Tíminn - 02.03.1984, Qupperneq 11
10
Ummm
FÖSTUDAGUR 2. MARS 1984
FÖSTUDAGUR 2. MARS 1984
11
iþróttir
Kvennalandslið-
ið tapaði í gær
■ íslensku kvennalandsliöið í handknattleik
lapaöi í gær fyrir Bandarikjumönnum í lands-
leik þjóöanna í handknattieik í Bandaríkjun-
um. Bundarísku stúlkurnar si|*iuöu 26-21, el’tir
aö íslensku stúlkurnar höföu hal't yfir 12-11 í
hálfleik. Ekki náöist i liöiö i gær. Nánar a
niorgun. -SÖE
Staðan í
blakinu
■ 1. deild karla
Þróttur ..
HK ......
ÍS ......
Fram ...
Víkingur
13 13 0 39-12 26
13 9 4 30-21 18
11 4 7 23-25 8
13 3 10 21-36 6
12 2 10 17-33 4
1. deild kvenna
Völsungur......... 13 11 2 30-9 22
ÍS ............... 12 10 2 32-12 20
Breiöablik........ 15 9 6 34-30 18
Þróttur........... 12 6 6 22-23 12
KA ............... 12 2 10 11-30 4
Víkingur.......... 12 0 12 0-36 0
Aðalfundur
■ AðalfundurUngmennafélagsins Víkverjaverður
haldinn laugardaginn 3. mars kl. 15,00, í húsakvnn-
um UMF-'Í, að Mjölnisholti 14. Klukkustundu áöur,
kl. 14.(Kl, hefst á sama stað aöalfundur glímudeildar
Víkverja. -SGG
Yngri flokka
knattspyrna hjá
UMSK um helgina
■ UMSK mun halda innanhússmót sitt í
knattspyrnu fyrir yngri flokka nú um helgina í
Digranesi í Kópavogi. Keppt verður í öllurn
yngri flokkum pilta. Klukkan 10 á laugardags-
morgun hefst keppni í 6. fiokki og 5. flokki í
A. B og C liðum. Á sunnudag hefst keppnin á
sama tíma og verður þá kcppt í 4. flokki A og
B. 3. flokki og 2. flokki.
Á laugardag, þegar bein útsending verður í
sjónvarpinu frá leik Everton og Liverpool.
verður opið sjiinvarp í Digranesi, svo mann-
skapurinn þarf ckki að láta beinu sendinguna
plata sig út úr húsi. -SÖE
Körfubolti í kvöld:
Toppslagur í úrvalsdeild
■ í Úrvalsdeildinni verður toppslagur þar
sent Njarðvík og KR leika í íþróttahúsinu í
Njarðvík. Verður áreiðanlega um fjörugan leik
að ræða hjá þcssum toppliðum, leikurinn hcfst
kl. 20.00.
Staðan:
Njarðvík........18 14
Valur...........18 10
KR ............18 9
Haukar.........18
ÍR.............18
Keflavík.......18
4 1463-1340 28
8 1487-1304 20
9 9 1326-1319 18
8 10 1332-1356 16
7 11 1240-1254 14
6 12 1049-1230 12
-SGG
Handbolti í kvöld:
- Keppt í 3. deild
■ í kvöld verður toppslagurinn á fullu í 3.
deild karla. í Eyjum leika Týr og ÍBK. Kl. 20.00.
A Akureyri slást svo l'ór Ak og IA um sæti í
úrslitakeppninni. Leikurinn hefst k. 20.00.
Staðan í þriðju dcild er nú þannig:
TýrVe..........15
Ármann.........14 11
Aftureld......14 10
Akranes....... 14 9
ÞórAk........... 13 9
Keflavík...... 13 6
Selfoss......... 14 3
Skallagrim .... 4 2
Ögri............ 15 0
357-253 23
395-309 22
333-241 20
349-258 20
339-229 19
324-287 12
0 11 240-294 6
0 12 216-354 4
0 15 207-537 0
-SGG
Blakað í kvöld
■ Einn leikur verður í annarri dcild i hlakinu
í kvöld HK 2 og Samhygð leika í Skálaheiði kl.
