Tíminn - 08.02.1984, Side 9

Tíminn - 08.02.1984, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRUAR 1984 á vettvangi dagsins Miðstjórn Sambands ungra framsóknarmanna SPARNAÐUR ÁN ÞESS AD GENGIÐ SÉ Á HUG- MYNDIR MANNA UM VELFERDARÞJÓDFÉLAGIÐ ■ Miðstjórnarfundur Sambands ungra framsóknarmanna var haldinn um síð- ustu helgi og voru eftirfarandi ályktanir samþykktar. Alyktun um Samvinnumál Samvinnuhreyfingin hefur haft mikil og jákvæð áhrif á þróun íslensks þjóð- félags síðustu 100 árin. Fyrir hennar tilstilli hefur fjöldi manna hafist úr örbirgð til bjargálna. Hún átti mikinn þátt í því að skapa efnahagslegt sjálf- stæði Islands er barátta okkar við Dani stóð yfir. Með samvinnufélögum hefur fólki tekist að halda uppi atvinnulífi og veita þjónustu og þar með standa vörð um byggð í ýmsum héruðum víðs vegar um land. Gildi samvinnuhreyfingarinnar fyrir ísland og íslendinga verður því seint ofmetið. Miðstjórnarfundur S.U.F. hvetur unga framsóknarmenn, sem og aðra landsmenn, til að ganga til liðs við samvinnuhreyfinguna og taka virkan þátt í þeirri starfsemi sem fer fram innan hennar. Síðast en ekki síst hvetur mið- stjórnarfundurinn félög ungra framsókn- armanna til að taka málefni samvinnu- hreyfingarinnar til umræðu. Mið- stjórnarfundurinn minnir á að slík um- ræða - t.d. um framtíðarmarkmið sam- vinnuhreyfingarinnar - verður að byggja á kunnugleika á sögulegum aðdraganda hennar, skilningi á inntaki þeirra hrær- inga sem ólu af sér samvinnustefnuna, viðurkenningu á helstu grundvallarregl- um hennar og þekkingu á þróun, við- fangsefnum, árangri og núverandi stöðu samvinnuhreyfingarinnar. Ályktun um kostnaða rminnkun í heilbrigðis- þjónustunni Miðstjórnarfundur Sambands ungra framsóknarmanna mótmælir harðlega þeim hugmyndum sem ráðherra og þing- menn Sjálfstæðisflokksins hafa hreyft á Alþingi og inn í ríkisstjórn um álagningu svonefnds sjúklingaskatts. Miðstjórnarfundur S.U.F. skorar á ráðherra og þingmenn Framsóknar- flokksins að lýsa því nú þegar yfir að ekki komi til greina að leggja slíkan skatt á. Par sem slíkur skattur stangast í grundvallaratriðum á við hugmyndir manna um félagslegt öryggi, jafnrétti og samneyslu. Það er skylda ráðherra og þingmannna Framsóknarflokksins að standa vörð um það velferðarþjóðfélag sem Framsóknarflokkurinn hefur verið að byggja upp hér á síðasta áratug. Miðstjórnarfundur S.U.F. viðurkenn- ir að kostnaður ríkisins vegna reksturs sjúkrahúsanna og heilbrigðisþjónust- unnar sem slíkrar er orðinn veruleg byrði á ríkissjóði og því sé nauðsynlegt að leita leiða til kostnaðarminnkunar sem felast í því að ekki sé gengið á grundvallarhug- myndir manna um velferðarþjóðfélagið og hafi í för með sér tilfinnanlega skerðingu á þjónustu. í þessu sambandi vill miðstjórnarfundurinn benda á eftir- farandi lejði, ti! '-oitnaðarminnkunar í heilbrigðisþjónustunm: 1. Innflutningur ; lyfjum serði boðinn út af ríkinu, enda kaupir ríkið 90% af lyfjum sem notuð eru í landinu. Mcð þessum hætti mætti gera mun hagstæðari innkaup og velja ódýrari lyf, sem veita sömu áhrif og dýrari lyf, en í dag eru enginn hvati, hvorki á lækni, né sjúkling til að leita