Tíminn - 08.02.1984, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1984
3
fréttir
„Rækjuslysið”
í Hollandi:
„GÆTI ORÐIÐ TIL
AÐ AUKA MARK-
AÐSMÖGULEIKA
OKKAR”
— segir Heimir
Hannesson,
forstjóri
Sölustofnunar
lagmetis
■ „Þetta getur farið á tvo vegu. Annars
vegar að það grípi um sig varanleg
tortryggni gagnvart rækju almennt hvað-
an sem hún kemur og hvernig sem hún '
er verkuð. Hins vegar, og vonandi, getur
þetta orðið til þess að menn treysti
frekar rækju sem veidd er í ómenguðum
sjó, eins og til dæmis hér við land. Það
gæti orðið til að auka okkar markaðs-
möguleika,“ sagði Heimir Hannesson,
forstjóri Sölustofnunar lagmetis, þegar
Tíminn átti við hann tal um „rækjuslys-
ið“ í Hollandi á dögunum, þegar 13
manns létust af völdum skemmdrar vatna-
rækju frá Austuriöndum.
Mál þetta hefur valdið gífurlegri
röskun á rækjumörkuðum Evrópu. Ein-
stök lönd innan Efnahagsbandalagsins
hafa brugðist mjög hart við og jafnvel
bannað tímabundið innflutning á allri
rækju. í vikuritinu Foodnews kemur
fram að hagsmunaaðilar telja að heil-
brigðisyfirvöld einstakra ríkja hafi
orðið sek um visst ábyrgðarleysi varð-
andi þetta mál og látið það bitna á
viðskiptaaðilum með algjörlega hreinan
skjöld, en Norðmenn eru sérstaklega
nefndir í því sambandi.
„Sú hætta er að sjálfsögðu fyrir hendi
að hjá okkur skapist nokkurs konar
biðstaða meðan þetta er að ganga yfir og
við fylgjumst náið með framvindunni.
Við höfum enn ekki orðið varir við að
verð á niðursoðinni rækju hafi lækkað
hins vegar vitum við að fryst rækja hefur
lækkað í verði í kjölfar þessa máls,“
sagði Heimir. -Sjó
Álviðræðurnar
í Zurich:
„EFASTUMAD
SLEGIÐ VEREH
FÖSIUUM
RAFORKUVERÐS-
HÆKKUN”
— segir Sverrir
Hermannsson,
iðnaðarráðherra
■ „Ég efast um að nokkru verði slegið
föstu um hækkun raforkuverðs til ál-
versins á þessum fundi, sem hefst nú
þann 9. fehrúar," sagði Sverrir Her-
mannsson iðnaðarráðherra, er Tíminn
spurði hann í gær hvað hann gerði sér
vonir um að Svisslendingarnir myndu
bjóða mikla raforkuverðshækkun á álvið-
ræðufundinum, sem hefst í Zurich á
morgun.
Aðspurður um hvort það væri ekki
óaðskiljanlegt í samningunum, að semja
um hækkun raforkuverðs og stækkun
álversins, sagði iðnaðarráðherra:
„Allt er þetta samtengt, en ég bind
samt vonir við að menn komist áleiðis í
öllum þessum þáttum. Ég dreg samt í
efa, eins og ástandið er nú í Straumsvík,
þ.e. verkfall, að mikill árangur geti
náðst á þessum fundi vegna þess.“
Sverrir var spurður hvort hann ætti
von á því að ákveðið tilboð kæmi frá
Svisslendingunum á þessum fundi sem
hefst á morgun: „Það kom fram á síðasta
fundi, að það er áhugi fyrir því að menn
fari að nefna einhverjar tölur, og ég held
að Svisslendingarnir verði að eiga útspil-
ið hvað það varðar að nefna tölu um
hækkun raforkunnar. Ég geri mér aldrei
of háar vonir um þeirra útspil í þessu, en
ég á vqn á því að einhver tala verði
nefnd." -AB
■ Launakönnun Kjararannsóknarnefndar var kynnt með viðhöfn í Ráðherrabústaðnum í gær.
Launakönnun Kjararannsóknarnefndar:
DAGSBRÚNARMENN ERU MEÐ
LÆGSTAR HEIMIUSTEKJUR
— Nær 80% Sóknarmanna hafa undir 13 þús. kr. í dagvinnutekjur
■ Um 78 af hverjum 100 fullvinnandi
giftum félagsmönnum í Starfsmannafé-
laginu Sókn höfðu undir 13.000 kr. í
dagvinnutekjur í nóvembermánuði sl.,
samkvæmt niðurstöðum launakönnunar
Kjararannsóknarnefndar, sem náði til
14 verkalýðsfélaga. Undir 15.000 kr.
dagvinnulaun höfðu 97% þessa hóps
Sóknarfélaga og er það lang lakasta
útkoman meðal þessara 14 verkalýðsfé-
laga.
Aðdragandi þessarar könnunar var
sem kunnugt er að Sókn og Verka-
kvennafélagið Framsókn fóru þess á leit
við forsætisráðherra að hann hlutaðist til
um að fram færi könnun á því hve margir
launþegar taki laun samkvæmt lág-
markstekjutryggingu eða þar um bil.
Fullgild svör bárust frá 1. 345 einstak-
lingum þar af 462 körlum og 883 konum.
í fuliu starfi voru 873 þar af af 476 giftir
(52% barnlaus hjón), 61 einstæð foreldri
og 336 einstaklingar.
