Tíminn - 14.02.1986, Síða 2

Tíminn - 14.02.1986, Síða 2
2 Tíminn Föstudagur 14. febrúar 1986 KÍ fær 5% og BK samningsréttinn: FRUMVARP UM LOGVERNDUN STARFSHEmS T1LBÚIÐ VEIÐIHORNIÐ Þorsteinn á fundi með formanni KÍ s.l. þriðjudag t'cir Þorsteinn Pálsson fjármála- ráðherra og Sverrir Hermannsson menntamálaráðherra svöruðu í gær á Alþingi fyrirspurn Hjörleifs Gutt- ormssonar um laun, samnings- og verkfallsrétt og lögverndun á starfs- hciti kennara. Mikill fjöldi kennara safnaðist saman á þingpöllum síðast- liðinn þriðjudag þegar von var á að fyrirspurninni yrði svarað, en svo fór ekki vegna fjarvista fjármálaráð- herra og hlaust nokkur kurr af. Er þetta mál bar á góma í annað sinn voru báðir ráðherrar viðstaddir og aftur var fjölmennt á þingpöllum. Hjörleifur Guttormsson hóf mál sitt með því að segja að mörg hildi hefði verið háð á vinnumarkaðnum undanfarin misseri, en að engin stétt hefði staðið í öðru eins stappi við ríkisvaldið og kennarar hafa þurft að gera vegna svikinna loforða. Því næst rakti Hjörlcifur þróun mála frá verkfalli BSRB 1984 og sagði að enn einu sinni hefði kcnnarastéttin þurft að grípa til aðgerða. Loks ítrekaði hann fyrrnefnda þætti fyrirspurnar- innar. I'orsteinn Pálsson sté í ræðustól og sagði að tvennt lægi þegar fyrir þ.e. að ákveðið hefði verið að félag- ar í Kennarafélagi lslands fái sömu laun fyrir sömu vinnu og aðrir innan Bandalags kennarafélaga og að BK verði veitt samningsréttur fyrir hönd aðildarfélaga. „Það er ákvörðun fjármálaráðu- neytisins að frá og með 1. febrúar 1986 taki KÍ-félagar sömu laun og aðrir grunnskólakennarar innan BK,“ sagði ráðherra. Porstcinn gerði að umtalsefni þá umræðu sem spannst út af fjarveru hans síðastliðinn þriðjudag og greindi frá því að á þeirri stundu sem sú umræða fór fram hafi hann átt fund með formanni KÍ sem svo hafi leitt til lausnarumræddrardeilu. Það lægi því í augum upp að mikilvægu erindi var gegnt. „En sumir hafa e.t.v. meiri áhuga á því að viðhalda óróa í málinu en að finna lausn,“ bætti hann við. Sverrir Hermannsson svaraði þeim hluta fyrirspurnarinnar er laut að lögverndun starfsheitis kennara. Hann sagði að nefnd sem hefði verið skipuð til að semja drög að frum- varpi um þetta efni hefði skilað áliti til ráðuneytisins og þá væri eftir að kynna það þingflokkum stjórnar- flokkanna. Að sögn Sverris er í frumvarpsdrögunum gert ráð fyrir að lögvernduð verði starfsheitin grunnskólakennari og framhalds- skólakennari. Friðrik Sophusson tók næstur til máls og sagðist vilja gera að umtais- efni umræöuna um fjarvistir fjár- málaráðherra síðastliðinn þriðju- dag. Þá hcfði fjöldi fólks komið á þingpalla vcgna frétta í Ríkisútvarp- inu um að þrenrur fyrirspurnum frá Hjörlcifi Guttormssyni yrði svarað á þeim fundi. Friðrik sagði að af- leiðingin hefði t.d. kontið fram í við- tali við kennara í Þjóðviljanum dag- inn eftir þar sem viðmælendur blaðs- ins lýstu yl'ir hneykslan sinni vegna fjarvista Þorsteins Pálssonar fjár- málaráðherra. „Af þessu tilefni hringdi ég í útvarpið og fékk þær upplýsingar að heimildarmaður væri ekki þingfréttaritari heldur formað- ur Kennarafélags Reykjavíkur, sú hin sama og Þjóðviljamenn ræddu við,“ bætti hann við. „Ég fagna því að nú hefur fengist botn í þetta mál" Hjörleifur Guttormsson kvaddi sér hljóðs í annað sinn og sagði að þó mikið skorti á að svörin væru full- nægjandi, þá hefðu ekki oft komið fram upplýsingar á Alþingi síðustu misseri um nefnd mál sem gætu talist skref í rétta átt og því bæri að fagna því sem framkomið væri. Hins vegar bæri að minnast þess að viðbrigði ríkisvaldsins væru fyrst fengin eftir að órofa samstaða kennara sigraðist á óbilgirni þess. Hjörleifur sagði það augljóst að taugarnar væru farnar að gefa sig í forystu Sjálfstæðisflokksins, þar sem fjármálaráðherra taldi það nauðsyn- legt að boða formann KÍ á sinn fund á nákvæmlega sama tíma og hann vissi að umrædd fyrirspurn lá fyrir á Alþingi þriðju vikuna í röð. Hann væri þó ekki að finna að þeirri „leyni- þjónustustarfsemi" sem varafor- maður Sjálfstæðisflokksins væri far- inn að stunda. Þorsteinn Pálsson tók aftur til máls og sagði að tilboð fjármála- ráðuneytisins um samningsrétt