Tíminn - 21.02.1984, Side 10
ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1984
■ Þeir kynntu vöruþróunarverkefnið á biaðamannafundinum: Eggert Hauksson, framkvæmdastjóri Plastprents. Bragi Hannesson, formaður framkvæmdastjómar
Iðnþróunarsjóðs, Óskar Maríusson, framkvæmdastjóri Málningar, Páll Kr. Pálsson, hagverkfræðingur FÍI, Guðmundur Kr. Tómasson, viðskiptafræðingur, Þorvarður
Alfonsson, framkvæmdastjóri Iðnþróunarsjóðs og Knut Gráthen, verkfræðingur STI í Noregi. Tímamynd Róbert.
Vöruþróunarverkefni Iðnþróunarsjóðs að Ijúka:
?Vöruþróun vanmetinn
þáttur í iðnrekstri'
segir Eggert Hauksson, framkvæmdastjóri Plastprents
Eimskip fékk *
verðlaun
■ Eimskip h.f. fckk verðlaun Stjórn-
unarfclags íslands fyrir bestu ársskýrsl-
una árið 1983. Að auki var Iðnaðar-
banka Islands og Johan Rönning h.f.
veitt sérstök verðlaun fyrir vandaðar
ársskýrslur. Verðlaunin voru veitt á
aðalfundi Stjórnunarfélagsins 12. febrú-
ar síðast liðinn.
Þetta var í þriðja skipti sem Stjórnun-
arfélagið veitti verðjaun fyrir bestu árs-
skýrslurnar. Valið var í höndum þriggja
manna nefndar sem í áttu sæti Helgi
Bachmann, forstöðumaður hagdeildar
l.andsbankans. Stefán Svavarsson. lög-
giltur endurskoðandi og Árni Vilhjálms-
son, prófessor. sem jafnframt er formað-
ur. Alls var valið úr 17 skýrslum.
Farþegum til
Amsterdam f jölg-
ar verulega
■ Farþegar í áætlunarflugi Arnar-
flugs í fyrra urðu alls rúmlega 22.300.
Erfitt er að bera þessa tölu saman við
farþegaflutningana árið 1982, vegna
þess að þá hófst ekki áætlunarflug fyrr
en 4. júlí.
Ef bornir eru saman mánuðirnir
júlí-desember 1982 og 1983 er aukn-
ingin hins vegar um 71%.
Farþegar í janúar síðastliðnum urðu
alls 959 á leiðinni Reykjavík -Amstcr-
dam-Reykjavík. Aukningin miðað við
sama mánuð í fyrra er48%. Aukning
í vöruflutningum milli sömu mánaða
varð 128%. Það sem af er febrúar er
farþegaaukning um 70% og eru bókan-
ir nú orðnar 75% meiri, en farþega-
fjöldi var í febrúar 1983.
Metframleiðsla
hjá Sambands-
frystihúsum
■ Frysting Sambandsfrystihúsanna
jókst verulega á síðasta ári. Þrjú hús
sýndu mesta aukningu, Meitillin hf. í
Þorlákshöfn sem jók framleiðsluna um
760 tonn, Búlandstindur hf. á Djúp-
avogi, 560 tonn, og Hraðfrystihús
Breiðdælinga hf. á Breiðdalsvík, 550
tonn.
Heildarframleiðsla allra húsanna af
frystum sjávarafurðum var 39.900 tonn
1983 á móti 35.920 tonnum árið 1982.
Er þetta mesta framleiðsla á einu ári til
þessa. Aukningin milli ára er 3.980
tonn eða 11%, og á sjö ára tímabilinu
1977-83 hefur framleiðsla húsanna tvö-
faldast. Af einstökum tegundum er að
nefna að á síðasta ári jókst frysting
þroskafurða um 14% grálúðu um 19%
og karfaafurða um 6%. Fjögur fram-
leiðsluhæstu húsin voru Fiskvcrkunar-
stöð Kf. A-Skaftfcllinga á Hornafirði
með 3.400 tonn, Meitillinn hf. í Þor-
lákshöfn með 3.070 tonn, Kirkjusand-
ur hf. í Reykjavík með 2.950 tonn og
Fiskiðjusamlag Húsavíkur hf, með
2.820 tonn.
