Tíminn - 03.04.1986, Blaðsíða 10
10 Tíminn
MINNING
Fimmtudagur 3. apríl 1986
Fædd 16. júní 1894
Dáin 23. mars 1986
Smátt skul stækka
verk af vilja hreinum.
Vexti ná
j>ú gróðttr leynist fyrst.
Fræin veiku
verða tré með greinum.
Vökvuð árclögg
himinsólu kysst.
Ljóssins himinn
lilýjtim unaðstárum
Hjúkrar fræi
/>ví er sáium vér
Fagur viður
frjóvgast nœrmeð árum,
Friðarskugga
á grafir vorar ber.
Steingríimir Thorsteinsson
Þann 23. mars á pálmasunnudag
lést frú Sigríöur Eiríksdóttir, hjúkr-
unárkona og fyrrverandi formaður
Hjúkrunarfélags islands á 92. aldurs-
ári. Með Sigríði er genginn einn
ötulasti brautryðjandi í íslcnskum
hjúkrunarmálum og merkisberi
norrænnar samvinnu.
Brautryðjandi er með sínum langa
og merka starfsferli liafði víðtæk
áhrif á þróun heilbrigðismála í land-
inu ásamt málefnum hjúkrunarstétt-
arinnar.
Saga íslenskrar hjúkrúnarstéttar
er ung nær einungis aftur til alda-
móta. Svo virðist scm sagnariturum
fyrri tíma hafi þótt lítt frásagnarvert
að rita unt hjúkrunar- og líknarmál.
Vopnabrak, sverðaglamur og ættar-
dcilur einkcnna sagnaritun til forna.
Þar koma þó frant frásagnir af kon-
unt er bundu um sár særðra manna
og kunnu fyrir sér í lækningum.
Frægust er etv. frásögnin af bardag-
anunt á Hrísateigi í Víga-Glúmssögu
er Halldóra kona Glúms biöur konur
þær er hún hafði kvatt með sér til
bardagasvæöisins að sinna jafnt vin-
um sem óvinum.
,,Ok skultim vér binda sár
þcirra manna, er lífvænir
eru, ór Itvárra Uði sem eru.
Hér ræður mannkærleikur gjörðum
og sú hugsjón að allir Itafi sama rétt
á umönnun. Sama hugsjón endur-
speglast í siðareglum nútíma hjúkr-
unarstéttar.
Hörmungar þær sem dundu yfir
þjóðina á 14. öld drógu úr henni
mátt. Náttúruhamfarir sem höfðu í
för með sér fjárfelli, hungursneyð og
mannskæðar drepsóttir lömuðu
menningarlíf og alla þjóöfélags-
hætti. Almenn vclmegun fyrirfannst
ekki og sjálfstæðu andlegu lífi fór
hnignandi. Við Pláguna miklu
„Svarta dauða" árið 1402 keyröi þó
um þverbak. Þá er talið að Kvæða
Anna hafi hjúkrað mórgurn. Hennar
cr getið í Vísnakveri Fornólfs og
segir húnsvo frá árunum 1402-1403.
„Þegar að plágan yfir óð
og alt var að hrynja og cleyja,
ein af fám jeg uppi stóð
ótæpt saung jeg Itelgiljóð
eg huggaða marga
og hjúkaða má jeg segja. “
Sagnmyndin hjúka kemur þarna
fyrst frani og hefur Kvæða Anna
stundum verið talin fyrsta íslenska
hjúkrunarkonan.
Árið 1915 var merkisár. 19. júní
það ár öðluðust íslcnskar konur
kosningarétt og kjörgengi til jafns
við karla. Kosningaréttur þeirra var
þó skertur því cinungis konur sent
voru fjörutíu ára og eldri nutu hans.
Aldurstakmarkið átti síðan að lækka
árlega um citt ár frá gildistökunni
uns fullum jöfnuði að því leyti væri
náð. Þetta skerðingarákvæði varsíð-
an fellt niður árið 1920 með nýrri
stjórnarskrá. Þingsetningardaginn 7.
júlí sama ár efndu konur til hátíða-
halda og kunngjörðu að réttarbótar-
innar yrði minnst með fjársöfnun til
byggingar Landspitala. Merkiskon-
an Ingibjörg H. Bjarnason lýsti
þessu yfir fyrir hönd kvennanna.
Hún var einn af stofnendum lestrar-
félags kvenna í Reykjavík en það
varstofnað20. júlí 1911.1 húsakynn-
um þess var Félag íslenskra hjúkrun-
arkvenna stofnað í nóvember 1919.
Það var mikill hugur í konum árið
1915 hvað heilbrigðismál varðaði.
Fimmtán ár liðu þar til Landspítal-
inn tók til starfa árið 1930 og mark-
aði þáttaski! hvað snerti aðbúnað
sjúkra jafnframt því að vera
kennsluspítali lækna og hjúkrunar-
kvenna.
Öðrum merkum áfanga í hcil-
brigðismálum var einnig náð árið
1915 en það var stofnun Hjúkrunar-
félagsins Líknar. Frú Christophine
Bjarnhéðinsson fyrrverandi for-
stöðukona Holdsveikraspítalans í
Laugarnesi var þar í fararbroddi
ásamt fleiri konum. Meginmarkmið
félagsins var að annast hjúkrun í
heimahúsum og efla almenna heilsu-
vernd. Starfscmi Líknar inarkar
þáttaskil í heilbrigðismálum Reykja-
víkur þar sem félagið hafði frum-
kvæði að því að veita og skipuleggja
hjúkrun í heimahúsum og síðar að
lcggja grundvöll að víðtæku heilsu-
verndarstarfi.
Ársskýrslur Líknar geynta mikinn
fróðleik um heilbrigðisástand Reyk-
víkinga þau ár scm félagiö starfaði.
Þær bera þess líka vitni hvernig
skipulagt forvarnarstarf skilar sér. í
fyrirlestri sem Jón Sigurðsson þáver-
andi borgarlæknir flutti á norrænu
hjúkrunarkvennamóti í Reykjavík
árið 1960 scgir:
„Störf að heilbrigðismálum,
löggjöf stofnun sjúkrahúsa og aðrar
opinberar ráðstafanir og dagleg slörf
lækna og hjúkrunarkvenna til varnar
sjúkdómum btia etv. ekki yfir
dramatískum spenningi og skjótum
sigrum. En sé skyggnast um afsjón-'
arhóli og heildarsýn fettgin yfir
árangur alls þessa reynast heilsu-
verndarstörfin og hinir seinunnu sigr-
ar þeirra engan veginn sneydd dram-
atískum áhrifum.“
Sigríður Eiríksdóttir
hjúkrunarkona
fv. formaður Hjúkrunarfélags íslands
Frú Sigríður Eiríksdóttir hóf störf
hjá Líkn árið 1922 scm bæjarhjúkr-
unarkona. Hún var kosin formaður
Líknar árið 1931 og gcgndi því starfi
til ársins 1956 eða þar til starfsferli
félagsins lauk meö tilkomu Heilsu-
verndarstöðvar Reykjavíkur. í
samantekt frú Sigríðar um starfsemi
Líknar þau 41 ár sem félagið starf-
aði, kemur frant að strax árið 1919
gekkst félagið fyrir stofnun berkla-
varnarstöðvar og var það fyrsti vísir
að skipulögðum berklavörnum með-
al almennings hérlendis. Ungbarna-
vernd og mæðranefnd bættust síðar
við. Frá stofnun Líknarhöfðu hjúkr-
unarkonur þess farið í 277.098 vitj-
anir til sjúklinga en hversjúkravitjun
tók í þaö minnsta klukkustund.
Tugþúsunda heimilisvitjana voru
farnar á vegum berklavarnarstöðvar
og ungbarnanefndar. Formenn fé-
lagsins skipulögðu þessa þjónustu
sent var með öllu ókeypis utan
einstakra sjúkravitjana til fólks sem
óskaði þess sjálft að greiða þóknun
fyrir. Það var því í mörg Itorn að líta
og erilsamt formannsstarfið. Starf-
semi Líknar og saga Hjúkrunarfé-
lags íslands er samofin æviferli frú
Sigríðar Eiríksdóttur. þessa merka
brautryðjanda er ásamt öðrum for-
y,stukonum vörðuðu þá braut er við
hjúkrunarfræðingar nútíðarinnar
fetum.
Eins og áður er getið var Félag
íslenskra hjúkrunarkvenna stofnað í
nóventber 1919. Stórhuga konur
stóðu að stofnun þess. Á stofnfund-
inum kom fram að búið var að skrifa
bréf til danska félagsins og segja frá
fyrirhugaðri stofnun íslenska félags-
ins. Og ekki stóð á svari. Danska
hjúkrunarfélagið lofaði að styrkja
íslenska nemendur til frekara náms
tneð því að þeir gerðust félagar í
hinu danska. Slíkt þótti stórhuga
konum hin mesta firra og felldu með
öllum greiddum atkvæðum tillögu
þess efnis að félagið yrði deild innan
danska félagsins.
Þáttaskil urðu í sögu félagsins
þegar frú Sigríður Eiríksdóttir tók
við formannsstarfi árið 1924 fyrst
íslenskra hjúkrunarkvenna. Undir
styrkrl stjórn frú Sigríðar efldist
félagið og varð lciðandi afl í hjúkr-
unarmálum í landinu. Af mörgu var
að taka því akurinn var lítið
plægöur. Menntunarmál, aðbúnaö-
ur. kjör. hverskyns fag og félagsleg
málefni, verkefnin voru óþrjótandi.
í þrjátíu og sex ár stóð frú Sigríður
í fararbroddi, en hún lét af störfum
sem formaður árið 1960. Einbeitt.
fylgin sér en ávallt rciðubúin að líta
á málin frá fleiri hliðum. Launalegur
ávinningur var enginn því formanns-
starfið var ólaunaö, en ómælt álag
var það fyrir fjölskyldu og heimili
því þar fór starfsemin fram. í bók
sinni „Hjúkrunarsaga" hefur María
Pétursdóttir eftirfarandi orðrétt eftir
frú Sigríði sem hún skrifaði á aldar-
fjórðungs afmæli félagsins:
„Lá þá fyrst fyrir að liefjast Itanda
um hjúkrtinarnámið, en það mál var
erfitt viðureignar vegna skorts á
sjútkrahúsum I landinu. Var þá tekið
það ráð að komast að samkomulagi
við þau sjúkrahús, sem höfðu lærðar
yfirhjúkrunarkonur, um að nemend-
ur dveldu vissan tíma á hverjum stað,
2 átr í heild, og yrðu síðan sendir til
Danmerkur til 18 mánaðaframhalds-
náms."
Það er ekki fyrr en árið 1930 með
stofnun Landspítalansað hjúkrunar-
konuni var gert kleift að læra hér
heima. Stofnun Landspítalans var
því mikið hjartans ntál fyrir íslenskar
hjúkrunarkonur og áhugi mikill.
Frú Sigríður beitti sér ötullega í
þeim málum. Hún skrifaði öllunt
þeim konum er stunduðu hjúkrunar-
störf á landinu og hvatti þær til að
hafa áhrif á þingmenn kjördæmisins
í Landspítalamálinu. Væru þeir ekki
hlynntir því ættu þær ekki að kjósa
þá. Þá var ekki síður mikið metnað-
armál fyrir íslensku hjúkrunarstétt-
ina að hafa á að skipa vel menntuð-
um hjúkrunarkonum þegar hinn nýi
spítali tæki til starfa og mótaði
félagið tillögur unt menntun hjúkr-
unarkvenna. Þessar tillögur um nám
á Landspítalanum voru samþykktar
óbreyttar. Hjúkrunarskóli íslandser
síðan stofnaður árið 1931 og var frú
Sigríður Eiríksdóttir þá sem endra-
nær ötull stuðningsmaður að efla og
styrkja hjúkrunarnámið eftir kröf-
unt hvers tíma.
Málefni, sem félagið beitti sér
fyrir í fyrstu voru ntörg og róðurinn
oft erfiður. Aðbúnaðurinn og kjör
hjúkrunarkvenna voru bágborin og
lílill skilningur á að bæta þau. Félag-
ið kom fljótt á laggirnar nefnd sent
var falið það verkefni að semja
launataxta hjúkrunarkvenna. En við
ramraan reip var að draga. kom þar
til takmarkaðurskilningurá nauðsyn
sérmenntunar og hæfni til hjúkrun-
arstarfa, ásamt skilningsleysi al-
mennt á að hjúkrunarstörf þyrfti að
launa. Ekki bætti það heldur að
konur fengu yfirleitt lægri laun en
karlar. Það var erfitt og vandasamt
verk að standa í forystu fyrir bættum
kjörum. En ekki dugði að láta
deigan síga, enda hélt frú Sigríður
ótrauð áfram að vinna að hverskonar
réttlætismálum hjúkrunarkvenna,
má þar t.d. nefna stofnun Lífeyris-
sjóðs hjúkrunarkvenna árið 1943.
Hjúkrunarkonur á Norðurlöndum
stofnuðu með sér bandalag árið
1920. ísland gerðist aðili að sam-
bandinu árið 1923. Norræna sam-
vinnan var mikil lyftistöng fyrir
hjúkrunarkonur á íslandi, þá og er
það enn. Mikinn stuðning fengu
hinar íslensku hjúkrunarkonur í að
móta tillögur um námið hér heima
einnig hvað varðaði fagleg málefni
og kjör stéttarinnar. Frú Sigríður
starfaði alla tíð mikið á þeint vett-
vangi, sat í stjórn samtakanna 1924-
1965 og formaður var hún tímabilið
1939-1945. Hún var þar heiðursfé-
lagi og einnig allra hjúkrunarfélag-
anna á Norðurlöndum. Frú Sigri'ður
var ennfremur virkur fulltrúi síns
stéttarfélags í Alþjóðasambandi
hjúkrunarkvenna sem er elsta al-
þjóðastéttarfélag kvenna stofnað
1899. Hún varfulltrúi í Heimsfriðar-
ráðinu (World Council of Peace) frá
árinu 1952.
