Tíminn - 03.04.1986, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 3. apríl 1986
Tíminn 5
UTLÖND
Hlllllllllll!
1111
iiiiiiiiiiiiii'
lllllllllllllllllllllllllll!
Bofors vopnafyrirtækiö í Svíþjóð í vanda:
Sakað um vopnasmygl
til Bahrain og Dubai
Nobel-iönaðarsamsteypan einnig inní myndinni -
Ásökunin kemur á slæmum tíma
er talinn um 1,2 milljarða dollara
virði og felst aðallega í sölu á
vopnum til Indlandshers. Taliðerað
þessi samningur muni skapa mikinn
fjölda atvinnutækifæra í Karlskrona
í Svíþjóð þar sem Bofors hefur
aðalbækistöðvar. Varsamningi þess-
um fagnað mjög þar um slóðir.
Saksóknarinn segir hinsvegar að
fjöldi fólks sem er tengdur Nobel
og Bofors fyrirtækjunum hafi selt
nieð ólöglegunt aðferðum ýmis vopn
s.s. flugvélaskeyti til Bahrain og
Dubai. Hann neitaði hinsvegar að
gefa upp nöfn eða fjölda þeirra sem
taldir eru vera viðriðnir þennan
ólöglega útflutning. Rannsókn þcssa
máls hófst árið 1984 og hefur staðið
síðan. Þessi rannsókn ntun sennilega
hafa skaðleg áhrif á Bofors fyrirtæk-
ið og þegar hefur einn af fram-
kvæmdastjórum fyrirtækisins, Claes
Winberg, sagt af sér vegna þessa
máls.
Það ntun skýrast á næstunni hvaða
áhrif þessi málsrannsókn hefur á
samning Bofors og Nobel-fyrirtækj-
anna við Indverja. Sá samningur var
gerður með stuðningi og hjálp ríkis-
stjórnar Svíþjóðar.
Stokkhólmur-Keuter
Saksóknari Svíaríkis tilkynnti í
gær að hann og samstarfsmenn hans
hefðu stigið stórt skref í málinu gegn
stærsta vopnaframleiðanda Svíþjóð-
ar, Bofors vegna meintra saka fyrir-
tækisins um smygl á vopnuni. Sagði
saksóknarinn, Stig Age, að hann
hefði tilkynnt fjölda verktaka innan
Nobel -iðnaðarfyrirtækisins og
vopnaframleiðslufyrirtækisins Bo-
fors að þeir væru grunaðir um að
hafa brotið lög varðandi útflutning.
Þessi tilkynning kemur aðeins ein-
um degi eftir að Bofors fyrirtækið
tilkynnti að það hefði gert stærsta
útflutningssamning sem gerður hef-
ur verið í Svíaríki. Þessi samningur
Sænskir með sín eigin vopn. Nú ku þau hafa farið eftir ólöglegum leiðum til
Bahrain og Dubai og kannski eitthvað annað líka.
s
Gpps, klaufi varstu
... en þetta gerir svo sem ekkert til
Effco þurrkan gerir hluti sem þessa að smámáli
Enginn sem á Effco þurrku kipp-
ir sér upp við svona smáslys. Enda
þurrkar Effco þurrkan upp allt sem
sullast og hellist niður. Með Effco
þurrkunni er enginn vandi að halda
eldhúsinu fínu, sama hvað gengur
á. Hún gerir eldhússtörfin ánægju-
legri en nokkru sinni fyrr. En hún
er ekki bara til að þrífa þess háttar
ósköp. Þú notar hana líka til að
þrífa bílinn - jafnt að innan sem
Effco-þurrkan fæst á betri bensínstöðvum
og verslunum.
Heildsala Höggdeyfir — EFFCO sími 73233
Lokað
vegna jarðarfarar
Rannsóknastofnun landbúnaöarins veröur lokuö
eftir hádegi, föstudaginn 4. apríl vegna útfarar
Ásgríms Jónssonar tilraunastjóra.
utan. Það er alltaf öruggara að hafa
Effco þurrkuna við hendina, hvort
sem það er á heimilinu, í sumar-
bústaðnum, bátnum eða bílnum.
