Tíminn - 18.01.1986, Blaðsíða 9
Laugardagur 18. janúar 1986
Tíminn 11
llllllllllllllllllllllllll FISKIRÆKT II^IHHH^i^l: ................... ....................................... "Illllllll|:ii: !ni|!|l||||||i|||jj ''i'|!|!|||||||li||, '■!l|l|l||||||!|;|,, ~ !1I|I||||||;|| -l'llllllllllililll.i; 'Tl'llllllllll'r •|;llllllllllil:l 'Tllllllllllll:! 'llir
Einar Hannesson:
FISKELDI OG
FISKSJÚKDÓMAR
Úr cldishúsi fiskeldisstöðvar.
í grein þessari er fjallað almennt
um fisksjúkdóma hér á landi enda
skrifari þessara orða ekki sérfróður á
þessu sviði. Rakin verður gangur
mála í sambandi við fisksjúkdóma,
sérstaklega í tengslum við fiskeldi.
Þá verður staðan í þessum málum
skoðuð. eins og hún er í dag. Að lok-
um verður reynt að glöggva sig á því
hverjar séu framtíðarhorfur í þess-
um efnum.
Hin neikvæða umræða
Það sem ýmsum lesendum dettur
sjálfsagt fyrst í hug þegar vikið er að
fisksjúkdómum hér á landi, er sú
neikvæða umræða, blaðaskrif og
fleira, sem á sínum tíma fór fram hér á
landi. Þar komu ýmsir við sögu, sem
að dómi undirritaðs, ollu fiskeldis-
málum ómældu tjóni og tafði það
fyrir nauðsynlegum umbótum, m.a.
í fisksjúkdómamálum.
Ýmsir kvillar
Eitt af því, sem fylgir fiskeldi á laxi
og silungi eins og skuggi þess, eru
fisksjúkdómar. í þcssu sambandi er
þó rétt að minna á, að mikill munur
er á hver sjúkdómurinn er. Mestur
hluti þeirra eru ýmiskonar kvil'.ar og
því viðráðanlegir. Þeim er unnt að
halda niðri, t.d. með þrifnaði, hóf-
legri ásetningu seiða í eldisker og
sótthreinsun. Þá er lyfjagjöf stund-
um beitt.
Sjúkdómar sem
valda þungum búsifjum
Hins vegar eru til aðrir alvarlegri
fisksjúkdómar, illkynjaðir, sem
valda þungum búsifjum í fiskeldi-
stöðvum. Gagnvart þeim getur þurft
að beita róttækum aðgerðum. Tíma-
bundin einangrun er sett á gagnvart
stöð þar sem fiskur er sjúkur. Loka-
aðgerð er stundum fólgin í því að öll-
um fiski er slátrað í stöðinni. Að því
loknu er hún sótthreinsuð rækilega
hátt og lágt, áður en starfsemi getur
hafist þar á ný.
Þá er ógetið um einn þátt sem
veldur fiskeldi tjóni, en það er meng-
un eða eitrun. Þessi mengun getur
verið í stöðinni sjálfri, ef þrifnaði er
áfátt, eða hún berst í vatni, sem stöð-
in notar.
Sjúkdómavarnir erlendis
Öflugar sjúkdómavarnir eru víða
erlendis. Nágrannaþjóðirokkarhafa
lög og reglur sem heimila aðgerðir til
að koma í veg fyrir, að sjúkdómar
berist landa á milli. Almennt er
krafist, þegar um innflutning er að
ræða, vottorða um heilbrigði lifandi
hrogna eða fisks. Þá er í sumum til-
vikum beitt algjöru innflutnings-
banni. Yfirleitt eru nú komnar
strangar reglur um þessa hluti, enda
mikið í húfi, ef illa tekst til.
