Tíminn - 08.01.1986, Qupperneq 1
FJÁRMÁLARÁÐHERRA hefur sam-
þykkt að sjá um innheimtu félagsgjalda fyrir Kennar-
asamband íslands, en ríkið hætti því um áramótin
eftir að Kennarasambandið gekk úr BSRB.
VERKAMANNASAMBANDIÐ hef
ur mótmælt kröftuglega þeim hækkunum á ýmsum
greinum opinberrar þjónustu og óbeinum sköttum,
sem dunið hafa yfir síðustu daga. VMSÍ bendir á að
allar slíkar hækkanir lendi af mestum þunga á þeim
sem úr minnstu hafa að spila og telur það undarlega
stefnu ríkisvaldsins að standa að þvílíkum ráðstöfun-
um á þeim tíma sem samningar launþegasamtaka
séu lausir.
MIÐSTJÓRNARFUNDUR ASl'
mótmælir margvíslegum hækkunum á verði opin-
berrar þjónustu og telur þær lýsa ótrúlegum skiln-
ingsskorti á erfiðum aðstæðum almennings.
NORÐMENN munu veiða um 25 þúsund
tonn af loðnu hér við land á þessari vertíð. Þetta þýðir
að 75 þúsund tonn til viðþótar 400 þúsund tonna við-
bótarkvótanum skiptist milli íslenskra loðnuskipa á
þessari vertíð. Heildarkvóti íslendinga á þessari ver-
tíð er þá 983 þús. tonn og þar af er þúið að veiða rúm-
lega 650 þús. tonn.
SIGURÐUR HÖRÐUR SIG-
URÐSSON hét maðurinn sem lést í umferö-
arslysinu í Mosfellssveit, lausteftirmiðnættiásunnu-
dag. Hann var fæddur 8. júní 1945, og var til heimilis
að Seljavegi 11 í Reykjavík.
MIKIL REIÐI er nú meðal félaga í Sambandi
íslenskra námsmanna erlendis - SÍNE - vegna ný-
settrar reglugerðar menntamálaráðherra þar sem
kveðið er á um sömu krónutölu námslána á vormiss-
eri og var í haust. SÍNE - félagar héldu um 100
manna fund í fyrrakvöld og þar ákváðu þeir að fylkja
liði í Félagsstofnun stúdenta kl. 14 í dag og fara niður
í menntamálaráðuneyti þar sem hafin verður mót-
mælaseta til að mótmæla árás menntamálaráðherra
á jafnrétti til náms.
ÓEIRÐASVEITIN sem Reykjavíkurlög-
regla sendi í Hafnarfjörð á þrettándanum, þurfti lítið
að hafa sig í frammi. Að sögn lögreglunnar í Hafnar-
firði var lítið um læti í unglingum. Þó voru brotnar
nokkrar rúður, eftir að unglingadansleik lauk í firðin-
um.
IRSKIR lýðveldissinnar, sem voru í hungurverk-
falli í fangelsi í Norður-írlandi, tóku til matar síns aftur
í gær eftir að þeir fengu tryggingu fyrir að mál þeirra
yrði tekið upp aftur. Þeir voru dæmdir fyrir morð og
fleiri glæpi vegna framburðar eins vitnis sem ýmsir
telja vafasamt. Margir óttuðust óeirðir og
hryðjuverkaöldu á N-írlandi ef fangarnir hefðu látist
vegna hungurverkfallsins.
„Krítardrykkja"
stríðir gegn lögum
- segir prófessor Sigurður Líndal
■ Pað kann að skipta veit-
ingahús og bari miklu máli,
hvort krítarkortin eru skil-
greind sem staðgreiðsla eða
lánaviðskipti, því einsog Tím-
inn hefur greint frá, þá er ólög-
legt að selja áfengi nema gegn
staðgreiðslu.
Jón Helgason, dómsmála-
ráðherra, sagðist ekki hafa
kynnt sér þetta mál, þegar
Tíminn spurði hann hvort hann
hygðist grípa til einhverra ráð-
stafana vegna þessa. Sagði
hann nauðsynlegt að fá úr því
skorið hvort krítarkortin teld-
ust staðgreiðsla eða ekki.
