Tíminn - 27.04.1986, Side 3
Sunnudagur 27. apríl 1986
Tíminn 3
HOLLUSTU-
HORNID
Svanfríður Hagwaag
skrifar
Hollustufæði
- hvers vegna?
Hvers vegna eigum við frekar að nærast á hollustufæði? Svarið er að
með því bætir þú bæði Itcilsu þína og nýtur betur matarins. Hollustufæði
þýðir það að þá er notaður óunninn matur - eða heill matur - engum
aukaefnum er bætt við og ekkert tekið í burtu.
Pakkamatur og unninn matur þýðir venjulega að hann inniheldur
nokkuð mikið magn litarefna, rotvarnarefna og annarra kemiskra
aukaefna. Það sem verra er- bragðgæði matarins minnka líka oft um leið
og hann er unninn. '
Það er oft crfitt að venja fjölskylduna við hollustufæði - ráðið er að
fara sér hægt og venja hana við smám saman. Hrísgrjón eru mjög gott
dæmi um þetta. Byrjið á því að blanda saman hvítum og brúnum
hrísgrjónum til helminga - athugið samt að brúnu hrísgrjónin þurfa
nokkuð meiri suðu, eða um 45 mínútur. Aukið síðan brúnu hrísgrjónin
smám saman og umskiftin ættu að verða átakalaus. Hér á cftir koma svo
tvær uppskriftir af hrísgrjónaréttum sem henta vel til að kynna
hollustufæði.
Möndluhrísgrjón
1 bolli soðin brún hrísgrjón
1 hvítlauksbátur
Vi msk. söxuð steinselja
'A tsk. merian
!4 tsk. timian
!4 bolli ristaðar möndlur eða hnetur
Þegar hrísgrjónin eru soðin er möndlunum og kryddjurtunum hrært
saman við. Látið lok á og látið standa í 10 mínútur. Þessi hrísgrjónaréttur
er mjög góður sem meðlæti með öðrum mat.
Sólskinsrísótto
■/> bolli sólblómafræ
1 laukur, saxaður
2 selleristilkar, saxaðir
1!4 bolli soðin brún hrt'sgrjón
'h bolli rúsínur
3A Dolli rifinn ostur
1 tsk tamari sojasósa
Steikið grænmetið í olíu þangað til laukurinn er glær. Ristið sólblóma-
fræið í 180°C heitum ofni í sjö til átta mínútur. Takið sólblómafræið úr
ofninum og steikið með grænmetinu í um það bil 2 mínútur. Bætið við
hrísgrjónunum og rúsínunum, það getur þurft að bæta aðeins við vatni á
meðan hrísgrjónin eru að hitna svo að þau brenni ekki við á meðan.
Setjið hrísgrjónin yfir í ofnfast mót og blandið helmingnum af ostinum
og sojasósunni saman við hrísgrjónin. Stráið afganginum af ostinum yfir
og setjið lok á mótið. Bakið í um það bil 10 mínútur við 180°C eða þangað
til osturinn er bráðnaður.
I fyrsta flokki
Vinningur til íbúðarkaupa á 1. 000.000 kr.
6 uinningar til bílakaupa á 200. OOO kr. hver.
120 utanlandsferðir á 40.000 kr. hver.
120 húsbúnaðarvinningar á 10.000 kr. hver og
353 húsbúnaðarvinningar á 5.000 kr. hver.
Sala á lausutn miðum og endurnýjun ársmiða
og flokksmiða stendur yfir.
Mánaðarverð miða kr. 200, ársmiða kr. 2.400.
Dregið verður 11. flokki 7. mai.
Búum öldruðum áhyggjulaust ævikvöld
___HAPPDRÆTTI________
Dvalarheimliis aldraðra sjomanna
JjW M
W i'
W i ÆÍ j
L JsS&vÉ
A4 1-30 A4 2-30 A4 3-30 A4 4-30 A4 4-30+ 0030
Ódýrar
bókahillur
fyrir
skrifstofur
ogheimili-
eik teak
og fura
HUSGÖGN OG
INNRETTINGAR
„SUÐURL ANDSBRAUT 18