Tíminn - 26.01.1986, Page 18
18 Tíminn
Sunnudagur 26. janúar 1986
Rannsóknariögreglumennirnir
Haraldur Árnason og Jónas
Hallsson. Starf þeirra er ekki síð-
ur að sanna sakleysi manna en
Sekt. Tímamynd: Árni Bjarna.
Helgarblað Tímans heimsótti
stofnanir, skemmtistaði, sjúkra-
hús og hótel á höfuðborgarsvæð-
inu þar sem lög og reglugerðir um
brunavarnir eru þverbrotin. Það
er engu iíkara en verið sé að biða
eftir stórum eldsvoða þar sem
fjöldi manns yrði eldi að bráð.
Dauðagildrur
Við samantekt þessarar greinar
heimsótti blaðamaður Helgarblaðs
Tímans stór sjúkrahús, stofnanir,
skemmtistaði og hótel í Reykjavík
sem á engan hátt fullnægja settum
lögum og reglugerðum um bruna-
varnir.
Við teljum að það þjóni engum til-
gangi á þessu stigi málsins að nefna
nöfn á stöðum eða stofnunum sem
heimsóttir voru en margir hverjir
voru nánast skólabókardæmi um það
hvernig reglur og lög eru þverbrotin
hvað brunavarnir snertir. Víða úti á
landsbyggðinni virðist ástandið vera
jafnvel enn verra.
Dæmi eru til um félagsheimili þar
sem neyðarútgangar hafa verið bolt-
aðir. aftur til að koma í veg fyrir að
gestum væri hleypt inn bakatil í hús-
in þegar samkomur eru en um leið
loku fyrir það skotið að fólk geti flúið
eld ef upp kæmi.
Eitt stærsta hótelið í höfuðborg-
inni er þannig úr garði gert að ef eld-
ur kæmi upp í anddyri eða uppgangi
þá væri útilokað fy rir gesti á efri hæð-
um hússins að komast þaðan lifandi.
Sjúkrahús í næsta nágrenni borg-
arinnar þar sem hundruð manna
dvelja er í svo slæmu ástandi hvað
varðar brunavarnir að það má telja
kraftaverk að þar hafi ekki orðið
stórir mannskaðar enn sem komið
er. Svona mætti lengi telja.
Hverjir bera ábyrgðina
í lögum allra þjóða eru það eig-
endur og forráðamenn bygginga og
fasteigna sem bera ábyrgð á bruna-
vörnum hver fyrir sig.
í lögum um brunavarnir og bruna-
mál sem sett voru árið 1982 er það
Félagsmálaráðuneyti sem fer með
yfirstjórn brunamála í landinu en
Brunamálastofnun ríkisins fer með
daglegan rekstur brunamála en við
þá stofnun starfa aðeins sex menn.
{ sveitarfélögunum eru það sveit-
arstjórnir og slökkviliðsstjórar á
hverjum stað fyrir sig sem fara með
brunamál sveitarfélagsins en bruna-
liðsstjórar á landinu öllu eru um 70
talsins.
Allir verkfærir menn á aldrinum
18 til 60 ára eru svo samkvæmt
lögunum skyldir til þjónustu í
slökkviliði og er þeim skylt að koma
til slökkviæfinga allt að 20 klukku-
stundir á ári og auk þess skuli þeir
koma hvenær sem eldsvoða ber að
höndum samkvæmt nánari reglum
um útköll.