20. -SGG
RftNGT «D TflKfl
VIÐ PENINGUNUM
V
— en þetta voru ekki mútugreiðslur — við gerðum
allt sem við gátum til að vinna
Lárus Guðmundsson
segir
■ „Það var rangt hjá okkur að taka við
peningum frá Standard Liege, það sjáum
við núna. En þetta voru ekki mútur, þaö
kom aldrei til greina hjá okkur að tapa
þessuni leik viljandi", sagði Lárus
Guðmundsson knattspyrnumaöur í Wat-
erschei í samtali við Tímann í gær vegna
„mútumálsins“ sem komið er upp í
Belgíu. „Viö lögðum okkur alla fram í
þessum leik, og það er greinilegt þegar
leikurinn er skoöaöur á myndbandi aö
það er ekkert bogiö við hann. Þeir hjá
Standard voru miklu betri, og skoruðu
glæsimörk, sem enginn átti möguleika á
að verja. Markvörðurinn okkar átti
stórleik i þessuin leik, en það kom fyrir
ekki“, sagði Lárus.
„Mcöan við vorum að hita upp á æf-
ingu fyrir leikinn kom ákveðinn leikmaður
til fyrirliðans og segir: „Heyrðu, ef við
töpum leiknum, ætla leikmenn Standard
að láta okkur hafa vinningsbónusinn
sem þeir fá vanalega". Fyrirliðinn kallar
svona til okkar. „Strákar heyrið þið
það? Ef þið tapið leiknum fáið þið 30
þúsund franka". - Menn hlógu bara að
þessu eins og hverju öðru gríni, og hver
um sig ætlaði að vinna leikinn. Síðan fór
leikurinn fram, og við töpuðum honum
einfaldlega af þvf þeir voru miklu sterkari.
Nokkrum döguin seinna mætir þessi
ákveðni leikmaður lijá okkur á æfingu,
með peninga, og deilir á allan mannskap-
inn. Hann sagði að leikmenn Standard
stæðu á því að við ættum að fá þessa
peninga. í heimsku tóku allir við pening-
SNÆFELL HÆTTI
KVENNADEILDINNI
— í körfuboltanum - frjósemi
leikmanna hefur áhrif
á gang mála
■ Snæfell frá Stykkishólmi hefur
gefist upp í 1. deildarkeppni
kvenna í körfuknattleik. Liðið mun
ekki mæta í fleiri leiki, og þa eru
einungis eftir 5 lið í kvennadeild-
inni. Ekki er enn vitað hvaða áhrif
þetta hefur á stigatöfluna hjá stúlk-
unum, þar sem ekki hefur verið
tekin ákvörðun um það hjá KKÍ
hvort litiö verður á leiki sem Snæ-
fell á eftir sem gefna, eða hvort allir
leikir þeirra verða strikaðir út.
Ástæðan fyrir því að Snæfell
gefst upp, er sú að tveir meginstólp-
ar liðsins eru ekki keppnisfærir
lengur, Kristjana Hrafnkelsdóttir
meiddist illa á dögunum, og María
Guðnadóttir, einnig frjálsíþrótta-
kona mikil, hætti að leika með
liðinu í desember.
Frjósemin ætlar að verða áhrifa-
rík í kvennakörfuboltanum í vetur.
Þannig hafa burðarásar þriggja liða
hætt keppni í vetur sökum þess að
þær eru konur eigi einsamlar. Er
jafnvel möguleiki að íslandsmeist-
aratitillinn geti lent hjá öðrum en
lengst af hefur verið talið vegna
þessa.
Þær þrjár sem vísað er til hér á
undan eru María Guðnadóttir Snæ-
felli, Emilía Sigurðardóttir ÍR og
Katrín Eiríksdóttir Njarðvík. Þess-
ar hafa allar verið afar atkvæða-
miklar í liðum sínum. Sérstaklega
getur það, að Emilía leikur ekki
lengur.orðið afdrifaríkt. ÍR er nú í
baráttunni um íslandsmeistaratitil-
inn við ÍS, ogekki sýnt hvernig fer.
