Tíminn - 21.02.1984, Side 12
16
skák
ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1984
6. umferð:
NKK K FIRMIAN ENN EINN EFSTUR
— og fjórir
íslendingar j
koma á
hæla hans
—i
XI.
REYKJAVIKUR
/SKÁKMÓTIÐN
■ Bandaríski alþjóðameistarinn
Nick de Firmian er nú einn í efsta sæti
á Reykjavíkurmótinu með 5Vi vinning
eftir 6 umferðir. Síðan koma nokkrir
íslendingar í næstu sætunum, Jóhann
Hjartarson hefur 5 vinninga og er einn
í öðru sæti og síðan koma Helgi
Ólafsson, Margeir Pétursson, Hans
Ree frá Hollandi og Ornsetin frá
Svíþjóð með 4 '/2 vinning Reshevsky er
með 4 vinninga og biðskák og með
fjóra vinninga eru Jón L. Árnason,
Schneider frá Svíþjóð King frá Bret-
landi og Zaltsman frá Bandaríkjunum
og með y/i vinning eru Christiansen,
Balashov, Alburt, Chandler, Carsten
Höj, Cutman, Elvar Guðmundsson,
Guðmundur Sigurjónsson, Friðrik
Ólafsson, Ostermayer, Knezevic,
Shamkovic, Shcússler, Pia Cramling
og Karl Þorsteins.
Jóhann Hjartarson hefur sýnt það
og sannað að árangur hans á Búnaðar-
bankamótinu var engin tilviljun.
Hann vann Friðrik Ólafsson
í fimmtu umferðinni glæsilega
og í gær fékk Jón L. Árnason
eftir að hafa náð yfirburðastöðu. Með
sama áframhaldi ætti Jóhann að geta
náð öðrum stórmeistaraáfanganum á
einum og sama mánuðinum. Helgi
Ólafsson hefur einnig teflt af miklu
öryggi, eftir tapið gegn de Firmian
gerði hann jafntefli við Sovétmanninn,
Geller, þar á eftir fylgdi sigur yfir
Mayer frá V-Þýskalandi og í gærkvöldi
vann Helgi fallegan sigur yfir breska
stórmeistaranum Chandler. Svipaða
sögu má segja af Margeiri Péturssyni,
hann sigraði Piu Cramling örugglega á
sunnudaginn og í gær lagði hann að
velli Bandaríkjameistarann Christ-
iansen. Þá hefur Karl Þorsteins einnig
FUJGlIh
1 4
1 m
■ Jóhann Hjartarson og Jón L. Áraason að tafli í gærkvöldi, en skákinni lauk með sigri þess fyrraefnda, sem teflir við efsta mann mótsins, de Firmian í dag.
Það eru þeir Benedikt Jónasson og bandaríski stórmeistarinn Robert Byrne, sem fylgjast með. Tímamynd Róbert
vakið athygli fyrir frábæra taflmennsku
og í gær byrjaði hann á því að vinna
skiptamun af Bandaríkjamanninum
Burger og lét síðan kné fylgja kviði og
fórnaði drottningu sinni fyrir mátsókn.
Þá gaf Burger taflið.
Friðriki Ólafssyni hafa verið nokkuð
mislagðar hendur í mótinu til þessa,
hann hefur unnið 3 skákir, en tapað
tveim og í gærkvöldi gerði hann fyrsta
jafnteflið, það var við Shamkovic.
Friðrik hafði svart og byggði upp
skemmtilega sóknarstöðu, en lyktirnar
urðu jafntefli og voru áhrofendur sam-
mála um að Friðrik hefði misst niður
vinninginn undir lokin, en hann var
orðinn tímanaumur eins og stundum
áður.
Þetta mót virðist annars sýna það,
að kynslóðaskipti hafi orðið í skákinni.
Flestir af efstu mönnum eru um eða
undir þrítugu en öflugum stórmeistur-
um eins og Geller og Balashov, Alburt,
Friðrik og Shamkovoc hefur ekki vegn-
að sem best en allir þessir eru að
Friðrik undanskildum atvinnumenn í
skák og í fullri þjálfun, meðan Friðrik
hefur aðeins teflt á tveim öflugum
skákmótum frá því að hann gerðist
forseti FIDE árið 1978. Sá eini af eldri
kynslóð skákmanna sem hvergi lætur
deigan síga í mótinu er Samuel
Reshevsky, aldursforsetinn sjálfur,
sem enn er í toppnum.
Aðstæður eru annars ágætar á Hótel
Loftleiðum, þótt þröng vilji verða á
þingi, þegar líða tekur að lokum
umferðanna. Þá eru aðstæður fyrir
skýringar í ráðstefnusalnum mjög
góðar. í fullri vinsemd er þó ástæða til
að benda keppendum á að áhorfendur
hafa keypt sig inn til að fá að fylgjast
með skákunum til loka og er þeim
tilmælum hér með komið á framfæri
við þá að þeir stilli sér ekki upp og
byrgi áhrofendum sín á sýningartöfl-
urnar þegar spennan nær hámarki á
síðustu mínútum umferðanna. Sömu
tilmælum er beint til dómara og
starfsmanna.