íslensk lög
um fisksjúkdómamál
Ákvæði í sambandi við varnir
gegn fisksjúkdómum í laxfiskum hér
á landi, komu fyrst inn í lög um lax-
og silungsveiði árið 1957. Voru þau
fyrst og fremst sett vegna sýkingar-
hættu sem gæti verið samfara inn-
flutningi hrogna og lifandi fisks. Þar
var að finna bann við innflutningi
nema ráðherra leyfði slíkt. Yrði um
innflutning að ræða var gert ráð fyrir
að sótthreinsun á hrognum færi fram
og jafnframt yrðu fyrirmæli sett um
meðferð fisks, sem fluttur yrði milli
landa með viðkomu hér á landi. Þá
var ákveðið, að heimila afskipti af
fiski í eldisstöðvum og veiðivötnum;
með sótthreinsun og aðrar nauðsyn-
legar aðgerðir, ef hætta væri talin á
sýkingu, til að hefta útbreiðslu fisk-
sjúkdóms.
Við endurskoðun fyrrgreindra
laga, voru samþykktar viðbætur
varðandi fisksjúkdómamál, er gildi
tóku 1970. Nú kom til sögunnar Fisk-
sjúkdómanefnd sem skyldi vera ráð-
herra til aðstoðar í þessum efnum.
Formaður hennar er yfirdýralæknir,
en auk hans eru í nefndinni forstöðu-
maður Tilraunastöðvar Háskólans í
meinafræðum að Keldum og veiði-
málastjóri. Þá er gert ráð fyrir í lög-
gjöfinni frá 1970, að sérfræðingur í
fisksjúkdómum komi til starfa að
Keldum, er síðar varð, sem kunnugt
er.
Fisksjúkdómar
hérálandi
Saga fisksjúkdóma hér hófst löngu
áður en lög um lax- og silungsveiði
komu með fyrrgreind ákvæði varð-
andi fisksjúkdómavarnir. Með starf-
semi klakhúsa sem reist voru, fyrst
fyrir silung en síðar lax, má segja að
fisksjúkdómar í reynd hafi komið
fram í dagsljósið hér á Iandi. Þá urðu
klakmenn fyrst varir við að sveppir
kæmu á hrogn ög dræpu þau. Síðar
urðu menn varir við að kviðpokaseiði
drápust, en gerðu sér sjálfsagt ekki
grein fyrir orsökum þess, þó stund-
um hafi mátt geta sér þess til að
sveppur hafi verið þar að verki. Það
er eiginlega fyrst eftir að farið er að
vinna skipulega að fiskeldi hér á
landi, að menn fara að gefa nánari
gaum að fisksjúkdómum ogvörnum
gegn þeim, eins og fram greinir.
í greinargerð um laxeldisstöð að
Keldum, sem starfrækt var þar á
árum áður, og birtist í Árbók félags
áhugamanna um fiskrækt 1968, gerir
dr. Snorri Hallgrímsson einn eig-
enda stöðvarinnar grein fyrir starf-
seminni. Þar er m.a. vikið að fisk-
sjúkdómum og nefndir þeir sjúkdóm-
ar, sem helst hafi gert vart við sig í
stöðinni og sem greindir hafi verið.
Þetta voru augnveiki, blinda, tálkn-
veiki, uggaveiki, garnaveiki og auk
þess B-vítamínskortur. Mun þessi
grein dr. Snorra vera fyrsta faglega
úttektin, sem birt er um sjúkdóma í
eldisstöð hér á landi.
Nýrnaveiki verðurvart
Fyrst varð vart við alvarlegan
bakteríusjúkdóm, nýmaveiki, í
laxaseiðum í klak- og eldisstöðinni
við Elliðaár 1968. Það leiddi til þess
að öllum seiðum í stöðinni var
fargað. Þetta var í fyrsta skipti að
þessi hættulegi sjúkdómur var
greindur í laxi hér á landi. En hér var
ekki öll sagan sögð, því miður.
Árið 1976 kom nýrnaveikin á ný
fram ognú í fiski í Laxalóni. Var það
söguleg uppákoma, því að frcgnir af
veikinni bárust mönnum hér fyrst frá
Noregi, en þangað höfðu verið send
sjúk laxaseiði frá Laxalóni til rann-
sóknar.
í hið þriðja skipti, sem nýrnaveik-
innar varð vart hér á landi, er það
Laxeldisstöðin í Kollafirði, sem
verður fyrir barðinu á þessum alvar-
lega sjúkdómi árið 1984. Uppákoma
þessi bar þannig að, að veikin kom
fram í laxaseiðum hjá fiskeldisstöð í
Höfnum á Reykjanesi, sem hafði
fengið seiði í Kollafjarðarstöðinni.
