Tíminn - 21.02.1984, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1984
17
Texti: Jón Guðni Skýringar: Jóhann Örn Sigurjónsson
Úrslit í 4. umferð
N.DeFirmian-L. Alburt 1-0
Jón L. Árnason-P. Cramling 1-0
T. Wedberg-Jóhann Hjartarson V2-V2
Reshcvsky-C.Höi 1-0
P. Ostermeyer-V. F. Zaltsman 0-1
E. Geller-Helgi Ólafsson Vi-Vi
H.Schússler-L.Christiansen ; 0-1
Karl Þorsteins-E. Lobron V1-V1
Lárus Jóhannesson-Friðrik Ólafsson 0-1
H.Ree-L.Schneyder 1-0
Guðm. Sigurjónsson-D.King 0-1
L.Shamkovich-Y.Balashov V2-V2
Þröstsur Bermann-M.G. Chandlcr 0-1
H. Meyer-L.Gutman 1-0
V.Mc.Cambridge-Leifur Jósteinsson V2-V2
Margeir Pétursson-Róbert Harðarson '. 1-0
Björgvin Jónsson-M.Knezevic V2-V2
A.Ornstein-Magnús Sólmundarson 1-0
Elvar Guðmundsson-Benedikt Jónasson 1-0
K.Tielemann-R.Byrne 0-1
Halldór G. Einarsson-Haukur Angantýsson 0-1
Pálmi Pétursson-Sævar Bjarnason 1-0
J.Hector-Bragi Kristjánsson 1-0
Dan Hansson-Ágúst Karlsson 1-0
Benóný Benediktsson-Bragi Halldórsson 0-1
G.Taylor-Haraldur Haraldsson 1-0
Amór Björnsson-K.Burger 0-1
J.M.Nykopp-Gylfi Þórhallsson 0-1
Ásgeir Árnason - Hilmar Karlsson 0-1
Guðmundur Halldórsson-Andri A. Grétarsson 1-0
Úrslit í 5. umferð
Jón L. Árnason-Nick DeFirmian .................................Vi-Vi
V.F.Zaltsman-Samuel Reshevsky................................. Vi-Vi
Larry Christianssen-Hans Ree..................................Vi-Vi
Lev Alburt-Efim Geller .......................................Vi-Vi
Friðrik Óiafsson-Jóhann Hjartarson ............................ 0-1
Daniel J. King-Tom Wedberg .................................... 0-1
E.Lobron-A.Ornstein........................................... 0-1
M.G.Chandler-Karl Þorsteins ................................... 1-0
Pia Cramling-Margeir Pétursson................................ 0-1
Carsten Höi-P.Ostermayer ...................................... 1-0
Elvar Guðmundsson-L.Shamkovich ...............................Vi-Vz
Helgi Ólafsson - Holger Meyer................................. 1-0
Y.Balashov-Jonny Hector........................................ 1-0
R.Byrne-Dan Hansson.......................................... Vi-Vt
Haukur Angantýsson-Guðmundur Sigurjónsson...................... 0-1
Lárus Jóhannesson-V.Mc.Cambridge .............................. 0-1
M.Knezevic-Pálmi Pétursson.....................................V2-V1
Leifur Jósteinsson-Harry Schiissler............................ 0-1
Lars Áke Schneider-Björgvin Jónsson............................ 1-0
Lev Gutman-Guðmundur Halldórsson............................... 1-0
Bragi Halldórsson-G.Taylor .................................... 0-1
Karl Burger-Þröstur Bergmann .................................. 1-0
Hilmar Karlsson-Róbert Harðarson............................... 0-1
Benedikt Jónasson-Magnús Sólmundarson.......................... 0-1
Sævar Bjamason-Kai Tielmann ................................... 0-1
Gylfi Þórhallsson-Bragi Kristjánsson........................... 0-1
Ágúst S. Karlsson-Halldór G. Einarsson ........................ 0-1
Haraldur Haraldsson-Benóný Benediktsson ....................... 0-1
Andri Á. Grétarsson-J.M.Nykopp ................................ 0-1
Arnór Björnsson-Ásgeir Þ. Ámason . . .......................... 0-1
Úrslit í 6. umferð
N.DeFirmian-V.Zaltsman.......................................... 1-0
Jóhann Hjartarson-Jón L. Ámason................................. 1-0
T. Wedberg-S.Reshevsky ..........................................Bið
Margeir Pétursson-L. Christiansen .............................. 1-0
A. Omstein-L.AIburt............................................. 1-0
