Tíminn - 18.01.1986, Page 5
Tíminn 5
Laugardagur 18. janúar 1986
UTLÖND
flll
llllllllll
illlllllllllllllllllllllll
Vestur-Þýskaland:
UKNARMORD
MJOG ALGENG
Hamborg-Rcutcr.
Samkvæml nýlegri könnun, sem
þýska vikuritið Neue Revue birti nú í
vikunni, hafa um 40% lækna í Vest-
ur-Þýskalandi framið líknarmorð á
sjúklingum sem engin von var um að
næðu bata.
Samkvæmt könnuninni, sent náði
til tvö hundruð lækna, hafa fjörir af
liverjum tíu læknunr stytt ólæknandi
sjúklingum aldur þótt þeir hafi vitað
að slíkt stríðir gegn lögum Vestur-
Þýskalands.
Neue Revue segir að rúmlega 75%
aðspurðra hafi lýst því yfir að þeir
myndu frekar leyfa sársjúkum sjúk-
lingum, sem þjáðst á banalegunni.
að deyja hægt og rólega fremur en að
kvelja þá með sársaukafullum að-
gerðum sem gætu hugsanlega lengt
líf þeirra örlítið.
Miklar umræður eru nú um líkn-
armorð í Vestur-Þýskalandi eftir að
þekktur skurðlæknir. Julius Hacket-
al. viðurkenndi að hafa stytt þjáning-
Washington-Rcutcr.
Nú á mánudaginn verður bandaríska
Blessuð
gæludýr
Madrid-Rcutcr.
Mörg þúsund hávaðasöm og hálf-
óð gæludýr og húsdýr biðu í gær
tímunum saman fyrir utan kirkju
heilags Antons í Madrid eftir því að
faðir Santos Familiar veitti þeim
blessun sína.
Faðir Santons, sem er 79 ára
gamall, hefur blessað dýr á degi
heilags Antons frá því árið 1931.
Margir ferðast langar leiðir til að láta
hann blessa dýrin og þeir, sem ekki
geta komið með dýrin með scr. láta
hann blessa myndir af þcim. Hann
segist stundum hafa blessað stórar
hjarðir af búpeningi.
Heljarmikið svín, sem vó rúm-
lega hálft tonn, olli miklum glund-
roða í miðborg Madrid í gær þegar
það slapp frá eiganda sínum sem var
að fara með það til föður Santosar til
að fá blessun hans.
Heilagur Anton Abad var egypsk-
ur einsetumaður sem þekktur var
fyrir ást sína á dýrum og hafa Spán-
verjaröldum saman látið blessa dýr á
degi hans.
blökkumannaleiðtogans Martins
Luthers King, sem var myrtur 1968,
minnst í fyrsta skipti í Bandaríkjun-
um með almennunr frídegi.
Forystumenn blökkumanna hafa
lengi barist fyrir því að fæðingardag-
ur Martins Luthers King verði al-
mennur frídagur í Bandaríkjunum.
Nú fyrr í þessum mánuði féllst
Bandaríkjaþing loksins á að gera
þriðja mánudag í janúar að almenn-
um frídegi til að minnast þessa mikla
mannréttindaleiðtoga sem átti af-
mæli 15. janúar.
Bandaríski söngvarinn, Stevie
Wonder, sem hefur verið í farar-
broddi þeirra sem vildu gera fæð-
ingardag Martins Luthers King að
.frídegi, verður stjórnandi mikilla
hátíðartónleika á mánudag sem
vcrða haldnir samtímis í Washing-
ton, New York og Atlanta með að-
stoð gervihnattar.
King var helsti forystumaður rétt-
indabaráttu blökkumanna á sjötta
og sjöunda áratugnum. Hann var í
fararbroddi margra kröfugangna
blökkumanna á þessum árum og árið
1963 streymdu 250.000 nrenn til
Washington til að hlusta á sögulega
ræðu sem hann hélt við niinnismerki
Lincolns forseta og hófst á orðunum:
,.Ég á mér draum".
Martin Luther King hefði orðið
57 ára í ái ef hann hefði ekki verið
myrtur af ofstækisfullum kynþátta-
hatara í Memphis í Tennessee í
Bandaríkjunum.
ar gamallar konu, sem þjáðist af
krabbameini, með því að gefa henni
blásýru aö hcnnar eigin ósk. Hann
hefur nú verið ákærður fyrir morð.
Martin Luther King með stuðningsmönnum sínum skömmu áður en hann
var myrtur.
Dagur Martins
Luthers King
Breskirflug-
vellirtil sölu
London-Reuter.
Breska íhaldsstjórnin opinber-
aði á fimmtudag áætlun um að selja
einkaaðilum marga af stærstu flug-
völlum Bretlands á næsta ári.
í stjórnarfrumvarpi, sem lagt var
fyrir breska þingið í fyrradag, er
gert ráð fyrir að sjö flugvellir verði
seldir, þar á meðal Heathrowflug-
völlur, sem er fjölfarnasti flugvöll-
ur heims. Áætlað söluverð tlugvall-
anna er sagt vera um 500 milljón
pund (rúm. 30 milljarðar ísl. kr.).
Gert er ráð fyrir að hver flugvöll-
ur verði rekinn af sérstöku fyrir-
tæki. Frumvarp stjórnarinnar, sem
er liður í afþjóðnýtingu breskra
íhaldsmanna, opnar líka mögu-
leika á sölu sextán flugvalla sem
eru í eigu svæðisstjórna í Englandi
og Wales. Flugvellirnir í Birming-
ham, Liverpool og Manchester
verða líklega meðal þeirra.
Flutningamálaráðuneyti Bret-
lands segir líklegt að hægt vcrði að
ganga frá sölu flugvallanna strax á
næsta ári.
FINNSKAR STRÍÐSÆFINGAR
Riihimaki-Rcutcr.
Finnski herinn hóf í gær stærstu
vetraræfingar sínar frá því að heim-
styrjöldinni síðari lauk.
Talsmaður hersins. Matti Jarvinen
kapteinn, segir að um 12.000 her-
menn taki þátt í æfingunum sem
ganga undir nafninu „Eik 86" og
standa í sex daga.
Æfingarnar fara fram skammt fyr-
ir norðan Helsinki þar er nú um 25
stiga frost.
Finnski herinn er takmarkaður við
34.400 hermenn samkvæmt friðar-
samningi sem Finnar gerðu við So-
vétmenn eftir að hafa tapað tvisvar
sinnum fyrir þeim á tímabilinu 1939
til 1944. En varaiið hersins er um
700.000 sem hernaðarsérfræöingar
segja að sé mikið fyrir 4,9 milljón
manna þjóð.
ERU KOMNIR
~r^
Stórkostlegur myndaflokkur á 2 spólum
þar sem hörmungar Þýskalands
seinni heimsstyijaldarinnar krystallast í áhrifaríkri
frásögn af átökum tveggja bræðra, ást þeirra
á sömu konunni og baráttu þeirra
innan SS morðsveita Hitlers.
m
MYMD6AMDAL0GA - MYBYIAVEGI26 K0PAV0GI - SIMI45328