Tíminn - 08.02.1984, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR'1984
5
fréttir
Tveir slösudust er brotsjór reid yfir togara í Víkurál:
ÞYRLA SÓTTl HINA SLðS-
UÐIITIL PATREKSFJARÐAR
■ Þyrla Varnarliösins sótti tvo slasaða
sjómenn til Patreksfjarðar í gærmorgun
og kom hún með þá á þyrlupallinn við
Borgarsjúkrahúsið skömmu fyrir kl. 10
um morguninn.
Hannes Hafstein framkvæmdastjóri
SVFI, sagði í samtali við Tímann að
togarinn Framnes IS 708 hefði verið að
veiðum í Víkurál, í versta veðri í fyrra-
kvöld er brotsjór reið yfir skipið með
Ungur hesta-
maður lenti í ai-
varlegu um-
ferdarslysi:
DflTT AF
HESTINUM
OG VflRÐ
FYRIR BÍL
■ Alvarlegt umferðarslys varð á Bú-
staðaveginumum helgina,er ungur hesta-
maður datt þar af baki og varð fyrir bíl.
Hestamaðurinn. sem. var 13 ára
strákur, kom ríðandi eftir Bústaðavegin-
um sunnan að. Samkvæmt frásögn sjón-
arvotts þá tók hesturinn á rás út á veginn
án þess að piitinum tækist að hafa stjórn
á honum. Datt hann af baki á veginum
og varð fyrir bíl sem kom úr gagnstæðri
átt en hestinn sakaði ekki. Pilturinn
slasaðist alvarlega á höfði auk þess að
viðbeinsbrotna.
Mikill snjór var við veginn á þessum
slóðum enda hefur hann verið marg-
ruddur í ófærðinni undanfarna daga.
- FRI
Þorstlátir þjófar
á ferð um
helgina:
Áfengirærvt
aff tveimur
stöðum
■ Áfengi var stolið af tveimur stöðum
í Reykjavík um síðustu helgi. Brotist var
inn í veitingastaðinn Hornið í Hafnar-
stræti og þaðan stolið vínföngum en
þjófarnir komust inn með því að brjóta
stóra rúðu á staðnum.
Einnig var brotist inn í „Risið“ á
Hverfisgötu en þar er funda- og veitinga-
þjónusta. Að sögn RLR var þaðan stolið
talsverðu magni af áfengi en þjófarnir
munu hafa komist inn um útidyrnar á
jarðhæð hússins sem var opin vegna
leiktækjasalar sem er á neðstu hæð.
Helgin var að öðru leyti róleg hjá
RLR utan þess að kveikt var í póst-
kössum og blaðarusli í fjölbýlishúsi í
Krummahólum aðfaranótt sunnudagsins
en skemmdir af völdum þessa munu hafa
orðið minni en á horfðist - FRI
Gunnar og
Gísli á Háskóla-
tónleikum
■ Aðrir Háskólatónleikar á síðara
misseri þessa árs verða í dag í Norræna
húsinu og hefjast kl. 12.30. Þar koma
fram Gunnar Kvaran selióleikari og
Gísli Magnússon píanóleikari.
Á efnisskránni verða sónata eftir
enska tónskáldið Henry Eccles, sem
uppi var á 17. og 18. öld og þriðja
sellósvítan eftir J.S. Bach.
Tónleikarnir standa í um hálftíma.
- JGK
þeim afleiðingum að tveir úr áhöfn
slösuðust.
„Við fréttum strax hvað gerst hafði en
það kom aldrei til greina að senda þyrlu
strax vegna veðursins og aðstæðna á
slysstað. Togarinn hélt því með mennina
til Patreksfjarðar ogjtom þangað um kl.
4.30 um morguninn.“ sagði Hannes.
Sjúkrahúslæknirinn á Patreksfirði,
Björn Einarsson, hafði þá samband við
■ Tveir ölvaðir menn vopnaðir
haglabyssum, réðust inn í verbúðina á
Tálknafirði á sunnudagsmorguninn,
fyrst skutu þeir rúðuna úr hurð verbúð-
arinnar og var þá hleypt inn af þeim
sem voru í verbúðinni en þar voru alfs
níu manns, þar af sex í stofu, þrír
íslendingar og þijár ástralskar stúlknr
en hinir ölvuðu voru að leita að
ástralskri eiginkonu annars þeirra sem
stödd var í stofunni.
Einum mannanna, sem voru í
stofunni tókst að komast út og ætlaði
hann að hringja í lögregluna en hinir
ölvuðu skutu á eftir honum og lentu
höglin rétt fyrir aftan hann en hann
náði að henda sér bakvið bíl sem var
fyrir utan.
Til nokkurra átaka kom inn í ver-
búðinni og tókst einni af áströlsku
stúlkunum að ná byssunni af félaga
SVFl og bað þá um að útvega þyrlu til
flutninga á mönnunum, þeir hefðu báðir
hlotið höfuðmeiðsl og annar þeirra þar
að auki innvortis áverka og treysti
læknirinn sér ekki til að gera aðgerð á
honum þar sem ekkert blóð var til á
staðnum.
Hannes sagði að þeir hefðu leitað til
Varnarliðsins og það sent þyrlu og
eldsneytisvél til Patreksfjarðar en þá var
eiginmannsins og henda henni út um
glugga. Hinir ölvuðu leituðu um atla
verbúðina að eiginkonunni en fundu
hana ekki enda hafði fólkið sem fyrir
var falið hana fyrir þeim þar sem mátti
skilja á mönnunum að þeir ætluðu að
drepa hana.
