Tíminn - 22.04.1986, Qupperneq 5
Þriðjudagur 22. apríl 1986 Tíminn 5
llllllllllllllilllllllll ÚTLÖND ~
AFRÍKA:
Matvælaskortur minni
en framtíðin er óljós
Genf-Reuter
Matvælaframleiðsla hefur nú auk-
ist að nýju í flestum löndum Afríku
og einungis sex lönd, öll suður af
Saharaeyðimörkinni, munu þurfa á
neyðarhjálp að halda á þessu ári
vegna matvælaskorts. Þetta kemur
fram í skýrslu sem Alþjóða matvæla-
og landbúnaðarstofnunin (FAO) gaf
út um helgina.
Þrátt fyrir aukningu í samanburði
við síðustu ár er matvælaframleiðsla
á hvern einstakling í Afríku enn
minni en hún var að meðaltali á
síðasta áratug. Ennfrcmur segir í
skýrslunni að ýmis teikn séu á lofti
um að þjóðir Afríku muni verða
háðari innflutningi á matvælum um
1990 en nú er.
Ríki þau sem beðið hafa um
aðstoð á þessu ári eru Angola,
Botswana, Eþíópía, Mozambique,
Súdan og Grænhöfðaeyjar. Þurrkar
ellegar innanlandsófriður eru helstu
ástæðurnar fyrir að ríkin biðja um
þessa hjálp.
í skýrslunni er bent á nauðsyn
þess að koma upp upplýsingakerfi
sem varað geti við hugsanlegum
hungursneyðum með góðum fyrir-
vara. Matvælaflutningar ganga
nefnilega hægt fyrir sig í Afríku þar
sem samgöngukerfi heimsálfunnar
er slæmt.
Þótt hungursneyð-
inhafiíbili veriðað
mestu kveðin niður
í mörgum Afríku-
ríkjunum bendir
fátt til þess að fram-
undan séu betri
tímar með blóm í
haga.
FRÉTTASKÝRING:
Efnahagurinn dafnar en
lýðræðinu er ábótavant
Stjórnvöld í Suður-Kóreu líta Evrópu vonaraugum - Beinna
forsetakosninga krafist heima fyrir
Ekki barði Chun forseti S-Kóreu bjöllu í Evrópu heldur aflaði viðskiptasam-
banda að eign sögn. Andstaðan gegn Chun og stjórnvöldum hefur farið
vaxandi heima fyrir.
Chun Doo Hwan forseti Suður-
Kóreu kom til síns heima í gær eftir
fimmtán daga ferðalag til Evrópu.
Hann sagði við heimkomuna að
samkomulag hefði náðst um ýmis-
konar viðskipti og tæknisamvinnu
og ætti það enn að koma til góða
batnandi efnahagslffi landsins.
Chun heimsótti Bretland,
Frakkland, V-Þýskaland og Belgíu í
ferð sinni en stjórnvöld í Suður-Kór-
eu hyggjast reyna að koma útflutn-
ingsvörum landsmanna í auknum
mæli á markað í Evrópu.
Efnahagsástandið í Suður-Kóreu
hefur batnað mjög á þessu ári, þökk
sé lækkandi olíuverði, sterku yeni
og minni vöxtum.
Einn ókostur er þó við sterka
stöðu yensins og er hann sá að
japanskar innflutningsvörur hafa
hækkað verulega í verði. Suður-Kór-
eubúar hafa hingað til verið mikið
upp á Japana komnir í sambandi við
varahluti í bíla, rafmagnstæki og
annað slíkt.
Ferð Chuns forseta var því farin í
því skyni að afla nýrra verslunar-
sambanda í Evrópu en hlutur Suður-
Kóreubúa á þeim markaði hefur
aðeins numið 1%.
„Því fyrr sem Suður-Kórea snýr
sér að Evrópu því betra,“ segir
James Todd stjórnandi samsteypu
viðskiptabanka í Suður-Kóreu.
Ekki er þó víst að slíkir hlutir
gerist í einni svipan þrátt fyrir ferð
Chuns. Hér koma inní myndina
hlutir eins og landfræðileg lega og
tungumálavandamál. Það er því
nokkuð ljóst að Japanar munu enn
um sinn vera stærsti viðskiptaaðili
Suður-Kóreubúa.
Viðskipti voru þó ekki eina um-
ræðuefnið á fundum Chuns forseta
með evrópskum ráðamönnum. Bæði
Helmut Kohl kanslari V-Þýskalands
og Jacques Chirac forsætisráðherra
Frakklands bentu forsetanum á að
aukið lýðræði í Suður-Kóreu væri
forsenda aukinna viðskiptatengsla.
