Tíminn - 31.12.1983, Page 13
LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1983
áramótavidtöl
■ Gunnlaugur Astgeirsson
legust hin versnandi sambúö stórveld-
anna og þau átök sem verið hafa bæði
við Miðjarðarhafið og í Suður-Ameríku.
Einna hæst bcr þar hina grímulausu
stefnu Bandaríkjastjórnar að styðja
miskunnarlaust við bakið á öllum bófum
sem telja sig vinna á móti kommúnistum.
Innrásin í Grenada er eiginleg kristöllun
á þeim viðhorfum sem þar eru ríkjandi.
Ef við víkjum að bókmenntunum þá
er það kannski einna athyglisverðast að
svo virðist sem íslenskur skáldskapur sé
minni hluti af heildarútgáfunni en verið
hefur. Einkum vekur athygli, að þau
skáldverk sem manni þykja fremur bera
af eru eftir yngri höfunda. Eldri höfund-
ar - þeir sem komnir eru um og yfir
fimmtugt - virðast flestir vera í fríi, þó
með einni mjög mikilvægri undantekn-
ingu, sem er hið mikla stórvirki Ólafs
Jóhanns Sigurðssonar. Drekar og smá-
fuglar eru skáldverk af því tagi að annað
eins hefur ekki komið út á árinu.
Leikhúslífið í ár virðist einkennast af
stöðnun hjá stofnanaleikhúsunum. Þar
virðist ekkert merkilegt vera að gerast,
en einhver ótti ríkjandi við að taka
alvarlega listræna áhættu. Það virðist
einkennandi að fólk sé þar bara að vinna
vinnuna sína, sem flest af þessu fólki
gerir að vísu ósköp pent“, sagði Gunn-
laugur Ástgeirsson.
- HEI.
■ Andre's Indriðason
„Sveiflan í
veðrinu
og verðbólg-
unni“
segir Andrés Indriðason
dagskrárgerðarmaður
■ „Ætli sveiflan í verðbólgunni og
veðrinu séu ekki númer 1 og 2 af því sem
minnisstætt er á árinu þegar það er
skoðað sem varðar þjóðarhag" sagði
Andrés Indriðason dagskrárgerðar-
maður og rithöfundur.
„Veðurguðirnir voru í miklum ham á
árinu. Yfirþyrmandi fannfergi sunnan-
lands í vetur verður lengi í minnum haft,
rigningarsumarið mikla gleymist seint
að ekki sé talað um kuldann í júlí.
Sjálfsagt verður árið 1983 líka minnis-
stætt á spjöldum sögunnar, ef þessari
ríkisstjórn ætlar að takast að kveða
verðbólgudrauginn í kútinn. Þetta hefur
trúlega verið erfitt ár fjárhagslega fyrir
marga en vonandi fer nú þjóðarskútan
að komast á réttan kjöl og þá ætti hagur
fólks að fara að vænkast.
Það má sitthvað tína til sem er ofarlega
í huga mér við áramót. Ég vil sérstaklega
nefna hin hörmulegu slys sem urðu í sjó
og í lofti. En tilefni til gleði voru líka
mörg á árinu. Glcðiefni er það til dæmis,
svo ég tali sem kvikmyndagerðarmaður,
að fyrirtæki í Þýskalandi hyggst koma
íslenskum kvikmyndum á framfæri er-
lendis.
Fyrir sjálfan mig og mína fjölskyldu
var þetta gott ár ogskilur eftir sig margar
góðar minningar. Mér er minnisstætt
mjög ánægjulegt samstarf við Lárus Ými
Óskarsson leikstjóra að verkum mínum,
bæði í útvarpi og sjónvarpi og auðvitað
voru viðtökumar sem bókin mín, Fjórt-
án bráðum fimmtán, fékk mjögánægju-
legar. Það er einnig mjög ánægjulegt að
það hefur verið falast eftir útgáfu bóka
minna í Þýskalandi og kannski verður
einmitt það minnisstæðast í mínum huga
frá árinu 1983 þegar frá líður."
- GSH.
Hagvirki h.f.
Sendir starfsmönnum sínum bestu nýársóskir.
Þökkum samstarfið á liðnu ári.
Hagvirki h.f.
Sími 44566
RAFLAGNIR
Nýlagnir - Breytingar - Viðhald SKtHKt jS
samvirki JSSf
n__on_onn WKKm
Skemmuvegi 30 — 200 Kópavogur.
Óskum viðskiptavinum okkar og lands-
mönnum öllumfarsœldar ákomandi ári.
tsso
Smurstöðin,
Hafnarstrœti 23
Sími11968
Sendum landsmönnum öllum
bestu óskir um
Gleðilegt ár
Hittumst heil á nýja árinu
KLÚBBURI
Meitillinn; Þorlákshöfn
/
Oskar starfsfólki sínu til lands og sjávar
svo og viðskiptavinum öllum
Gleðilegs nýárs
Með þökk fyrir samstarf og
viðskipti á liðnum árum
Óskum öllum til lands og sjávar
Gleðiiegs nýárs
Þökkum gott samstarf
og viðskipti á liðnu ári
Samvinnubankinn
óskar starfsmönnum sinum og viðskipta-
vinum um land allt
gleðilegs nýs árs