Þá jókst útflutningur Sjávarafurða-
deildar á frystum sjávarafurðum að
sjálfsögðu einnig á milli áranna. Áriö
1983 nam hann 39.600 tonnum, saman-
borið við 34.400 tonn árið áður. Aukn-
ing í útflutningi nam því 5.200 tonnum
eða 15%.
„Fjölmiðlar
eyðileggja
rækjumarkaði"
■ „Það hcfur marg oft sannast að
fjölmiðlar, blöð, útvarp og sjónvarp,
geta hreinlega eyðilagt heilu markað-
ina mcð óábyrgum fréttaflutningi.
Þetta hefur nú gerst í Vestur-Þýska-
landi í kjölfar „rækjuslyssins*' í Hol-
landi, sern talið er að hafi leitt 14
manns til dauða," segir meðal annars í
frétt sem birtist nýlega í vikuritinu
Foodnews.
í fréttinni kcmur fram, að einn af
stærstu innflytjendum á niðursoðinni
rækju f Þýskalandi hefur ekki selt
nema örfáar dósir af rækju síðan
„rækjuslysið" komst í hámæli þrátt
fyrir að aðeins brot af hans innflutningi
komi frá Austurlöndum, en þaðan
kom rækjan sem grunur leikur á að
hafi valdið matareitruninni.
■ „Með markaðsrannsóknum hefur
verið sýnt fram á að þess megi vænta að
eftir fimm ár verði 75% þeirra vara sem
nú eru á markaðnum annað hvort horfnar
af markaði eða þá að búið verði að gera
á þeim verulegar endurbætur. Því hefur
einnig verið haldið fram að um hehning-
ur af framleiðslutekjum í nýiðngreinum,
sem verið hafa í sókn undanfarin ár,
komi frá vörum sem ekki voru á markaði
fyrir um það bil þremur árum. Þetta
sýnir Ijóslega hve miklu máli vöruþróun
skiptir á neyslumörkuðum nútímans,“
sagði Bragi Hannesson, formaður fram-
kvæmdastjórnar Iðnþróunarsjóðs, á
■ Efnaverksmiðjan Sjöfn á Akureyri
hefur nú um nokkur ár flutt út hvíta
lakkmálningu til Sovétríkjanna, allt frá
400 og upp í 2.000 tonn á ári. Á síðasta
ári var magnið 500 tonn, að verðmæti
rúmar 20 millj. kr. Þessi viðskipti eru
gerð samkvæmt viðskiptasamningi milli
íslands og Sovétríkjanna, og hefurfram-
leiðslan skipst að jöfnu á milli Sjafnar og
Málningarerksmiðjunnar Hörpu í
Reykjavík. Ekki hefur enn verið gengið
frá samningum fyrir þetta ár, en þó er
búist við að Sovétmenn kaupi sama
magn núna og í fyrra.
Aðalsteinn Jónsson verksmiðjustjóri
hefur skýrt frá því að síðustu 5-6 árin
hefði Sjöfn flutt út dálítið af málningar-
efnum til Færeyja, eða að verðmæti
samsvarandi einni til einni og hálfri millj-
ón króna á ári. Þetta eru mest gólfefni,
svo sem gólftex og E-21 gólfhúð, en
einnig Met-viðarlakk, sílikon- og akrtl-
kítti og fúavarnarefni. Aðalsteinn sagði
að verksmiðjan ætti að eiga ýmsa fleiri
möguleika á sölu til annarra landa,
sérstaklega í ýmsum þeim tegundum
sem reynsla væri fengin af hérlendis á
hliðstæðum sviðum iðnaðar og væru í
nálægum löndum.
■ Sjöfn seldi Sovétmönnum málningu
fyrir um 20 milljónir króna í fyrra.
Einnig flutti verksmiðjan talsvert af
málningu til Færeyja.
blaðamannafundi þar sem kynnt var
vöruþróunarverkefni, sem sjóðurinn
stóð fyrir og staðið hefur í tæpt ár.