Önnur verkalýðsfélög sem hafa hátt
hlutfall fullvinnandi gifts fólks með dag-
vinnutekjur undir 13.000 eru: Félag
starfsfólks á veitingahúsum 56%, Fram-
sókn 50%, Eining á Akureyri og Verka-
lýðsfél. Rangæingur 42% og Iðja í
Reykjavík 30%. Langsamlega lægst var
þetta hiutfall hins vegar hjá Verslunar-
mánnafél. Reykjavíkur 2%. Tekið skal
fram að 90% af heildar bónustekjum eru
taldar með dagvinnutekjum. Tæpur
fjórðungur alls úrtaksins hafði undir
13.000 kr. mánaðarlaun.
í níu af þessum 14 félögum var
helmingur þessa fullvinnandi fólks með
dagvinnutekjur undir 15. þús. kr. Auk
Sóknar með 97% undir þessu marki,
sem fyrr segir, komu næst 78% starfs-
fólks í veitingahúsum, 73% félaga í
Framsókn og 68% félaga í Rangæingi.
Meðal dagvinnutekjur alls úrtaksins
voru 16.854 krónur - lægstar hjá Sókn
12.448 krónur, en hæstar hjá Verslun-
armannafélagi Reykjavíkur rösklega 21.
þús. krónur og hjá Verkalýðsfélagi Vest-
mannaeyja um 21.700 kr., en tekið var
fram að tímabilið sem könnunin var
gerð hafi verið mjög óvenjulegt fyrir
Eyjar, þar sem síldarvertíð hafi þá verið
þar í fullum gangi. Eina félagið annað
sem fór örlítið yfir meðaltalið (16.854
kr.) var Fél. versl. og skrifstofufólks á
Akureyri. Verslunarmannafél. Reykja-
víkur sker sig mjög úr hópi hinna 14
félaga, þar sem 48% þeirra félagsmanna
höfðu yfir 20.000 kr. dagvinnutekjur og
mun þar fyrst og fremst vera um skrif-
stofufólk að ræða.
STEFNT ER AÐ BYGGINGU NÝRR-
AR FLUGSTÖÐVAR í REYKJAVÍK
■ Stefnt er að því að hetja framkvæmd-
ir við nýja flugstöðvarbyggingu hér í
Reykjavík eigi síðar en 1986, samkvæmt
því sem segir í frétt frá samgönguráðu-
neytinu.
Samgönguráðherra hefur skipað
nefnd til þess að vinna að tillögugerð um
framkvæmdir í flugmálum, og er áætlun
um uppbyggingu nýrrar flugstöðvar á
Reykjavíkurflugvelli meðal verkefna
þessarar nefndar. Það er Birgir ísleifur
Gunnarsson sem er formaður nefndar-
innar,/, en aðrir í nefndinni eru þau
Ragnhildur Hjaltadóttir, Garðar Sig-
urðsson, Andri Hrólfsson ogdr. Þorgeir
Pálsson.
Önnur verkefni nefndarinnar verða
m.a. að semja áætlun um almenna
flugvelli, sem taki til framkvæmda við
flugbrautinv,, og flugvélastæði. Henni er
ætlað að leggja áherslu á flugvöllinn á
Egilsstöðum og flutning flugbrautar þar.
Ætlast er til þess að nefndin hafi
samráð og samvinnu við flugráð, flug-
málastjórn og flugmálastjóra, jafnframt
því sem ætlast er tii þess að nefndin hafi
lokið störfum fyrir 1. október 1985.
-AB
■ Steingrimur Hermannsson, forsætisráðherra ræðir málin við Þórð Friðjónsson
efnahagsráðgjafa forsætisráðuneytisins. Tímamyndir G.E.
Karlar með 16% hærri dag-
vinnutekjur en konur
Við samanburð á dagvinnutekjum
þeirra sem vinna fullt starf kemur í ljós
að meðal dagvinnutekjur karla voru
16% hærri en kvennanna, eða tæp 17.
þús. hjá körlum á móti um 14.700 hjá
konum.
Dagsbrúnarmenn með
lægstar heimilistekjur
f könnun þessari voru einnig kannaðar
heimilistekjur, þ.e. öll laun einstaklings-
ins að viðbættum öðrum tekjum svo sem
tryggingabótum og heildartekjum maka.
Meðaltal heimilistekna fullvinnandi gifts
fólks sem þátt tók í könnuninni voru um
35.730 kr., lægst hjá Dagsbrúnar-
mönnum um 29.400 kr. en langsamlega
hæst hjá Verkalýðsfél. Vestmannaeyja
um 51.630 kr. (ath. fyrri fyrirvara). Hjá
nokkrum félögum hafði þó meira en
fjórðungur gifts fólks fjölskyldutekjur
undir 25. þús. kr.: Dagsbrún 35%,
Eining á Akureyri 31% og Fél. versl. og
skrifstofufólks á Akureyri 25%.
Heimilistekjur einstæðra
foreldra mjög lágar
Nær 1 afhverjum5einstæðumforeldr-
um með eitt barn á framfæri og í fullu
starfi hafði innan við 15.000 króna
heimilistekjur og eru þá tryggingabætur
meðtaldar. Nærri helmingur þessa hóps,
eða 45% hafði heimilistekjur undir 20
þús. krónum á mánuði ognær þriðjungur
einstæðra foreldra með 2 börn á fram-
færi.
Af barnlausum einstaklingum hafði
röskur þriðjungur heimilistekjur undir
15 þús. og samtals 74% höfðu undir 20
þús. króna heimilistekjum. Af þessum
hópi einstaklinga eru 61% konur og
hlutfallslega margir undir tvítugu eða