Sigurður Líndal, prófessor í
lagadeild Háskólans, sagði það
sína skoðun, að hér væri ekki
um staðgreiðsluviðskipti að
ræða, heldur fengi kortahafinn
lán í allt að 45 daga. Þetta væri
svipað og að vera í mán-
aðarreikningi, og því gæti hann
ekki séð annað en að þetta væri
ólöglegt.
Á það ber hinsvegar að líta,
að með tilkomu krítarkortanna
sköpuðust nýjar aðstæður, sem
lögin taka ekki til. Það sé nú
svo að mannlífið sprengi utan
af sér lagarammann. Þá þurfi
að líta á hvaða tilgangi þessi lög
þjóni og í þessu tilfelli sé það
auðséð að tilgangurinn sé tví-
þættur, í annan stað að gæta
hagsmuna áfengisverslunar-
innar og á hinn bóginn að koma
í veg fyrir að fólk sé að drckka
út á krít. Það er svo matsatriði
hvort breyta skuli lögunum í
santræmi við þá venju sem hef-
ur skapast, eða taka fyrir þessi
viðskipti.
Einsog sjá má í annarri frétt
hér á stðunni, virðist ÁTVR
einnig hafa gerst brotleg við
áfengislöggjöfina, með því að
taka við víxlum frá veitinga-
húsum fyrir áfengisúttekt.
Sagði Sigurður Líndal aðþarna
væri um að ræða brot við bók-
■ íslenska hveravatnið
ku vera allra meina bót
Mynd-Árni Bjarna
stafinn, en hann gæti ímyndað
sér að þarna væri komin fram-
kvæmdavenja og þar scm hags-
munir ÁTVR væru tryggðir og
þetta orsakaði ekki krítar-
drykkju, þætti honum eölileg-
ast að bæta við undanþágu fyrir
þessi viðskipti í áfengislöggjöf-
ina.
Götótt áfengislöggjöf:
- vínveitingahús taka út í reikning
■ Hafa áfengisútsölur ríkis-
ins gerst brotlegar við áfengis-
löggjöfina svo áratugum
skiptir? Sú spurning vaknar
þegar litið er til þeirra
viðskiptahátta sem hafðir eru í
frammi, þegar vínveitingahús
kaupa áfengi í útsölunum.
Þrettánda grein áfengislag-
anna kveður skýrt á um að
bannað sé að selja áfengi.
nema gegn staðgreiðslu.
Vínveitingahúsin geta tekið
áfengisbirgðir út í reikning hjá
Áfengisversluninni, og eru
greiðslur af úttektum mánaðar-
lega. Fyrsta mánuð hvers árs
geta vínveitingahúsin tekið út
lager, svo framarlega sem þau
eru skuldlaus um áramót. Fast-
eignaveðs er krafist við slíkar
úttektir, þar sem um miklar
fjárhæðir er að ræða.
Tíminn bar þá spurningu
undir Ragnar Jónsson settan
forstjóra ÁTVR, hvort ckki
væri um brot á áfengislöggjöf-
inni að ræða. Hann svaraði því
til að fjármálaráöuneytið hefði
litið þannig á málin að það væri
hagræðing fólgin í þessunt við-
skiptamáta, þar sem annars
væri stöðugt verið að senda
hinum ýmsu húsum áfengis-
birgðir. „Það hefur verið litið
fram hjá þessu, þar sent þetta
er talinn vera okkar lager, sem
er á vínveitingahúsunum,"
sagði Ragnar.
Höskuldur Jónsson ráðu-
neytisstjóri í fjármálaráðu-
neytinu, og verðandi forstjóri
ÁTVR sagðist ekki vilja tjá sig
um hvort viðskiptamátinn væri
ólöglegur, en sagðist jafnframt
kannast við að vínvcitingahús-
in tækju út í reikning, og legðu
fram tryggingu fyrir úttektinni.