ÍR á leik um helgina við Hauka, og
vinni Haukar, geta Stúdínur tryggt
sér íslandsmeistaratitilinn með að
sigra ÍR í síðasta leiknum. Verða
liðin þá jöfn að stigum, en IS hefur
þá betra hlutfall úr innbyrðis
leikjum.
Staðan í deildinni er nú þessi:
ÍR....... 17 15 2 827-666 30
ÍS ...... 15 11 4 673-584 22
Haukar .. 15 8 7 686-431 16
17 6 11 568-670 12
17 5 12 529-677 10
.15 3 12 392-497 6
Ef stig Snæfells strikast út, sem
hlýtur að teljast trúlegasti kostur-
inn, mun það bæta stöðu KR og
Hauka.
-SÖE
■ Unglingalandsliðið í badminton, sem keppir fyrir íslands hönd í dag í
Laugardalshöllinni. Efri röð frá vinstri: Þórhallur Ingason ÍA, Haukur P Finnsson
Val, Snorri Ingvarsson TBR. Fremri röð: Elísabet ÞórðardóttirTBR, Þórdís Edwald
TBR. Á myndina vantar Guðrúnu Júlíusdóttur TBR og Árna Þór Hallgrímsson íA.
unum, og hugsuðu sem svo, „við töp-
uðum, og það heiðarlega, við því er
ekkert að gera, og það er alveg eins gott
að hirða þessa peninga".
- Svo kemur það bara upp úr skatta-
rannsóknum, að ákveðin upphæð hafi
verið borguð til Waterschei, og náttúr-
lega litið á það sem hreinar mútur! Sem
það í raun var ekki".
Lárus sagði að líklegt væri að þeirsem
sáu um peningaflutninginn fengju að
líkindum leikbann og sektir, og
þeir hefðu ásamt stjórnarmönnum
Standard verið teknir til bæna. Hann
sagði að allir yrðu yfirheyrðir, en að
öðru leyti vissi hann ekki hvað mundi
gerast. Lárus taldi þó litlar líkur á að
allir þeir 28 leikmenn sem hiut eiga að
máli yrðu settir í bann, það gengi að
tveimur heilum knattspyrnufélögum
dauðum. - SÖE.
umsjón: Samúel Öm Eriingsson
■ Lárus Guðmundsson knattspyrnumaöur hjá Waterschei er óþægilega flæktur i
mútumál sem komiö hcfur upp í belgísku knattspyrnunni.
Valsmenn hafa
rádið þjálfara
— lan Ross fyrrum leikmaður Liverpool þjálfar liðið
■ Valsmenn hafa ráðið til sín knatt-
spyrnuþjálfara, til að sjá um þjálfun 1.
deildariiðs karla hjá félaginu. Sá sem
ráðinn hefur verið heitir Ian Ross, Skoti,
sem mestmegnis hefur eytt ævinni í
Englandi. Ross þessi er 37 ára gamall.
og fyrrum leikmaður Liverpool, Aston
Villa, og Peterborough. Ross hefur einn-
ig þjálfað hjá Peterborough Wolves, og
Birmingham City.
lan Ross kom 15 ára gamall (fæddur
árið 1947) til stórliðsins Liverpool. Hann
fékk þar samning 17 ára, árið 1964, og
lék með liðinu til ársins 1971. Ross lék
með Aston Villa á árunum 1972-1977,
en fór þaðan til Peterborough þar sem
hann var þjálfari og leikmaður til ársins
1980. Þá lauk keppnisferli Ross, en hann
lék alltaf sem miðvörður.
Ian Ross var þjálfari hjá Peterborough
United árin 1978-1980, en þá var John
Barnwell, Englendingurinn sem kom
IS LAGÐI SKALLAGRÍM
■ Topplið 1. deildar í körfuknattleik,
ÍS, var ekki í neinum vandræðum með
Skallagrím er liðin mættust í Kennar-
aháskólanum í gærkvöld. Stórsigur ÍS,
101-66, og allt útlit er fyrir að liðið leiki
í úrvalsdeildinni næsta keppnistímabil.
