Tíminn - 28.12.1983, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1983
5
Mikil hálka vída á vegum
Reykjanesbraut:
þrjAr bifreiðar
í HÖRKU ÁREKSTRI
— þrír farþegar fluttir á slysadeild
■ Mjög haröur árekstur varð á Reykja-
nesbraut, um 2 kflómetra sunnan viö
Straumsvík um kl. 22:00 á mánudags-
kvöld. Þar lentu þrír bflar saman með
samtals 11 manns innanborðs. Þrír voru
fluttir á slysadeild en reyndust ekki
alvarlega meiddir. Einn bfliinn er ger-
ónýtur eftir áreksturinn en hinir tveir
mikið skemmdir.
Að sögn lögreglunnar í Hafnarflrði
voru tveir bflanna á suðurleið þegar
þriðji bfllinn kom á móti. Ökumaður
hans hafði misst stjórn á bflnum og lenti
fyrst á hlið fremri bílsins sem á móti kom
og síðan beint framan á þann síðari. og
kastaðist síðan út af veginum.
Farþegi í bflnum sem ekið var í átt að
Reykjavík, mun hafa rifbrotnað en fékk
að fara heim af sjúkrahúsi í gær. Öku-
maður bflsins og farþegi á aftari bílnum
voru einnig fluttir á slysadeild en fengu
að fara heim að lokinni skoðun. Farþeg-
ar í bflunum sem ekið var suður voru í
öryggisbeltum og mun það hafa bjargað
þeim frá meiðslum.
GSH
■ Hálka var víða á vegum landsins í
gær og sums staðar mjög mikil, sam-
kvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar.
Af Austurlandi fengum við t.d. fréttir af
gífurlegri hálku á flestum vegum. Margir
bflar áttu þar í vandræðum og lentu út
af vegum af þeim sökum. Svipaðar sögur
heyrðum við af Norðurlandi eystra.
Versta veður gekk yfir vestanvert
landið á tímabili í gær og snjóaði þá
mikið um tíma. Hvessi á þeim slóðum
býst Vegagerðin við töluverðum skaf-
renningi.
Vegagerðarmenn á Akureyri sögðu
flestar leiðir í hcraðinu og austur um
hafa verið opnaðar í gær. Síðdegis fór
veður þar versnandi og byrjaði að draga
í skafla. Bjuggust menn því við að allt
gæti lokast aftur í gærkvöldi og í nótt.
A Vestfjörðum sunnanverðum voru
flestir vegir opnir stórum bílum og
jeppum, en þyngri færð norðar. Snjóflóð
höfðu fallið í Óshlíðinni, en hún var
hreinsuð í gær. Breiðadals- og Botns-
heiðar voru ófærar og ekki ruddar vegna
slæms veðurútlits.
Að sögn Vegagerðarinnar voru vegir
um Borgarfjörð og vestur í Dali mokaðir
í gær, svo og um Snæfellsnesið norðan-
vert, út í Rif. Fjallvegir á Nesinu voru
ekki ruddir og eru ófærir.
Frá Reykjavík var fært um Hellisheiði
og Suðurland allt austur á firði.
-HEl
o
vegwrenqur
um Vesfarlandsveg
Það er búið að opna nýja
bensínstöð við Langatanga
í Mosfellssveit. Þar færðu
bensín, olíur, bílavörur
og allskyns smávörur.
Opið alla daga frá kl. 8-22.
Nú er um að gera að renna
við og reyna viðskiptin,
okkareránægjan.
Shell
V/Langatanga