Tíminn - 09.12.1983, Blaðsíða 24
*>.( , ** - v'iMjS*«as -,"*ri^>e5hiíí’‘„’Vi
Opiö virka daga
9-19
Laugardaga 10-16
H
HEDD
Skemmuvegi 20 Kopavogi
Simar 191)7 75 51 & 7 80 30
Varahlutir
Mikið úrval
Sendum um land allt
Ábyrgð á öllu
Kaupum nýlega
bila til niðurrifs
SAMVINNU
TRYGGINGAR
&ANDVAKA
ARMULA3 SIMI 81411
abriel
HÖGGDEYFAR
— „ i | , • Hamarshöfði
y {JJvarahlutir sími365io.
CÍTSÍirU Ritstjorn 86300-Auglysingar 18300- Afgreidsla og askrift 86300 - Kvoldsimar 86387 og 86306
Föstudagur 9. desember 1983
Brádabirgðatölur Fiskifélags íslands um afflabrögd fyrstu 11 mánuði ársins:
ÞORSKAFUNN HEFUR MINNKAÐ
INIRÚMLEGA 77 ÞðSUND TONN
— miðað við sama tímabil í fyrra - aðeins verulegur vöxtur í loðnuveiðum
■ Samkvæmt skýrslu Fiskifé-
lags íslands sem kom út í gær
með bráðabirgðasölum um afla-
brögð á þessu ári frá janúar til
mánaðamóta nóvember desem-
ber, er þoskafli það sem af er
árinu 77.479 tonnum minni en á
sama tímabili í fyrra, hefur lækk-
að úr 353.979 í 276.500 tonn
Þorskafli togaranna hefur
minnkað um 22.816 tonn en báta
um 54.663 tonn. Annar botn-
fiskafli hefur verið lítið eitt meiri
í ár en í fyrra en verulegur
vöxtur er aðeins í loðnuveiðun-
um, loðnuaflinn í ár er orðinn
63.107 tonn en var 13.244 tonn á
sama tímabili í fyrra.
Skýrslunni fylgir bráðabirgða-
yfirlit yfir aflann í nóvember-
mánuði og er hann svipaður og í
fyrra nema hvað nú veiddust
63.000 tonn af loðnu en engin í
nóvémber mánuði í fyrra. Þorsk-
afli í nóvember í ár er nálægt
einum þriðja minni en í nóvem-
ber í fyrra. Það skal áréttað að
hér er um bráðabirgðatölur að
ræða.
- JGK.
dagar
til jóla
■ í gær voru miklar annir í þinginu, og mörgum mál að fá að tala, en þar sem flokksbrxðurnir Ólafur Ragnar og Hjörlelfur einokuðu
ræðustólinn lengi vel, ■ neðri deild, þá komust ekki allir að sem vildu. Arftaki Hjörleifs á ráðherrastól, Sverrir Hermannsson náði þó að skjóta
inn orði á ská, og eins og að líkum lætur, þá var ekki neitt elskuvinahjal sem hann sendi forvera sínum, en Hjörleifur virðist lítt snortinn.
Tímamynd Ami Sæberg.
Félagsheimili Húsavíkur fær rukkun frá bæjarfógeta:
LÖGTAK VEGNA BNNAR KRÓNU?
— vilja 5 aura I dráttarvexti en eiga bara rétt á fjórum!
■ „Það væri gaman að láta
reyna á hvort bæjarfógetaem-
bættið fer í hart og gcrír lögtak
hjá okkur fyrir skuldinni“ sagði
Sigurður Friðriksson fram-
kvæmdastjóri Félagsheimilis
Húsavíkur í samtali við Tímann
í gær en bæjarfógetaembættið
liefur sent Félagsheimilinu bréf
þar sem þess er krafls að það
greiði eftirstöðvar af launaskatti
fyrir áríð 1982, að upphæð 1
króna.
Sigurður sagði að við uppgjör
vegna launaskattsins hefði hann
lagt vitlaust saman þannig að
munaði þessari krónu. Bæjar-
fógeti sendi síðan bréf í lok
síðasta mánaðar þar sem þess
var krafist að skuldin yrði greidd
innan 15. desember eneftirþað
myndu 5% dráttarvextir leggjast
á skuldina. Sigurður sagðist hafa
fengið þær upplýsingar frá verka-
lýðsfélagi að dráttarvextir væru
aðeins 4% þannig að verið sé að
krefja Félagsheimilið um að
greiða einum eyri meira en því
bæri.
- GSH.
„SKEIÐARÁ
HEFUR
ST1GIÐ
í DAG”
— segir
Ragnar
Stefáns-
son á
Skaftafelli
■ „Það sígur í þetta jafnt og
þétt, það var nú lítill vöxtur í
ánni í nótt en hún hefur stigið
í dag“ sagði Ragnar Stefánsson
bóndi á Skaftafelli þegar Tím-
inn leitaði hjá honum frétta í
gær af Skeiðarárhlaupinu sem
er nýhafíð.
