Tíminn - 03.04.1986, Blaðsíða 1
^ ^ _ STOFNAÐUR1917
lirmrm
RAUSTIR
MENN
25050
senDiBiUBTöDin
UTANRÍKISRÁÐHERRA,
Mattías Á. Mathiesen, kallaði sendiherra
Sovétríkjanna, Evgeniy A. Kosarev, á sinn
fund í gær vegna þeirra upplýsinga Skák-
sambands íslands aðsovéski stórmeistarinn
Boris Gulko hafi ekki fengið að yfirgefa
Sovétríkin til að taka þátt í síðasta
Reykjavíkurskákmóti. Sambandið fór þess
á leit við ráðherra að hann aflaði skýringa
sovéskra yfirvalda á synjuninni. Utanríkis-
ráðherra vakti jafnframt máls á neitun
sovéskra yfirvalda að heimila Gulko og
fjölskyldu hans að flytja frá Sovétríkjunum og
afhenti sendiherranum minnisblað þar sem
fram kemur að það væri í samræmi við
ákvæði ýmissa fjölþjóðlegra samþykkta ef
breyting yrði á í þessu máli.
NÝ UMFERÐARLJÓS verða
tendruð við Bústaðaveg í dag, við gatnamót-
in við Háaleitisbraut og Grensásveg. Ljósin
verða samstillt við áður uppsett umferðarljós
við Réttarholtsveg og Bústaðavegsbrú og
fæst þannig „græn bylgja“ ef ökuhraðinn er
50 km á klst. Ljósin verða látin blikka gulu
Ijósi á nóttunni milli kl. 1 og 7.
PETUR Ein-
arsson hefur verið
ráðinn leikhús-
stjóri Leikfélags
Akureyrartil næstu
tveggja ára og tek-
ur hann við starfi af
Sígnýju Pálsdóttur
sem verið hefur
leikhússtjóri LA
undanfarin sex ár.
Alls bárust fimm
umsóknir frá sex
aðilum um stöð-
una.
AKUREYRARBÆR hefur ákveð-
ið að lækka gjaldskrá Rafmagnsveitu Akur-
eyrar um 12,67% og Hitaveitu Akureyrar um
3%. Fyrst var farið fram á að hitaveitan
lækkaði gjaldskrá sína um 7% en ekki var
talið hægt að verða við því en hinsvegar mun
fyrirhuguð hækkun á gjaldskránni 1. júní n.k.
ekki koma til framkvæmda að fullu.
DÓMUR FÉLL í gær í Bæjarþinai
Reykjavíkur þar sem úrskurðað var að
gengismunur, sem tekinn var af mörgum
tegundum sjávarafurða með bráðabirgða-
löqum eftir gengisfellingu 1983 brjóti í bága
við stjórnarskrána.
Hér er um að ræða prófmál og er búist við
að ríkisstjórnin muni áfrýja þessum dóm til
Hæstaréttar.
SVERRIR JÓMASSON mið
aldafræðingur á Árnastofnun gegnir nú á
vormisseri prófessorsembætti við háskólann
í Berkeley, Kaliforníu. Hann er staðgengill
Carol J. Clover sem er prófessor við skólann
í forníslensku. Sverrir Tómasson hefuráður
verið lektor í ís-
lensku við háskól-
ann í Kiel, kennt
fornbókmenntir við
heimspekideild
Háskólaíslandsog
flutt fyrirlestra við
háskóla í London
og Cambridge.
ELDUR KVIKNAÐI , reykhúsi i
Bolholtí 6 í fyrrinótt. Slökkvilið kom á vettvang
um klukkan 4:30 um nóttina. Glóð úr reykofni
hafði valdið íkveikju í skilrúmi við reykofninn.
Slökkvilið komst inn í reykhúsið með því að
taka hurð af hjörum og urðu engar skemmdir
á húsnæðinu. Greiðlega gekk að komast
fyrir eldinn.
KRUMMI
„... málræktarsinnaðir
dópistar eru víst hættir
að verða stónd. Þeir
verða Hraunaðir."
Rússneska olíuskipið Vasiliy Porky lá við Laugarnes í gær, en það kom lil landsins á annan í páskuni ineð larm af bensíni og gasolíu á lága
verðinu. I*að landaði fyrst í Hafnarfirði, síöan í Örfiriscy og síödegis í gær og í gærkvöld í Laugarnesi. Vasiliy Porky álti að fara aftur uin
fjögurlcytið í morgun, en von cr á öðru rússnesku olíuskipi meö gasolíufarm á sunnudaginn.
(Tímanivnd Sverrir)
Flugvélafiskur til Hamborgar
- nýr karfi á matborð þýskra veitingahúsa?