hagkvæmni í lyfjakaupum. Meðþess- um fyrirkomulagsbreytingum mætti spara a.m.k. 20% af Iyfjakostnaði ríkisins, sem er um 300 milljónir. þ.e. sparnaður gæti numið um 60 milljón- um á ári. 2. I kjarasamningum lækna er gert ráð fyrir að læknar geti unnið allt að 9 klst á viku utan sjúkrahúsanna. Verði þetta ákvæði afnumið gæti launa- sparnaður orðið allt að 40 milljónir kr. á ári. 3. Komið verði á sameiginlegum inn- kaupum fyrir öll íslensku sjúkrahús- in. Með því mætti spara umtalsverðar upphæðir. 4. Með almennu útboði á viðhaldi, tækjakosti og húsnæði sjúkrahúsa mætti spara umtalsvcrðar upphæðir, Ályktun um kjara-, verðlags-, og skattamál Miðstjórn Sambands ungra framsókn- armanna telur mikilvægt að tryggja megi varanleika þess árangurs sem ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar hefur náð í baráttunni við verðbólguna. Ljóst er að stór hluti þess árangurs er tilkominn vegna kjaraskerðingar launafólks, sem stafar af sífellt minnkandi þjóðartekj- um. Miðstjórn S.U.F. skorar á aðila vinnumarkaðarins að við þessar aðstæð- ur verði kjarasamningar fyrst og fremst miðaðir við að bæta kjör hinna lægst launuðu. Miðstjórn S.U.F. telur að ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar eigi að hafa forystu um að bjóða sínum viðsemjendum. þ.e. Bandalagi starfs- manna ríkis og bæja, tryggingu á I5.1KI0 kr. lágmarkslaunum og allt það svigrúm sem í fjárlögum er til launhækkana verði notað til þess. Með slíku tilboði sýndi ríkisstjórnin skýrt vilja sinn til að bæta kjör hinna lægst launuðu og um leið reyndi á raunverulegan vilja verkalýðshreyfing- arinnar til kjarajöfnunar. Miðstjórnar- fundur S.U.F. skorar á ríkisstjórn Steingríms Hertnannsonar að beita sér fyrir eftirfarandi umbótum ásviði kjara-, verðlags,- og skattamála til að tryggja kjör hinna lægst launuðu: a) Lækkaðir verði tollar af innfluttum matvælum sem ekki er í samkeppni við innlcnda framleiðaslu. b) Að verðlagning vöru og þjónustu verði óháð opinberum afskiptum, þar sem að samkeppni í atvinnulífinu er næg, þannnig að neytendur og atvinnulífið njóti hagkvæmni frjálsrar verðmyndunar. Nauðsynlegt er hins vegar að hafa öfluga verðgæslu sem fyrst og fremst starfi að verðkynning- armálum og verðkönnunarmálum. c) Að gengi íslensku krónunnar verði haldið sem stöðugustu. d) Að í stað núverandi tekjuskatts og útsvars ' omi einn tckjuskatttur, brúttosKattur með eltir á Irádrætti, persónuafslæltio;; bústoím f;:V drætti. Skatturinn vci• >■ siiglueki.a.æu u„ 0-40%. Tekjum af skattinum verði skipt milli ríkis og sveitarfélaga. Skatturinn verði innheimtur með staðgreiðslukerfi. g) Að ekki vcrði tekinn upp virðisauka- skattur heldurxerði nuverandi sölu- skattskerli elll. þannig að innheimtu- hlutfall til ríkissjóðs hækki og um leið væri möguleiki að lækka söluskatts- prósentuna. Ályktun um fíkniefnamál Miðstjórnarfundur SUF lýsir yfir miklum áhyggjum vegna aukinnar ncyslu fíknicfna hér á landi. Miðstjórn- arfundurinn skorar á yfirvöld að verja stórauknu fé til forvarnarstarfs, en gera verður allt sem í mannlegu valdi stendur til að koma í veg fyrir að ungt fólk ánetjist fíkniefnunt. Miðstjórnarfundurinn