Tíminn - 09.12.1983, Blaðsíða 21
: .. :w
FOSTUDAGUR 9. DESEMBER 1983
'T'í C
21
umsjón: B.St. og K.L.
einleikstónleika á píanó. Þeir verða í Nor-
ræna húsinu sunnudaginn 11. des. n.k. kl.
17.00 stundvíslega. Efnisskráin verður sem
hér segir:
Sonata í B-dúr, op. 106 („Hammerklávi-
er“) eftir Beethoven, Fantasía í B-moll op.
28 eftir A. Scriabin og Fantasía í C-dúr op.
17 eftir R. Schumann.
Píanótónleikar Halldórs
Haraldssonar á Vestf jörðum
Föstudaginn 9. des. fer Halldór Haralds-
son píanóleikari til Flateyrar og mun halda
þar tónleika og fyrirlestur síðdegis fyrir
nemendur tónlistarskólans á staðnum. Um
kvöldið heldur hann síðan opinbera tónleika
í mötuneyti Hjálms hf. Laugardaginn 10.
des. heldur hann síðan tónleika á vegum
Tónlistarfélagsins á Isafirði og verða þeir í
Alþýðuhúsinu og hefjast kl. 17.00.
Á efnisskránni eru verk eftir Brahms,
Beethoven, Chopin. deFalla, Sveinbjörn
Sveinbjörnsson, Bartók og Ravel.
sýningar
Sýning Katrínar H.
Ágústsdóttur
að Gerðubergi
Um helgina lýkur sýningum Katrínar H.
Ágústsdóttur á batikslæðum og vatnslita-
myndum sem opnuð var 1. desember.
Einnig lýkur sýningú Kristjáns Inga á
ljósmyndum úr bókinni s,Kátt í koti“ sunnu-
daginn 11. desember.
Sýningarnar eru opnar mánudaga -
fimmtudaga frá kl. 16-22 og föstudag -
sunnudag frá kl. 14-18.
Aðgangur er ókeypis.
Sýningu Sigrúnar á Akureyri
lýkur
Nk. sunnudagskvöld lýkur sýningu Sigrún-
ar Jónsdóttur myndlistarmanns í Mánasaln-
um í Sjallanum á Akureyri. Á sýningunnieru
glerskreytingar, vefnaður, batík og kirkjuleg
list. Sýningin er opin virka daga kl. 4-7, en á
sunnudaginn kl. 4-10.
Árnað heilla
Afmæli
70 ára verður í dag föstudaginn 9. deSember
Guðmundur Magnússon, bóndi Vindhæli
A-Húnavatnssýslu.
sundstadir
Reykjavík: Sundhöllin, Laugardalslaugin
og Sundlaug Vesturbæjar eru opnar frá kl.
7.20-20.30. (Sundhöllin þó lokuð á milli
kl.13-15.45). Laugardaga kl. 7.20-17.30.
Sunnudaga kl. 8-17.30. Kvennatímar I
Sundhöllinni á .fimmtudagskvöldum kl.
21-22. Gufuböð í Vestubæjarlaugog Laugar*
dalslaug. Opnunartíma skipt milli kvenna og
karla. Uppl. i Vesturbæjarlaug í síma 15004,
i Laugardalslaug í sima 34039.
Kópavogur: Sundlaugin er opin virka daga
kl. 7-9 og 14.30 til 20, á laugardögum kl. 8-19
og á sunnudögum kl. 9-13. Miðasölu lýkur
klst. fyrir lokun. Kvennatimar þriðjudaga og
miðvikudaga.
Hafnarfjörður: Sundhöllin er opin á virkum
dögum kl. 7-8.30 og kl. 17.15-19.15 á
laugardögum 9-16.15 og á sunnudögum kl.
9-12.
Varmárlaug í Mosfellssveit er opin mánud.
til föstud. kl. 7-8 og kl. 17-18,30. Kvennatími
á þriðjud. og fimmtud. kl. 19-21.30. Karlatim-
ar á miðvikud. kl. 19-21.30. Laugardaga opið
kl. 14-18, sunnudaga kl. 10-12.30. Sauna,
kvennatímar á þriðjud. og fimmtud. kl.
