Tíminn - 28.12.1983, Qupperneq 4

Tíminn - 28.12.1983, Qupperneq 4
4______ fréttir Itttóra MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1983 Líkur á ad bádir togarar Grundfirdinga stöðvist um áramót vegna olfuskulda: JEIMINGUR BÆIARBÚA GETUR PAKK- AB SAMAN EF SKIPIN VERBA SEIB" — segir Hjálmar Gunnarsson, útgerðarmaður Sigurfara II, sem telur að þorskverð þurfi að þrefaldast ■ „Það stefnir í það að togararnir hér hjá okkur stöðvist nú um áramótin, vegna almennra rekstrarörðugleika,“ sagði Hjálmar Gunnarsson útgerðar- maður á Grundarfirði, er Tíminn rxddi við hann í gær, en Hjálmar gerir m.a. út togarann Sigurfara II, frá Grundarfírði. Hjálmar sagði að enn væri ekkert hægt að fullyrða um þessi mál, því ekki væri búið að gera opinberar ákvaröanir um kvótaskiptingu og flcira, en menn hlytu að sjálfsögðu að taka sínar ákvarð- anir þegar kvótaskiptingin lægi fyrir, svo sem ákvarðanir um það, hvort þeir vildu gera skip sín út í óvissutíð í janúar í illviðrum og tregfíski, eða bíða eftir betri tíð, til þess að veiða sinn kvóta. „Rekstrarörðugleikar útgerðar eru geysilega miklir,“ sagði Hjálmar, „og ekki verður séð hvernig fram úr þeim verður ráðið. Mig vantar til dæmis olíu á mín skip, 100 tonn af olíu, sem kosta 800 þúsund krónúr. Nú, fái ég olíuna lánaða með góðu móti, þá fer ég af stað með mín skip cftir áramótin." ■ Runólfur, annar togari Grundfirðinga í klakaböndum í Grundarfjarðarhöfn. Svo kann að fara að fjölmargir togarar liggi við festar í janúarmánuði, ef útgerðarmenn ákveða að bíða með að veiða kvóta sinn þar til betur viðrar og fískast. Myn - Ari Liebermann Hjálmar sagði að margt fieira spilaði inn í og yki á rekstrarörðugleika útgerð- arinnar: „Fiskverð er til að mynda alltof lágt,“ sagði Hjálmar, „en ég fæ ekki nema einn og hálfan líter af olíu hér fyrir þorskkílóið, en ef ég læt sigla með aflann, þá fæ ég sjö til átta lítra af olíu fyrir þorskkílóið í Englandi. Fiskverð þarf því að hækka í um 30 krónur að meðaltali, úr þeim 10 sem þorskkílóið stendur í núna. Það þarf með öðrum orðum að þrefaldast, til þess að einhver glóra sé í rekstrinum og vextir þurfa að lækka mjög verulega." Hjálmar sagði jafnframt: „Það getur vel komið til greina að ég selji mín skip, en þá verða menn náttúrlega að athuga það, að svona skip fáum við ekki aftur. Auk þess sem ég held að helmingur bæjarbúa megi pakka sig saman, ef skipin verða seld héðan. Það er auðvitað þeirra sem bjuggu til þennan hnút, að greiða úr honum, eða skera á hann, og það eru þeir sem hafa átt að stjórna þessu landi." -AB ■ M/S Fjallfoss er væntanlegur í næsla mánuði. Eimskip kaup ir nýtt skip á 45 milljónir ■ Eimskip hefur fest kaup á þýsku stórflutningaskipi og fær félagið skipið væntanlega afhent í næsta mánuði. Skip- ið mun bera nafnið M/S FjallfosS og var það smíðað í Þýskalandi 1977, og er kaupverð þess um 45 milljónir íslenskra króna. Skipið er að burðargetu um 1700 tonn og mun það aðallega flytja sjávarafurðir til útflutnings, byggingavörur og vörur fyrir stóriðju hingað til lands. Getur skipið flutt um níutíu 20 feta gámaein- ingar. Skipið er 73 metrar að lengd, og 11.8 metrar á breidd og er ganghraði þess 12.5 sjómílur. Sem dæmi um það hvernig skipið er útbúið, þá má nefna 2 þungabómur, sem geta lyft allt að 25 tonnum. -AB Flugleidir: Taka tvær áttur á leigu hjá KLM ■ Flugleiðir hafa tekið á leigu tvær DC-8 þotur frá hollenska flugfélaginu KLM, og verða þoturnar, sem eru af gerðinni 63 á Ameríkuleiðinni hjá Flug- leiðum. Þessar upplýsingar fékk Tíminn í gær hjá Sæmundi Guðvinssyni, fréttafulltrúa Flugleiða, og sagði hann að þessi gerð væri sama gerð og þær DC-8 þotur sem Flugleiðir eru með, að því undanskildu að þessar væru með svokölluðum brcið- þotuinnréttingum, en það væru innrétt- ingar sem væru bjartari og betri. og væru m.a. með lokuðum farangurshólf- um fyrir ofan sætin. Sæmundur sagði að fyrri þotan kæmi 1. mars n.k. og hin síðari þann 1. apríl n.k. _ab Grundarfjördur: „Atvinnuöryggi 150 manna er í haettu” ■ „Atvinnuöryggi að minnsta kosti 150 nianns er í hættu ef svo fer að togararnir stöðvast,“ sagði Sigurður