Talsverður órói hefur verið í land-
inu undanfarna mánuði og er aðal-
krafa stjórnarandstöðunnar sú að
efnt verði til beinna forsetakosninga
í landinu. Forseti er samkvæmt lög-
um valinn af kosningaráði einu er í
sitja 5000 manns.
Stúdentar hafa verið í fylkingar-
broddi þeirra sem til óeirða hafa efnt
og hefur oft komið til harðra átaka
milli þeirra og lögreglu, nú síðast í
gær þegar sjö þúsund stúdentar mót-
mæltu og kröfðust uppsagnar Chuns.
í síðustu viku var efnt til mikillar
mótmælagöngu í borginni Taejun og
þykir víst að órói eigi eftir að aukast
komi ekki til neinar breytingar í
lýðræðisátt af hálfu Chuns og stjórn-
ar hans.
LIECHTENSTEIN:
Karlremban á undanhaldi
Konur hafa nú fullan kosningarétt alls
staðar í smáríkinu
Vaduz-Reuter.
Síðustu vígi karlrembunnar í
litla Alparíkinu Liechtenstein féllu
um helgina er fullur kosningaréttur
var þar samþykktur til handa
konum.
Konur eru um 55% af þeim sem
kosningarétt hafa í Liechtenstein
en þeimhafði þar til um helgina
verið neitað að kjósa í bæjar- og
sveitarstjórnarkosningum í þrem-
ur af ellefu héruðum landsins.
Um helgina samþykktu hinsveg-
ar að meðaltali um 54% karlmanna
í héruðunum Balzers, Triesen og
Triesenberg að konur mættu vera
með í ráðum um innansveitarmál ■
efni.
Konur í Liechtenstein kusu fyrst
í almennum kosningum í janúar
síðastliðnum er efnt var til þing-
kosninga. í landinu. Það var árið
1984 sem samþykkt var að konur
mættu kjósa um landsmálefni en
hvert hérað varð síðan að ákveða
fyrir sig með kosningarétt kvenna
í héraðsmálefnum.
FINNLAND:
Deilur magnast
Helsinki-Reutcr.
Vinnudeilurnar í Finnlandi
mögnuðust enn fiekar í gær þegar
tíu þúsund rafvirkjar lögðu niður
störf. Verkfall ríkisstarfsmanna
hefur nú staðið í viku og hefur
Utlönd
Umsjón:
HEIMIR
BERGSSON
komið sérstaklega illa niður á
járnbrautar- og flugsamgöngum og
annarrri þjónustu til handa al-
menningi.
Byggingarverkamenn eru einnig
í verkfalli en það hófst síðasta
föstudag.
Samtök rafvirkja hafa hótað að
loka í dag tveimur kjarnorkuverum
og öðrum orkuverum í landinu.
Alls eru 42 þúsund ríkisstarfs-
menn í verkfalli og hafa þeir meðal
annars stöðvað járnbrautarsam-
göngur til Sovétríkjanna. Finnar
eiga mikil viðskipti við Sovétmenn
og eru 80% verslunarvaranna flutt
milli landanna með lestum.
Verkföil þessi fylgja í kjölfarið á
nýlegum samningum sem gera ráð
fyrir 2,5% launahækkunum í ári og
einnig á næsta ári. Ríkisstarfs-
menn, rafvirkjar og byggingar-
verkamenn telja hækkunina ekki
fullnægjandi.
FRAMTÆKNÍ s/f Skemmuveg 34 N
Vélsmiðja 200 Kópavogur
Járnsmíði - Viðgerðir lceland Tfil 91-fi410RR
Vélaviðgerðir - Nýsmíði
Til sölu
hjá Vélamiðstöð Kópavogs
Tilboð óskast í eftirtalin tæki:
1. Víbró-Werken götuvaltari árgerð 1966
2. Dynapac götuvaltari árgerð 1977
3. Lítill götuvaltari
4. Sand-saltdreifari, sem hengdur er aftan á
vörubílspall. Upplýsingar um tækin veittar í
Áhaldahúsi Kópavogs og í síma 41576 í vinnu-
tíma. Tilboðum sé skilað á sama stað fyrir kl. 11.00
f.h. föstudaginn 25.4.1986. Réttur áskilinn til að
taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Forstöðumaður
Ketilhús Vífilsstaðaspítala
Tilboð óskast í breylingar á ketilhúsi Vifilsstaðaspítala. Fjarlægjaskal
tanka, ketil og reykháf. Tengja hitaveituinntak og varakyndingu.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstotu vorri. Tilboð verða opnuð í
viðurvist viðstaddra bjóðenda þriðjudaginn 6. maí nk.kl. 11:00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Til sölu
Til sölu tvær MF dráttarvélar
í mjög góðu standi.
Upplýsingar í síma 99-5145