Tíminn - 28.12.1983, Side 3

Tíminn - 28.12.1983, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1983 3 ■ „Spennan í mótinu var gífurleg. Jóhann var lengst af með forystuna og stefndi hraðbyri á sigur en mér tókst að ná honum á endasprettinum. Mér gekk nefnilega mun betur seinni hluta mótsins,“ sagði Helgi Olafsson, sem annað árið í röð deildi sigri í jólahrað- skákmóti Utvegsbankans með öðrum - nú Jóhanni Hjartarsyni en í fyrra Friðriki Olafssyni. - Þú fékkst fossandi blóðnasir í miðju mótinu? „Já. Það var nokkuð svakalegt. En með dyggri aðstoð Alberts Guðmunds- sonar fjármálaráðherra, sem brá mjög skjótt við og hljóp til mín með vasaklút, tókst að stöðva blóðrennslið. Það er svolítið kyndugt að blóðnasirnar virtust nokkurs konar vendipunktur í mótinu fyrir mig. Ég komst í mikið stuð og vann hverja einustu skák sem eftir var.“ - Það var mikill hraði í mörgum skákunum? „Þær voru margar skemmtilegar. Hvað mig varðar held ég að skákirnar við Jón L. og Friðrik verði mér minnis- stæðastar. Þær voru báðar rosalega hratt tefldar undir lokið - hálfgerður barning- ur.“ - Þú hefur verið sigursæll á hraðskák- mótum að undanförnu - er hraðskák kannski þín sérgrein? „Því mótmæli ég algjörlega. Ég hef hins vegar verið meira áberandi á hraðskákmótum að undanförnu af því ég hef bara telft á léttum mótum. En ég álít hraðskákina vera nokkurs konar fingraleikfimi - hún reynir jafnt hend- urnar en hausinn. Það er engin alvara í þessu en kappskákirnar eru háalvarlegt mál.“ sagði Helgi. - Sjó ■ Helgi Ólafsson og Jóhann Hjartar- son urðu efstir og jafnir með 16 vinninga af 19 mögulegum á þriðja jólahraðskák- móti Útvegsbankans, sem haldið var í húsakynnum aðalbankans við Austur- stræti á annan í jólum. Tuttugu helstu skákmeistarar þjóðarinnar tóku þátt í mótinu og tefldu allir við alla, þannig að hver tefldi 19 skákir. Jón L. Arnason var í þriðja sæti með 15, vinninga. í fjóðra sæti var Margeir Pétursson, með 12 V4. í fimmta til sjöunda sæti voru Friðrik Ólafsson, Dan Hanson og Bragi Kristjánsson, allir með tólf vinninga. -Sjó. ■ Albert Guðmundsson, fjármálaráðherra, afhenti sigurvegurunum verðlaunin að mótinu loknu. ur með mfna segir Jóhann Hjartarson ■ „Það er mjög erfitt að tefla á svona móti - maður er eiginlega stífur af stressi allan tímann. Þetta var líka óvenjulega langt, rúmlega 5lð tími og 19 skákir. En ég er mjög ánægður með mína útkomu," sagði Jóhann Hjartarson, sem ásamt Helga Ólafssyni sigraði jólahraðskák- mót Útvegsbankans. „Mér gekk illa til að byrja með, var aðeins með 50% unnið eftir fjórar fyrstu skákirnar. Síðan náði ég mér á strik og vann 13 skákir í röð, en svo tapaði ég fyrir Margeiri og Helgi komst upp að hliðinni á mér. Aftur á móti vann ég tvær síðustu skákirnar," sagði Jóhann. - Var einhver skák sérstaklega eftir- minnileg? „Ég var mjög ánægður með rnína skák á móti Friðriki Ólafssyni. Mér hefur alltaf gengið frekar illa á móti honum, en núna var gífurleg spenna í skákinni og mikið tímahrak og mér tókst að plata hann undir lokin svo að hann gaf. Ég held að þetta hafi verið í fyrsta skipti sem Friðrki hefur tapað fyrir mér,“ sagði Jóhann. Jóhann var í þriðja sæti á jólahrað- skákmótinu í fyrra, á eftir Hclga Ólafs- syni og Friðriki Ólafssyni. „Ég hef alltaf haft mjög gaman af hraðskákmótum - þau eru í raun allt annað en kappskák- mót. Ég mætti auðvitað til leiks með því hugarfari að gera mitt besta. En fyrir fram gerði ég rnér engar hugmyndir um það hvort mér tækist að sigra. Þannig kom sigurinn mér á óvart í aðra rönd- ina,“ sagði Jóhann. fréttir Jólahraðskákmót Útvegsbankans: „KOMST IJNIKIÐ STIIÐ KFTIR BLOÐNASIRNAR segir Helgi Ol skákmóti F! / /A/T 5 gíra kassi • Tauklædd sæti • Sportstýri • Skutbflsútfærsla • Hiti og þurrka í afturrúðu • Hólf í hliðarhurðum • Litað gler • Sportfelgur • Hjólbogalistar • Breiðir hliðarlistar • Vindlakveikjari • Hilla í mælaborði • Hliðarspegill stilftur innan frá • Opnanlegir hliðargluggar aftur í • Quarts klukka • Stokkur og hólf á milli framsæta ENDURSÚLUBÍLL NÚMER EITT Sími 77200 r Sími 77202 Smiðjuvegi 4C, Kópavogi IEGILL / VtLHJÁLMSSON HF.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.