Tíminn - 08.03.1986, Síða 2
2 Tíminn
Laugardagur 8. mars 1986
Úrskurður Guðmundi G. Þórarinssyni í hag:
Þjóðviljinn víttur
af siðanefnd B.Í.
- brot á siðareglum talið alvarlegt
Siðanefnd Blaðamannafélags ís-
lands hefur úrskurðað að frétt sem
birtist í f>jóðviljanum á forsíðu
blaðsins þann 7. janúar s.l. um tengsl
Guðmundar G. Þórarinssonar við
fyrirtækið Þýzk-íslenska hf. teljist
alvarlegt brot á 3. gr. siðareglna B.l.
Siðanefnd greinir brot á siðareglum
svo: a) óverulegt bjámælisvert c)
alvarlegt d) mjög alvarlegt.
ísafjörður:
Gleymdi sér
í sigurvímu
Lögreglan á ísafirði hefur undan-
farna daga verið við radarmælingar.
Nokkrir hafa vcrið tcknir yfir lögleg-
um hraða. Yfirleitt er ekki til afsök-
un fyrir því þegar menn verða of
þungstígir á bensínpedalann.
Sumir reyna. Síðastliðinn þriðju-
dag rétt eftir kvöldmat var einn
þungstígur tekinn. Þegar lögreglu-
þjónninn kom að þílnum sagði mað-
urinn að það hefði verið sælan cftir
sigrinum á Dönum sem fékk hann til
þess að gleynta sér. Ekki komst hann
upp með það og á yfir sér sekt fyrir
of hraðan akstur.
-ES
GuðmundurG. Þórarinsson kærði
skrif Þjóðviljans fyrir siðanefndinni
þann 24. janúar s.l., en þá hafði
blaðið birt frétt um meint skattsvik
Þýzk-íslenska hf. og lagt áherslu á að
hann væri einn af stærstu hluthöfum
og að auki fyrrverandi stjórnarfor-
maður og framkvæmdastjóri. Jafn-
framt var minnt á í því sambandi að
Guðmundur væri fyrrv. alþm. Fram-
sóknarflokksins og núverandi gjald-
keri flokksins.
f niðurlagi úrskurðarins segir
m.a.: „Svo sem fyrr greinir, fer ekki á
milli mála, að nafn Guðmundar G.
Þórarinssonar er tengt ætluðu brota-
náli um umfangsmikil skattsvik. Frá-
sögnin er hins vegar bæði röng og
villandi um atriði, sem kunna að hafa
verulega þýðingu um ábyrgð Guð-
mundar í þessu efni. Heimildir
blaðamannsins um aðild Guðmund-
ar G. Þórarinssonar að Þýzk-ís-
lenska standa engan veginn undir
fréttinni. Vinnubrögðum hér er
greinilega áfátt bæði um gagnasöfn-
un og úrvinnslu. Krafa um vönduð
vinnubrögð hlýtur að vera því brýnni
þeim mun alvarlegri sökum, sem
maður er borinn og æru hans mis-
boðið. Athugasemdir Þjóðviljans 2
dögum seinna hagga ekki þessari
niðurstöðu".
Áður hefur komið fram að Guð-
mundur seldi eignarhlut sinn í um-
ræddu fyrirtæki árið 1979 og gegndi
störfum framkvæmdastjóra einungis
við sérverkefni á tímabilinu apríl
1983 fram í janúar 1984.
-SS
„Ég trúi því ekki að nokkur maður hér á fslandi fari af stað með sjónvarpsstöð, þegar skermarnir eru orðnir svona
ódýrir.“
Tíma-mynd Sverrir
Beið með ávísunina
þegar við opnuðum
- segir framkvæmdastjóri nýopnaörar verslunar
meö sjónvarpsmóttakara
Nú geta menn fengið erlendar
sjónvarpsstöðvar inn á gafl hjá sér.
með ýmisskonar afþreyingarefni fyr-
ir 150 þúsund krónur. Umboðs- og
heildverslunin Rafeind í Árntúla
hefur nú öðlast einkaumboðsrétt á
íslandi l'rá japanska stórfyrirtækinu
NEC á búnaði til móttöku sjón-
varpscfnis um fjarskiptatungl.
