :ara að vakna til þess að
fara í skólann. Pabbi hans er heima
þangað til hann er farinn, en ég byrja
að kenna klukkan átta.
Ég geng niður brekkuna í áttina að
skólanum, enn er myrkur í flestum
herbergjum, verkjararnir eru ekki of
árrisulir. Ég opna skólann og fer inn á
kennarastofu, kveiki á Ijósritanum, og
finn til kladdann minn. Ég er ein á
kennarastofunni. Aðrir kennarar, sem
kenna í fyrsta tíma, kenna í öðrum
húsum og koma ekki á kennarastofu
fyrr en í frímínútum.
Brátt hringir bjallan og ég fer upp í
Uppsali, eða Fjós, eins og stofan er
gjarnan kölluð. Þar bíða syfjaðir ní-
■ Það er reisulegt að líta að Laugum í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu, en þar er aðalskólasetur Þingeyinga.
Frægastan skal fyrstan telja héraðsskólann, sem nú hefur breytt um hlutverk frá því, sem áður var, en þar er nú veitt
fræðsla í 9. bekk og framhaldsdeildum. Þá er þar húsmæðraskóli, barnaskóli og tónlistarskóli. í grennd við skólana
hefur risið talsverð byggð og margvísleg þjónusta.
Vélritun er mjög misvinsælt fag, en
flestir virðast vera að ná tökum á
henni. í dag er hópurinn taugaveiklað-
ur - ég var búin að segja þeim, að ég
myndi hafa fyrsta hraðaprófið í dag og
eðlilega segir það til sín. Sumir geta
ekkert vegna taugaálagsins, en einn
nemandi nær yfir 30 orðum á mínútu,
þegar ekki þarf nema 40 til að fá 10,
góður árangur það.
Það er komið hádegi og ég hendist
heim. Ágúst Torfi kemur á sama tíma
og við fáum okkur snarl saman. Við
spjöllum um það sem við höfum verið
að gera og hvað standi til í dag. Ágúst
Torfi á 'að fara í spilatíma klukkan
fimm og þarf að æfa sig. Við mælum
okkur mót klukkan 7. Hann fer síðan
unni, sem liggur að húsinu. Þegar hún
hefur verið hituð með því að hella á
hana vatni er allt komið í lag, en
réttast að láta kalt vatn renna úr einum
krana, svo sagan endurtaki sig ekki.
Nú bleyti ég bastið og hengi það upp
til þerris. Það á svo að nota það til
jólaföndurs í næstu viku.
Hvflík hörmung að
fara svona með líf sitt
Sjónvarpið <r byrjað - það er verið
að endurtaka sniffþáttinn margum-
rædda. Hvílík hörmung að fara svona
með líf sitt. Mér verður hugsað til
unglinganna minna í skólanum og bið
Guð að halda verndarhendi sinni yfir
þeim.
Rétt fyrir klukkan 10 þarf Haukur
að fara aftur í skólann þá er kóræfing
í Þróttó. Þróttó er gamla íþróttahúsið
hér á Laugum og hefur því verið breytt
í kvikmyndahús og vonandi tekst okk-
ur að gera úr því leikhús áður en langt
um líður. Á sviðinu hafa verið haldnir
tónleikar auk þess sem skólaskemmt-
anir eru haldnar þar á hverju laugar-
dagskvöldi. Nú og svo er sýnt þar bíó
tvisvar í viku.
Þegar Haukur er farinn, förum við
Ágúst Torfi að hugsa til hvíldar og
brátt erum við komin undir saéng og
svefninn sigrar okkur fyrr en varir.
Dagur í líf i Hildu Torfadóttur kennara