17-21.30, karlatímar miðvd. kl. 17-21.30 og
laugard. kl. 14.30-18. Almennir saunatímar i
baðfötum sunnud. kl. 10.30-12.30.
Sundlaug Breiðholts er opin alla virka
daga frá kl. 7.20-9 og 17-20.30. Sunnudaga
kl.8-13.30.
áætlun akraborgar
Frá Reykjavík
Kl. 10.00
kl. 13.00
kl. 16.00
kl. 19.00 '
kvöldferðir á
Frá Akranesi
Kl. 8.30
kl. 11.30
kl. 14.30
kl. 17.30
I april og október verða
sunnudögum. — í maí, júní og september
verða kvöldferðir á töstudögum og sunnu-
dögum. - I júlí og ágúst verða kvöldferðir
alla daga nema laugardaga.
Kvöldferðir eru frá Akranesi kl. 20.30 og frá
Reykjavik kl. 22.00.
Afgreiðsla Akranesi sími 2275. Skrifstof-
an Akranesi simi 1095.
Afgreiðsla Reykajvik, simi 16050. Sim-
svari í Rvík, simi 16420.
FIKNIEFNI -
Lögreglan í
Reykjavík, mót-
taka upplýsinga,
sími 14377
ferdalög
Sunnudagur 11. desember-
dagsferð
kl. 13 Helgafell (215 m) - Skammidalur -
Æsustaðafjall. Þetta er létt gönguferð um
svæðið norðaustan Skammadals í Mosfells-
sveit. Verð kr. 150.-
Brottför frá Umferðarmiðstöðinni, austan-
megin. Frítt fyrir börn í fylgd fullorðinna.
Farmiðar við bíl.
Áramótaferð Ferðafélagsins
í Þórsmörk.
Dagsetning er röng í áætlun, en farið verður
föstudaginn 30. desember kl. 08. Þetta er 3ja
daga ferð. Pantið farmiða tímanlega á
skrifstofu F.í. Símar 19533 og 11798.
Ferðafélag íslands.
timarit
;;
^ I : ■
Náttúruverkur
Tímaritið Náttúniverkur er komið út í 10.
sinn. Náttúruverkur er gefinn út af tveim
félögum háskólanema, Félagi náttúrufræði-
nema og Félagi verkfræðinema.
Blaðið hefur komið út einu sinni á ári í tíu
ár og er að þessu sinni 60 blaðsíður og prýtt
fjölda mynda.
Að venju fjallar Náttúruverkur um mál
sem ofarlega eru á baugi og tengjast sérstak-
lega líffræði, jarðfræði, landafræði eða verk-
fræði, en flytur líka sögulegt efni tengt
þessum fræðigreinum.
Sem dæmi um mikilvæg mál sem Náttúru-
verkur fjallar um að þessu sinni eru: Mein-
dýr, bæði almennt og selurinn sérstaklega.
Landvarsla á hálendi íslands, Jarðrask vegna
framkvæmda, Blöndumálið og hvað má læra
af því, og Hvalveiðar við (sland. En þessi
viðfangsefni eru mikið í deiglunni. Aðrar
greinar fjalla líka um mikilvæg málefni sem
alla varðar.
Heimilisfang Náttúruverks er: Félagsstofn-
unStúdentaviðHringbraut, 101 Reykjavík.
Náttúruverkur fæst í öllum helstu bóka-
búðum og kostar 150 kr. frá útgefanda.
Hægt er að gerast áskrifandi bæði skriflega
og í síma: (91)-38708. Þannig er líka hægt að
verða sér úti um eldri eintök af blaðinu.
Ásgarður
Tímarit BSRB, Ásgarður 4. tbl. 1983 er
nýkomið út. Á forsíðu eru myndir frá
afhendingu undirskrifta 35 þúsund launþega
gegn banni við samningum launafólks. (
blaðinu eru forustugreinar eftir Kristján
Thorlacius sem heita Sigur launafólks og
Láglaunafólkið á forgangsrétt.
