Tíminn - 30.01.1986, Blaðsíða 1
r r
RIKISUTVARPIÐ hefur ákveðiö að efna til
verðlaunasamkeppni um útvarpsleikrit. Miðað er við
að verkin taki 40-60 mínútur í flutningi. Verðlaunafé
verður alls 350 þúsund og fyrstu verðlaun verða
a.m.k. 200 þúsund. Dómnefndina skipa Jón Viðar
Jónsson, Þorvarður Helgason og Þórhildur Þorleifs-
dóttir. Skilafrestur verður til 15. september n.k.
LEIGUBÍLSTJÓRAR á höfuðborgar-
svæðinu hafasameinast í eitt stéttarfélag, Frama, frá
og með 1. febrúar n.k. Eftir sameininguna verða
Reykjavík, Kópavogur, Seltjarnarnes, Hafnarfjörður,
Bessastaðahreppur, Garðakaupstaður og Mosfells-
hreppur, eitt atvinnusvæði og eitt gjaldsvæði.
ÍBÚÐARHUSIÐ að Sólheimum í Laxárdal
brann til grunna á þriðjudagskvöldið. Heimilisfólkið,
slapp heilt á húfi úr eldsvoðanum en allt innbú brann.
Aðstæður til slökkvistarfs voru erfiðar, aðallega
vegna veðurs.
MAÐUR, sem er sagður hafa lagt það á fyrrver-
ándi eiginkonu sína að hún skyldi ekki geta notið
samvista við aðra menn, var nýlega dæmdur til að
aflétta álögunum svo að hún geti notið eðlilegs
kynlífs.
Dómstóll í Mwingi í Kenýa dæmdi manninn enn-
fremur til að útvega geit, sem nota skyldi til að hreinsa
fórnarlambið af áhrifum galdranna, að sögn kenýsku
fréttastofunnar.
SAMKOMULAG HEFUR NÁÐST
í verðlagsráði um verð á loðnu til frystingar og loðnu-
hrognum. Verð á loðnuhrognum til frystingar er nú
8.75 kr./kg. Verð á loðnu til frystingar er það sama og
á vetrarvertíð 1985 eða, fyrir 50 stk. í kg. 8,75 kr., fyrir
50-55 stk. í kg. 6,50 kr. og yfir 55 stk. í kg. 5,00 kr.
Verð á loðnu til beitingar, skepnufóðurs er 3.00 kr./
kg. Greidd verður 6% uppbót á verð loðnu til frysting-
ar úr verðjöfnunardeild Aflatryggingasjóðs.
FORMAÐUR Bandalags íslenskra sérskóla-
nema, Jón Bjarni Guðsteinsson, hefur sent frá sér
yfirlýsingu þar sem hann krefst þess að menntamála-
ráðherra veiti Ólafi Arnarsyni lausn frá störfum í
stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Jón bendir í
því sambandi á að atkvæði Ólafs, á stjórnarfundi í
haust, hafi orðið til þess að fyrsta árs nemar fái nú
enga fyrirgreiðslu hjá sjóðnum.
HEIMSMEISTARAEINVÍGIÐ í
skák milli Karpovs og Kasparovs verður haldið í
London og Leningrad og hefst um mánaðamótin júlí/
ágúst. Þetta er niðurstaða strangra samningavið-
ræðna milli skákmeistaranna og FIDE. Mótið mun
hefjast í London en verður síðan flutt til Leningrad. Á
meðan stendur keppnin um hver verður næsti áskor-
andi sem hæst. Sokolof vann yfirburðasigur í einvígi
sínu við Vaganyan, og Jusupov er kominn með
tveggja vinninga forskot í einvígi sínu við Timman.
BÍLL KEYRÐI ÁLJÓSASTAUR.
Lækjargötunni í gærkvöldi. Hafði bílnum verið ekið
eftir Fríkirkjuveginum og í sveigjunni á mótum Frí-
kirkjuvegs og Lækjargötu fór bíllinn út úr beygjunni
og lenti á staurnum. Grunur leikur á að um ölvun hafi
verið að ræða, og var bílstjórinn á bak og burt þegar
lögreglu bar að garði.