Staðan í hálfleik var 45-32, ÍS í vil.
Stigahæstir hjá ÍS voru: Björn Leósson
26, Guðmundur Jóhannsson 18, Kristinn
Jörundsosn 17, og Árni Guðmundsosn
14. Hjá Skallagrím skoruðu mest: Hans
Egilsson 22, Guðmundur Kr. Guð-
mundsson 16 og Hafsteinn Þórisson 11.
-BL.
NIVI unglinga
hef st í
— í Laugardalshöllirmi með
liðakeppni
■ Norðurlandamót unglinga í
badminton hefst í Laugardalshöll í dag.
Klukkan 9 árdegis hefst liðakeppni á
mótinu, og eru þá leikir Færeyja og
Finnlands, Islands og Danmerknr og
Noregs og Svfþjóðar. Næsti leikur hefst
klukkan 12.30, og keppni mun síðan
standa til kvölds.
Liðakeppnin verður löng og ströng,
talið að hún muni standa í eina 13-14
tíma. í hverri keppni eru fimm leikir,
einliðaleikur pilta og stúlkna, tvíliða-
leikur pilta og stúlkna og tvenndarleikur.
Úrslitaleikurinn í liðakeppninni verður
að líkindum í síóustu umferðinni, en þá
keppa Danir við Svía. Þessar þjóðir hafa
verið langsterkastar í íþróttinni um ára-
tugaskeið á Norðurlöndum, og Danir
þó sýnu sterkastir fram undir þetta.
Baráttan um þriðja sætið verður að
líkindum milli Norðmanna og Finna, þó
íslendingar geri sér vonir um að blanda
sér eitthvað í þá baráttu. Færeyingar
frændur vorir cru taldir líklegir til að
lenda í 6. sæti, enda taka þeir í fyrsta
sinn þátt í þessu móti nú.
Á morgun hefst einstaklingskeppnin.
Þá verður keppt í tvenndarkeppni, tví-
liðaleik pilta og stúlkna, og einliðaleik
pilta og stúlkna. Á sunnudagsmorgun
hefjast undanúrslit í öllum þessum grein-
um, og síðan verður ieikið til úrslita
seinni partinn á sunnudag.
-SÖE
hingað í boði Vals á dögunum, fram-
kvæmdastjóri þar. Hann fylgdi síðan
Barnwell til Wolverhampton Wander-
ers, þar sem hann tók við aðstoðarfram-
kvæmdastjórastöðu. Ross fauk síðan
þaðan ásamt Barnwell, þegar allt var
komið í óefni í fjármálum félagsins.
Síðan hefur hann verið þjálfari hjá
Birmingham.
Ross er væntanlegur hingað til lands
eftir um það bil þrjár vikur, um 20. mars.
Hann tekur þá við þjálfun Valsliðsins af
Róbert Jónssyni, sem hefur annast liðið
frá hví Cin'-rAiir niffsson sai'ði upp
störlum.
„Við teljum að við hötn.n náð mjög
hagstæðum samningum við Ross, og
erum mjög ánægðir með þetta", sagði
Grétar Haraldsson formaður Knatt-
spyrnudeildar Vals á blaðamannafundi í
gær. „Við ætlum okkur að vera í
baráttunni í sumar, og þrátt fyrir að
mikið af mönnum hafi yfirgefið okkur
frá síðasta keppnistímabili, erum við
bjartýnir.”
Valsmenn ætla að reka knattspyrnu-
deild sína af stórhug í sumar. Þeir hafa
ráðið framkvæmdastjóra deildarinnar í
fullt starf. Er það Hörður Hilmarsson,
fyrrum leikmaður liðsins.
-SÖE
Fjármálahneyksli hafa vída komid upp í knattspyrnunni:
NU BEINAST AUGUN
BELGISKUM FELOGUM
Félagaskipti og skattframtöl rannsökuð - Upp befur
komist um mútur sem greiddar voru leikmonnum
Waterschei - Lárus dæmdur íleikbann?