Lárusson formaður Verkalýðsfélagsins Stjarnan Grundarfírði, er Tíminn ræddi við hann í gær um horfurnar f atvinnumáluin Grundfirðinga, ef svo fer að báðir togarar Grundarfjarðar, Sigurfari II og Runólfur stöðvast vegna olíuskulda nú um áramótin, eins og allt stcfnir í. „Það er nú ekki svo mikið hægt að segja um málið að svo stöddu," sagði Sigurður. „því þetta er allt svo óljóst ennþá, en auðvitað eru mcnn uggandi um sinn hag, því það er náttúrlega ófremdarástand framundan ef svo fer að togararnir stöðvast." Sigurður sagði að útgerðarmennirnir hefðu á fundi með atvinnumálanefnd og hrcppsnefnd nú fyrir jólin sagt að búast mætti við þessari stöðvun, en þó hefðu þcir ekki kveðið endanlega upp- úr með það. Hann sagði að því væru menn að vona að eitthvað myndi nú úr rætast. í Hraðfrystihúsi Grundarfjarðar starfa um 80 manns þegar flest er, á hvorum togara fyrir sig eru um 15 manns, og í hinu frystihúsinu eru um 50 starfsmenn, þannig að lauslega áætlað er hér um atvinnuöryggi 160 manns að ræða. Nægt hráefni til úrvinnslu cr fram að áramótum í fiskvinnslustöðvunum á Grundarfirði, því að í gær var landað úr Runólfi uni 80 tonnum af fiski, og úr Sigurfara II var landað um 100 tonnum sl. föstudag. _AB rrMikill samdráttur í þorskafla mun leiða til minni atvinnu” — segir Steingrímur Hermannsson, forsætisrádherra Hl Ekkert virðist geta komið í veg fyrir að atvinnuöryggi í sjávarplássum vcrði mjög ótryggt, eftir að veiðar hefjast á nýju ári, samkvæmt því kvótakerfisfyrirkomulagi sem nú er í undirbúningi, því líklegt má telja að útgerðarmenn leggi skipum sínum þann tíma sem verst viðrar eða minnst fiskast, eins og kemur fram í samtali við Hjálmar Gunnarsson, útgerðar- mann á Grundarfirði, á öðrum stað hér í hlaðinu. „Það liggur alveg í hlutarins eðli, að svona mikill samdráttur í þorskafla, sem gert er ráð fyrir á næsta ári. hann mun leiða til minni atvinnu" sagði Steingrímur Hcrmannsson, íorsætis- ráðherra m.a er Tíminn ræddi þessar horfur við hann í gær. „Það þarf færri tíma og færri hendur til þess að vínna 220 þúsund tonn af þorski, heldur en 400 þúsund. Spurningin er því sú, hvernig þessari minni atvinnu verður ráðstafað, eða hvernig hún cr framkvæmd," sagði forsætisráðherra. Hann sagði að það mætti hugsa sér að þessi afti yröi unninn á skemmri tíma yfir árið, en gert hefði verið hingað til, en það þýddi það, að einhvern liluta ársins yrði það fólk. sem hefði atvinnu sína af fiskvinnslu eða veiðum, atvinnuiaust. „Ég held að útgerðarmenn hljóti að verða að fækka úthaldsdögum," sagði Steingrímur, „en það er auðvitað spurning mcð stað eins og Grundar- fjörð, þar sem eru tveir togarar og nokkrir bátar, hvort togararnir þurfi að stoppast á sama tíma, sem auðvitað hefði afdrifaríkar afleiðingar í för með sér fýrir atvinnulíf staðarins. Mér finnst eðlilegt að leitað verði á hverjum stað leiða til þess að slíkt gerist ekki, því auðvitað er Grundarfjörður aðeins einn fjölmargra staða þar sem svipað verður ástatt. Nú, þá kemur einnig til greina að velja leið, sem væri í því fólgin að lokað væri i einn mánuð á sumri, sem væri þá sumarleyfismánuður." Forsætisráðherra sagði að ýmsar slíkar leiðir þyrftu útgerðarmenn og forsvarsmenn vtðkomandi staða að kanna. til þess að vita hvernig þessi samdráttur kætni sem skást út bæði fyrir útgerðina og þá sem vinna í landi. „Ríkisstjórnin hefur jafnframt í huga, að fá menn í nefnd til þess að fjaila um það atvinnuástand sem skap- ast við þessa erfiðleika útgerðarinnar víða um land og þá koma upp spurn- ingar um það hvort eitthvað er hægt að gera af opinberri hálfu til þess að bæta atvinnuástandið og koma mönnum yfir þessa tímabundnu erftð- leika," sagði forsætisráðherra, og bætti því við að hann óttaðist að töluvert meira þyrfti til að koma, til aðstoðar, en sú lenging lána Fiskveiðasjóðs sem hefur verið ákveðin og lækkun vaxta. Nefndi liann sérstaklega t því sam- bandi að fyrirgrciðsla af opinberri hálfu þyrfti til að koma, þar sem um væri að ræða nýlega togara sem væru með gífurlegan fjármagnskostnað á bakinu. -AB

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.