Tíminn - 08.01.1986, Side 2

Tíminn - 08.01.1986, Side 2
2 Tíminn Miðvikudagur 8. janúar 1986 AUGLYSING um aðalskoðun bifreiða, bifhjóla og léttra bifhjóla í Hafnar- firði, Garðakaupstað og í Bessastaðahreppi 1986. Skoðun fer fram sem hér segir: Mánud. 13. jan. G 1 til G 300 Þriðjud. 14. jan. G 301 til G 600 Miðvikud. 15.jan. G 601 til G 900 Fimmtud. 16.jan. G 901 til G 1200 Föstud. 17. jan. G 1201 til G 1500 Mánud. 20.jan. G 1501 til G 1800 Þriðjud. 21.jan. G 1801 til G 2100 Miðvikud. 22,jan. G 2101 tll G 2400 Fimmtud. 23. jan. G 2401 til G 2700 Föstud. 24. jan. G 2701 til G 3000 Mánud. 27.jan. G 3001 til G 3300 Þriðjud. 28. jan. G 3301 til G 3600 Miðvikud. 29. jan. G 3601 til G 3900 Fimmtud. 30. jan. G 3901 til G 4200 Föstud. 31. jan. G 4201 til G 4500 Mánud. 3. febr. G 4501 til G 4800 Þriðjud. 4. febr. G 4801 til G 5100 Miðvikud. ö.febr. G 5101 til G 5400 Fimmtud. 6. febr. G 5401 til G 5700 Föstud. 7. febr. G 5701 til G 6000 Mánud. 10. febr. G 6001 tll G 6300 Þriðjud. 11. febr. G 6301 tll G 6600 Miðvikud. 12.febr. G 6601 tll G 6900 Fimmtud. 13.febr. G 6901 til G 7200 Föstud. 14. febr. G 7201 til G 7500 Mánud. 17.febr. G 7501 til G 7800 Þriðjud. 18.febr. G 7801 til G 8100 Miðvikud. 19. febr. G 8101 tll G 8400 Fimmtud. 20. febr. G 8401 til G 8700 Föstud. 21.febr. G 8701 til G 9000 Mánud. 24. febr. G 9001 til G 9300 Þriðjud. 25. febr. G 9301 tll G 9600 Miðvikud. 26. febr. G 9601 til G 9900 Fimmtud. 27. febr. G 9901 til G 10200 Föstud. 28. febr. G 10201 tll G 10500 Mánud. 3. mars G 10501 til G 10800 Þriðjud. 4.mars G 10801 til G 11400 Miðvikud. 5. mars G 11101 til G 11400 Fimmtud. 6. mars G 11401 til G 11700 Föstud. 7. mars G 11701 tll G 12000 Mánud. 10. mars G 12001 til G 12300 Þriðjud. 11. mars G 12301 til G 12600 Mlövikud. 12. mars G 12601 til G 12900 Fimmtud. 13. mars G 12901 tll G 13200 Föstud. 14. mars G 13201 til G 13500 Mánud. 17. mars G 13501 tll G 13800 Þriðjud. 18. mars G 13801 til G 14100 Miðvikud. 19. mars G 14101 til G 14400 Fimmtud. 20. mars G 14401 til G 14700 Föstud. 21. mars G 14701 til G 15000 Mánud. 24. mars G 15001 til G 15300 Þriðjud. 25. mars G 15301 til G 15600 Miðvikud. 26. mars G 15601 til G 15900 Þriðjud. l.apr. G 15901 tll G 16200 Miðvikud. 2. apr. G 16201 til G 16500 Fimmtud. 3.apr. G 16501 til G 16800 Föstud. 4. apr. G 16801 til G 17100 Mánud. 7. apr. G 17101 til G 17400 Þriðjud. 8. apr. G 17401 til G 17700 Miðvikud. 9.apr. G 17701 tll G 18000 Fimmtud. 10.apr. G 18001 til G 18300 Föstud. 11. apr. G 18301 til G 18600 Mánud. 14. apr. G 18601 til G 18900 Þriðjud. 15. apr. G 18901 tll G 19200 Miðvikud. 16. apr. G 19201 til G 19500 Fimmtud. 17.apr. G 19501 tll G 19800 Föstud. 18. apr. G 19801 til G 20100 Mánud. 21.apr. G 20101 til G 20400 Þriðjud. 22. apr. G 20401 til G 20700 Miðvikud. 23.apr. G 20701 til G 21000 Föstud. 25. apr. G 21001 til G 21300 Mánud. 28. apr. G 21301 til G 21600 Þriðjud. 29.apr. G 21601 til G 21900 Miðvikud. 30. apr. G 21901 til G 22200 Föstud. 2.maí G 22201 til G 22500 Mánud. 5. maí G 22501 til G 22800 Þriðjud. 6. maí G 22801 tll G 23100 Miðvikud. 7. maí G 23101 til G 23400 Fimmtud. 8. maí G 23401 og yfir. Skoðað verður við Helluhraun 4, Hafnarfirði frá kl. 8.15-12.00 og kl. 13.00-16.00 alla framantalda daga. Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi skulu fylgja bifreiðum til skoðunar. Við skoðun skulu ökumenn leggja fram fullgild öku- skírteini. Sýna ber skilríki fyrir því, að bifreiðagjöld séu greidd, að vátrygging fyrir hverja bifreið sé í gildi og að bifreiðin hafi ver- ið Ijósastillt eftir 1. ágúst s.l. Athygli skal vakin á því að skráning- arnúmer skulu vera læsileg. Vanræki einhver að koma ökutæki sínu til skoðunar á aug- lýstum tíma, verður hann iátinn sæta sektum samkvæmt umferðarlögum og ökutækið tekið úr umferð hvar sem til þess næst. Einkabifreiðar sem skráðar hafa verið nýjar á árinu 1984 og síð- ar eru ekki skoðunarskyldar að þessu sinni. Þetta tilkynnist öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði og í Garðakaupstað. Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu. 3. janúar 1986 Einar Ingimundarson. Nýi Verslunarskólinn: Skólastofur nefndar eftir fyrirtækjum - sem borguðu hálfa milljón fyrir ■ Ljósmyndarinn kom að lokuðum dyrum á Hafskipsstofunni í Verslun- arskólanum. Tíinainynd Árni Bjarna ■ Kennslustofurnar í nýja Versl- unarskólanum við Ofanleiti bera heiti íslenskra fyrirtækja, sem hvert um sig hefur lagt hálfa milljón í að fá stofuna nefnda eftir sér. auk þess sem þær eru vandlega merktar fyrir- tækjunum. Þannig heitir ein stofan Hafskip og önnur Þýsk-íslenska, Verslunarbankinn, Flugleiðir, Eim- skip o.s.frv. Þorvarður Elíasson, skólastjóri Verslunarskólans, sagði við Tímann, að það væri rúmt ár síðan að gengið var frá þessum viðskipt- um, en enn væru þó nokkrar stoi'ur nafnlausar og stæðu þær fyrirtækjum til boða. Taldi Þorvarður þetta mjög góða auglýsingu fyrir fyrirtækin. Sagði hann að nemendur tækju upp vinsamlegri afstöðu ti! þeirra fyrir- tækja, sem hafa hjálpað til við bygg- ingu hússins. Hvað Hafskip varðaði þá taldi Þorvarður ekkert að því þó stofan bæri nafn fyrirtækisins, þó það hefði verið lýst gjaldþrota og væri því ekki lengur til. Taldi hann það ágæta áminningu til nentcnda um að lífið væri fallvalt og að það skiptust á skin og skúrir í viðskiptum. Kennarar og nemendur marser- uðu neðan úr Þingholtum upp í Ofanleiti á mánudaginn. Fyrsta skóflustuga við nýja skólann var tek- in 29. apríl 1983 og byrjaö var að steypa upp í mars ’84. Kostaði skól- inn 142 milljónir og fyrir utan fram- lög fyrirtækjanna er hann fjármagn- aður af Verslunarskólanum. Eignir Verslunarskólans í Þing- holtum, þrjú hús og tvær auðar lóðir er til sölu og kostar45 milljónir. Brottrekstur framkvæmdastjóra LÍN: Ákvörðun á ábyrgð menntamálaráðherra jafnvel fyrir dómstólum segir forsætisráðherra ■ Sú yfirlýsing Steingríms Her- mannssonar forsætisráðherra í fjöl- miðlum að Sverrir Hermannsson menntamálaráðherra hafi brotið lög er hann leysti fyrrverandi fram- kvæmdastjóra Lánasjóðs íslenskra námsmanna frá störfum hefur vakið mikla athygli. Ennfremur hafa vakn- að spurningar um lagalegan rétt ráð- herra til að bjóða þeim opinberum starfsmönnum sem gera á brottræka tilboð um greiðslu launa umfrarn það sem uppsagnarfrestur gerir ráð fyrir. „Það er staðreynd að lög um rétt- indi og skyldur opinberra starfs- manna kveða á um að veita skuli á- ntinningu þeim sem hefur gerst brot- legur í starl'i og viðkomandi gefið tækifæri til að leiðrétta það sem hef- ur verið vanrækt. Ef slíkri áminn- ingu er ekki tekið þá má grípa til uppsagnar. Þetta gildir unt opinbera starfsmenn og það getur náttúrlega hver og einn metið það eftir þessu hvort að