BK fyrir KÍ hefði legið fyrir allt frá jan- úarlokum en að samtökin hefðu tek- ið sér eðlilegan umþóttunartíma sem ekki væri hægt að gagnrýna ríkis- stjórnina fyrir. Hvað varðar fundinn með formanni KÍ sagði Þorsteinn að til hans hefði verið boðað af for- manninum sjálfum og því hefði ekk- ert verið tvírætt við tímasetninguna eins og Hjörleifur Guttormsson vildi meina. Um verkfallsrétt til handa KÍ einu og sér sagði Þorsteinn: „Ég teldi það ekki góða framkomu gagnvart BSRB að veita hverju félagi sem gengi þar út verkfallsrétt meðan að ríkisvaldið stæði í samráðsviðræðum við hcildarsamtökin. Ég vil ekki taka þátt í að verðlauna þá sem ganga út við þær kringumstæður." Orðaskipti þeirra Hjörleifs og Þorsteins spunnust nokkuð áfram um einstök málsatvik en þeir Sverrir Hermannsson, Svavar Gestsson og Jón Baldvin Hannibalsson lögðu einnig orð í belg. Síðastnefndur minnti á að deilan ætti að vera nokk- uð auðleyst því enginn efaðist unt réttinn til sömu launa fyrir sömu vinnu. Þar að auki væri einungis um 5% af lágum launum að ræða þar sem meirihlutinn skilaði sér þegar í stað aftur í ríkiskassann. -SS Vísindasjóður Borgarspítala: Veitti þrjá vísindastyrki Vísindasjóður Borgarspítalans veitti nýlega styrki til þriggja rann- Prófkjör Alþýðufl. sóknarverkefna, alls að upphæð 500 þúsund krónur. Guðmundur I. Eyjólfsson sér- fræðingur í lyflæknisfræði, hlaut 150 þúsund krónur til rannsóknar á sjúk- dómnum multiple myeloma. Mun rannsóknin felast í athugun á tíðni sjúkdómsins, hvernig hann kcmur í Ijós, meðferð hans og athugun á æxl- ismyndun. Þorbjörgu Magnúsdóttur yfir- lækni og Bergþóru Ragnarsdóttur sérfræðingi á svæfinga og gjörgæsludeild Borgarspítala voru veittar 310þúsund krónur til að gera könnun á öllum slysasjúklingum sem Styrkþegar, ásamt stjörn sjúkra- stofnana Reykjavíkurborgar og stjörn Vísindasjóðs Borgarspítalans. F.v. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Sverrir Þórðarson, Guðmundur I. Eyjólfsson, Ingibjörg Halldórsdótt- ir, Gunnar H. Gunnlaugsson, Berg- þóra Ragnarsdóttir, Þorbjörg Magn- úsdóttir, ÁsgeirB. Ellertsson og Páll Gíslason. lagðir hafa verið inn á gjörgæsludeild Borgarspítalans 1975 til 1984. Gunnar H. Gunnlaugsson yfir- læknir skurðlækningadeildar Borg- arspítalans hlaut 20.000 krónur til að rannsaka sjúklinga með sprungið maga- eða skeifugarnarsár, afdrifum þeirra og öðrum þáttum varðandi þessa sjúklinga. Vísindasjóðurinn var stofnaður til minningar um Þórð Sveinsson yfir- lækrú og Þórð Úlfarsson flugmann. Tilgangur sjóðsins er að örva og styrkja vísindalegar athuganir, rann- sóknir og tilraunir sem fara fram á spítalanum. Ef þetta klikkar hjá okkur getuni við þó alltaf selt Vestmannaeyingum lopapeysur! UMSJÓN:EGGERT SKÚLASON Á skytterí í Sovét? Sovéskar ferðaskrifstofur hafa sýnt mikinn áhuga á því að auka fjölda ferðamanna sem koma til landsins á hverju ári. Sérstaklega hafa Rússar í huga veiðiferðir, þar sem mönnum gefst tækifæri til að skjóta stærri bráð. Þetta ætti að vera kjörið fyrir skotveiðimenn á íslandi sem hafa áhuga og peninga. Á meðan hreindýraveiðin er alfar- ið í höndum bænda á Austurlandi og ekki virðist sem breyting ætli að vera þar á, gefst íslenskum skot- veiðimönnunt ekki kostur á að skjóta á stærri dýr. Veiðihornið leitaði til Sam- vinnuferða-Landsýnar og spurði um hugsanlegt verð á slíkum veiði- túr fyrir einstakling. Svarið var 30- 35 þúsund krónur. Það skal tekið fram að málið var ekki ígrundað sérstaklega en bara skotið á verðið. Ekki þarf að fjölyrða um það , hversu fjölþættir veiðimöguleikar eru fyrir austan járntjald. Þeir sem hafa áhuga á því að komast í alvöru veiðitúr geta hreinlega haft sam- band við Samvinnuferðir-Landsýn og fengið nánari upplýsingar. Á veiðum á undanhaldi? Samkvæmt heimildum Veiði- hornsins hafa forráðamenn blaðs- ins Á veiðum ákveðið að draga saman seglin á komandi ári. Blaðið hefur komið út þrisvar sinnum, en ekki er fyrirhugað að gefa út nema tvö blöð í ár. Hvort þetta er undan- hald vegna harðnandi samkeppni á markaðnum skal ósagt látið en óneitanlega lítur dæmið þannig út, þegar leikmenn skoða það.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.