Tíminn - 29.02.1984, Blaðsíða 20

Tíminn - 29.02.1984, Blaðsíða 20
Opiö virka daga 9-19 Laugardaga 10-16 HEDD Skemmuvegi 20 Kopavogi Simar (91|7 75 51 & 7 80 30 Varahlutir Mikiö úrval Sendum um land allt Ábyrgð á öllu Kaupum nýlega bíla til niðurrifs SAMVINNU TRYGGINGAR &ANDVAKA ARMULA3 SIMI 81411 W abriel Æ HÖGGDEYFAR Hamarshöfða 1 y GJvarahlutir s”i°ó: 5Sffi Miðvikudagur 29. febrúar 1984 Bankaránið að mestu upplýst: búid aðnAum 1200 ÞÚSUND KR. AF RANSFENGNUM — vitað er um ráðstöfun afgangsins að stórum hluta ■ Hankarániö hjá útibúi Landshankans við Laugaveg er nú að mestu upplýst eftir játn- ingu aðalsakborningsins William J. Scobie og handtöku 19 ára starfsmanns Landsbankans sem mun hafa verið í vitorði með honum. Hallvarður Einvarðsson rann- sóknarlögreglustjóri ríkisins sagði í samtali við Tímann að verulegur hluti fjárins sem rænt var væri kominn til skila, alls hefðu þeir haft upp á tæpum 1200 þúsund krónum og vitað væri hvernig stórum hluta af- gangsins, af þeim 1,8 milljón sem rænt var, hefði veríð ráðstaf- að. Illuti af fénu hefði náðst við húsleit í borginni í fyrrínótt. Avísununum mun hafa verið fargað. Hinn 19 ára piltur sem hand- tekinn var er kunningi Williams. Upplýst er að hann mun hafa keyrt William út í Háskólabíó sama kvöld og ránið var framið og skilið hann þar eftir, en William tók svo leigubílinn og Blaðburöar .börn óskast r, Skjólin Mclarnir Háaleitisbraut eftirleikur þess er þekktur. Kunninginn kemur svo við sögu strax eftir ránið því þeir mæltu sér mót að því loknu í Brautar- holti og óku saman á brott með byssuna og ránsfenginn, en hentu byssunni og afgangnum af haglaskotunum af sér í Kópavogi í sjóinn við Sunnubraut þar sem byssan fannst svo. Hún var sú sama og rænt var úr Vesturröst skömmu fyrir ránið, og hefur William viðurkennt það innbrot. Hvað varðaði hlutdeild föður Williams og bróður sagði Hall- varður að þeir munu ekki hafa vitað um ránið fyrirfram en rannsóknin beinist m.a. að vit- orði þeirra eftir ránið. Þeir munu nú báðir hafa dregið til baka kærursínartil Hæstaréttarvegna gæsluvarðhaldsúrskurðarins. Það kom einnig fram í máli Hallvarðar að nú væri m.a. rann- sakað hvort tengsl væru á milli bankaránsins við Landsbankann og ránsins í Iðnaðarbankanum í Breiðholti. Aðspurður um hvort hann væri ekki ánægður með frammi- stöðu sinna manna í þessu máli sagði Hallvarður: „Það er ég svo sannarlega, það er mikill léttir, hér og annarsstaðar að tekist hefur að upplýsa þetta alvarlega mál og góðar líkur eru á að við náum megninu af peningum þeim sem rænt var til baka. Menn hér hafa verið ákaflega bundnir yfir þessu máli, því í tvo sólarhringa vann stór hópur manna án svefns og hvíldar að því að upplýsa málið". -FRI ■ Umhveríi gistihússins við Bláa lónið hjá Svartsengi er ekki eins og umhverfi gistihúsa er vant að vera, en þeim mun stórbrotnara er orkuveríð skammt undan, hraunið og Iónið sjálft, þar sem hægt er að baða sig árið um kring. Þarna búa um þessar mundir 12 skákmeistarar sem tefla á skákmóti sem hefst í dag í Grindavík og hér sést einn þeirra Helgi Olafsson skoða sig um i góða veðrinu. Hundurinn á myndinni mun hins vegar ekki vera meðal keppenda. Tímamynd Ámi Sæberg. Grænlendingar: Telja naudsynlegt ad selja þær veidar sem þeir nota ekki sjálfir — „Jákvæðir á samstarf til lengri framtíðar’% segir forsætisráðherra eftir fundinn með Jonathan Motzfeldt ■ Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra, ásamt þeim Pétri Thorsteinssyni og Benedikt Gröndal átti í gær í Stokkhólmi fund mcð Jonathan Motzfeldt formanni grænlensku lands- stjórnarinnar og tveimur öðrum landsstjórnarmönnum, sem m.a. sýndi fram á að Grænlendingar vilja hafa samstarf við íslendinga um hámarksveiðar sameigin- legra fískistofna og þeir eru til- búnir að ræða nýtingu á rækju á mörkum landhelgi landanna, loðnu og karfa. „Við gerðum á þessum fundi grein fyrir áhyggjum okkar, vegna samninga Grænlendinga Tveir varnarliðsmenn festu sig í snjó á Mosf ellsheiði: LÉTU FYRIRBERAST í BÍL SÍNUM ALLA NÓTTINA ■ Tveir varnarliðsmenn af Keflavíkurflugvelli létu fyrirber- ast í bíl sínum í fyrrinótt á Mosfellsheiði skammt frá mótum Kjósarvegar og Þingvallavegar en þar höfðu þeir fest bíl sinn í snjó. Annar þeirra hélt svo til byggða i gærmorgun og