M. Chandier-Helgi Ólafsson ..................................... 0-1
H. Ree-C.Höi.................................................... 1-0
E. Geller-L.A. Schneider........................................ 0-1
H.Schussler-Y.Balashov.........................................V2-V2
L. Shamkovic-Friðrik Ólafsson..................................V2-V2
Guðmundur Sigurjónsson-Elvar Guðmundsson.......................V2-V2
V. Cambridge-D.King ............................................ 0-1
G. Taylor-R. Byme............................................... 0-1
H. Meyer-E. Lobron.............................................. Bið
Róbert Harðarson-L.Gutman ...................................... Bið
P. Ostermeyer-Dan Hansson....................................... 1-0
Magnús Sólmundarson-M.Knezevic ................................. 0-1
Páimi Pétursson-P. Cramling..................................... 0-1
Kari Þorsteins-K. Burger ....................................... 1-0
K. Tielemann-Haukur Angantýsson ................................ 1-0
J. Hector-Lárus Jóhannesson..................................... 1-0
Bragi Kristjánsson-Björgvin Jónsson............................. 1-0
Halldór G. Einarsson-Leifur Jósteinsson ........................ 1-0
Benóný Benediktsson-Hilmar S. Karisson.......................... 0-1
J.M.Nykopp-Bragi Halldórsson ................................... Bið
Ásgeir Þór Árnason-Benedikt Jónasson............................ Bið
Guðmundur Halldórsson-Þröstsur Bergmann .......................V2-V2
Andri Áss Grétarsson-Sævar Bjamason............................. 0-1
Ágúst Karlsson-Gylfi Þórhallsson................................ Bið
Haraldur Haraldsson-Arnór Björnsson ............................ 1-0
■ Guðlaug María Bjamadóttir og Sunna Borg knúsa höfundinn, Nínu Björk Árnadóttur. Mynd Kristján Arngrímsson.
Súkkulaði handa Silju Frumsýnt á Akureyri:
„HEF ALDREIVERIÐ
EINS HAMINGJUSÖM"
„eftir nokkra frumsýningu á verki eftir,
ntig", segir Nína Björk Árnadóttir
LEIKFÉLAG AKUREYRAR:
Súkkulaði handa Silju
Eftir Nínu Björk Ámadóttur
Tónlist: Egill Ólafsson
Leikstjóri: Haukur Gunnarsson
Leikmynd og búningar:
Guðrún Sigríður Haraldsdóttir
Lýsing: Viðar Garðarsson
Leikendur: Sunna Borg,
Guðlaug María Bjamadóttir,
Þórey Aðalsteinsdóttir,
Edda V. Guðmundsdóttir,
Gunnar Rafn Guðmundsson,
Ragnheiður Tryggvadóttir,
Theódór Júlíusson,
Þráinn Karlsson, Gestur E. Jónasson.
„Ég hef aldrei verið eins hamingjusöm
eftir nokkra frumsýningu á verki eftir
mig, án þess þó að hingað til hafi gengið
illa“ sagði Nína Björk Árnadóttir eftir
að leikrit hennar „Súkkulaði handa
Silju“ hafði verið frumsýnt í Sjallanum
á Akureyri á fimmtudagskvöld. „Ég
fann það strax og samæfingar hófust á
leikritinu að hér var samstilltur hópur á
ferðinni, fyrsti samlesturinn var einstak-
lega ánægjulegur og mínar væntingar
varðandi framhaldið hafa gengið eftir.“
Hér verður ekki gerð tilraun til þess
að fjalla um þetta verk á „fræðilegan"
hátt, til þess eru aðrir færari. En fyrir
„óbreyttan“ leikhúsgest sem fer á þessa
sýningu með það í huga að hér sé
eitthvað tormelt og þungt á ferðinni,
opnast heimur leikhússins svo sá hinn
sami situr sem festur upp á þráð. Leikrit-
ið nær tökum á áhorfandanum, og
sleppir ekki þeim tökum fyrr en ljósin
hafa verið kveikt í lokin. Eg hygg líka
að þeir hafi verið fáir sem voru ósnortnir
í leikslok.
{ kynningu á leikritinu í fjölmiðlum
fyrir frumsýninguna sagði m.a.: „Súkku-
laði handa Silju er margslungið verk.
Þar geta margir séð eitthvað í sjálfum
sér, einstæðar mæður, unglingar, mið-
aldra karlmenn með „gráa firðinginn"
og aðrir þeir sem lífsbaráttuna heyja.