Frú Sigríðurskrifaði um heilbrigtí-
is- og þjóðfélagsmál í blöð og tímarit
og flutti mörg útvarpserindi unt
þessi mál átímabilinu 1934til 1955.
í fjölda ára kenndi frú Sigríður
heimilishjúkrun og heilsufræði í
Kvennaskólanunt og Húsmæðra-
skóla Reykjavíkur. Atorkukonur
sem þar stýrðu málum töldu án efa
mikinn feng í því að jafn menntuð
kona og víðsýn leggði þar hönd á
plóg með að fræða ungar stúlkur,
enda átti hún alla tíð gott með að ná
til og umgangast unga fólkið.
Frú Sigríður Eiríksdóttir var fædd
16. júní 1894 í Miðdal. Mosfells-
sveit. Móðir hennar var Vilborg
Guðnadóttir, húsfreyja frá Keldum
í Mosfellssveit. Faðir hennar var
Eiríkur Guðmundsson. bóndi í
Miðdal síðar trésmiður í Reykjavík.
Sigríður stundaði nám í Verzlunar-
skóla íslands árin 1911 og 1912 auk
tungumálanáms í ensku, frönsku og
þýsku í einkatímum. Að námi loknu
starfaði hún við verslunar- og skrif-
stofustörf í Reykjavík. Árið 1918 lá
leiðin tii Danmerkur, þar stundaði
frú Sigríður hjúkrunarnám í þrjú ár
og framhaldsnám í hjúkrun á fæðing-
ar- og handlækningadeild í 6 mánuði
við Rudolfinerhaus í Vínarborg árið
1922.
Heim kom hún árið 1922 og hóf
störf hjá Hjúkrunarfélaginu Líkn.
Einstakur starfsferill hennar og
brautryðjendastörf voru virt og
þökkuð. Frú Sigríður var sæmd
Florence Nightingaleorðunni árið
1949, æðsta heiðursmerki Alþjóða
rauðakrossins, og árið 1965 sæmdi
forseti íslands hana riddarakrossi
Hinnar íslensku fálkaorðu fyrir
hjúkrunar- og heilsuverndarstörf.
Frú Sigríður var gerður heiðursfélagi
Krabbameinsfélags Reykjavíkur á
30 ára afmæli félagsins árið 1979.
Árið 1926 giftist frú Sigríður Finn-
boga Rúti Þorvaldssyni, prófessor í
verkfræði við Háskóla íslands. Voru
þau hjón að allra sögn afar samhent
og studdu hvort annað. Finnbogi
lést í janúar 1973. Ekki fóru börn
þeirra hjóna varhluta af störfum
móðurinnar, og andstætt öðrum
borðstofuborðum þess tíma, flaut
þeirra borðstofuborð í pappírum og
skjölum ásamt ritvél frú Sigríðar.
Þau hjónin eignuðust tvö börn, Vig-
dísi Finnbogadóttur, forseta íslands,
og Þorvald Finnbogason, er lést
ungur maður.
Þeir sem þekktu hana náið segja
mér að starfsorka hennar, dugnaður
og áhugi hafi verið einstakur, hún
stundaði félagsstörfin af eldmóði,
las mikið um fagleg málefni og gaf
sér tíma til þess að lesa almennan
fróðleik, naut þess að sitja með
fallega handavinnu. Heimilið ein-
kenndist af hvoru tveggja í senn.
listastarfi húsmóðurinnar og starf-
semi formanns Félags íslenskra
hjúkrunarkvenna.
Hjúkrunarfélag íslands þakkar að
leiðarlokum óeigingjörn brautryðj-
endastörf og vonar að hjúkrunar-
stéttin beri gæfu til að halda því
starfi áfram sem frú Sigríður Eiríks-
dóttir átti svo drjúgan þátt í aö móta.
Dóttur frú Sigríðar, dótturdóttur
og fjölskyldu allri er vottuð dýpsta
samúð.
Ljúft er þar að Ijúka
lífsins sæld og þraut
við hið milda mjúka
móðurjarðar skaut.
S.Th.
Blessuð sé minning frú Sigríðar
Eiríksdóttur.
Sigþrúður Inginiundardóttir,
formaður
Hjúkrunarfélags íslands
Sigríður Eiríksdóttir vinkona mín
og samstarfsmaður um langt skeið
lést á helgri stund s.l. pálmasunnu-
dag, einmitt þá er presturinn hafði
yfir blessunarorðin í útvarpsmess-
unni. Hún kvaddi þennan heim eftir
langa sjúkrahúsadvöl, með ástríka
einkadóttur sér við hlið.
Þegar aldurhniginn sjúklingur
hverfur úr okkar vinahópi kemur
andlátið okkur ekki á óvart, en við
kveðjum hana með söknuði. Sam-
starf okkar í félagsmálum hófst seint