Tíminn - 28.12.1983, Page 6
MIÐVIKUDAGUR 2«. DESEMBER 1983
ALLTIHÁALOHI í
DALLAS-HERBUÐUM
—lá við slagsmálum milli
stjarnanna Priscillu Presley
og Lindu Gray!
■ DALLAS-stjörnurnar Linda
Gray og Priscilla Presley eiga í
stöðugum illindum við upptökur
á sjónvarpsþáttunum frægu.
Samstarfsfólk þeirra segir að
leikkonurnar hatis; og geti varla
talað saman ncpia mcs s! etingi.
Linda hefur verið neð í
DALLAS-þáttunum l'rá upp-
hafi, en Priscilla er nýhvrjuð, en
hún þykir vera stor upp á sig og
fcllur ekki inn í liopinn, þar sem
allir þckkjast vel. Priscilla á það
til að vilja vera með einhverja
„drottningarstæla“ þá vill hún
láta stjana við sig og snúast í
kringum sig.
Það gekk alvcg fram af Lindu
eitt sinn nýlega, er þær voru
báðar í upptöku, og Priscilla
skipaði einum tæknimanninum
að ná í eitthvað smávegis fyrir sig
i búningsherbergið sitt. Linda
æddi til hennar og spurði hvað
hún héldi eiginlega að hún væri.
Hún væri nýbyrjuð þarna í
Dallas og hefði bara lltið
hlutverk, og það passaði ekki
fyrir hana að vera að gera sig
merkilega.
Priscilla lét hana ekkert eiga
hjá sér, og hreytti út úr sér, að
Linda væri bara öfundsjúk út í
sig, þar sem hún væri miklu
yngri og fallegri en Linda sjálf, -
þetta væri bara afbrýðisemi.
Auk þess að Lindu kæmi ekki
við hvað hún gerði, því hún hefði
ekkert yfir sér að segja.
Tæknimenn og starfsmenn
náðu því aðeins að ganga á milli
áður en stjörnurnar ruku saman
í slagsmál. Það tók hcilmikinn
tima að róa dömurnar áður en
hægt var að byrja aftur að vinna.
„Það þýðir ekkert annað en
að reyna að koma því svo fyrir
að þær þurfi ekki að vinna báðar
í einu, Linda og Priscilla, það
verða bara vandræði úr því,“
sagði stjórnandi þáttanna hnugg-
inn á eftir þessi læti.
■ Linda sagði Priscillu að hætta að vera með svona mont og
stærilæti, en fékk það óþvegið hjá henni til baka.
■ Priscilla Presley er nýbyrjuð að leika í DALLAS. Hún
segist vera sú fallegasta í þeim þáttum, og það eigi því að koma
fram við sig eins og stjörnu-leikkonu.
JOHN KENNEDY YNGRt
VHL VERDAIEKAFI
en móðir hans er á öðru máli
■ Terri Shields, móðir Brooke
Shields, hafði uppi stórar áætlan-
ir um nánustu framtíö dóttur
sinnar og leit út fyrir á tímabili,
að hún ntyndi hafa sitt fram sem
cndranær. En skyndilega kom
balib í bátinn og áætlanirnar
urðu að engu. I veg fyrir áform
Terri kom önnur viljasterk
móðir.
Terri Sbields hal'ði ætlaö sér
aö gera nýja útgáfu af Kamelíu-
frúnni, sem Greta Garbo gerði
ódauðlega í kvikntynd 1936.
Söguefnið er það sama og í
óperunni La Traviata, þ.e. ung
fögur stúlka, sem hefur það að
lilibrauði aö láta cl'naða karl-
inenn sjá sér farborða, heillar
ungan mann af góðum ættum
svo að hann sér ekki sólina fyrir
henni. Ast sína til hans sannar
liún endanlega með pví að reka
hann frá ser að beiðni föður
hans. Hún er þá þcgar illa haldin
af berklum, sem verða henni
skömmu síðar að aldurtiln. Með
hlutverk Kamelíufrúarinnar
hafði Terri hugsaö sér að Brookc
dóttir hennar færi, en með hlut-
verk unga mannsins átti John
Kennedy yngri aö fara, en hans
æðsti draumur er að verða leik-
ari.
Jaqueline móður Johns þótti
þctta ckki nógu viröulegt hlut-
verk fyrir son sinn sem stökkpall-
ur að þeirri framabraut, sem hún
hefur valið honum. Henni þykir
ncfnilega ekkert sjálfsagðara en
að hann haldi í heiðri fjölskyldu-
hefðina og gerist forystumaður í
■ En Jaqueline kom í veg fyrir þær áætlanir.
viðtal dagsins
■ Rósa Tómasdóttir apótekari Nesapóteks er hér þriðja frá vinstri, börn hennar Aslaug, Sigríður
og Darri eru henni á vinstri hönd, en aðrir starfsmenn apóteksins eru henni á hægri hönd.
Tímamynd - G.E.
Apótek á nýjan leik á Seltjarnarnesi,
eftir 150 ára hlé:
„MÖHEFUREKW
VEHBGENGtö
FMMHIÁOKKUR"
segir Rósa Tómasdóttir apótekari í
Nesapóteki, ein fárra kvenna á landinu
í starfi apótekara
■ Ein fárra kvenna í hópi apó-
tekara á íslandi opnaði apótek
sitt á Seltjarnamesi, Nesapótek
þann 22. þesa mánaðar, en það
er Rósa Tómasdóttir.
Tíminn spjallaði lítillega við
hana í því tilefni og spurði fyrst
hvort aðdragandi þess að Nesap-
ótek væri opnað á nýjan leik
hefði verið langur, en Nesapótek
var fyrsta apótekið á landinu
stofnsctt 1760 af Bjarna Pálssyni
landlækni en það hætti starfsemi
1833, eða flutti til Reykjavíkur,
þannig að nú eru liðin 150 ár frá
því að apótek hefur verið starf-
rækt á Seltjarnarnesi.
„Lyfsöluleyfið var auglýst
fyrst í fehrúar sl.,” segir Rósa,
„og leyfið var svo veitt fyrst í
april, af Svavari Gestssyni heil-
brigðisráðherra, og ég var sú
heppna. Þaðvoru tvö lyfsöluleyfi
sem voru auglýst um leið, þetta
og nýja apótekið í Breiðholti, og
samtals sóttu 12 lyfjafræðingar
um lyfsöluleyfin, en við vorum
bara tvö sem sóttum eingöngu
um lyfsöluleyfið hér á Nesinu."
- Hvar lærðir þú lyfjafræði,