Tíminn - 08.03.1986, Blaðsíða 24
Hálstöflur
W; •
meÖVlSA
ISLENDINGAR eiga sjötta besta handknattleikslandsliö í heimi, liö
sem er í A-flokki handknattleikslandsliöa og hefur tryggt sér þátttökurétt á Ól-
ympíuleikunum í Seoul áriö 1988.
í gær léku okkar menn gegn Spánverjum um fimmta sætiö í keppninni. Tap
var upp á teningnum 24-22 gegn meöalgóðum Spanjólum.
Sjá nánar á íþróttasíðu Tímans í dag.
1
Háu húsnæðislánin eftir 1. september:
Blankir fá ekki
að byggja/kaupa
Panhópurinn hefur vakið mikið umtal upp á síðkastið og hugsanlegt er að það umtal komi að einhverju leyti fyrir dómstólana.
Tímamynd Sverrir
Pan póstverslun:
Skólastjórinn biðjist afsökunar
- eða málið fer í lögfræðing
„Eitt merkasta atriðið sem
gert er ráð fyrir í nýjum út-
hlutunarreglum vegna hækk-
unar lána frá Húsnæðisstofn-
un er þaö, aö lántakcndur
veröa framvegis að sýna
t'ram á svo óyggjandi sé
hvernig þeir ætla að fjár-
magna mismuninn á láninu
og byggingarkostnaöi eða
kaupverði væntanlegrar
eignar," sagöi Víglundur
Þorsteinsson, m.a. á fundi
sem Landssamband lífeyris-
sjóða gekkst fyrir í gær í
sambandi viö þau stórauknu
kaup sjóðanna á skuldabréf-
um opinberu byggingasjóð-
anna sem samið var um í ný-
gerðum kjarasamningum.
En Víglundur skýrði þar
sjónarmið samningamanna
VSÍ við samningagerðina.
Fram kom hjá Víglundi að
gert er ráð fyrir að nýjar út-
lánareglur verði mótaðar í
Aflabrögö:
Næst mesti
afli í sógunni
Heildaraflinn í janúarog
febrúar í ár var rétt rúm 422
þúsund tonn, sanikvæmt
bráðabirgðatölum sem
Fiskifélag íslands hefur
sent frá sér. Aðeins einu
sinni áður í sögu fiskveiða
við landið hefur borist jafn
mikill afli á land í janúarog
febrúar en það var 1979
þegar heildaraflinn var
437.509 tonn.
Á tveim fyrstu mánuðum
þessa árs var þorskaflinn
72.400 tonn en annar bptn-
fiskafli var 32.354 tonn.
Loðnuaflinn á þessum tíma
var 309.041 tonn, rækju-
aflinn 3.631 tonn, hörpu-
disksaflinn 4.446 tonn og
185 tonn veiddust af síld.
Hlutur báta í heildar-
atlanum þessa tvo mánuði
var 366.239 tonn en hlutur
togara 55.818 tonn.
Séu tölur febrúarmánað-
ar skoðaðar var heildarafl-
inn 215.452 tonn og hlutur
báta af því 181.838 tonn og
hlutur togara 33.614 tonn.
Þorskaflinn í febrúar var
23.877 tonn, annar botnfi-
skafli var 12.175 tonn,
loðnuaflinn 141.287 tonn,
rækjuaflinn 2.154 tonn,
hörpudiskaflinn 2.183
tonn, og 162 tonn veiddust
af síld.
Lang mestum afla hér-
lendis var landað í Vest-
mannaeyjum fyrstu tvo
mánuði ársins eða samtals
65.840 tonnum. Næst
komu Eskifjörður 36.454
tonn, Seyðisfjörður 17.858
tonn.
Af afla lönduðum á þess-
um höfnum var mesti hlut-
inn loðna. Mestur botnfisk-
ur kom hins vegar á hafnir
suðvestanlands og fyrir
norðan, en Akureyri er
hæsta verstöðin í þorski og
Grindavík í öðrum botn-
fiskafla. -BG
sumar þannig að hægt verði
að fara að taka við umsókn-
um um ráðgerð 2,1 millj.
króna nýbyggingalán og tæp-
lega 1,5 millj. króna G-lán
eftir 1. september í haust. En
þau eru sem kunnugt er ætl-
uð þeim sem byggja/kaupa
sína fyrstu íbúð.
Gengið er út frá því að
meðal skilyrða fyrir svo
háum lánum verði það, að
lífeyrissjóður viðkomandi
umsækjenda hafi keypt
skuldabréf af byggingasjóð-
unum fyrir 55% ráðstöf-
unarfjár síns. Lánsupphæðir
fari stiglækkandi eftir því
sem skuldabréfakaupin eru
minni, t.d. aðeins 1.100 þús.
króna lán við 30% skulda-
bréfakaup.
Víglundursagði hafa verið
horfið frá þeim hugmyndum
sem mikið hefur verið rætt
unt áður en lána hverjum og
einum góða upphæð aðeins
einu sinni, lán sem menn síð-
an flyttu með sér milli eigna.
Menn hefðu komist á þá
skoðun að slíkar reglur gætu
jafnvel skapað meiri vanda
en þær leystu. T.d. væri sú
hætta að fólk færi í of stórar
framkvæmdir í 1. tilraun,
vandamál gætu skapast við
hjónaskilnaði, við sölu á
íbúð upp í væntanlega hús-
byggingu og fleira.
Með því að þessi háu lán
fylgja íbúðunum viö eig-
endaskipti sagði Víglundur
talið að innan fárra ára
mundi mjög draga úr þörf-
inni fyrir þessi háu G-lán.
-HEI
„Spurningin er hvort
sjóðir innan Landssam-
bands lífeyrissjóða ætla að
samþykkja þessi skulda-
bréfakaup af bygginga-
sjóðunum eða ekki. Mér
sýnist að annað hvort verði
þeir allir að kaupa fyrir
55% eða að enginn þeirra
kaupi neitt,“ sagði Pétur
Blöndal, form. Lands-
sambands lífeyrissjóða á
félagsfundi um þetta mál-
efni í gær.
Margir fundarmanna
höfðu ýmislegt við þessi
skuldabréfakaup að at-
huga, svo og áætlanir um
stóraukin húsnæðislán sem
fjármagna á með skulda-
bréfakaupunum. Ekki síst
var það vaxtamunurinn -
þ.e. að ríkið tæki lán hjá
Póstverslunin Pun hefur
skrifað Þorvarði Elíassyni
skólastjóra Verzlunarskólans
bréf þar sem farið er fram á aö
hann biðjist velvirðingar á
þeim ærumeiðandi ummælum
sem hann hefur viðhaft í fjöl-
miðlum að undanförnu. Þessi
meintu ærumeiðandi ummæli
koma í kjölfar þessað Þorvarð-
ur sagði upp stúlku sem vann á
skrifstofu Verzlunarskólans
gagngert vegna þess að hún
sjóðunum á 9% vöxtum
sem það endurlánaði síðan
með l%-3,5% vöxtum á
húsnæðislánum - sem
menn töldu ekki til heiila
horfa. Slíkt kerfi hlyti að
hrynja á örfáum árum.
„Hver á að borga þenn-
an gífurlega vaxtamun -
verður hann ekki allur tek-
inn af okkur skattborgur-
unum?“ „Þetta er engin
framtíðarlausn því kerfið
hlýtur fljótlega að
springa“. „Mér sýnist allt
stefna í það að ríkið hirði
alla peninga lífeyrissjóð-
anna - en greiði síðan öll-
um lífeyri þegar þar að
kemur. Horfumst bara í
augu við hvað er að gerast
með lífeyrissjóðina.“
vann sem sýningarstúlka í Pan-
hópnum í frístundum sínum.
í bréfi póstverslunarinnar er
það harmað að skólastjórinn
hafi „að því er virðist að óathug-
uðu máli tekið þá ákvörðun að
víkja Bryndísi M. Björnsdótt-
ur úr starfi fyrirvaralaust á for-
sendum sem orka mjög tví-
mælis.“ í bréfinu cr enn fremur
bent á að vörur verslunarinnar
séu allar tollafgreiddar á lög-
legan hátt, en hins vegar sé inn-
„Stóra krumlan er alltaf að
seilast lengra og lengra.“
Framangreindar tilvitnanir
gefa glöggt dænri um sjón-
armið margra fundar-
manna, sem töldu stefnt að
því að taka ráðin af sjóðun-
um um eigin fjármuni og
ávöxtun þeirra.
Sem dæmi um áhrif
vaxtamunarins bentu
stjórnarmenn á að sama
ársgreiðsla væri af 2.100
þús. kr. láni með 3,5%
vöxtum og 1.058 þús. kr.
láni með 9% vöxtum,
þannig að þeim sem fengi
lán væri í raun færður
helmingur þess að gjöf.
Þarna væri um 115 þús.
króna vaxtaniðurgreiðslu
að ræða á ári, af hverju 2,1
flutningur á klámvörum bann-
aður samkvæmt lögum. Með
tilvísun til ummæla Þorvarðar
Elíassonar um að Bryndís M.
Björnsdóttir hafi verið að
stuðla að sölu klámvara, fer
póstverslunin Pan fram á að
Þorvarður taki ummæli sín til
baka og biðjist velvirðingar á
þeim. „Að öðrum kosti á Pan
Póstverslun sf. ekki annarra
kosta völ en afhenda málið lög-
fræðingi."
millj. króna láni.
Talsmenn VSÍ og ASÍ á
fundinum töldu að vaxta-
byrðin væri þarna stórlega
ýkt þar sem gera megi ráð
fyrir að raunvextir muni
stórlega lækka áður en
langt um líður og umrædd-
ur vaxtamunur verði því
ekki svo mikill í framtíð-
inni. Víglundur Þorsteins-
son benti m.a á að raun-
vextir í nágrannalöndun-
um séu nú á bilinu 3-5% og
aldrei geti gengið að þeir
verði miklu hærri hér en
gerist annarsstaðar at-
vinnulífið mundi ekki þola
slíkt.
Um skuldabréfakaupin
samþykkti fundurinn ekk-
ert af eða á. Hins vegar var
Þorvarður Elíasson sagði í
samtali við Tímann í gær að
hann ræddi ekki við Póstversl-
unina Pan í fjölmiðlum og
sagðist ekki hafa í hyggju að
biðjast velvirðingar á ummæl-
um sínum. „Ég mun á engan
hátt svara þessu, nema þeir vilji
tala við mig fyrir dómstólum og
þá er það vitanlega sjálfsagt,"
sagði Þorvarður.
-BG
samþykkt að fara fram á að
fá áætlun frá byggingasjóð-
unum um greiðsluflæði
næstu 30 árin, þar sem
fram komi hver ávöxtun
verður og hver muni greiða
hallann af vaxtaniður-
greiðslunni. Eignir bygg-
ingasjóðanna verði gerðar
upp á grundvelli þeirra
áætlana miðað við hefð-
bundnar aðferðir við mat á
núvirði skulda og eigna
með mismunandi ávöxtun.
í samþykktinni kom fram
efasemd um að bygginga-
sjóðirnir geti greitt þetta fé
til baka þegar lífeyrissjóð-
irnir þurfa á því að halda til
lífeyrisgreiðslna.
- HEI
Landssamband lífeyrissjóða:
Ýmislegt við skulda-
bréfakaupin að athuga