Kom þetta ráðamönnum Laxeldis-
stöðvarinnar í Kollafirði rnjög á
óvart því að engra einkenna veikinn-
ar hafði orðið vart í stöðinni og
dauðsföll þar á engan hátt óeðlileg. í
framhaldi af þessum athugunum
fundust sjúk seiði hjá Fiskeldi h.f. í
Grindavík, en sú stöð hafði einnig
fengið laxaseiðin í Kollafirði.
Afbrigði af kýlaveiki
Næst verður vikið að sjúkdóm í
fiski, sem nefndurerafbrigði af kýla-
veiki. Þessi sjúkdómur hefur kornið
upp í þremur 'eldisstöðvum. Fyrst
varð hennar vart hjá fiskeldisstöð-
inni Eldi í Grindavík, auk þess varð
hans vart hjá Pólarlaxi í Straumsvík
og hann er einnig hjá ísnó h.f.,
Kelduhverfi, en þarhefur veikin ver-
ið allt frá árinu 1982.
Staðafisk-
sjúkdómamála 1986
Eins og áður hefur verið greint frá,
kom á sínum tíma til starfa fisksjúk-
dómafræðingur. Auk þess kom dýra-
læknir, sérfræðingur í fisksjúkdóm-
um til viðbótar í þessi störf á s.l. ári.
Þá er nýlega tekinn til starfa þriðji
fisksjúkdómafræðingurinn. Hafaall-
ir þcssir starfsmenn aösetur að
Keldum.
Má því telja, að hagur þessara
mála hafi vænkast til muna, þó að
flestum sé ljóst, sem þekkja til að-
stæðna, að þörfin fyrir meiri mann-
afla í þessi störf sé brýn. Hafa ber í
huga, að gífurleg fjölgun eldisstöðva
hefur átt sér stað seinustu misseri og
stórir hagsmunir eru í húfi, að vel
takist til með reksturinn. Enda er
það svo, að sérstök opinber nefnd,
sem fjallað hefur um fiskeldismál hér
á landi, hefur lagt til að þessar sjúk-
dómavarnir verði enn efldar.
Ljóst er, að við höfum þegar feng-
ið ýmsa fisksjúkdóma, eins og fyrr-
greind upptalning ber með sér. Hins
vegar virðist svo sem að við séutn
lausir við marga mjög hættulega
sjúkdóma, sem hafa valdið miklum
usla erlendis. Má þar nefna ýmsa
veirusjúkdóma. Þá má minna á hina
skæðu kýlapest, sem norðmenn hafa
orðið fyrir barðinu á um þessar
mundir og er stefnt að því að eyða
fiski í 28 norskum fiskeldisstöðvum
með vorinu. Hér erþví ekki um neitt
smámál að ræða. Sjúkdómurinn
barst með gönguseiöum, sem llutt
voru til Noregs frá Skotlandi.
Það er því meginverkefni okkar í
þessum efnum, að koma í veg fyrir að
fisksjúkdómar breiðist út hér á landi
og hindra, að nýir berist til landsins.
Jafnframt því, sem að þjónusta fyrir
hinar einstöku eldisstöðvar þarf að
vera til reiðu í þessu efni.
Framtíðfiskeldis
ogfisksjúkdómar
Af því, sem tíundað hefur verið
um fisksjúkdóma, ntá augljóst vera,
að björt framtíð fiskcldis hér á landi
grundvallast á því, að það takist að
vcrjast scm best því að fisksjúkdóm-
ar valdi íslensku fiskcldi tjóni.
Niðurstaða
Við Islcndingar höfum verið þaö
lánsamir, að hingað hafa ekki borist
þeir sjúkdómar í fiski, sem hvað
mestum usla valda í fiskeldi. Það er
því meginhlutverk okkar að styrkja
svo varnir gagnvart því að sjúkdóm-
ar þessir og aðrir berist til landsins;
að þeir nái ekki að ncma hér land. Á
hinn bóginn þarf að leggja styrkt net
yfir allt fiskeldi hér á landi, sem
tryggir því heilbrigðisgæslu og fyrir-
byggjandi ráðstafanir til að ekki ber-
ist sjúkdómar milli stöðva og í villtan
fisk í náttúrunni.
Til þess að þetta megi takast, þarf
að stórefla aðstöðu þeirra sem eiga
að sinna þessu verkefni og ekki má
skera við nögl fjárveitingar til þess-
arar bráðnauðsynlegu varnarbaráttu
og þjónustu við eldisstöðvar. Það
mun sýna sig, ef við slöndum vcl að
verki í þessum efnum, að árangur
þessa starfs mun margborga sig þeg-
ar tímar líða. Þeim peningum er því
vel variö, sem í þctta er lagt, enda
greiði eldisstöðvarnar fyrir þá þjón-
ustu sem þær biðja um.
Einar Hannesson
KVIKMYNDIR
Dauðyflisleg mynd
HEFND VÍGAMANNSINS (Revenge-The Ninja)
Bandarísk 1983
Leikstjóri: Sam Firstenberg
Leikendur: Sho Kusugi, Keith Vitali, Virgil Frye.
Sumar myndir eru samofnar orð-
inudauði. Menn fara á þær til þessað
drepa tímann, þær eru uppfullar af
drápum og öllu óbrengluðu fólki
dauðleiðist á að horfa á þær.
Hefnd vígamannsins er ein þeirra.
Hún gengur út á drápsaðferðir
Ninja sem ku hafa verið einhvers-
konar hryðjuverkamenn fornaldar í
Japan. Þeir kunnu óteljandi aðferðir
til þess að aflífa fólk og sýnishorn af
þeim aðferðum má sjá í Regnbogan-
um í þessari dauðyflislegu mynd.
Allt annað en drápin eru auka-
atriði. Myndin er gersneytt spennu,
rökréttum söguþráð, leik ogöllu því
er sanngjarnt er að ætlast af
kvikmynd. Meira að segja bardaga-
atriðin eru illa gerð. Fyrir jafn
„rauða mynd" og þessa hlýtur það að
vera sorglegt að hafa ekki hugsun á
Sho Kusugi undirbýr sig fyrir stefnu-
mót við viðskiptafélaga sinn.
því að láta mönnum blæða þegar þeir
eru skornir á háls eða kviðristir. Því
fólki sem sat með mér í bíó og
horfði á myndina fannst líka ósann-
gjarnt að aðstandendur myndarinn-
ar svindluðu í aðal-bardaganum og
llétu góða gæjann hafa sverðið sitt
aftur sem hann hafði misst fram af
tuttugu hæða húsi.
Talandi um áhorfendur þá eru þeir
oft skemmtilegri afþreying á svona
myndum en hroðinn á tjaldinu. Það
er klappað þegar einhver skúrkurinn
hefur fengið það óþvegið, blístrað
þegar kvenmenn birtast á nærklæð-
um og „do-að“ og „vá-að“ þegar
kappinn sjálfur leikur listir sínar.
Svona myndir eiga sér fastan og
tryggan aðdáendahóp og þessi
mynd ætti ekki að svíkja þá. Undir-
ritaður taldi hina dauðu og stórslös-
uðu og fékk út íöluna 48, sem gerir
einn á tveggja mínútu fresti.
En það sem var alleiðinlegast við
þessa mynd var hversu aðalpersón-
urnar dóu seint og illa.
Eins og sagt var í áramótaskaup-
inu einu sinni: Þessi mynd er ekki við
hæfi... Þessi mynd er ekki við hæfi.
gse
★ Stjörnugjöf
Tímans
Heiöur Prizzis (Prizzi’s Honor) ★★★★
Aftur til framtíöar (Back to the Future) ★★★
Allt eöa ekkert (Plenty) ★★★
Svart og sykurlaust - kvikmynd ★★★
Löggulíf ★★
Mad Max (The Thunderdome) ★★
Silverado ★★
Undrasteinninn (Cocoon) ★★
Þagnarskyldan (Code of Silence) Blóopeningar (The Holcroft Covenant) ★★ ★
Bolero ★
Fullkomin (The Perfect) ★
Hefnd vígamannsins (Revenge of the Ninja) 0
★★★★★ = Frábær. ★★★★ = Ágæt. ★★★ = Góð.
★★ = Þokkaleg. ★ = Slæm. O = Afleit.