Tíminn - 14.02.1986, Blaðsíða 15
Föstudagur 14. febrúar 1986
FRÍMERKI
Að vera áskrifandi
Þuö er hægt uð vcra áskrifundi að
t’leiru en blöðum og tímaritum.
Þannig eru flestir sufnarar sem safnu
einhverju ákveðnú landi, einsog það
er kallað meðal frímerkjasafnara.
þ.e.a.s. öllunt frímerkjum útgefnum
í cinhverju ákveðnu landi. áskrif-
endur að þeim merkjum. Þetta er
liægt að gcra á ýntsan hátt.
í fyrsta lagi er hægt að gerast
áskrifandi hjá næsta frímerkja kaup-
mantii. Þá segir maður honum ná-
kvæmlega Itvers óskað er og greiðir
honum svo fyrir, annaðhvort inn á
rcikning, eða þá í hvert sinn er ný
merki koma.
í öðru lagi er hægt að koma sér
upp skiptisambandi í viðkomandi
landi. Eignist ntaður pennavin þar
scm einnig safnar frímerkjum frá
íslandi. gengur oftast greiðlega að
skipta við hann á nýjum merkjum
jafnvel ntá einnig skipta á eldri
merkjum, en þá alltaf skv. verðlista,
eins og áður er sagt.
Svo er í þriðja lagi hægt að gerast
áskrifandi hjá Frímerkjasölu póst-
stjórnar viðkontandi lands. Þá er
eðlilegasti viðskiptaháttturinn að
greitt er inn á reikning, einhver
ákveðin upphæð. Dregs svo hver
sending frá þeirri uppltæð uns greiða
þarf inn á reikninginn að nýju.
Á þennan hátt er hægt að vera
áskrifandi að öllum nýjum mcrkjum
frá viðkomandi landi. Það sem panta
má er: 1) Öll ný frímcrki sem út
koma, stimpluð, óstinipluð, stimpl-
uð á útgáfudegi. Merkin er auk þess
hægt að panta einstök eða í
blokkum, svo sem fjórblokkum,
hornablokkum, pörum. heftum jafn-
vcl í heilum örkum.
Þá er einnig hægt að gerast áskrif-
andi að sérstimplum frá viðkomandi
landi og maxi kortum með myndefni
merkjanna. sem flestar póststjórnir
gefa út nú orðið.
Það að selja söfnurum frfmerki, er
kappsmál allra landa, sem gefa út frí-
merki. Þctta er ekki aðcins land-
kynning, heldur hefur viðkomandi
land eignast vin í frímerkjasafnaran-
um, sem kemur kannske í heimsókn,
jafnvel oftar cin einu sinni á æfinni.
Frímerkið er þannig nafnspjald
Iandsins út á við. en cinnig verðbréf.
Sem verðbréf þjónar það bæði safn-
aranum, sem eignast það og landinu
sem selur það. Safnarinn eignast
verðmæti, en hann lætur líka fé af
hendi til reksturs póstþjónustunnar í
viðkomandi landi. Auk þess styður
hann ferðamannaþjónustu viðkom-
andi lands, ef hann einhvcrntíma
heimsækir landið scm hann safnar
frímcrkjum frá. Þetta eru meðal
annars ástæðurnar fyrir því. að allar
póststjórnir gera sér far um aö veita
söfnurunum góða þjónustu. íslenska
Póstmálastofr.unin er ein af þeim
betri þegar um þessa þjónustu er að
ræða. Hefir hún fengið viöurkenn-
ingar á alþjóðlegan mælikvarða. sbr.
þegar Ernst Kehr afhenti skjöld sam-
taka bandarískra blaðamanna og
kom alla leið til íslands til þess.
Hér er svo rétt að gefa upp heimil-
isföng hinna norrænu frímerkja-
landa, sem sclja söfnurum frímerki í
áskrift:
ísland. Frímerkjasalan, •
Pósthólf 8445,
128- Reykjavík.
Áland. Mariehamns Postkontor.
Filateliscrvicen,
P.O. Box 1(10,
SF-22101 Mariehamn,
Áland - Finland.
Danmörk. Postens Filateli.
Rádhuspladsen 59,
DK-1550 Köbenhavn
V. Danmark.
Finnland. General Dir. P.T.T.
Filarteliavdelingen,
P.O. Box 654. "
SF - 00101 Hclsinki 10,
Finland.
Grænland. Grönlands Postvæsen.
Strandgade 100,
Postboks 100.
DK- 1004,
Köbenhavn K. Danmark.
Norcgur. Postens Filatclitjeneste,
Postboks 1085, Sentrum,
N - 0107 Oslo 1,
Norgc.
Svíþjóð. PFA Filateli Tjánst..
S-10502 Stockholm. '
Sverige.
Þá má geta þess, að hér á landi hef-
ir verið gcfin út bók með heimilis-
föngum allra þeirra póstmálastofn-
;ina er selja söfnurum frímcrki. Hcit-
ir hún „International Directory" og
er gefin út af Popular Hobbies, Póst-
hólf 1,350 Grundarfiröi. Kostar hún
jafnvirði þriggja bandaríkjadala.
Siguröur H. Þorsteinsson
BÓKMENNTIR
Listamenn og
náttúruhamfarir
Dynskógar, rit Vestur-Skaftfell-
inga, þriðja bindi kom út nokkru fyr-
ir síðast liðin áramót en af óvið-
ráðanlegum ástæðum var ekki unnt
að hefja almenna dreifingu þess fyrr
en í lok janúar á þessu ári.
Ritið er að þessu sinni rúmar 250
blaðsíður og á bókarspjaldi er mynd
af Jóhannesi S. Kjarval listmálara en
allstór hluti ritsins er helgaður eitt
hundrað ára minningu listamanns-
ins. Séra Sigurjón Einarsson á
Kirkjubæjarklaustri hefur skráð frá-
sagnir allmargra Skaftfellinga af
kynnum þeirra við Kjarval. Má þar
m.a. nefna Valgerði Pálsdóttur á
Kálfafelli, Þórdísi Ólafsdóttur á
Núpum, hjónin á Hörgslandi, Jakob
Bjarnason og Róshildi Hávarðsdótt-
ur, Jón Björnsson á Kirkjubæjar-
klaustri og bræðurna Siggeir og
Valdimar Lárussyni á Kirkjubæjar-
klaustri en þeir eru nú báðir látnir. Þá
eru þættir um Kjarval ritaðir af
Sigurlaugu Helgadóttur frá Þykkva-
bæ, Brandi Stefánssyni í Vík og Vil-
hjálmi Bjarnasyni frá Herjólfsstöð-
um. Og síðast en ekki síst ber að
nefna hinn heimskunna listamann
Erró sem segir frá fyrstu kynnum
sínum af Kjarval en Kjarval var fljót-
ur að finna neistann í þessum unga
sveini austur á Kirkjubæjarklaustri
og má segja að hann hafi leitt hann
fyrstu sporin á listamannsbrautinni.
Birtar eru myndir af verkum Kjar-
vals sem eru í eigu fólks í Vestur-
Skaftafellssýslu og eru allmargar
þeirra prentaðar í lit. - Björgvin
Salómonsson segir frá kynnum
Kjarvals og Halls L. Hallssonar
tannlæknis og birt eru nokkur bréf
Kjarvals til Halls ogeinnig kvæði eft-
ir hann.
Þá er í þessu hefti efni í myndum
og máli frá hátíðahöldunum á
Kirkjubæjarklaustri í tilefni 200 ára
afmælis Eldmessunnar og eru það
ræður Einars Laxness cand. mag. og
dr. Sigurbjörns Einarssonar biskups
og ræða biskupsins yfir íslandi, herra
Péturs Sigurgeirssonar í Prests-
bakkakirkju á Síðu af sama tilefni.
Æsa Sigurjónsdóttir ritar um Ein-
ar Jónsson málara frá Fossi í Mýrdal
og birtar eru litprentanir af nokkrum
myndum eftir hann. Einar var einn
af frumherjum íslenskrar málaralist-
ar en lítið hefur verið fjallað um list
hans til þessa.