■ Á undanförnum árum hafa hvað eftir annað komið upp fjármálamisfcrli í
tengslum við rekstur knattspyrnuliða á meginlandi Evrópu. Upp úr 1970 varð uppvíst
um mikið hneykslismál í V-Þýskalandi. Voru mörg félög nefnd í sambandi við
fjármálamisferli, skattsvik, „svartar" launagreiðslur og mútur til einstakra félaga og
liðsmanna fyrir að hagræða úrslitum kappleikja. I mörgum tilvikum reyndist erfitt að
færa sönnur á sekt félaga og einstaklinga í þessu efni, og á endanum voru það einungis
félögin Schalke 04 og Armenia Biclcfeld og einstakir leikmenn úr röðum þeirra sem
refsað var fyrir misferli af þessu tagi. Svipað mál kont upp á Ítalíu fyrir nokkrum
áruin, eins og flestum er enn í fcrsku minni, þar sem markakóngur Heimsmeistara-
keppninnar 1982, Paolo Rossi, átti þar hlut að máli. Rossi var dæmdur í tveggja ára
bann, og losnaði úr því aðeins örfáum mánuðum fyrir heimsmeistarakeppnina á
Spáni. Fleiri leikmenn voru dæindir í keppnisbann á Italíu, og félag Rossis dæmt til
að falla í aðra deild. - Orðrómur var um margvíslcgt svindl franskra liða og
knattspyrnumanna á síðasta ári, og nú fara skattalögregla og ákæruvaldið ofan í
saumana á fjármálum belgískra knattspyrnuliða.
Nú þarf svo sem engan sem til þekkir
að undra, þótt yfirvöld hnýsist í fjármál
atvinnuknattspyrnufélaga og leikmanna
þeirra. Því er oft fram haldið, að í
atvinnuknattspyrnu tíðkist hvers konar
hliðar-og baksamningar félaga á milli
þegar leikmcnn ganga kaupum og
sölum. Enginn veit raunverulega hvað
einstakir leikmenn hafa í laun, það er
leynilegt samkomulagsatriði þeirra og
viðkomandi liða. Talsverður hluti laun-
anna, svokallaður bónus, er jafnframt
undir gengi félaganna kominn. Ákveðin
upphæð er þannig greidd fyrir unnin
stig, unnin mót, þátttökurétt í Evrópu-
keppni og svo framvegis.
Margir leikmenn hafa svo sérsamn-
inga við framleiðendur íþróttavarnings,
og sumir miklar tekjur af hvers konar
auglýsingum öðrum. Þannig var t.d.
talið, að Karl Heinz Rummenigge hefði
haft ríflega tvær milljónir marka í
árslaun árið 1982, þar af um 1,4 milljónir
marka fyrir afnot af nafni sínu í hvers
konar auglýsingaskyni. Félögin sjálf hafa
og tekjur af hvers konar auglýsingum,
og miklir fjármunir ganga um hendur
forsvarsmanna þeirra við félagaskipti
leikmanna.
Félagaskipti Ásgeirs
og Péturs gruggug
Skattaframtöl leikmanna og atvinnu-
knattspyrnuliða eru því þegar „grunsam-
leg" vegna hinnar miklu leyndar sem
hvílir yfir samningum í þessari „atvinnu-
grein". Svo sem fram hefur komið í
fréttum að undanförnu, hafa skattalög-
reglan og önnur yfirvöld í Belgíu rann-
sakað að undanförnu fjárreiður margra
félaga, forráðamanna þeirra, umboðs-
manna knattspyrnumanna og einstakra
leikmanna. Hefur þegar orðið uppvíst
um margs konar vafasöm viðskipti þar í
landi í kjölfar þessarar rannsóknar.
Meðl annars hafa nöfn íslenskra leik-
manna komið upp í þessu sambandi,
þótt þeir sjálfir hafi blessunarlega verið
lausir við að liggja undir grun til þessa.