Ragnar sagði að þessi hlaup
tækju yfirleitt mánuð frá því
fyrst verður vart við þau en
hann hefði séð breytingar á ánni
fyrir um viku. Ragnar sagði að
áin væri nú mjög dökk og
hlauplitur á henni og einnig
legði mikla jöklafýlu af vatn-
inu.
- GSH.
VIDEO-
INN-
BROT
■ Brotistvarinnítværvídco-
leigur aðfaranótt miðvikudags.
Gluggi var spenntur upp á
húsnæði Videosýn, Arnar-
bakka' 2 og þaðan stolið 500
krónum í skiptimynt sem var í
peningakassa.
Einnig var brotist inn í
Vídeospóluna viö Bræðra-
borgarstíg. Þar var brotin upp
útihurð baka til á húsinu og
myndscgulbandstæki af gerð-
inni Sony stolið. Ekki var
hreyft við öðru í húsinu og
meðal annarrs var skilin eftir
skiptimynt í afgreiðslukassa.
-GSH
ÁTTUNDU
SKÁKINNI
FRESTAÐ
■ Áttundu cinvígisskák
þeirra Kortsnojs og Kaspar-
ovs, sem átti að teflast í Lund-
únum í gær var frestað að
beiðni Koiisnojs.
Eftir góða byrjun hefur
Kortsnoj vegnað illa í einvíg-
inu og tapað tveim skákum í
röð og þar með forustunni í
hendur kcppinautar síns, sem
þykir hafa sýnt mjög góða
taflmennsku í síðari hluta ein-
vígisins. En Kortsnoj er eldri
en tvævetur og undirbýr vænt-
anlcga ýmis launráð í fríinu.
I: -JGK
. BRÆIA Á
MKHJNUM
■ Brælavaráloðnumiðunum
í gær og engin veiði en undan-
farið hefur veiðst mjög vel á
allstóru svæði norður af Langa-
nesi og austur að Dalatanga.
Sólarhringinn á undan komu
t.d. á land um 115(X) tonn af
loðnu seni þykir injög góð
sólarhringsveiði.
Hjá loðnunefnd fengust þær
, upplýsingar að mikil vinna
hefði verið á þeim stöðum sem
taka á móti loðnu en enginn
sérstakur staður skæri sig úr
enda væri reynt að dreifa
lönduninni.
-GSH
dropar
Sólskinsflokkurinn
að lifna við
■ Svo virðist sem Sólskins-
flokkurinn sé að lifna við Á
fullveldisdaginn, 1. dcsember,
samþykkti hann eftirfarandi
fréttatilkynningu, sem blöðun-
um hafa boríst:
„Sólskinsflokkurinn lýsir
yfir fullum stuðningi við ný-
framkomna þingsályktunartil-
lögu um sölu og bruggun
áfengs öls hérlendis.
Sólskinsflokkurinn bendir á
að tillagan komi heim og sam-
an við framtíðarsýn flokksins
og er ennfremur hvati til að
leysa úr læðingi hið bælda
sólskinseðli þjóðarinnar.
I framsögu sem ölgerðarsér-
fræðingur flokksins hélt á
miðstjórnarfundi á dögunum
kom fram að síðan íslendingar
. hættu að drekka áfcngan mjöð
án þess að storka lögum
landsins, þá hafl veðurfar farið
hríð-vcrsnandi.
Þarna er á ferðinni augljóst
orsakasamband og svo virðist
sem eftir hörmulegt sumar hafl
skaplegt haust brætt nokkuð
móttækileg þingmannshjörtu.
Að lokum áréttuðu fundar-
menn tilmæli um tafarlausa
niðurfellingu aðflutningsgjalda
af strápilsum.“
Amfetamínnefnd -
hvað er nú það?
■ Ymissa grasa kennir þegar
flett er í stórmerkrí skýrslu
ijármálaráðuneytisins um
stjómir, nefndir og ráð ríkisins
fyrir sl. ár. Þegar blaðað er í
gegnum nefndir á vegum heil-
brigðis- og tryggingaráðuneyt-
isins þá stöðva augun á nefnd
sem hcitir Amfetamínnefnd og
vaknaöi þá auðvitað sú
spurning, hvort hér væri um
áróðusnefnd Ijvi. amfetainín-
framleiðendur að ræða, en
þegar grannt er skoðað kemur
hið rétta í Ijós: nefndin var sett
af landlækni í ágúst 1976 til
ráðgjafar samkvæmt auglýs-
ingum um takmarkanir á ávís-
unum lækna á amfetamín og
nokkur fleiri lyf. Nefndar-
reksturinn kostaði á sl. árí
28.725 krónur, og þykir það
nú víst ekki nema Dropi í haf
rekstrarkostnaðar á nefndum
á vegum ríkisins.
Krummi...
... er að velta því fyrir sér,
hvort hin þvottahúsin fari ekk-
ert að óttast samkeppnina!