Aðrar greinar í blaðinu eru Bandalagsráð-
stefna 1983, Kjaramálaályktun Bandalags-
ráðstefnunnar, Fjárfesting orsök verðbólgu
eftir Björn Arnórsson hagfræðing, Félags-
starfið f BSRB og sagt er frá söfnun undirsk-
rifta 35. þúsund launþega. „Viðtalið" í þessu
blaði er við Ásthildi Bjarnadóttur, sem
starfar á dagvistarheimilinu Ásheimum á
Selfossi. Sagt er frá sumardvalarstöðunum í
Borgarfirði og Eiðum. Margar aðrar greinar
og fréttir af félagsstarfi eru í blaðinu.
andlát
Gunnar Thorarensen, Hafnarstræti 6,
Akureyri, lést 4. desember. Hann verður
jarðsunginn frá Akureyrarkirkju laugar-
daginn 10. des. kl. 13.30.
Sigurlaug Sveinsdóttir, frá Hlíð í Hörðu-
dal, Litlagerði 3, Reykjavík, andaðist 6.
des. sl. á Vífilsstaðaspítala.
Arni Sigurðsson, frá Vindási, Kol-
hreppi, Samtúni 30, Reykjavík, andaðist
aðfaranótt 26. nóv. í Borgarspítalanum.
Bálför hans hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hins látna.
Jóhanna Kristjánsdóttir, Miðvangi 41,
Hafnarfirði, lést á gjörgæsludeild Borg-
arspítalans þriðjudaginn 6. desember.
Gísli Gestsson, Skólagerði 65, Kópa-
vogi, lést þriðjudaginn 6. des.
Fyrirlestur
Frétt frá félagi áhugamanna
um heimspeki:
Sunnudaginn 11. desember flytur Vilhjálmur
Árnason, Ph. D., fyrirlestur á vegum Félags
áhugamanna um heimspeki. Fyrirlesturinn
nefnist,
Einstaklingur, samféiag og siðfræði
í fyrirlestrinum mun Vilhjálmur fjalla um
þá gagnrýni sem siðfræði hefur sætt af hálfu
marxisma annars vegar, en existentialisma
hins vegar. Færð verða rök að því að báðar
þessar stefnur bendi réttilega á ýmsa van-
kanta á síðari tíma siðfræði. Jafnframt eru
færð rök að því að í þessum stefnum báðum
gæti tilhneiginga sem standi skynsamlegri
siðfræði fyrir þrifum.
Að lokum mun Vilhjálmur reifa hugmynd
um það hvernig móta megi siðfræði sem
•tekur mið af marxisma og existentialisma, en
forðast villur þeirra.
Stjórnin
ýmislegt
Mynd um þjóðskáld
Úkraínumanna í MÍR-salnum
N.k. sunnudag, 11. desember kl. 16, verður
sovéska kvikmyndin „Taras Shevtsenko"
sýnd í MÍR-salnum, Lindargötu 48. Þetta er
gömul mynd, gerð 1951, og ein af mörgum
kvikmyndum um æviferil frægra manna sem
Sovétmenn gerðu á fyrsta áratugnum eftir
lok síðari heimsstyrjaldarinnar.
Eins og nafnið bendir til fjallar kvikmyndin
um ævi og störf hins fræga brautryðjanda í
úkrainskum bókmenntum, skáldsins og
myndlistarmannsins Taras Shevtsenko, sem
uppi var 1814-1861.
Stjórnvöldum í Rússlandi keisarans þótti
skáldskapur hans byltingarkenndur og hættu-
legur og var hann dæmdur í útlegð af þeim
sökum. Lýssir kvikmyndin þessum sögulegu
árum í ævi skáldsins.
Myndin er með enskum skýringatextum.
Aðgangur ókeypis.
Notkun rása i 27 MHz
tíðnisviðinu
Hinn 3. febrúar 1983 gaf samgönguráðuneyt-
ið út Auglýsingu um leiðbeiningar varðandi
notkun rása t 27 MHz tíðnisviðinu (nr.
60/1983). Auglýsingin var sett með hliðsjón
af 11. gr. reglna nr. 506/1979 um starfrækslu
almenningstalstöðva í 27 MHz tíðnisviðinu.
Af gefnu tilefni leggur ráðuneytið á það
áherslu að notendur- farstöðva virði það
skipulag sem þar er kveðið á um.