Það virðist þó líklegt að forráðamenn
Antwerpen og Standard Liege hafi ekki
gert yfirvöldum fullnægjandi grein fyrir
fjárhæðum sem greiddar voru vegna
félagaskipta þeirra Péturs Péturssonar
og Ásgeirs Sigurvinssonar. Nú hefur
rannsókn belgískra yfirvalda í enn ríkara
mæli beinst að hinu gamla félagi Ásgeirs,
Standard Liege, og í því sanibandi hefur
félag Lárusar Guðniundssonar, Water-
schei, dregist inn í rannsóknina með
ófyrirsjáanlegum hætti.
Gerets tekinn
Segja má að rannsókn hafi tckið
nokkuð nýja stefnu síðastliðinn þriðju-
dag. Á miðvikudagskvöld léku Belgar
og V-Þjóðverjar vináttuleik í knatt-
spyrnu sem greint var frá í blaðinu í gær.
Til þessa leiks, sem er liður í undirbún-
ingi landsliða þjóðanna fyrir úrslita-
keppni EM í Frakklandi í sumar, boðaði
landsliðseinvaldur Belgíu, Guy Thuys,
að sjálfsögðu fyrirliða belgíska landsliðs-
ins. Eric Gerets, sem nú Ieikur með AC
Mílanó. Gerets, sem er 29 ára að aldri,
og hefur leikið 50 landsleiki fyrir Belgíu,
var áður fyrirliði Standard Liege. Hann
þykir frábær leikmaður, og hefur um
árabil stjórnað varnarleik belgíska
landsliðsins. Ekki var Gerets fyrr kom-
inn til Belgíu og til liðs við belgíska
landsliðið í æfingabúðir þess, en skatta-
lögreglan bankaði upp á og hafði hann á
brott með sér. Var hann í yfirheyrslum
á þriðjudag, og fram til klukkan 4
Badmintonmót
UMSK á Varmá
■ Um helgina verður badmintonmót
haldið á veguni UMSK á Varmá í
Mosfellssveit. Mótið hefst klukkan 9.30
á laugardag. Kcppt verður í trimmflokki
fullorðinna og tveimur yngri flokkum, í
hefðbundum keppnisformum eftir þátt-
töku.
-SÖE.
BLAKKONUR TIL FÆREYJA
— munu leika 3 leiki - i dag, laugardag og sunnudag
Færeyingar buðu íslenska liðinu aö
koma, og er uppihald í Færeyjum liðinu
að kostnaðarlausu. Flugkostnað greiða
Blaksambandið og stúlkurnar í samein-
ingu.
■ Islenska kvennalandsliðið í blaki
hélt til Færeyja hinn 29. febrúar síðast-
liðinn. Liðið mun leika þrjá landsleiki
við Færeyinga, föstudaginn 2. mars,
laugardaginn 3. mars og sunnudaginn 4.
mars. Tveir leikjanna verða í Þórshöfn
; og einn í Fuglafirði.
HEIMSBIKARKEPPNII
MARAÞONHLAUPI HÉR?
— FRÍ hefur sótt um að halda mótið
■ Á síðasta stjórnarfundi FRÍ var
ákveðið að sækja um að fá að halda
bikarkeppni í marþonhlaupi hér á landi
árið 1987. Þessi keppni er tiltölulega ný
af nálinni. Áhugi á þessari íþrótt hefur
farið verulega vaxandi.
Upphófst þessi áhugi í USA og hefur
dreifst vítt og breytt um allan heim
síðan. Mikið er lagt í svona mót og er
oft miklir peningar í sambandi við þau
t.d. í kringum auglýsingar, tilkostnað
við mótið, og svo eru einnig veitt
peningaverðlaun í stórmótum sem
þessum. Eru einnig margir komnir í
atvinnumennsku í þessari íþrótt...
Og vissulega yrði það gaman að fá
svona mót hingað.
- SGG.
Islenska
stúlkum:
liðið er skipað eftirtöldum
Asdís Jónsdöttir, Völsungi,
Auður Aðalsteinsdóltir, IS,
Málfríður Pálsdóttir, ÍS,
Oddný Erlcndsdóttir, UBK,
Sigurborg Gunnarsdóttir, UBK,
Sigurlín Sæmundsdóttir, UBK,
Snjólaug Bjarnadóttir, Þrótti,
Þorbjörg Rögnvaldsdóttir, UBK.