Vilhjálmur Bjarnason frá Her-
jólfsstöðum í Álftaveri ritar merka
frásögn af flótta smalamanna í Álfta-
veri undan Kötluhlaupi við upphaf
gossins 1918. Einnig segir hann frá
viðbrögðum heimafólks í Álftaveri,
Meðallandi og Skaftártungu.
Ingimundur Ólafsson kennari frá
Nýjabæ í Meðallandi skrifar stór-
fróðlega grein um kirkjur, klerka og
sóknaskipan í Meðallandi. Er þar
rakin saga kirkna í sveitinni svo langt
sem heimildir leyfa en þess má geta
að á þessu ári eru 200 ár liðin frá því
að kirkja var fyrst reist á Langholti í
Meðallandi.
Aftast í ritinu eru annálar frá ár-
unum 1983 og 1984 úr öllum hrepp-
um Vestur-Skaftafellssýslu.
(Fréttatilkynning)
Tíminn 15
Svalahurðir
Útihurðir
Bílskúrshurðir
Gluggasmiðjan
Síðumúla 20
símar: 38220&81080
H
F býður þér þjónustu sína við ný-
byggingar eða endurbætur eldra húsnæðis
Við sögum í steinsteypu fyrir dyrum, gluggum, stlgaopum, lögnum
- bæðl í vegg og gólf.
Ennfremur kjarnaborum við fyrir lögnum í veggi og gólf.
Þvermál boranna 28 mm tll 500 mm.
Þá sögum við malbik og ef þú þarft að láta fjarlægja reykháfinn þá
tökum við það að okkur.
Hífir leitast við að leysa vanda þinn fljótt og vel, hvar sem þú ert
búsettur á landinu.
Greiðsluskilmálar við allra hæfi
Fífuseli 12
J 109Reykjavík
F sími91-73747
Bílasími 002-2183
KRANALEIGA • STEINSTEYPUSÖGUN • KJARNABORUN
HÚSAÞJÓNUSTAN SF.
Tökum að okkur alla málningarvinnu, utan-
sem innanhuss, hvar á landi sem er.
Einnig: Sprunguviðgerðir og þéttingar- Háþrýsti-
þvott Sílanúðun - Alhliða viðhald fasteigna.
Tilboð - Mæling - Tímavinna.
Skiptið við ábyrga fagmenn, með áratuga reynslu.
Upplýsingar í síma 91-61-13-44
BÍLALEIGA
Útibú í kringum landið
REYKJAVÍK:.....91-31815/686915
AKUREYRI:.......96-21715/23515
BORGARNES:.............93-7618
BLÖNDUÓS:.........95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR: ....95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR:.........96-71489
HÚSAVÍK:........96-41940/41594
EGILSSTAÐIR:...........97-1550
VOPNAFJÖRÐUR:.....97-3145/3121
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: . 97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI: ......97-8303
interRerrt
ENDURSKINS-
MERKI ERU
IMAUÐSYNLEG
FYRIR ALLA
Umferöarráð
1 1 " 1 1 1 ..........■■■■■■■■■ 1« ... ..... ..........
Lausar stöður
Lausar eru til umsóknar tvær stööur viö íslenska málstöð, sbr. 4. gr.
laga nr. 80/1984.
Staða sérfræðings í íslenskri málfræði. Verkefni einkum á sviði hag-
nýtrar málfræði, málfarsleg ráðgjöf og fræðsla og ritstjórnarstörf.
Til sérfræðings verða gerðar samskonar kröfur um menntun og til lekt-
ors í íslenskri málfræði.
Staða fulltrúa, sem hafði m.a. umsjón með skrifstofu, reikningshaldi
og skjalavörslu. auk aðstoðar við fræðileg störf og útgáta.
Fulltrúi hafi lokið háskólaprófi í íslensku (málfræði), eigi lægra en
BA-prófi og æskilegt er að hann hafi nokkra reynslu af málræktarstörf-
um.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf, rannsóknir og rit-
smíðar, svo og námsferil og störf skulu sendar menntamálaráðuneyt-
inu fyrir 20. mars 1986.
Menntamálaráðuneytið
11. febrúar 1986