Varðandi notkun kallrásanna 6 og 9 tekur
ráðuneytið eftirfarandi fram:
Rás 6 er kallrás F.R. félaga. Ennfremur hafa
FÍB, S.V.F.f. og Almannavarnir ríkisinsrétt
til notkunar rásarinnar á þeim tíma sem
starfsemi er á vegum þeirra.
Rás 9 er kallrás F.R. félaga. Rásin er einnig
neyðarrás allra hvort sem þeir eru félagar í
F.R. eða ófélagsbundnir.
Ráðuneytið tekur fram, að það hefur ekki
í hyggju að breyta umræddri auglýsingu.
Póstfax-þjónusta frá 1. des.
Eins og frá var skýrt á fréttamannafundi er
Póstfax-þjónusta hófst hérlendis var áætlað
að Póstfax viðskipti yrðu formlega tekin upp
við póst- og símstöðvar á Norðurlöndunum
síðar.á árinu. Nú hefur verið ákveðið að
slíkri þjónustu verði komið á frá og með
1.12. 1983.
Við þetta opnast möguleikar til að senda
skýrslur, teikningar, skjöl, yfirlýsingar og
hvað annað sem myndast með venjulegri
Ijósritun, með Póstfaxi til viðtakanda á
NorðurlÖndunum á þriðja hundrað póst- og
símstöðvar á Norðurlöndunum hafa tæki til
móttöku Póstfax-sendinga.
Hægt er að senda Póstfax frá fjórum póst-
og símaafgreiðslur á íslandi; Póststofunni,
Pósthússtræti 5, Reykjavík og póst- og sím-
stöðvunum Akureyri, Egilsstöðum og ísa-
firði.
flokksstarf
Félag framsóknarkvenna í Reykjavík
heldur sinn árlega jólafund mánudaginn 12. des. kl. 20.30 aö Hótel
Heklu Rauðarárstíg 18.
Dagskrá: Upplestur o.fl.
Ingibjörg Marteinsdóttir sönkona syngur nokkur lög.
Muniö jólapakkana. - Mætiö vel.
Stjórnin.
Reykjaneskjördæmi
Framhalds kjördæmisþing Framsóknarmanna í Reykjaneskjördæmi
verður haldiö að Hamraborg 5 í Kópavogi miövikudaginn 14. des. kl.
20.30.
Stjórnin.
Jólaalmanak SUF
Dregið hefur verið í jólaalmanaki SUF. Eftirfarandi
númer komu upp:
1. des. nr. 2200
2. des. nr. 2151
3. des. nr. 4025
4. des. nr. 804.
5. des. nr. 9206
6. des. nr. 1037.
7. des. nr. 1613.
8. des. nr. 8173
9. des. nr. 406.
Jólahappdrætti
ins 1983.
Framsóknarflokks-
Dregið verður í jólahappdrættinu á Þorláksmessu 23. þ.m. og drætti
ekki frestað.
Þeir sem fengið hata heimsenda miða eru vinsamlega beðnir að gera
skil sem fyrst.
Greiða má skv. meðfylgjandi gíróseðli í næsta pósthúsi eða
peningastofnun og einnig .má senda greiðslur til skrifstofu happ-
drættisins Rauðarárstíg 18, Reykjavík.
Fundarboð
Áður auglýstum fundi um stofnun félags er standi
að útgáfu Tímans og boðaður var 10. desember,
verður frestað í nokkra daga.
Nánar auglýst síðar.
Undirbúningsnefnd.
t
Systir mín
Guðbjörg Jónsdóttir
Syðra-Velli
lést á sjúkrahúsinu á Selfossi þann 7. des. s.l
Guðmundur Jónsson
Eiginmaður minn
Baldvin Trausti Stefánsson,
Múla,
Seyðisfirðl
Andaðist á Landspítalanum þann 6. des.
F.h. barna og barnabarna,
Margrét ívarsdóttir.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts föður okkar,
tengdaföður,afa og langafa
Kristmanns Guðmundssonar
rithöfundar
Warren Sellevold
Árni Edvinsson
Helgi Björnsson
PhilipFine
Randi Sellevold
Vildís Kristmannsdóttir
Hrefna Kristmannsdóttir
Ninja Kristmannsdóttir Fine
Ingilín Kristmannsdóttir
Kaðlín Kristmannsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn