Tíminn - 15.04.1986, Qupperneq 1
NORSKUR RÆKJUTOG-
ARI , Ole Nordgard strandaöi í ísafjarð-
arhöfn á tíunda tímanum í gærkvöld.
Togarinn var á útleið þegar hann strand-
aði á leirbotni í höfninni á móts við
menntaskólann. Rækjutogarinn Hafþór
dró norska skipið laust aftur rúmum
klukkutíma eftir að það hafði strandað.
Ekki var Ijóst í gærkvöldi hvort skemmdir
urðu á norska skipinu, en það var talið
ólíklegt.
MARTA UNNARSDÓTTIR
og Sigurður Gestsson urðu um helgina
íslandsmeistarar í vaxtarrækt á íslands-
móti í Broadway. Þetta er annað árið í röð
sem Sigurður vinnur íslandsmótið í
vaxtarrækt og nú atti hann kappi við Jón
Pál Sigmarsson sem einnig hefur orðið
íslandsmeistari i þessari íþróttagrein.
Júlíus Ágúst Guðmundsson varð Islands
meistari í unglingaflokki.
BSRB hefur ákveðið að fresta auka-
þinai því um skipulagsmál sem ákveðið
hafði verið að halda í maí. Aukaþingið
verður þess í stað haldið í nóvember og
var sú ákvörðun tekin til að betri tími gefist
til að ræða skipulagsmál bandalagsins í
félögunum.
BIRT VAR ÁKÆRA í okurmál-
inu í Sakadómi Reykjavíkur í gær. Ákær-
an var birt nokkrum mönnum sem lánuðu
aðalsakborningi, Hermanni Björgvinssyni
sameiginlegan spilasjóð sinn. Málið var
um leið þingfest.
Alls lánuou mennirnir Hermanni um sjö
hundruð þúsund krónur. Málið verður
fljótlega tekið fyrir í Sakadómi Reykjavík-
ALEXANDER STEFÁNS-
SON félagsmálaráðherra sat fyrir
nokkru fund á vegum Evrópuráðsins þar
sem evrópskir jafnréttisráðherrar fjölluðu
um aukna hlutdeild kvenna í stjórnmálum
og ákvarðanatöku í þjóðfélaginu. Með
ráðherranum á fundinum var Gylfi Krist-
insson, deildarstjóri í félagsmálaráðu-
neytinu. Fulltrúar frá öllum aðildarríkjum
Evrópuráðsins tókuk þátt í ráðherrafund-
inum. Auk þeirra sátu fundinn fulltrúar frá
Finnlandi, Kanada, Júgóslavíu og nokkr-
um alþjóðastofnunum, samtals 105 full-
trúar.
FRANSKA skáldkonan og heim-
spekingurinn Simone De Beauvoir lést á
sjúkrahúsi í gær 78 ára að aldri. Beauvoir
var lengi í tygjum við Jean-Paul Sartre.
Hún er best þekkt fyrir bók sína „The
second sex“ þar sem hún rannsakaði alls
konar form kynjakúgunar. Sú bók átti sinn
þátt í stofnun nútíma kvennabaráttuhreyf-
inga.
KRUMMI
Okurmálið tekur óvænta stefnu
Hermann farinn
af landi brott
Hermann Björgvinsson, aðal-
sakborningur og aðalvitni ákæru-
valdsins í okurlánamálunum fór
erlendis síðastliðinn laugardag.
Hermann er ekki í ferðabanni, en
innan nokkurra daga átti að birta
honum ákæru í málinu. Líkur
benda til þess að tafir verði á
afgreiðslu mála nokkurra einstakl-
inga sem ákærðir hafa verið vegna
okurmálsins.
Ekkert hefur komið fram sem
bendir til þess að Hermann hafi
flúið land með fjölskyldu sína.
Ekki tókst að afla upplýsinga um
hvert Hermann og fjölskylda hans
héldu, en fjórar vélar fóru frá
Flugleiðum á laugardag. Til New
York, Chicago, Kaupmannahafnar
og Glasgow.
Ólöf Pétursdóttir héraðsdómari
Nauðgun?
Maður var í gær úrskurðaður í
gæsluvarðhald til fjögurra daga,
vegna nauðgunarkæru sem stúlka
lagði fram á hendur honum. Málið
er í rannsókn og á mjög viðkvæmu
stigi sagði lögreglumaður hjá rann-
sóknarlögreglunni í gær.
