Tíminn - 28.12.1983, Síða 1

Tíminn - 28.12.1983, Síða 1
st báðir togarar Grundfirðinga um áramót? Sjá bls. 4 FJÖLBREYTTARfl OG BEIRA BLAÐ! Miðvikudagur 28. desember 1983 300. tölublað 67. árgangur eftir flugi hjá Flugleiðum á ýmsa staði á landinu í gærmorgun og frameftir degi leit illa út með flug. Seinnipart dagsins rættist úr veðrinu og þá tókst að fljúga til Egilsstaða, Akur- eyrar og Húsavíkur. Tvær ferðir voru farnar á Egilsstaði í gærdag og fjór- ar til Akureyrar. Flugvél , lagði af stað til Sauðárkróks en hún varð að snúa við þar sem ekki þótti á hættandi að lenda þar. Pá varð að snúa vél, sem fara átti til Húsavíkur, til Akureyrar til að bíða af sér veður. Vélin fór síðan áfram til Húsavíkur í gærkvöldi og var von á henni aftur til Reykjavíkur um miðnætt- ið. Ekkert var flogið á Vestfirði, Hornafjörð og til Vestmannáeyja, bæði vegna veðurs og eins vegna þess að komið var fram í myrkur. Pví biðu enn um 350 manns eftir flugi í gær- kvöldi. ■ Ein Fokkervél Flug- leiða býr sig undir að fljúga til Egilsstaða í gær þegar veðurskilyrði bötnuðu. Sidumula 15-Postholf 370 Reykjavík-Ritstjom 86300-Augiysingar 18300- Afgreiðsla og askrift 86300 - Kvöldsimar 86387 og 86306 Stefnt að skspulagsbreytingum hjá RARIK um áramótin: GERT RAD FVRIR AÐ STOÐfl- GILDUM FÆKKI UM ATTATIU ■ Tillögur þær sem Hagvangur gerir um endurskipulagnigu á Rafmagnsveitum ríkisins, gera ráð fyrir því að stöðugildum hjá Rafmagnsveitum ríkisins verði fækkað um 80, en samkvæmt heimildum Tímans, þá hefur það í för með sér að eitthvað færri starfsmönnum RARIK verður sagt upp, því mikið mun vera um það að ákveðnir starfsmenn vinni yfirvinnu. Til að mynda hefur Tíminn heimildir fyrir því að til séu menn hjá stofnuninni sem skili 30 vinnumánuðum á ári, en sú tala fæst með því að umreikna yflrvinnukaup þeirra yfir í dagvinnukaup, og taka þeir þá laun sem svarar 30 mánaða launum á ári. Stefnt mun vera að því að skipulagsbreytingar þær sem Hagvangur gerir tillögur um, taki gildi frá og með 1. janúar nk. en þó með þeim hætti að uppsagnirnar verði með þeim hætti að góður uppsagnarfrestur verði geflnn, allt eftir þvi sem nauðsynlegt verður talið í hverju tilviki. Er jafnvel búist við að sumir fái allt upp í 12 mánaða uppsagnarfrest. Tíminn ræddi þessi mál við Kristján Jónsson forstjóra RAR- IK og Pálma Jónsson stjómar- formann fyrirtækisins, en þeir sögðust hvorugir hafa heyrt af þessu og drógu reyndar í efa að rétt væri, en Tíminn hefur fregn- ir þessar beint úr stjórnarher- búðunum, og hljóta þær því að . teljast áreiðanlegar. -AB , . . . ' : ' '' * ■ : ' ' ' ’ ' : • ‘ ‘ •■ / - - : • ‘ • / 1000 MANNS BIÐU EFTIR FLUGI í GÆR ■ Allmiklar tafir urðu á innanlandsflugi annan jóla- dag og í gær vegna veðurs. Tæplega 1000 manns biðu SJEFNIR í 30 MILL- JONA KRÓNA HAGNAD HJA FLUGLEHNIM — Farþegaaukning á Atlandshafsleiðinni ■ Hagnaðurinn af rekstri Flugleiða á þessu ári verður að líkindum í kringum ein milljón dollara, samkvæmt heimildum Tímans, en það jafngildir um 30 milljónum íslenskra króna. Tfminn greindi frá því nú fyrir jóiin, í samtali við Sigurð Helgason forstjóra Flugleiða, að vonir stæðu til þess að milljóna hagnaður yrði af rekstri fyrirtækisins á þessu ári, en ekki fcngust nánari upplýsingar þá, um hve mikill hagnaðurinn yrði. Meðal þeirra orsaka sem menn tilgreina fyrir þessari góðu stöðu fyrirtækísins nú er mikil aukning farþega á At- iantshafsflugleiðinni, en Tfm- inn fékk í gær upplýsingar hjá Sæmundi Guðvinssyni, frétta- fulltrúa Flugleiða, þess efnis að aukningin á árinu væri um 24%, sem þýðir að um 42 þúsund fleiri farþcgar hafa flogið Ameríkuleiðina á þessu ári en í fyrra. Sæmundur sagði að þann 17. þessa mánaðar hefðu farþegar á Atlantshafs- leiðinni verið orðnir 220 þúsund. -AB MADUR LÉST EFT1R ÁTÖK VK) IVO18 ÁRA PILTA ■ Tæplega tvítugur maður fannst látinn á heimili sínu að Fífuseli í Reykjavík s.l. föstu- dag og er talið að hann hafi látist í átökum við tvo átján ára gamla pilta nóttina áður. Piltarnir tveir hafa verið úr- skurðaðir í gæsluvarðhald til 21. janúar n.k. vegna málsins en annar pilturinn er bróðir mannsins sem lést. Maðurinn fannst látinn í íbúð- inni seinni part föstudags og bar íbúðin þess vott að þar hefðu átt sér stað átök. Vitað var að piltarnir tveir höfðu ætlað að heimsækja hann kvöldið áður og voru þeir handteknir á föstu- dagskvöldið. Þeir viðurkenndu að hafa verið í íbúðinni um kvöldið og nóttina áður og þá lent í átökum við manninn. Pilt- arnir voru síðan úrskurðaðir í gæsluvarðhald að morgni að- fangadags. í samtali við Tímann sagði Þórir Oddsson vararannsóknar- lögreglustjóri ríkisins að Rann- sóknarlögreglan vildi ekki tjá sig um orsakir þess að maðurinn lést að svo stöddu þar sem endanleg- ar niðurstöður krufningar liggja ekki enn fyrir. Pær myndu vænt- anlega segja töluvert um hvernig þetta bar að. Þó lægi ljóst fyrir að átök ltefðu átt sér stað í íbúðinni og maðurinn hefði hugsanlega beðið bana af þeirra völdum. -GSH

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.