Skotmennimir munu hafa verið í
um hálftíma inní í verbúðinni en héldu
síðan á brott og skildu byssur sínar
eftir í íbúðarhúsi. Lögreglan á Patreks-
firði kom á staðinn skömmu síðar og
fann hún mennina í öðru íbúðarhúsi.
Til átaka kom er hún ætlaði að hand-
taka þá og þurfti að flytja þá í járnum
til Patreksfjarðar.
Að sögn fulltrúa sýslumannsins á
Patreksfirði var mönnunum sleppt úr
haldi þar á mánudaginn og verður
málið nú sent ríkissaksóknara til með-
ferðar.
- FRI
þar komið logn og gott skyggni. Við
Látrabjarg tók þyrlan svo eldsneyti og
seinkaði för hennar nokkuð vegna þess
en félagar úr SVFI á Patreksfirði höfðu
afmarkað lendingarsvæði fyrir þyrluna á
hafnargarðinum vestanverðum og var
það lýst upp með bílljósum, ljósköstur-
um og handblysum. Þangað kom þyrlan
svo skömmu fyrir kl. 9 og til Reykjavíkur
kom hún skömmu fyrir kl. 10. - FRI
■ Brunabótafélag íslands hefur úthlut-
að heiðurslaununt sínum í þriðja sinn og
hlaut þrennt launin að þessu sinni, þar á
meðal fyrsta konan sem hlýtur þau,
Ragnhildur Stefánsdóttir myndhöggv-
ari.
Ingi R. Helgason forstjóri Brunabótar
gerði grein fyrir úthlutuninni á fundi
með blaðamönnum og heiðurslauna-
höfum og sagði hann þá m.a. að mikill
fjöldi umsókna hefði borist um heiðurs-
BATUR
STRANDAÐI
VIÐ ENGEY
■ Vélbáturinn Nunni GK 161, 11
tonn að stærð strandaði við Engey í
gærmorgun er hann var á leið út úr
Reykjavíkurhöfn á veiðar. Einn mað-
ur var á bátnum og mun slysið hafa átt
sér stað þannig að vélin drap á sér er
báturinn var kontinn rétt út fyrir
hafnarmynnið. Fór maðurinn niður í
vélarrúmið til að athuga bilunina og á
meðan rak bátinn upp í fjöru í Engey.
Hafnsögubáturinn var kallaður til
hjálpar og tókst honum að koma
dráttartógi í bátinn og draga hann inn
í Reykjavíkurhöfn að nýju.
Leki kom að bátnum við strandið
en aðrar skemmdir eru litlar. - FRl
launin..." og helst hefðum við viljað
styrkja hvern einasta mann...“ Þeir sem
hlutu launin að þessu sinni voru þau
Jón Ásgeirsson tónskáld sem hlaut laun-
in í sex mánuði til að vinna að gerð óperu
um Galdra-Loft, Ragnhildur Stefáns-
dóttir myndhöggvari sem hlaut launin í,
þrjá mánuði í því skyni að auðvelda
henni gerð höggmynda og lágmynda í
Listasmiðju Glits ogSigurður Þorsteins-
son veðurfræðingur sem hlaut launin í
þrjá mánuði í því skyni að auðvelda
honum að vinna að rannsóknum á
áhrifum fjalllendis á veðurfar en hann
dvelst nú í Osló þar sem hann vinnur að
þessu verkefni ásamt norskum veður-
fræðingum og það var bróðir hans Jón
Bjarni sem veitti laununum viðtöku fyrir
hans hönd. Launin miðasL við laun
yfirkennara í menntaskóla.
Það var á fundi þann 22. janúar 1982
sem stjórn Brunabótafélags íslands sam-
þykkti að minnast 65 ára afmælis félags-
ins með því að stofna stöðugildi á
aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík sem
ráða skal í samkvæmt sérstökum reglum
og að starfslaun þess sem ráðinn er
nefnist heiðurslaun Brunabótafélags
íslands.
Megintilgangur þessa stöðugildis er
sá, að gefa einstaklingum kost á að sinna
sérstökum verkefnum, sem til hags og
heilla horfa fyrir íslenskt samfélag, hvort
sem það er á sviði lista, vísinda,
menningar, íþrótta eða atvinnulífs. Þau
verkefni koma hér ein til greina, sem
kostuð eru af viðkomandi einstaklingi
sjálfum.
Stjórn B.í velur þann einstakling, sem
heiðurslaun hlýtur eftir umsóknum sam-
kvæmt auglýsingu.
Sá, sem heiðurslauna nýtur, skuld-
bindur sig til að gera stjórn B.í. grein
fyrir starfi sínu og hverju hann fékk
áorkað meðan launanna naut við.
- FRI
■ Fyrsta konan sem hlýtur heiðurslaunin, Ragnhildur Stefánsdóttir, tekur við þeim úr hendi Stefáns Reykjalín Ingi R.
Helgason horfir á. Timamynd Róbert.
Tveir ölvaðir menn vopnaðir
haglabyssum réðust inn í
verbúðina á Tálknafirði:
SKUTU Á EFT1R
EINUM MANNANNA
í VERBÚÐINNI
■ Stefán Reykjalín afhendir, fyrir hönd stjórnar Brunabótar, Jóni Ásgeirssyni
heiðurslaunin.
Heiðurslaun Brunabótafélagsins
afhent í þriðja sinn:
„Helst hefðum við viljað
styrkja hvem einasta mann”