Verkefnið miðar að því að innleiða
kerfisbundnar aðferðir við vöruþróun
hj á íslenskum fyrirtækj um. Níu fyrirtæki
í mismunandi greinum hafa tekið þátt í
því. Greiðir Iðnþróunarsjóður mestan
hluta beins kostnaðar, en fyrirtækin taka
einnig á sig verulegan kostnað, fyrst og
fremst með vinnuframlagi stjórnenda og
starfsmanna.
Markmið verkefnisins er þríþætt: Að
gefa þátttökufyrirtækjunum kost á því
að tileinka sér skipulega vöruþróun. Að
gera íslenska ráðgjafa, sem tengdir erii
hagsmunasamtökum iðnaðarins, hæfa til
þess að gangast síðar fyrir sambærilegum
verkefnum fyrir önnur fyrirtæki. Að
vekja stjórnendur iðnfyrirtækja til um-
hugsunar um nauðsyn þess að sífellt sé
leitað að nýjum framleiðsluaðferðum og
endurbótum á framleiðsluvörum í takt
við umhverfisbreytingar. Statens Tekn-
ologiske Institut í Oslo tók að sér
skipulagningu verkefnisins, en stofnunin
hefur séð um framkvæmd slíkra verk-
efna í Noregi.
Á blaðamannafundinum voru mættir
stjórnendur nokkurra fyrirtækja sem þátt
tóku í þessu vöruþróunarverkefni. Voru
þeir allir sammála um nauðsyn vöruþró-
unar og ágæti verkefnisins. „Hjá okkur
hafa fæðst fjölmargar hugmyndir í
tengslum við þetta verkefni og við vinn-
um nú að því að meta þær í samræmi við
þær aðferðir, sem við höfum lært með
þátttöku í verkefninu," sagði Garðar
Erlendsson, framkvæmdastjóri Blikk og
Stal hf., á blaðamannafundinum.
Eggert Hauksson, framkvæmdastjóri
Plastprents, sagði að vöruþróun væri
vanmetinn þáttur í íslenskri iðnþróun.
Eftir verkefnið gerðu menn sér enn betur
en áður grein fyrir því að forsenda
árangurs hjá mörgum iðnfyrirtækjum
væri að stöðugt væri unnið á skipulegan
hátt að vöruþróun. „Það er ekki nóg að
mönnum séu hlutirnir ljósir, það þarf
líka að hrinda þeim í framkvæmd og
einmitt það höfum við lært núna,“ sagði
Eggert.
Óskar Maríusson, framkvæmdastjóri
Málningar hf., sagði að þátttakan í
verkefninu hefði orðið til þess að menn
gerðu sér betur en áður grein fyrir hvar
styrkleikar og veikleikar fyrirtækisins
lægju.
Fræðslan er þannig uppbyggð, að
blandað er saman fræðilegu efni og
raunhæfri vinnu í fyrirtækjunum, þar
sem tekið er tilllit til sérstæðna hjá
sérhverju fyrirtæki. Verkefnið hófst með
námskeiði um stefnumótun fyrirtækja
og síðan var lagður grunnur að sjálfri
vöruþróuninni með því að fyrirtækin
settu fram þau lágmarksskilyrði varð-
andi fjármál, tækni, framleiðslu og
markað, sem vara eða vöruflokkur þurfa
að uppfylla til þess að teljast áhugaverð
fyrir þau. Þar má til dæmis nefna kröfur
um veltu, framlegð, hagnað og arð. Því
næst var kallaður til hópur manna fyrir
hvert fyrirtæki, sem hafði sérþekkingu á
því framleiðslusviði sem það starfar á.
Tilgangurinn varð að leita eftir almennri
þróun næstu árin í tækni, þörf og kröfum
markaðarins, svo að fyrirtækið gæti gert
breytingar á núverandi vöruvali eða
þróað nýtt, til að uppfylla betur kröfur
markaðarins.
Á blaðamannafundinum kom fram,
að flest fyrirtækin hafa nú þegar hug-
myndir að nýrri framleiðslu og standa
nú fyrir frekari athuganir og áætlana-
gerð, sem felur í sér tímaáætlun, kostn-
aðaráætlun, fjármögnun, markaðssetn-
ingu og athugun á arðsemi.
Efnaverksmiðjan Sjöfn:
Seldi Sovétmönnum máln-
ingu fyrir króna
20 milljónir