skorar á yfir- völd að koma á fót nefnd sem hefur það markmið að sameina krafta þeirra sem vinna gcgn fíkniefnum, að stórauka tollgæslu, að gera fíkniefnadómstólinn fljótvirkari, að herða refsingar gagnvart þcim sem flytja inn fíkniefni, að vinna aðstofnun lciðbciningastöðvarí Reykja- vík fyrir ávana- og fíkniefnaneytendur svo og aðstandendur þeirra, að fíkniefnajögreglan verði stórefld og að lögsaga hennar nái til alls landsins og þar verði vakt allan sólarhringinn. Mið- stjórnarfundurinn lcggur áherslu á að fræðsla um skaðsemi fíkniefna verði aukin til niuna. í því sambandi bendir miðstjórnarfundurinn á nauðsyn þess að kennarar fái aukna fræðslu svo þeirverði hæfari til að bægja unglingum Irá hætt- unni. Einnig verði þessi mál tekin fvrir á foreldradögum í skólum. Ekki fer milli mála að ríkisfjöl- miðlarnir geta unnið mikið og gott starf í að upplýsa fólk um skaðsemi fíkniefna. í dag er mikiö um umferðarfræðslu í útvarpi og sjónvarpi, en miðstjórnar- fundur S.U.F. skorar á yfirvöld að beita sér fyrir að í þessum fjölmiðlum verði í framtíðinni fastir þættir um skaðsemi fíknicfna. Laxeldisstöð Laugarlax hf: Blátt banri við afrennsli í Apavatn ■ Við undirritaðir ábúendur og/eða eigendur við Apavatn viljum koma á framfæri ýmsum athugasemdum um undirbúning og aðdraganda að byggingu Laxeldisstöðvar Laugarlax hf. Við telj- um rétt að þessar athugasemdir komi fram fyrir almenningssjónir og þá ekki síðast og síst, að þær gætu verið öðrum víti til varnaðar. Við teljum okkur hafa verið málefnalega, öllu skítkasti vísum við á bug. Upphaflega átti afrennsli stöðvarinnar að renna í Laugarvatn og með því fororði hafa fundarsamþykktir gengið út á í upphafi máls. Okkur ábúendum og/eða eigendum v/Ápavatn var aldrei tilkynnt um, að afrennsli stöðvarinnar hafi verið breytt. Nú mun afrennslið eiga að fara í Djúpin eða Kvíslarnar, sem eru hrygningarstöðvar Apavatns. Stjórn Laugarlax var kunnugt um, að ekki lá fyrir heimild frá eiganda jarðarinnar Útey I, að afrennsli stöðvarinnar færi eftir landi hans, samkvæmt símskeyti frá 28.7.83. Stjórn Laugarlax var þetta ljóst áður en byggingarframkvæmdir hófust. Það hefur öllum verið ljóst frá upphafi, að ekki er hægt að koma afrennsli stöðvarinnar í vatnakerfi Apa- vatns nema að fara í gegnum land jarðarinnar Útey I, og það ekki heimilað eins og að framan segir. Því var harðlega mótmælt síðar með bréfi til Laugarlax hf. Veiðifélag Árnesinga er lítill hluthafi að Laugarlaxi hf. Hlutafélag Laugarlax hf. er 3 milljónir alls. Hlutur Veiðifélags Árnesinga er kr. 5.000,- eingöngu og fyrst og fremst til að gæta hagsmuna sinna á vatnasvæði Ölfusár og Hvítár. Á hluthafafundi í júlí ’83 flutti fulltrúi Veiðifélags Árnesinga tillögu þess efnis að undirbúningi yrði gert betri skil og yrði alfarið í höndum heimamanna. Því var hafnað. Hvers vegna? Byggingarframkvæmdir voru hafnar löngu áður en tilskilið vottorð frá Heil- brigðisnefnd Laugaráslæknishéraðs dags. 1.12. lá fyrir, og eins var Jarða- nefnd Árnessýslu ekki búin að gefa leyfi, áður en framkvæmdir hófust. Óskað var eftir því við oddvita Laugardalshrepps í símtali um 20. okt., að