KRUMMI
„Ef það er rétt sem
Sverrir segir, þá hafa
stúdentar mokað upp
peningum. Sannkall-
aður Námasjóður ís-
lenskra lánsmanna. “
Nauðlenti í sjónum
út af Reykjanesi
- tveggja manna og flugvélar saknað
Á sjöunda tímanum í gær-
kvöldi nauðlenti einshreyfils-
vél af gerðinni Cessna 210 í
sjónum út af Reykjanesi. í vél-
inni voru tveir menn, og þrátt
fyrir umfangsmikla leit hafði
vélin enn ekki fundist þegar
Tíntinn fór í prentun.
Flugvélin var á ferjuflugi frá
Nýfundnalandi og átti að milli-
lenda á Grænlandi, en gat það
ekki vegna veðurs. Þá var þess
freistað að fara til Keflavíkur í
staðinn, en áður en þangað
kom varð vélin eldsneytislaus
og varð að nauðlenda. Þegar
Ijóst var hvert stefndi gerði
flugmaðurinn vart við sig og til-
kynnti unt eldsneytisvanda
sinn. Flugu þá herkúles flugvél
og þyrla frá varnarliðinu á móti
Cessnavélinni og fylgdu henni
síðasta spölinn. Flugmenn
herkúlesvélarinnar sáu þegar
einshreyfilsvélin lenti á sjónum
en þrátt fyrir að þyrlan væri
skammt undan fannst Cessna-
vélin ekki þegar hún kom á
vettvang. Vonsku veður var og
illt í sjóinn.
f leitarhópinn bættust síðan
önnur þyrla frá varnarliðinu og
þyrla Landhelgisgæslunar auk
fjölda skipa.
Þyrlurnar og herkúlesvélin
hættu leit á ellefta tímanum í
gærkvöld, cn áttu að fara aftur í
loftið við birtingu í morgun.
Tíminn vissi af fimm skipunt
Stjórnarmenn í Stúdentaráði Háskóla íslands komu á skrifstofu Lánasjóðs íslenskra námsmanna
síðdegis í gær í þann mund er stjórnarfundur var að hefjast í sjóðnum. Tilgangurinn var sá að af-
henda Ólafi Árnasyni, umdeildum fulltrúa í stjórn LÍN, um 1000 undirskriftir stúdenta þar sem
skorað var á hann að vikja fyrir nýkjörnum fulltrúa núverandi meirihluta, í SHI. Ólafur kom ekki
til fundarins, né heldur varamaður hans, og ekki fékkst samþykki fyrir því að hinn nýi fulltrúi tæki
sæti SHÍ á Stjórnarfundinum. Tímamynd: Sverrir
Ráðstefna um meltuvinnslu:
Fiskveiðasjóður láni
60% tækjakostnaðar
- segir starfshópur um lifra og slógnýtingu
Starfshópur sem sjávarút-
vegsráðherra skipaði 1983 til
að kanna nýtingu á slógi og lif-
ur úr fiski hefur lagt til að
„sjávarútvegsráðuneytið óski
eftir þvf við Fiskveiðasjóð að á
árinu 1986 láni sjóðurinn út-
gerðaraðilum 60% af þeim
fjárfestingarkostnaði í vélum,
tækjum og búnaði sem þarf um
borð í fiskiskip svo hægt verði
að vinna eða geyma úrgangs-
fiks og fiskúrgang um borð.
Lán þessi verði til 8 ára.“ Þetta
kom fram þegar áfangaskýrsla
starfshópsins var kynnt á ráð-
stefnu um meltuvinnslu sem
haldin var að tilhlutan sjávarút-
vegsráðuneytisins og Rann-
sóknarstofnunar fiskiðnaðar-
ins í gær. í skýrslu starfshópsins
kemur þó einnig fram, að hóp-
urinn treysti sér ekki á þessu
stigi málsins til að leggja til að
útgerðaraðiiar verði skyldaðir
til að koma sér upp búnaði til
meltuvinnslu. Hagkvæmni
slíks búnaðar veltur að veru-
legu leyti á tegund fiskiskips,
kvóta og aflasamsetningu, en
svo virðist sem frystitogarar
henti vel til þessarar fram-
leiðslu. Ljóst er að miklum
hluta þess sem veitt er, er hent í
sjóinn aftur. í erindum þeim
sem flutt voru á ráðstefnunni í
gær kom t.d. fram að 60-70% af
afla frystitogara er fleygt fyrir
borð eða 10-20 þúsund tonnum
árlega. í heild er hent 120-180
þús. tonnum af fiskúrgangi ár-
. lega. Unnt er að nýta þetta hrá-
efni til dýfafóðurs í miklu meiri
mæli en nú er gert, t.d. í meltu.