þarna hefur verið farið rétt að,“ sagði Steingrímur Hermanns- son í samtali við Tímann í gær. Forsætisráðherra benti á að hver einstakur ráðherra væri í stjórnkerf- inu ábyrgur fyrir sínum málum. Mál framkvæmdastjóra LÍN hefði verið rætt í ríkisstjórninni og þar hefðu menn skýrt sín sjónarntið. Mennta- málaráðherra hefði tckið um- rædda ákvörðun á eigin ábyrgð og yrði að axla hana, hugsanlega fyrir dómstólum ef ákveðið yrði að fara þá leið. „Þess eru dæmi að opinberum starfsmönnum sem leysa átti frá starfi hafi verið boðin árslaun. Til dæmis var fyrrverandi fjármálaráð- herra ekki sáttur við ákveðna starfs- menn og samdi við þá unt slfkt. Að sjálfsögðu geta viðkomandi starfs- menn tekið slíku boði,“ sagði Stein- gríntur. „Ég tel að forsætisráðherra hafi verulega hlaupið á sig með þessari yfirlýsingu sinni. Þetta er mjög ó- tímabær, óviturleg og óskynsamleg yfirlýsing af hans hálfu,” sagði Auð- unn Svavar Sigurðsson varaformað- ur stjórnar LÍN er blaðamaður hafði samband við hann vegna fyrrnefndrar umfjöllunar fjölmiðla. Auðunn lagði áherslu á að þetta væri sín skoðun en ekki álit stjórnarinnar. í framhaldi af því benti hann á að ráðningarmál framkvæmdastjóra sjóðsins væru al- gerlega í höndum menntamálaráð- herra. „Stjórnin hefur lýst yfir fullum samstarfsvilja sínum við starfsmenn ■ Flugumferðarstjórar á Reykja- víkurflugvelli undirbúa nú aðgerðir á næstu dögum sem hafa munu í för með sér verulega röskun á innan- landsfluginu vegna deilna um skipu- lagsmál. Sex nugumferðarstjórum var í fyrradag sent símskeyti þar sent þeim var skipað samkvæmt lögum að vinna aukavakt vegna veikindafor- falla, en flugumferðarstjórar telja sig þegar vinna of ntikla yfirvinnu auk þess sem þeir eru tregir til að taka aukavaktir vegna nýs skipulags á flugstjórnarmiðstöðinni sem tók gildi um áramótin. Þrír flugumferðarstjórar boðuðu veikindaforföll á mánudag og þá var sex flugumferðarstjórum sent sím- skeyti þar sem þeir voru kvaddir til starfa en aðeins einn sinnti því. Að sögn Kára Guðbjörnssonar fulltrúa og framkvæmdastjóra og vill með sem bestum hætti koma á eðlilegu ástandi. í öðru lagi þá höfum við túlkað þá skoðun okkar um dreifða ábyrgð stjórnar og framkvæmda- stjóra að hann heyri beint undir ráð- herra og fari með fjárreiður sjóðsins í umboði ráðherra og stjórnar. I þriðja lagi trúum við stjórnarmenn því ekki að starfsmenn ætli að stefna námsferli þúsunda stúdenta bæði hérlendis og aðallega erlendis í voða með því að sinna ekki þeim störfum sem er knýjandi nauðsyn á að vinna þegar í dag,“ sagði Auðunn. flugumferðarstjóra var þarna ekki um skipulagðar aðgerðir að ræða heldur teldu flugumferðarstjórar sig vinna meira en nóga aukavinnu. A síðustu árum hefur flugumferðar- stjórum fækkað um 14 í flugstjórnar- miðstöðinni nteðan flugumferð hef- ur aukist unt 25% og á síðasta ári unnu 35 flugumferðarstjórar að meðaltali tvo mánuði í aukavöktum. Kári sagði einnig að nýtt skipulag flugmálastjóra á flugstjórnarmið- stöðinni kynti undir óánægju flug- umferðarstjóra en samkvæmt því séu yfirflugumferðarstjóri og tveir varðstjórar sviptir stöðum sínum og í staðinn skipaðir tveir varðstjórar úr hópi flugumferðarstjóra. Auk þess standi til að fækka mönnum á nætur- vöktum. Flugumferðarstjórar á Reykja- víkurflugvelli: Undirbúa aðgerðir

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.