byggingarfram- kvæmdir yrðu stöðvaðar á meðan leyfi frá Heilbrigðisnefnd væri ekki komið. Bændur við Apavatn fóru fram á það í bréfi dags. 28.10.83 til Laugarlax hf., að leitað yrði umsagnar opinberra aðila svo sem Veiðimálastofnunar og Fisk- sjúkdómanefndar. Þessar óskir voru ekki teknar til greina af hálfu Laugarlax hf. Á hluthafafundi 3.12.83 urðu um- ræður út af hugsanlegum aðgerðum bænda við Apavatn. Þá óskaði fulltrúi Veiðifélags Árnesinga eftir því að fram- kvæmdir yrðu stöðvaðar og það yrði látið á það reyna hvort bændur við Apavatn gætu stöðvað að afrennsli færi í ár og læki, sem falla í Apavatn. Því var hafnað. Með bréfi dags. 7.12.83 mót- mæla undirritaðir ábúendur og/eða eig- endur við Apavatn, að frárennsli frá stöðinni fari í ár og læki, sem renna í Apavatn. Bréf þetta var sent Laugarlax hf., og hreppsnefnd Laugardalshrepps og lýst allri ábyrgð á hendur þeim. Einnig var sent bréf frá landeigenda Úteyjar I, þarsem mótmælt varafrennsli stöðvarinnar í gegn um hans land. I framhaldi af þessu bréfi boðaði hreppsnefnd Laugardalshrepps til fund- ar um málið. Á þeim fundi gerðist þetta markverðast: Oddviti Laugardalshrepps lýsti því yfir, að Laugarlax hf fengi ekki starfs- né rekstrarleyfi fyrr en Hollustu- vernd ríkisins/ mengunarvarnir gæfu út það álit að tekið væri fyrir alla áhættu um mengun, af hvaða tægi sem hún væri. Á oddviti þakklæti skilið fyrir þessa yfirlýsingu. Þá upplýsti stjórnarmaður í Laugariaxi hf. að þeir hefðu upp á vasann umsögn frá Þór Guðjónssyni. veiðimálastjóra, að hann teldi hyggi- legra, að afrennslið færi í Apavatn. Haft var samband síðar við Þór Guðjónsson og mótmælti hann því harðlega, að hafa gefið þessa umsögn né nokkuð um málið. Lesið var bréf frá Búnaðarfélagi íslands. í því bréfi kom fram, að um grófa ævintýramennsku væri að ræða, að hleypa afrennsli frá klak eða eldisstöð í Apavatn, þar sem ekki sé hægt að taka fyrir alla áhættu. Eins kom fram í þessu bréfi, að aðalfundir landssambands veiðifélaga hafi gert fundarsamþykktir um, að afrennsli frá fiskeldistöðvum falli -ekki í stöðuvötn. (Bréf þetta undirritað af Árna G. Péturssyni). Á fundi þessum var lögð fram sáttatillaga frá tveimur hreppsnefndarmönnum. Þessi sáttatil- laga var á þá leið, að afrennsli færi í hvort vatnið sem væri til skiptis í Apavatn eða Laugarvatn, að fengnu samþykki Hollustuverndar ríkisins og Veiðimálastjóra. Upp frá þessu var staðið og menn beðnir að hugsa málin. Óskað var eftir að friður ríkti yfir vötnunum um jólahátíðina. (Svo fór ekki). Um miðjan desember gerðist það, að grafinn var skurður í heimildarleysi í landi jarðarinnar Útey 1, til þess að koma afrennsli stöðvarinnar í vatnakerfi Apavatns. Þessu var mótmælt við oddvita Laugardalshrepps og stjórnar- formann Laugarlax hf. og eins til fulltrúa sýslumanns Árnessýslu. Mælingu fyrir þessum skurði annaðist starfsmaður Búnaðarfélags Suðurlands. Að hans sögn voru tveir stjórnarmenn í Laugar- lax með honum við verkið, þeir Eyjólfur Friðgeirsson og Sigurður Sigurðsson. Á . mælingarseðli þeim, sem hann gerir fyrir skurðgröftinn og afhendir stjórn- armanni Laugarlaxi hf. kemur fram, að þessi skurðgröftur sé því aðeins heimil- aður að landeigandi samþykki. Fyrirhugað var að byggja fiskeldisstöð við Mývatn á sínum tíma. Þar fóru rannsóknir fram áður en til framkvæmda kom. Sú rannsókn leiddi í ljós, að ekki var gerlegt að byggja þar fiskeldisstöð. Stjórn Laugarlax og hreppsnefnd Laug- ardalshrepps virðast hafa byrjað á öfug- um enda. Eins kemur fram í skýrslu Hollustu- verndar, að hreinsibúnaður hjá Laugar- laxi hf. sé ekki staðlaður; er því engan veginn hægt að fullyrða neitt um það á þessu stigi, hve vel hreinsibúnaðurinn muni virka. Náttúruverndarráð hefur nú tekið málið fyrir og telur framkvæmdir Laug- arlax hf. ámælisverðar og vitnar í 29. gr. náttúruverndarlaga. Rannsókn hefur nú verið ákveðin á vatnakerfi Apavatns, undir eftirliti Hollustuverndar ríkisins pg Náttúruverndarráðs. Þá verða vænt- anlega teknir fyrir allir þættir, sem hugsanlega gætu valdið mengun vatns og sýkingu fiskjar. Ekki mun eiga að fara fram rannsókn á Laugarvatni, þó svo sáttartillaga gengi í þá átt. Við höfum talið það siðferðislega skyldu Laugarlax hf. og hreppsnefndar Laugardalshrepps að framkvæmdir lægju niðri á meðan beðið væri eftir áliti Hollustuverndar, Náttúruverndarráðs og embættis Veiðimálastjóra, en svo er ekki. Óskað hefur verið eftir því við oddvita Laugardalshrepps að svo yrði. Ekkert er því til fyrirstöðu að bygging- arframkvæmdum yrði frestað að best verður séð, því laxaseiði þau, sem Veiði- félag Árnesinga selur Laugarlax hf. hafa trygga geymslu til vors. Það má því öllum vera ljóst, að samkvæmt áður- sögðu eru forsendur fyrir sáttatillögu hér með brostnar. Samkvæmt ummælum stjórnar Laug- arlax hf. telja þeir að bændur séu að þyrla upp moldviðri af tilefnislausu. Samkvæmt bréfi Náttúruverndarráðs kemur fram að svo sé ekki. Oddviti Laugardalshrepps hefur lýst því yfir, að hreppsnefnd Laugardals- hrepps kaupi væntanlegt hús Laugarlax hf. ef ekki yrði af starfsrækslu fiskeldis- stöðvarinnar, og þá til annarar starfsemi. Við bendum á, að engin mótmæli hafas komið fram gegn því að afrennsli fari í Laugarvatn. Við viljum skýrt taka fram, að við vorum ekki á nokkurn hátt á móti starfsemi Laugarlax hf. stjórn þess né aðild Laugardalshrepps. Aðeins að á okkar siðferðislega og lagalega rétti hefur verið troðið og jafnframt furðar okkur á því að svona nokkuð geti gerst. Við skiljum ekki, hvers vegna afrennslið má ekki fara í Laugarvatn. Þareru engin mótmæli, þar eru flest allir hluthafar; Laugardalshreppur er hluthafi og telur ábata, að hafa svona starfsemi í hreppnum. Hvers vegna taka þeir ekki áhættuna líka? Þar þarf ekki að brjóta lög um eignarétt manna á landi. Eins og áður segir höfum við mótmælt, að af- rennslið fari í vatnakerfi Apavatns. Það skal enn áréttað hér. Ennþá eigum við þá von í brjósti, að hreppsnefnd Laugardalshrepps sjái að sér. Kjartan Helgason, Haga II, Áslaug Harðardóttir, Haga I, Skúli Hauksson, Útey I, Lárus Kjartansson Austurey, Snæbjörn Þorkelsson, Austurey II, Þorkell Kjartansson. Eyjabóli, Jón S. Helgason, Efra-Apavatni, Guðmundur Helgason, Efra-Apavatni, Magnús Grímsson, Neðra-Apavatni.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.