Tíminn - 02.03.1984, Síða 2

Tíminn - 02.03.1984, Síða 2
• FÖ8TUDAGUR 2. MARS 1984 fréttir Alþingi Fjármálarádherra segir Dagsbrúnarsamkomulagið kosta innan við 1 millj. ENGINN TALDI AÐ ALBERT ÆTTI AD SEGIA AF SÉR Sjálfstæðisflokkurinn lítur samnings- gerðina alvarlegum augum ■ Þegar samkomulagið sem f jármálaráðherra og Dagsbrún gerðu var rætt í ríkisstjórninni lá ekki fyrir hvaða útgjaldaauka það hefði í för með sér. Það er fyrst núna á þessum fundi að upplýsingar fást um það og hann er tiltölulega lítill ef hann er ekki nema 1. millj. kr. Það er kannski ekki aðalatriði þessa máls, heldur hitt, hvaða tilgangi slíkt samkomulag þjónar. Yfirleitt er sú venja ekki viðhöfð að það sé gert sérstakt samkomulag um og gefinút yfirlýsing um hvað menn ætli sér að semja, sagði Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra í utandagskrárumræðum á Alþingi í gær um samkomulag fjármálaráðuneytisins og Dagsbrúnar. Mikið var rætt um þær yfirlýsingar scm gefnar hafa vcrið vegna þessa og fjármálaráðherra upplýsti að um mjög óvcrulcgan útgjaldaauka væri að ræða fyrir ríkissjóð. Þorsteinn Pálsson taldi að samkomulagið væri slæmt fordæmi og ekki væri séð fyrir endann á hvaða aflciðingar það hefði á almennum vinnu- markaði. Allir ræðumenn voru sammála um að fjármálaráðherra hefði fullan lagalegan rétt á að gera slíkt samkomu- lag. Stjórnarandstæðingar kváðust fagna frumkvæði Alberts í þessu máli ogstyðja það. Karl Steinar Guðnason hóf umræðuna og sagði það lengi hafa verið baráttumál að félagar í verkalýðsfélögunum og BSRB sem ynnu sömu störf hlið við hlið fengju sömu kjör, en ávallt hafi verið staðið á móti þeim óskum af fulltrúum ríkis, sveitarfélaga og atvinnurekenda. En víða úti um land hefði þetta misrétti verið samræmt og spurði Karl Steinar fjármálaráðherra hvort hann væri tilbú- inn að verða við tilmælum ASÍ um að þetta samkomulag gilti fyrir öll verka- lýðsfélög. Albert Guðmundsson fjármálaráð- herra sagðist hafa veriö borinn þungum sökum undanfarið sem fjármálaráðherra fyrir að gcra samkomulagið við Dagsbrún, en hann hefði talið sjálfsagt að verða við beiðni Dagsbrúnar þegar hún barst og leiðrétta það misrétti sem fælist í núgildandi samningum. Ef Al- þingi teldi það ckki leyfilegt sagðist Albert að sjálfsögöu taka afleiðingum gjörða sinna. Um kostnaðinn vitnaði Albert í grein- argerð sem launadeild fjármálaráðu- neytisins gerði og þar segir, að yfirleitt sé gott samræmi á milli launa Dagsbrún- armanna og manna í störfum sem sam- bærileg geta talist hjá BSRB. Samræm- ing gæti hugsanlega haft nokkur áhrif í lægstu launaflokkunum. Kostnaður af slíku gæti numið nokkrum tugum þús- unda kr. fyrir ríkissjóð á ári. Sérstök samstarfsnefnd Dagsbrúnar og ráðuneytisins er að taka til starfa til að ganga frá málunum. Albert sagði að- ef orðið verði við öllum kröfum Dags- brúnar muni kostnaðurinn nema um 1. millj. kr. Þetta væru allar upphæðirnar sem . kostað hafa allt það moldviðri sem þyrlað hefur verið upp í kringum þetta mál. - Mér er sagt - sagði fjármálaráð- herra, að lítil hætta sé á aðsamkomulag- ið valdi keðjuverkun sem nái til alls vinnumarkaðarins. Hann kvað stærðar- gráðuna í útgjöldum af þessari embættis- gjörð ekki vera mikið meiri en sem næmi kostnaði við ferðalög þingmanna á Norðurlandaráðsráðstefnuna. Albert lauk máli sínu mcð að spyrja hvort einhver þingmaður væri í salnum sem ásakaði sig fyrir að leiðrétta þetta misrétti og væri hann tilbúinn að tala við hann. Ragnar Arnalds lagði áherslu á að fjármálaráðherra hefði fullan rétt á að gera kjarasamninga samkvæmt lögum og hefðum og hefðu fjármálaráðherrar gert marga slíka samninga á undanförn- um árum án þess að slíkur hvellur hafi orðið eins og nú. Þorsteinn Pálsson sagði m.a. að það hafi verið samdóma álit ríkisstjórnarinn- ar að greiða fyrir nýgerðum heildar- samningum með því að verða við tilmæl- um um sérstakar aðgerðir í skatta- og „BEITIMER FYR- IR ÞVÍ AÐ AÐRIR FÁIHLIÐSTÆÐAN SAMNING" — segir Guðmund- ur J. Guðmunds- son, formaður Dagsbrúnar ■ „Að sjálfsögðu mun cg bcita mér fyrir því að vcrkamcnn úr öðnim verkalýðsfclögum í starfi hjá ríkinu munu fá hliðstæðun samning við Ijár- málaráðhcrra,“ sagði Guðmundur J. Guðmundsson formaður Vcrka- mannasambands íslands í samtali við Timann í gær, cn sagðist jafnframt ekki hafa rætt það mál við