■ Landsliðshópurinn sem
Benedikt Höskuldssyni.
Færeyjaferðina, ásamt þjálfara sínum,
aðfaranótt miðvikudags, gefið að sök að
hafa svikið fé undan skatti, að hafa þegið
leynilegar greiðslur vegna félagaskipta
sinna til AC Mílanó síðastliðið vor, og fyr-
ir að hafa greitt leikmönnum Waterschei um
það bil 230 þúsund íslenskar krónur fyrir
að tapa leik fyrir Standard Liege vorið
1982. en Standard varð, viö að vinna
leikinn nteð þremur mörkum gegn einu.
belgískur meistari í fvrsta sinn í langan
tínia.
Standard Liege hefurennfremurverið
sakað uni að kaupa úrslil i l'leiri leikjum
umrætt keppnistímabil, 1981-1982. En
samt er það ákæran í leiknum við
Waterschci scm mesta athygli hcfur
vakið til þessa, því hún er grundvölluð á
framburði eins af leikmönnum Water-
sehei. miðvallárieikmannsins Rolland
Janssen. Janssen heldur því fram, að
Gerets hafi greitt sér andvirði u.þ.b. 230
þúsund íslenskra krón’a fyrir að Water-
schei tapaöi leiknutn, og hann hafi
sjálfur deilt þcssum peningum út til
leikmanna liðsins. Samkvæmt fréttum
þýskra blaða í ntorgun, játaði Gerets á
sig þau ákæruatriði sem fyrr er fr;i
greint, og hefur lið lians á Ítalíu, AC
Mílanó, sett hann í leikbann þar til
lilutdeild lians i jxssu hneykslismali er
Ijós.
Lárus í leikbann?
Gerets var ekki hnepptur í varðhald
eftir yfirhcyrslurnar, en skattalögreglan
í Belgíu hefur þegar látið handtaka
forseta Antwerpen, Eddy Wauters, og
fyrrverandi landsliðsmann Belga, Jeff
.lurion, sem nú starfar sem umboðsmað-
ur knattspyrnumanna. Séu fréttirnar af
játningu Gerets réttar, sent flest bendir
til, hefur það hinar alvarlegustu af-
leiðingar í för með scr. Þýska blaðið
Express telur víst, að Standard Liege
verði látið falla í aðra deild, og sama
hlutskipti bíði að líkindum einnig félags
Lárusar Guðmundssonar, Waterschei.
Ekki er Ijóst hvaða refsing bíður Gerets
og þeirra leikmanna Waterschei, sem
þegið hafa mútufé Standard Liege. Að
öllum líkindum ntunu þeir þó verða
settir í löng leikbönn, eins og venja er
þegar slík mál hafa komið upp í öðrum
löndum, til að mynda á Ítalíu. Nöfn
þeirra leikmanna Waterschei, sem
dcildu fénu með Janssen liafa ekki verið
nefnd, en ljóst er aö það er stór hluti
leikmanna Waterschei í dag, og vitað er
að Islendingurinn Lárus Guðmundsson
lék þennan leik og þáöi þessar greiðslur
eins og aðrir leikmenn Waterschei á
þcim tíma.
Forseti Knattspyrnusambands Belgíu,
Wouters, sem er lögfræðingur að mennt,
kvaðst fullkomlega orðlaus yfir þessum
atburðum, og sagði þá fyrirsjáanlega
mundu hafa langvarandi alvarleg áhrif á
belgíska knattspyrnu. Væri þetta eink-
um bagalegt, þar sem einungis fjórir
mánuðir væru til úrslitakeppni EM í
Frakklandi, og belgíska liðið hefði fram
til þessa tíma verið talið eitt af sigur-
stranglegri liðum í keppninni."
- Gísli Ágúst Gunnlaugsson - íþrótta-
fréttamaður Tímans í V-Þýskalandi tók
saman. Helstu heimildir eru þýsku blöð-
in Bild, Express, Bonner Rundschau og
General Anzeiger.