í Kópavogi frétti í gær að Hermann
væri farinn erlendis og staðfesti
útlendingaeftirlitið það við hana.
Ólöf sagði í samtali við Tímann í
gær að það væri matsatriði í hverju
máli fyrir sig, þar sem okurmálið
væri tekið fyrir, hvort Hermann
væri kallaður sem vitni. Hún sagði
að hægt væri að birta öllum ákærur
nema Hermanni ef hann yrði ekki
kominn heim þá. Verjandi
Hermanns, Grctar Haraldsson,
dvelst úti á landi og hefur enginn
náð í hann fyrir þær sakir. -ES
Annarleg
heimsókn
„Ég hef nú aldrei fcngið
svona heimsókn áður,“ sagði
húsráðandi á Kambsveginum
í Reykjavík þegar knúð var
dyra hjá honum á laugardag.
Þessi Subaru bifreið er mikið
skemmd eftir að ökumaður
missti vald á bifreiðinni og hún
fór inn í garð, í gegnuni
grindverkið og yfir ruslatunn-
una og niður tröppurnar.
Engin meiðsl urðu á fólki.
- ES/Tímamynd-Sverrir
Ferðamaður rændur
og honum misþyrmt
- málið er upplýst segir RLR
Þrír Reykvíkingar misþyrmdu
dönskum manni í grennd við
Hótel Loftleiðir, aðfaranótt laug-
ardags og rændu veski hans og
skilríkjum.
Daninn var að skemmta sér á
veitingastaðnum Kreml við Aust-
urvöll. Þegar hann kom út af
staðnum var honum boðin öku-
ferð með þremur mönnum. Hann
þáði farið. Þegar hafði verið ekið
um bæinn í nokkurn tíma kom
upp ósætti í bílnum og var hann
stöðvaður. Daninn fór út úr bíln-
um og var eltur uppi af mönnun-
um þremur. Þegar þeir náðu
honum réðust þeir að honum og
börðu hann í götuna. Síðan
spörkuðu þeir í hann. Áður en
þeir yfirgáfu manninn rændu þeir
veski hans. Jakki mannsins var
allur rifinn, og vantaði stykki í
jakkann þar „sem veskið hafði
verið. 26 krónur voru í veskinu,
auk skilríkja. Eftir rúmlega hálf-
tíma fékk maðurinn bíl og komst
upp á slysavarðstofu, þar sem
hann var saumaður í andliti eftir
barsmíðina.
Að sögn Rannsóknarlögreglu
ríkisins er málið upplýst og vitað
hverjir misþyrmdu manninum.
Daninn kærði málið á laugar-
dag til Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins. - ES
Nýr miðbær í austurborginni
hugmyndum um Fossvogsbraut endanlega vikiö til hliðar
10-15% lægra í austanverðri Hugmyndin er að austur-mið-
borginni þótt þar séu öll hús bær rísi í Suður-Mjódd og tengist
nýleg. því athafnasvæði sem fyrirhugað
Þessu er hægt að breyta með er í næsta nágrenni. Þar verður
veglegur miðbæjarkjarni með
allri eðlilegri þjónustu og því
mannlífi sem miðborgum fylgja.
Frá þessu svæði eru greiðar sam-
göngur í allar áttir og greið leið
úr hverfum austurborgarinnar.
Nær helmingur Reykvíkinga
býr austan Elliðaáa. Samt er
skipulagi þar svo háttað að hverf-
in eru nánast svefnbæir, þjónusta
léleg, atvinnufyrirtæki víðsfjarri
og um langan veg að fara til að
komast í iðandi mannlíf og í
námunda við þær stofnanir sem
allir borgarbúar eiga erindi við.
Af þessum sökum er íbúðaverð
réttu skipulagi og liggja fyrir
hugmyndir og tillögur þar um.
Þetta kemur fram í viðtali við
Alfreð Þorsteinsson, sem skipar
2. sætið á lista Framsóknarflokks-
ins til borgarstjórnarkosninga.
Með tilkomu austur-miðbæjar
verður hin umdeilda Fossvogs-
braut óþörf og leggja framsókn-
armenn til að horfið verði frá;
lagningu hennar en Fossvogurinn
gerður að útivistarsvæði, sem nær
allt frá Nauthólsvík inn að Ell-
iðaám.
Nánar um þessi baráttumál
framsóknarmanna í Reykjavík
og fleira um tillögur þeirra og
stefnu á bls. 12.