fjármálaráð- herra. Sagðist Guðmundur tclja að ganga bæri frá þcssu Dagsbrúnarmáli áður en farið væri að ræða önnur mál. Guömundur sagöi: „Dagsbrún ósk- aði eftir viðræðum við fjármálaráð- herra og hann varð við þeirri ósk, og þetta varð niðurstaða þeirra viðræðna. Ég fer ckki með samningsumboð nema ■ Þorsteinn Pálsson. tryggingamálum til aðstoðar þeim sem verst eru settir í þjóðfélaginu. Niður- staða kjarasamninganna gerði ráð fyrir almennum launahækkunum í nokkrum áföngum, cn á hinn bóginn var ekki gert ráð fyrir að hreyft yrði við öðrum kjaraatriðum í hinum almennu ktara- samningum. Hætt er við að sérkjarasamningar geti leitt til atvinnuleysis eða nýrrar verð- ■ Guðmundur bara fyrir Dagsbrún, þannig að það er varla í mínum verkahring að óska eftir slíkurn viðræðum við fjármálaráð- herra." Þegar Guðmundur var spurður álits á þeirri gagnrýni sem fram hefur komið á þctta Dagsbrúnarsamkomu- lag sagði hann: „Ég segi nú eins og fjármálaráöherra, að ég skil ekki þá menn sem eru á móti því að menn sem eru í sama vinnuflokk. við sömu störf, þeir séu á sömu launum, en þessi samningur felur ekkert annað í sér." -AB Karl Steinar. bólguholskeflu og þeir sem að heildar- samningunum stóðu gerðu sér grein fyrir því. Ekki mátti ganga lengra í gerð kjarasamninganna hvað kauphækkanir varðaði og var boginn spenntur til hins ítrasta. Samningarnir eru nú til um- fjöllunar meðal verkalýðsfélaga. Flest þeirra samþykkja þá, en það er unnið að því af vissum aðilum að vinna að upp- lausn, koma ríkisstjórninni frá og verð- Dagsbrúnarsamn- ingurinn kostar ríkid hálfa til eina milljón: „KOSTNAÐURINN TITTLINGASKÍTUR" — segir Þröstur Olafsson, fram- kvæmdastjóri Dagsbrúnar ■ „Þetta er mjög lausleg athugun á þvi hversu margir mcnn þetta eru, og hvaða réttindi það eru sem þeir kynnu að fá,“ svaraði Þröstur Ólafsson frani- kvæmdastjóri Dagsbrúnar er Tíniinn spurði hann í gær á hvcrju áætlun hans uin.að samningur Alherts Guðmunds- sonar fjármmálaráðherra við Dags- brún um samræmingu kjara kostaði ríkissjóð ekki nenia hálfa til eina milljón á ári. Þröstur sagðist hafa kannað í hvaða launaflokkum þessir menn væru. sem um ræðir, og í Ijós hefði komið að sums staðar væri um yfirborgun að ræða. þannig að launabilið væri niiklu Albert Guðmundsson. bólgunni á. Fyrsta stéttarfélagið sem reið á vaðið og felldi samningana var Dagsbrún. Við þessar aðstæður er óeðlilegt að ríkisstjórnin semji við stéttarfélag sem hefur fellt heildarkjarasamningana og samþykki hluta af viðbótarkröfum þess. Hluti af þessum kröfum hefur verið samþykktur af fjármálaráðherra. Það hlýtur að leiða til meiri óvissu við afgreiðslu þessara samninga og stofna verðbólgumarkmiðum ríkisstjórnarinn- ar í meiri hættu en orðið var. Með þessum samningi er heldur ekki verið að binda kjarasamninga við Dags- brún á einn eða annann hátt. Þeir sem að samningunum standa vita ákaflega lítið um raunverulegt eðli þeirra, hvaða áhrif þeir hafa fyrir ríkið og hvaða áhrif þeir koma til með að hafa á samninga annarra stéttarfélaga og hvaða áhrif þeir koma til með að hafa á hinum almenna vinnumarkaði. Fyrir þessa sök tel ég einnig óeðlilegt að ganga að þessum samningum. Ég tel einnig, sagði Þorsteinn Pálsson, að þegar farið er með mál,sem ekki er vitað um hversu víðtæk áhrif hefur, eigi að fara með það fyrir ríkisstjórnina alla. Það var ekki gert í þessu tilviki. í lok ræðu sinnar sagði formaður Sjálfstæðisflokksins, að þessi samnings- gerð væri alvarleg í sínum augum og síns flokks og yrði brugðist við henni í samræmi við það. Málið verður rætt innan flokksins og aðstæður metnar á þeim vettvangi og verður gerð grein fyrir niðurstöðunni þegar efnið hefur verið rætt til hlítar. ■ Þröstur minna en talið hcfði verið í fyrstu. í heild væru þetta ekki nema um 100 menn. Þröstur var spurður hvort þeir hjá Dagsbrún túlkuðu ákvæðið í samn- ingnum „sambærileg storf'' á sama hátt og fjármálaráðherra: „Nei, þaö gerum við að vísu ekki, en það eru ekki möguleikar fyrir okkur að skírskota þeirri niðurstöðu eitthvað annað.“ Þröstur ítrekaði að kostnaðarathug- un hans á þessum samningi hefði verið mjög lausleg. og bætti við: „Hvort sem kostnaðurinn er eitthvað lægri cða hærri. þáerþetta tittlingaskftur - þetta er einhvers staðar á milli Blazcr og Benz.“ -AB

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.