■ Nick De Firmian hefur aðeins tapað hálfum vinningi í fyrstu 6
umferðunum. Hér fylgist hann með á sýningartöflunum meðan andstæðingur-
inn reynir að finna svör við hótunum hans. Tímamynd Róbert
Skákir úr fjórðu og fimmtu umferð
■ Hvítur: Helgi Ólafsson
.Svartur: Meyer Drottningarbragð.
1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3 Be7
5. Bg5 0-0 6. e3 h6 7. Bxf6 Bxf6 8. Hcl
(Skákin Torré: Spassky, millisvæða-
mótinu í Toluca 1982, Tefldist þannig:
8. Dd2 c6 9. Hdl Rd7 10. Bd3 b6 11.
0-0 Bb7 12. cxd5 exd5 og varð jafntefli
um síðir.) 8... c6 9. Bd3 Rd7 10. 0-0
dxc4 11. Bxc4 e5 (Svartur leitast við að
opna taflið, og nýta þannig biskupa-
parið. Styrkleiki hvíts liggur hinsvegar
í virkari stöðu manna hans.) 12. Hel
exd4 13. exd4 Rb6 14. Bb3 Bg4 15.
Re4 He8 (Ef 15.. Bxf3 16. Dxf3 Bxd4
16. Ha-dl og 16.,c5 gengurekki vegna
17. Rxc5. Eða 16... Dxd4 17. Rxfót
Dxf6 18. Dxf6 gxf6 19. He7 með
yfirburðastöðu.) 16. He3 Rd5 17.
Bxd5 cxd5 18. Rxf6t Dxf6 19. Del!
Hxe3 20. Dxe3 Bxf3 21. Dxf3 De6 (Ef
21... Dxd4 22. Hc7 Hf8 23. hxb7 og
svartur á í miklum erfiðleikum.) 22. g3
Dd7 (Svartur ætlar að halda sér fast og
valda það sem valdað verður.) 23. Kg2
Hd8 24. H4 b6 25. Hel Dd6 26. b3
Db4?
(Svartur breytir skyndilega um áætl-
un, og sér fram á peðsvinning.) 27.
He5! Dxd4 28. He7 (7. línan er
fyllilega peðsins virði, og gott betur.)
28... Df6 (Hróksendataflið lítur ekki
illa út í fljótu bragði.) 29. Dxf6 gxf6
30. Hxa7 d4 31. Hc7 (Skyndilega
liggur allt ljóst fyrir, svarta frípeðið er
einfaldlega veikt, og hlýtur að falla.)
31.. Kg7 32. Kf3 f5 33. Ke2 f4 34. gxf4
d3t 35. Kd2 Hd4 36. Hc4 Hd5 37. b4
Hh5 38. Hc6 b5 39. Hc5 Hxh4 40. Hxb5
Hxf4 41. a4 h5 42. a5 h4 43. a6 h3 44.
a7 Hxf2t 45. Kxd3 Hf3t (Eða 45...
Ha2 46. Ha5) 46. Ke2 h2 47. a8D hlD
48. Dxf3 Dh2t 49. Kfl Gefið.
■ Hvítur: Halldór Einarsson
Svartur: Haukur Angantýsson
Sikileyjarvörn.
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 xcd4 4. Rxd4
Rf6 5. Rc3 g6 6. Be3 Bg7 7. f3 0-0 8.
Dd2 ( Upp á síðkastið hefur 8. Bc4
mátt þoka til hliðar fyrir drottningar-
leiknum. Hvítur geymir biskupinn á f 1,
og reynir að flýta sókn sinni á
kóngsvæng. En þessi leikmáti gefur
svörtum kost á gagnfærum.) 8... Rc6
9. 0-0-0 d5 (lengi vel var þetta álitið
eina rökrétta svarið gegn 9. 0-0-0, en
nú er einnig oft leikið 9... Rxd4 10.
Bxd4 Be6). 10. Rxc6 bxc6 11. exd5
cxd5 12. Rxd5 Rxd5 13. Dxd5 Dc7 14.
Dc5. .
(Svartur þykir fá gott tafl eftir 14.
Dxa8 Bf5 15. Dxf8t Kxf8 16. Hd2 h5)
14.. Db7 15. Da3 (Talið best. Reynt
hefur verið 15. Bd4 Bf5 16. Db5 Dc7
17. Dc5 Df4t 18. Be3 Da4 og svartur
vann í nokkrum leikjum, Schoene:
Becker 1959.) 15... Bf5 16. Bd3? (Eini
leikurinn er 16. Ba6!... Þá gengurekki
16.. . Bxb2t 17. Dxb2 Dxaó 18. Bh6og
hvítur hefur betur.) 16... Ha-b8 17. b3
Hf-c8 (Allt svarta liðið er komið í
sóknina.) 18. Bxf5 gxf5 19. Da5 Dc6
20. c4De6 21. Hh-el
abcdefgh
21... Hxc4t! (Virkið fellur. Svartur,
mátar eftir 22. bxc4 Dxc4t 23. Kd2
Hb2). 22. Kbl H4-c8 23. Bd4 Hxb3t.
Hvítur gafst upp. Lokin gætu orðið 24.
axb3 Dxb3t 25. Kal Hclt 26. Hxcl
Bxd4t og allir þungu menn hvíts
hverfa af sjónarsviðinu.
Jóhann Orn Sigurjónsson