Tíminn - 30.01.1986, Page 3
Fimmtudagur 30. janúar 1986
Tíminn 3
SKÁK
Þröstur Árnason
„Skákmeistari Reykja-
víkur 1986“. Aö sigur-
launum fær hann far-
andgrip sem Reykja-
víkurborg hefur gefiö í
tilefni 200 ára afmælis
borgarinnar. Hann
varö einnig „Ungl-
ingameistari Reykja-
víkur 1986“.
Tímamynd - Sverrir
Þröstur Árnason Skák-
meistari Reykjavíkur
Þröstur Árnason, 13 ára piltur úr
Taflfélagi Reykjavíkur varð í gær-
kveldi „Skákmeistari Reykjavíkur
1986“, en þá lágu fyrir úrslit í þeirri
skák sem öllu máli skipti fyrir hann,
Hannes Hlífar Stefánsson jafnaldri
hans varð að gera sér að góðu jafn-
tefli við hinn 11 ára gamla Héðinn
Steingrímsson eftir að skák þeirra
fór í bið sl, þriðjudagskvöld. Þröstur
hlaut 9 vinninga, en Hannes 816 v. og
Héðinn 8 vinninga. Þarf ekki að taka
fram að Þröstur er yngsti Reykjavík-
urmeistari frá upphafi.
Úrslitaskákum Skákþingsins var
flýtt vegna þátttöku piltanna í
Norðurlandamótinu í skólaskák sem
fram fer í Strömstad í Svíþjóð um
næstu helgi, en þar er teflt í sex
flokkum. Úrslitaskákirnar voru því
tefldar á þriðjudagskvöldið og tókst
Þresti Árnasyni að leggja hinn harð-
skeytta Andra Áss Grétarsson að
velli, en Hannes Hlífar sem hafði
leitt mótið allt frá upphafi átti
hinsvegar í hinu mesta basli með
Héðin Steingrímsson. Skák þeirra
fór í bið og var Héðinn með heldur
betri stöðu. Hann glutraði frum-
kvæði sínu niður, en þó aldrei meira
en í jafntefli. Þröstur slapp því við
einvígi við Hannes um titilinn.
Frammistaða þeirra hefur vakið
verðskuldaða athygli þó að flesta af
sterkustu skákmönnum landsins hafi
vantað í mótið. Þeim hefurveriðhei-
miluð þátttaka á 12. Reykjavíkur-
mótinu sem hefst í næsta mánuði.
Skákin sem innsiglaði sigur Þrast-
ar fer hér á eftir:
11. umferö:
Hvítt: Þröstur Árnason.
Svart: Andri Áss Grátarsson.
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 0-0
5. Be3 d66. f3 Rc6 7. Rge2 a6 8. Dd2
Hb89.0-0-0 e510. d5 Re711. g4 Re8
12. Bh6 Kh8 13. h4 Rg8 14. Bxg7t
Rxg715. Rg3 f616. Kbl De717. Bd3
Bd7 18. Hcl c5 19. Rdl b5 20. Rf2
Hb7 21. Hh2 Hfb8 22. Rdl Hf8 23.
Re3 Bc8 24. Hdhl Hf7 25. De2 b4
26. Rg2 Re8 27. f4 h6 28. g5 fxg5 29.
f5 gxf5 30. exf5 Rg7 31. hxg5 Dxg5
32. Re4.
m
■■iflflllM "lllll
fnFwww Blií
ihiiiii IIIIIIIIII
í þessari stöðu þar sem svartur átti
enn eftir að leika 9 leiki féll Andri á
tíma. Staða hans er gertöpuð. ,
Aðrar skákir í mótinu vor tefldar í
gærkveldi en höfðu ekki áhrif á
endanlega niðurstöðu.
Umsjón Helgi Ólafsson
Chevrolet Monza, sem Bflvangur er nú að hefja innflutning á.
Nýr Chevrolet
Bílvangur er að hefja innflutning á
nýjum bíl af Chevrolet gerð,
Chevrolet Monza, sem er fram-
leiddur í Brasilíu.
Chevrolet Monza er af millistærð
fjölskyldubíla, og er fáanlegur
þriggja og fjögurra hurða. Bfllinn er
framhjóladrifinn með 1800 vél, ým-
ist 5 gíra eða sjálfskiptur.
Verðið á Chevrolet Monza er frá
kr. 536 þúsundum miðað við gengi
dollars 24. janúar. Bíllinn verður
kynntur á bílasýningu hjá Bílvangi,
Höfðabakka 9, um næstu helgi, frá
kl. 9-18áföstudag, 10-18álaugardag
og 13-18 á sunnudag.
yegna
breytinga
Stór-
rýmingar-
sala
Dragtir. Verö kr. 950.
Úrval af buxum. Verð frá kr. 290-995.
Úrval af peysum. Verð frá kr. 350-795.
Kuldaúlpur. Verð kr. 1.990.
Flugmannajakkar. Verð kr. 2.900.
Dömujakkar, tvær gerðir. Verð frá kr. 250.
Herrablússur. Verð frá kr. 290.
Herra- og dömujogginggallar. Verð kr. 1.490.
Barnajogginggallar. Verð kr. 1.190.
Herraskyrtur, mikið úrval. Verð kr. 490.
Úrval af barnasokkum. Verð frá kr. 25.
Herrasokkar. Verð frá kr. 69-85.
Úrval af barnafatnaði, einstaklega gott verð.
Fyrir þau sem eru dugleg að sauma, gluggatjalda-
og fataefni, í mjög miklu úrvali, gott verð, tískulitir.
Handklæði. Verð frá kr. 145-395.
Þvottapokar og þvottastykki. Verð kr. 36.
Sængurverasett. Verð frá kr. 750.
Kvenskór. Verð frá kr. 400-790.
Karlmannaskór. Verð frá kr. 400-790.
Karlmannaskór. Verð kr. 720.
Strigaskór barna. Verð frá kr. 299-400.
Barnastígvél. Verð kr. 290.
Hljómplötur. Verð frá kr. 49-199.
Áteknar kassettur. Verð kr. 199.
Þvottabalar. Verð frá kr. 319-348.
Fötur. Verð kr. 67. Vaskaföt. Verð kr. 71.
Þvottalögur, sótthreinsandi 750 ml. Verð kr. 25.
Ódýra hornið
Verð frá kr. 25-200.
Sælgæti, gjafavörur o.fl. o.fl. N
Heitt á könnunni. Greiðslukortaþjónusta.
Við opnum kl. 10 árdegis.
Vöruloftið
Sigtúni 3 • Sími 83075
hf.