Á ráðstefnunni var bent á, að
miðað við fjárfestingar í fisk-
iðnaði væri sá tækjabúnaður
sem þyrfti til meltuvinnslu í
ntörgum tilfellum sú fjárfesting
sem einna fljótust væri til að
skila arði. Fjölmargar aðrar
aukaafurðir má vinna úr af-
gangsfiski og slógi, s.s. mjöl,
lýsi og hrat.
Það var samdóma álit manna
á ráðstefnunni í gær að hráefn-
isskortur hamlaði nokkuð
framþróun þessa auka-
afurðaiðnaðar, en það væri
þó að breytast.
Halldór Ásgrímsson sjávar-
útvegsráðherra setti ráðstefn-
una og sagði í ræðu sinni að í
undirbúningi væri reglugerð
sem skyldaði frystitogara til að
koma með allan sinn afla að
landi, þar með talinn þann
hluta sem hingað til hefur verið
hent.
sem cnn voru á leitarsvæðinu
seint í gærkvöld og hugðust
leita í nótt, en það voru rann-
sóknarskipið Bjarni Sæmunds-
son, Krossvík AK-300, Geir-
fugl GK-66, Bergey VE-544,
og Skipaskagi AK-102. Varð-
skipiðTýrvar væntanlegt á leit-
arsvæðið í morgun.
Lítið er vitað um mennina
tvo sem í vélinni voru, en flug-
vélin var skráð í Ameríku og
hafði nýlega verið kcypt af
frönsku fyrirtæki. Talið er að
annar mannana sé sá sem
keypti vélina. - BG.
Bessastaðir:
Sigin gólf
endurnýjuð
Það er margs að gæta í við-
haldi á forsetabústaðnum að
Bessastöðum, enda mun elsti
hluti hússins vera um 220 ára
gamall. Sú viðgerð sem er mest
aðkallandi um þessar mundir
er endurnýjun á gólfum í svo-
kallaðri Bessastaðastofu, en
þau eru orðin illa sigin oggisin.
Engin ákvörðun hefur enn ver-
ið tekin um framkvæmdina eða
umfang hennar, en athugun
hefur staðið yfir um skeið.
„Það hefur verið kannað
með hvaða hætti þetta verður
best gert og ýmsar hugmyndir
og lausnir hafa verið ræddar.
En núna hallast menn helst að
því að setja nýtt timburgólf í
Bessastaðastofu, án þess að
endanleg ákvörðun hafi verið
tekin í þeim efnum,“ sagði
Halldór Rcynisson forseta-
ritari í samtali við Tímann.
Hvað varðar almennt við-
itald á Bessastöðum sagði Hall-
dór að hafa yrði í huga fyrr-
nefndan aldur hússins. Margt
væri farið að gefa sig og hefði
látið undan í tímans tönn. Af
þeim sökum væri viðhald óneit-
anlega mikið, enda hefði verið
reynt að gera það sem gera þarf
til að halda forsetabústaðnum í
frambærilegu ástandi.
„Það hefur ýmislegt verið að
koma í ljós sent þarf að takast á
við, scm er ekki óeðlilegt þegar
svona gömul hús eru annars
vegar, og þar á meðal eru þessi
gömlu gólf,“ sagði Halldór.
Aðspurður um það hvort að
fleiri stór viðhaldsverkefni
væru í uppsiglingu á næstu einu
til tveimur árum, sagði hann að
að mörgu þyrfti að gæta og at-
huga. Kraftarnir færu fyrst og
frcmst í það að halda úti vatni
og vindum.
Þess má geta að skömmu fyrir
áramót samþykkti Alþingi fjár-
veitingu til kaupa á örygg-
isvarnarkerfi til handa for-
setabústaðnum að Bessastöð-
um. Slíkur búnaður hefur ekki
enn verið keyptur en málið
mun vera til athugunar hjá
forsetaembættinu.
-SS.
i