Þungamiðja leiksins er líf Önnu, ein-
stæðrar móður í láglaunavinnu og sam-
skipti hennar við 15 ára dóttur sína,
Silju, sem vill finna sér annan lífsstíl en
móðirin".
- Þetta segir allt sem hægt er að segja
fyrirfram. En leikritið segir meira og
slíkt er aðeins hægt að upplifa á sýningu
þess. Hér hefur átt sér stað enn einn
stórsigurinn hjá leikfélagi Akureyrar í
67 ára sögu þess og fyrir leikendur var
þetta uppskeruhátíð.
Þar ber leikur Sunnu Borg hæst í
hlutverki móðurinnar Önnu. Sunna hef-
ur löngum sýnt að hún er geysilega
fjölhæf leikkona, og á fimmtudagskvöld-
ið hreinlega geislaði af henni. Leikur
hennar var stórbrotinn og í lokin er hún
sat og táraðist yfir örlögum sínum og
dótturinnar Silju á rúmi sínu, sem einnig
■ Sunna Borg og Guðlaug María
Bjarnadóttir hylltar í leikslok.
gegndi hlutverki sófa í fátæklegri íbúð
verkakonunnar, snart hún örugglega
alla viðstadda. Fleiri lýsingarorð um
frammistöðu hennar eru óþörf. Til ham-
ingju Sunna Borg.
Leikur hennar verður til þess að aðrir
leikarar í minni hlutverkum ættu að falla
í skuggann, en svo fer þó ekki. Hin unga
ieikkona Guðlaug María Bjarnadóttir
sýnir mjög góð tilþrif þótt leikur hennar
sé ekki jafn agaður. Þá má ekki gleyma
þeim Þóreyju Aðalsteinsdóttur og Þráni
Karlssyni í hlutverkum „partífólksins"
Dollýar og Sigga, bæði ná þeim tökum á
hlutverkum sínum og áhorfendum sem
að er stefnt og vekja upp kátinu á milli
þess sem alvarlegri hlutir eiga sér stað.
Það er dálítið furðulegt að koma inn í
Sjallan og setjast þar við borð á leiksýn-
ingu, venjan er önnur hjá þeim er sækja
þann merka veitingastað. Aðstæður eru
eins og gefur að skilja aðrar en á
venjulegu leiksviði, en að fella leikinn
að húsakynnum tekst einnig mjög vel.
Jafnvel bar einn í horninu sem venjulega
er vettvangur fólks sem fer út að
skemmta sér um helgar fellur inn í
umgjörðina eins og best verður á kosið
og verður vettvangur þess er þær vinkon-
ur Anna og Dollý fara í „föstudagsferð-
ir“ sínar.
Það er full ástæða til þess að óska
öllum aðstandendum þessarar sýningar
til hamingju, hér er ákaflega einlægt
verk á ferðinni frá hendi höfundar, verk
sem leikarar virðast skilja út í æsar og
túlka samkvæmt því. Undirleik annast
Ingimar Eydal og dóttir hans Inga sér
um söngvana sem eru eftir Egil Ólafsson
og bera honum glöggt vitni.
Áhorfendur kunnu að meta að verð-
leikum það sem eim var boðið upp
á og fögnuðu höfundi, leikstjóra, leik-
endum og öðrum aðstandendum í lok
sýningar lengi og innilega eins og þeir
áttu skilið þeir listamenn sem skópu
þessa eftirminnilegu sýningu. Hafi Leik-
félag Akureyrar þökk fyrir.
Gylfi Kristjánsson
Einkenni sýningarinnar:
„Afskaplega
einlægur og
látlaus tónn“
— segir Jón Hjartarson, leikari
■ „Einkenni þessarar sýningar er af-
skaplega einlægur og látlaus tónn sem
fylgir vel eftir hinum lýríska texta Ninu
Bjarkar" sagði Jón Hjartarson leikari
sem var einn frumsýningargesta í Sjall-
anum í fyrrakvöld.
Leikarahópurinn er j afn og samstilltur
og þar er hvergi veikan hlekk að finna.
Mér fannst sviðsetningin einkennileg í
fyrstu en hún á vel við þegar á reynir,
þessi afþreyingarveröld sem umlykur líf
þessa fólks, þessi get vihamingja sem fylgir
skemmtistöðum.
Ég sé alls ekki eftir að hafa komið
hingað og séð þetta verk. Leikritið
byggir mikið á samskiptum móðurinnar og
dótturinnar og ég held að lokaatriðið
sem er einstaklega vel gert hafi snert alla
í salnum. Akureyringar geta verið stoltir
af þessari sýningu" sagði Jón Hjartarson.
-GK