Noröurlandaráösþingi í Khöfn lokið:
Engar stórdeilur
- segir Páll Pétursson fráfarandi forseti ráðsins
í tilefni af því að þingi Norður- ingarathöfn sem tram fór áður en
landaráðs í Kaupmannahöfn er lokið sjálft þinghaldið hófst. Athöfninni
hafði Tíminn símleiðis samband við var sjónvarpað beint til flestra
í tilefni af þcssum samningi var
verslunin Rafcind opin í gær þeint
sem vildu kanna hvað erlendar sjón-
varpsstöðvar voru að sýna. Þegar
Tíminn leit inn unt tvö leytið í gær
var úr nógu að moða. íþróttir frá
Svíþjóð, reyndar ekki handknatt-
leikur, tónlistarefni og teiknimyndir.
Arnar Hákonarson framkvæmda-
stjóri Rafeindar var sýningarstjóri
og skipti um rásir. Hann sagði áhuga
meðal fólks vera mikinn og einn
einstaklingur mætti tilbúinn með
ávísun í gærmorgun þegar verslunin
opnaði klukkan níu um morguninn.
„Uppsetningarkostnaður við ein-
býlishús er um fimm þúsund krónur.
Málið horfir öðruvísi við þegar um
fjölbýlishús er að ræða. Þá fer það
eftir þeim lögnum sem fyrir eru,“
sagði Arnar.
Móttökuskermurinn sem fæst fyrir
150 þúsund krónur er einnota. Ætli
fjölbýlishús að kaupa í santeiningu
disk, þarf sérstakt tæki -„túncr" fyr-
ir hvert stjónvarpstæki svo viðkom-
andi geti valið um rásir sjálfur.
Söluaðilar á móttökuskermum eru
bjartsýnir og margir hverjir búast við
því að góð sala verði fyrir HM í
knattspyrnu.
„Við höfum þegar samið við tvær
stöðvar um sýningar á efni frá þeim,
og þriðji samningurinn er í burðar-
liðnum. Nokkrar rásireru brenglað-
ar úti, þannig að þær nást ekki hér.
Hinsvegar eru það gleðitíðindi að
tveir DBS hnettir fara á loft í haust,
og á þá geta allir horft endurgjalds-
laust. Ég spái því að 3-400 skermir
seljist í ár hér á íslandi," sagði
Arnar. Rafeind er með opið í dag og
gefst fólki kostur á erlendu efni
ýmisskonar. -ES
Pál Pétursson fyrrv. forseta ráðsins
og leitaði fregna af því hvernig þing-
ið hafði gengið í heild sinni.
Páll sagði að þetta hefði verið sér-
lega minnisstæð vika. Allir þeir er
sóttu þingið hefðu verið flemtri
slegnir vegna morðsins á Olof
Palme, en jafnframt einhuga um að
sýna minningu hans tilhlýðilega virð-
ingu. Það hefði því verið mikið
vandaverk að standa að þeirri minn-
Norðurlandanna og sýnt frá henni í
sjónvarpsstöðvum víðar um heim.
Að sögn Páls setti fyrrnefnt voða-
verk nokkurn svip á sjálft þinghald-
ið. Engar pólitískar stórdeilur komu
upp eins og svo oft á fyrri þingum og
meiri hógværðar gætti í öllum mál-
flutningi.
Þær þrjár tillögur sem íslensku
fulltrúarnir lögðu hvað mesta
áherslu á komust allar nokkuð áleið-
Félag bókagerðarmanna:
Verkalýðsfor-
ystan gagnrýnd
Nýgerðir kjarasamningar voru
samþykktir með semingi á fjölmenn-
um fundi í Félagi bókagerðarmanna
í fyrradag. Stór hluti fundarmanna
sat hjá við atkvæðagreiðsluna en
samningarnir voru samþykktir með
meirihluta atkvæða gegn 18.
Á fundinum kom fram hörð gagn-
rýni á verkalýðsforystuna, sem sögð
var hafa brugðist hagsmunum verka-
fólks í þessum samningum með því
að „knýja þessa samninga upp á
verkalýðsfélög,“ eins og segir í frétt
frá Félagi bókagerðarmanna. Af því
tilefni var samþykkt ályktun á fund-
inum þar sem segir m.a. að „forysta
verkalýðshreyfingarinnar í sam-
vinnu við atvinnurekendur hafi
bundið hendur verkalýðsfélaga til að
sækja þann rétt sem verkafólki ber
og allar ytri aðstæður buðu upp á.“
Þá kemur fram í ályktuninni að fé-
lagið telur að samningar af þessu tagi
megi ekki endurtaka sig og endar
hún á eftirfarandi hvatningarorðum:
„Fundurinn hvetur allt verkafólk til
að stilla saman strengi og vinna sjálft
og sameinað að undirbúningi næstu
samningagerðar, þá fyrst er von til
þess að raunhæfar kjarabætur fáist.“
-BG
is á þinginu. Páll sagði að tillaga um
samnorræna þjóðskrá hefði hlotið
samþykki, tillaga um stofnun
norrænnar líftæknistofnunar á ís-
landi hefði reyndar ekki verið sant-
þykkt í endanlegri mynd „en verið
bjargað fyrir horn“, og tillaga um
norræna samstarfsáætlun gegn
krabbameini hefði verið vísað til
nefndar og yrði líklega samþykkt á
þinginu í Helsinki á næsta ári. „Til-
lagan um krabbameinsvarnirnar er
stefnu markandi og það er ánægjulegt
hversu margir fulltrúar af öllum
Norðurlöndunum gerðust flutnings-
menn að henni. Að öðru ólöstuðu tel
ég mig geta fuliyrt að þessi tillaga
hafi hlotið mjög mikla athygli á þing-
inu,“ sagði hann.
Páll lagði áherslu á að nokkur
aukning hefði orðið á umsvifum
Norðurlandaráðs á síðastliðnu ári á
þann hátt að Norðurlöndin hefðu
komið fram í einstökum málum sem
heild út á við. Þetta ætti t.d. við
málalcitan við bresku stjórnina
vegna loftmengunar frá Bretlandi
sem ylli umtalsverðum skaða á skóg-
um í norðanverðri Evrópu. Hann gat
þess að untræddri málaleitan hefði
ekki verið tekið vel og því hefðu
Norðurlöndin í gegnum Norður-
landaráð talið sig knúin til að taka af
skarið með því að boða til ráðstefnu
um loftmengun sem sótt verður af
þingmönnumogsérfræðingumfrá 16
þjóðum austan tjalds ogvestan. Sjálf
ráðstefnan verður haldin í Stokk-
hólnti á komandi hausti.
„Það hefur verið mikil reynsla fyr-
ir mig að gegna embætti forseta
Norðurlandaráðs undanfarið ár og ég
hugsa með þakklæti til þeirra sem
hafa verið mér innan handar og sýnt
mér trúnað,“ sagði Páll. -SS
Frönsk kvikmyndavika í Regnboganum
Gullöld og nýbylgja
í dag hefst í Regnboganum frönsk
kvikmyndavika á vegum Alliance
Francaise.
Á henni verða sýndar sögufrægar
myndir eftir nokkra af þekktustu
leikstjórum Frakka. Bæði verða
sýndar myndir frá hinni svokölluðu
gullöld, sem stóð á árununt í kring-
um seinna stríð, og nýbylgjunni, sem
kom fram um 1960.
Fulltrúar gullaldarinnar eru þeir
Jean Renoir, René ClairogC. Áut-
ant-Lara, og nýbylgjumennirnir eru
Jean-Luc Godard, FrancoisTruffaut
og Eric Rohemer.
Bæði þessi tímabil er um margt
merkileg og hafa haft víðtæk áhrif á
kvikmyndasöguna. Gullöldin ein-
kenndist af sókn í tæknilega full-
komnun í leik og tækni. Nýbylgjan
var hinsvegar andsvar við gullöldinni
og leikurinn var einfaldaður og leik-
stjórnin gerð persónulegri.
Auk mynda frá þessum tímabilum
verða sýndar í þessari viku tvær nýrri
myndir eftir þá Jacques Demy og
Claude Sautet.
Bændur vilja
blaðafulltrúa
Bændur verða að nýta sér betur en
verið hefur til þessa fjölmiðla til að
koma á framfæri hagsmunamálum
sínum, og vera til andsvara óvægn-
um áróðri á stéttina, meðal annars
með því að.ráða hið bráðasta blaða-
fulltrúa til starfa hjá bændasam-
tökunum.
Svo ályktaði formannafundur
Búnaðarsambands A-Húnavatns-
sýslu á fundi sínum nú fyrir skömmu,
og vildi með þessu ítreka fyrri álykt-
anir sínar um þetta sama etm.
Erindið var lagt fyrir á Búnaðar-
þingi sem nú er að ljúka. Með erind-
inu fylgdi greinargerð, þar sem segir
m.a. „Markviss upplýsingamiðlun
verður æ ntikilvægari eftir því sem
samkeppnin harðnar. „Ennfremur
sagði í greinargerðinni að tillaga sú
sem send var Búnaðarþingi 1985 hafi
lítið látið af sér leiða.
-ES