gekk hann fram á vinnuflokk frá raf- veitunum í Mosfellsdal. Fóru þeir með honum á hreppsskrif- stofu Mosfellshrepps þaðan sem samband var haft við björgunar- sveitina Kyndil. Tveir menn frá Kyndli héldu síðan af stað með manninn í bíl sveitarinnar og höfðu þeir snjó- sleða með í förinni. Greiðlega gekk að losa bíl varnarliðsmann- anna og voru þeir og bíllinn fluttir niður í Mosfellssveit þaðan sem þeir keyrðu svo aftur til Kefla- víkur. Þessar upplýsingar fékk Tím- inn hjá Hannesi Hafstein fram- kvæmdastjóra SVFÍ en hann sagði að mennirnir hefðu gert rétt í því að láta fyrir berast í bílnum i stað þess að reyna að ná til byggða í fyrrinótt. - FRI. við Efnahagsbandalagið,“ sagði forsætisráðherra í samtali við Tímann í gær, „en þeir hafa lagt áherslu á það sem þeir hafa reyndar margsinnis áður sagt, að þeir eru að reyna að semja sig út úr Efnahagsbandalaginu. Þeir segja að ekki sé um neitt annað fyrir þá að ræða, en að selja þær veiðar sem þeir sjálfir nota ekki.“ Forsætisráðherra sagði jafnframt: „Það kom berlega í ljós í máli Grænlendinganna, að þeir eru mjög jákvæðir hvað varðar samstarf til lengri fram- tíðar. Við ákváðum að hittast á ný í júnt', en ég bauð Jonathan Motzfeldt þá heim til íslands í opinbera heimsókn og hann þáði það.“ Forsætisráðherra sagði að tím- inn fram í júní yrði notaður til þess að undirbúa hin ýmsu mál sem ræða þyrfti, og sá undirbún- dropar ingur yrði í höndum íslenskra og grænlenskra embættismanna. Forsætisráðherra sagði að það væru miklu fleiri mál en sjávarút- vegsmál sem ræða þyrfti, og nefndi í því sambandi menning- arfnál, landbúnaðarmál o.fl. Hann sagði. viðræðurnar hafa verið mjög jákvæðar, og það lægi enginn vafi á því að Græn- lendingarnir vildu hafa mjög náið samstarf við íslendinga á sem flestum sviðum. Forsætisráðherra sagði jafnframt: „Grænlendingar leggja mikla áherslu á það að þeir vilja hafa samstarf við okkur um það hámarksmagn sem veiða megi af sameiginlegum fiski- stofnum, auk þess sem þeir eru tilbúnir að ræða við okkur um nýtingu á rækjunni sem er á mörkunum og loðnunni og karf- anum, en fyrirfram vil ég engu spá um það, hvað út úr slíkum viðræðum kemur." -AB Bókamarkadur Veraldar- forlaganna? ■ Búka stríðið er nú í algleym- ingi milh annars vegar Verald- arbókaforlaganna, en hins veg- ar bóksala og er nú svo komið að þeir fyrrnefndu neita þcim síðarnefndu um að selja bækur sínar, eftir að þeir hinir sömu höfðu neitað að selja tilhoðs- bækur þeirra í bókaklúbbnum. Er nú komið stál í stál, og í gærdag kærðu bóksalar forlög- in fjögur fyrir Félagi ísl. bóka- útgefenda. Ekki er enn farið að sjá fyrii cndann á öllum þessum ósköpum, en Dropar hafa hevrt, að einn af hugsanlegum mótleikum Veraldarforlag- anna sé að koma á fót bóka- markaði á höfuðborgarsvæð- inu, þar sem seldar yrðu bækur þeirra. Hefur þetta meira að segja gengið svo langt, að þeg- ar er hafin leit að hentugu húsnæði. Slyngur hani Haninn á bóndabænum var orðinn gamall og lúinn og bóndinn ákvað því að kaupa sér nýjan hana. Sá kom á bæinn og hóf straxáð spígspora á meðal hænsnanna um leið og hann hreytti út úr sér ónotum í þann gamla og sagði honum að hypja sig eða hann hefði verra af. Sá gamli svaraði að bragði að hann skyldi keppa um vcr- una á staðnum við þann nýja þannig að þcir hlypu fjóra hringi í kringum hlöðuna og sá sem ynni kapphlaupið skyldi hverfa lrá bænuin. Þetta þótti hinum nýja ekki mikið mál og þeir hefja kapp- hlaupið. Eftir tvo hringi er íslenskir sporhundar ætla nýkomni haninn að komast heilan hring á undan þeim gamla en þá kemur bóndinn hlaupandi út úr húsinu með haglabyssuna í höndum og fret- ar hann þeim nýja yfir í önnur heimkynni. Síðan gengur bóndinn aftur inn í bæinn hrist- andi hausinn og tautandi: „Fjandinn þetta er fjórði öfugi haninn sem ég fæ í þcssari viku“. Sporhundar leggjast í ferðalög?? greinilega að gera víðreist á þessu ári, sem best má marka af því að félagsskapur þeirra hefur fengið styrk úr Þjóð- hátíðargjöf Norðmanna þetta árið, þ.e. Björgunarhunda- sveit Islands. Dropar vita hins vegar ekki hvert þeir ætla að halda, en ekki er ólíklegt að þær sæki frændur sína og vini i norsku Þrændalögunum heim. Krummi .. . ..nú hefur Albert tekist að jafna.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.