Já, það er fátt sem reynist Effco
þurrkunni ofraun.
Forsetakosningar í Austurríki:
Waldheim neitar
ásökunum gyðinga
Vinsældir hans aukast heldur en hitt
Vín-Reuter
Fyrrum aðalritari Sameinuðu
þjóðanna, Kurt Waldheim, segir
ekkert hæft í þeim ásökunum Al-
þjóðaráðs gyðinga þess efnis að
hann hafi verið handbendi nasista
á Balkanlandsskaganum. Samtök
gyðinga skýrðu frá því í gær að
nýjar upplýsingar sem koma frá
Júgöslavíu og Grikklandi sanni að
Waldheim hafi tekið þátt í hryðju-
verkum og aftökum í Króatíu og á
Balkanlandsskaganum með nasist-
um árið 1942. Waldheim neitar
þessum ásökunum og segir ekkert
hæft í þeim. Þeir sem styðja Wald-
heim í komandi forsetakosningum
í Austurríki segja að skipulega sé
verið að reyna að koma í veg fyrir
að hann nái kjöri.
Það skemmtilegasta við allt þetta
mál er að vinsældir þessa 67 ára
gamla manns hafa heldur aukist
heldur en hitt eftir að hann var
borinn þessum sökum af Alþjóða-
ráði gyðinga.
Gaddafi semur
Ijóð og sefur
í náttskyrtu
Bonn-Reutcr.
Gaddafi Líbýuleiðtogi segist
hlusta mikið á Beethöven og skrifa
Ijóð, í viðtali sem þýska vikublaðið
Bunte birti í gær. Gaddafi segist
stundum gráta í einrúmi.
í viðtalinu segir Gaddafi að Kofi
Tómasar frænda sé uppáhaldsskáld-
sagan hans, og hann sjálfur skrifi
stundum Ijóð og semji smásögur.
Annars var komið víða við í
viðtalinu, sem blaðamaðurinn Stef-
anie Tiepelt átti við Gaddafi í bedú-
inatjaldi fyrir utan borgina Beng-
hazi. Hún spurði m.a. um skoðanir
Gaddafis á kvenfrelsi, sem Gaddafi
studdi, og hvort leiðtoginn svæfi
ber. Gaddafi sagðist reyndar sofa í
náttskyrtu.
Vegna jarðarfarar frú Sigríöar Eiríksdótturfyrrver-
andi formanns Hjúkrunarfélags íslands verður
skrifstofa félagsins lokuð frá hádegi í dag.
Hjúkrunarfélag íslands.
t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi
Björn Stefánsson
Aðalgötu 20, Ólafsfirði
verður jarðsunginn frá Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn 5. apríl kl.
14.00.
Júlíanna Jónsdóttir
Rakel Jónsdóttir Indriði H. Þorláksson
Jón Þór Björnsson Hanna B. Axelsdóttir
Stefán Björnsson Pálína Steinarsdóttir
Ermenga S. Björnsdóttir Hákon Erlendsson
HörðurBjörnsson Guðrún Gunnarsdóttir
og barnabörn
t
Útför sonar okkar, bróður, mágs og frænda,
Hafþórs Más Haukssonar
Fjaröarasi 28, Reykjavík
sem lést af slysförum 20. janúar 1985, fer fram frá Langholtskirkju
föstudaginn 4. apríl kl. 16.00.
Þeim sem vildu mlnnast hans er bent á björgunar- og hjálparsveitir.
Sigrún Steinsdóttir Haukur Harðarson
Dagrún Helga Hauksdóttir Bergþór Bjarnason
Vignir Bragi Hauksson Katrfn Sif Ragnarsdóttir
Andri Már Bergþórsson
t
Bróðir minn,
Stefán Ketilsson,
frá Minni-Ólafsvöllum,
fyrrum bóndi, Roðgúl, Stokkseyri
verður jarðsunginn frá Ólafsvallakirkju, Skeiðum, laugardaginn 5.
apríl kl. 14.00.
Jón Ágúst Ketilsson