Hér á landi eru nú staddir aðilar frá
Hamborg sem áhuga hafa á að
kaupa ferskan fisk frá íslandi til
dreifingar og sölu á þýskum veit-
ingahúsum. Hér er um að ræða
kaup á fiski sem fluttur yrði með
flugi til Hamborgar, en Arnarflug
mun hefja beint flug þangað þann
10. apríl nk.
t>að er fyrirtækið Pardus sem
stendur á bak við komu Þjóðverj-
anna hingað en það hefur þegar
gert rammasamning við kaupanda
í Hamborg, með þeim fyrirvara að
Þjóðverjarnir séu ánægðir með að-
stöðu og framleiðsluna hérlendis,
en það er jafnframt ástæðan fyrir
komu þeirra hingað.
Að sögn Kolbeins Sigurjónsson-
ar hjá Pardusi, er þegar búið að
semja við Arnarflug um flutning
fisksins, en um er að ræða 5 tonn
af karfaflökum á viku. „Þetta er
kannski ekki svo mikið magn, en
ég tel mikilvægt að komast inn á
þennan markað og beina flugið
gefur okkur góða möguleika á að
bjóða þýskum veitingahúsakeðjum
ferskari og betri vöru en nokkur
annar,“ sagði Kolbeinn.
Til að byrja með verður helst
leitað fanga um fisk frá Akranesi,
en að sögn Kolbeins verður höfð
samvinna við fyrirtækið Fiskafurð-
ir sem verið hefur í þessum útflutn-
ingi og hefur tengsl við vinnslu-
stöðvar hér heima.
Útflutningur á ferskum fiski með
flugvélum er ekki nýr af nálinni þó
hann hafi aðeins verið lítið brot af
öllum ferskfiskútflutningi íslend-
inga en þessi útflutningur hefur þó
farið vaxandi.
-BG
Neita að
svara!
Fyrir nokkru lagði Guðmundur
Einarsson fram fyrirspurn til við-
skiptaráðherra á Alþingi um van-
skil korthafa hjá greiðslukorta-
fyrirtækjum. Svar Matthíasar
Bjarnasonar samgöngu- og við-
skiptaráðherra er sem hér segir:
„Vegna fyrirspurnar þessarar sendi
ráðuneytið greiðslukortafyrirtækj-
unum Kreditkortum hf. og
Greiðslumiðlun hf. (áður VISA
ísland hf.) bréf þar sem þess var
farið á leit að fyrirtækin gæfu
upplýsingar um vanskil korthafa
um s.l. áramót. Svör fyrirtækjanna
hafa nú borist ráðuneytinu og láta
þau bæði í ljós það álit að þeim sé
eigi heimilt né skylt að veita um-
beðnar upplýsingar."
„Nóg af dópi á Hrauninu"
- segir stokufangi í felum í samtali viö Tímann
Strokufangarnir frá Litla-
Hrauni. Sá dökkhærði, Unn-
ar Sigurður Hansen segir svo
frá í viðtali við Timann: „Ég
stal sög af verkstæðinu og
notaði hana síðan til þcss að
saga með rimlana í gluggan-
umog komst þannigút. Þegar
ég hafði hlaupið talsverðan
spöl frá fangelsinu var kallað
á mig og ég beðinn að
stoppa.“
Þcir félagar ákváðu að liafa
samband við fjölmiðil, og
varð Tíminn fyrir valinu. Þeir
gagnrýna dómskerfið og
seinagang þann sem þar við-
gengst í viðtali á bls 3.
„Það er alltaf til dóp á
Hrauninu. Hassið kostar
fimmtán hundruð krónur
grammið og amfetamín meta
menn ekki til fjár. Eftir heim-
sóknir þá djönka menn sig í
hel. Fangaverðimir em ánægð-
ir þegar hass er í húsinu, því
að þá eru menn rólegir, og
lítið að gera. Mannskapurinn
verður hinsvcgar órólegur
þegar töflur eru til og allir
upp tjúnaðir."
Blaðamaður frá Tímanum
hitti þá félaga að máli í íbúð-
arhúsi í Hafnarfirði, og varð
það að samkomulagi að hann
skyldi segja til þeirra nokkru
síðar. Þegar leitað var í hús-
inu fundust þeirckki. Stroku-
fangarnir eiga yfir höfði sér
mánaðar einangrun eða jafn-
vel meira þegar þeir finnast.
-ES
Strokufangarnir Aöalsteinn og Unnar Sigurður. Þeirra bíður mánaðar
einangrun fyrir strok. Tímamynd Eggert
-SS