Tíminn - 27.04.1986, Qupperneq 10
10 Tíminn
Sunnudagur 27. apríl 1986
Sunnudagur 27. apríl 1986
Tíminn 11
HLAUPIÐ I
TAKT VIÐ TÍMANN
íþrótta- og ungmennasambönd hafa byrjað undirbúning af fullum krafti
Merkið sem ís-
lensku þálttak-
endumir niunu
bera í hlaupinu.
Sunnudaginn
25. maí 1986
Afríku og sjónvarpað var um víða
veröld. I framhaldi af tónleikum
hafa aðalhvatamaður þcirra, Bob
Geldof. ásamt Band Aid sjóðnum
og Barnahjálp Sameinuöu þjóðanna
(UNICEF) ákveðið að efna til svo-
kallaðs Sport Aid hlaups víða um
heim25. maí n.k. til styrktar hjálpar-
starfi í Afríku.
Laugardaginn 17. maí mun
íþróttamaður leggja af stað með
logandi kyndil frá einu þurrkasvæða
Afríku. Næstu daga á eftir hleypur
hann um 12 helstu borgir í Evrópu.
Sunnudaginn 25. maí lýkur hlaupinu
í New York þar sem hlaupið verður
um götur borgarinnar áleiðis að
byggingu Sameinuðu þjóðanna.
Reiknað er með að milljónir
manna um allan heim taki þátt í
Afríkuhlaupinu. Pegar hafa íþrótta-
menn í 60 stórborgum tilkynnt þátt-
töku. Hlaupinu verður sjónvarpað
og útvarpað í beinni útsendingu víða
um heim. Samtímis leggja milljónir
hlaupara af stað til þess að sýna
samstöðu sína með bágstöddum í
Afríku. Eannig leggja Ástralar af
stað um miðja nótt þegar íslensku
þátttakendurnir taka fyrstu skrefin
klukkan 15 sunnudaginn 25. maf
n.k.
Hér á landi skipuleggja nokkrir
áhugamenn um íþróttir hlaupið,
ásamt íþróttasambandi íslands.
Ungmennafélagi íslands og Reykja-
víkurmaraþoni í samvinnu við
Hjálparstofnun kirkjunnar. Allur
ágóði af hlaupinu hér rennur til
rekstrar heimilis fyrir munaðarlaus
börn í Eþíópíu á vegum Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar, sem nú er
verið að reisa fyrir ágóða þann sem
varð af sölu hljómplötunnar „Hjálp-
um þeint".
Öllum þeim sem keypt hafa sérstök
barmmerki er heimil þátttaka í
hlaupinu. Sala merkjanna er jafn-
framt sú fjáröflun scm stefnt er að.
Áformað er að senda undirskriftar-
lista til forystunnar og íþróttamanna
í íþróttahreyfingunni. Þeim er ætlað
að safna a.m.. 20 nöfnum væntan-
legra þátttakenda á listana og annast
sölu sérstakra barmmerkja á 100
krónur, svo sem fyrr er getið.
Framkvænidanefnd Afríkuhlaups
1986 hefur einkum það hlutverk að
skipuleggja þennan íþróttaviðburð í
Reykjavík. Jafnframt mun nefndin
og framkvæmdastjóri hennar að-
stoða íþróttafélög eða éinstaklinga
innan íþróttahreyfingarinnar, sem
áhuga hafa á að koma á Afríku-
hlaupi í sinni heimabyggð. Verið er
að ganga frá hönnun barmmerkja
o.fl. hluta sem tengjast hlaupinu og
undirskriftarlistar verða tilbúnir inn-
an skamms.
Hér ræðir Bob Geldof, forgöngumaður Live Aid, við þá Sebastian Coe, hlauparann fræga
(t.h.)og fyrirliða breska landsliðsins, Brian Robson. Auðvitað ætla þeir allir að taka þátt í Sport
Aid hlaupinu!
Íslcnska undirbúningsnefndin að störfum.
IS.I. sumar voru haldnir Band Aid
tónleikar til styrktar bágstöddum í
Skrifstofa framkvæmdtmefndar er
opin frá kl. 9 til 17 alla virka daga.
Þar verða veittar allar nánari upplýs-
ingar varðandi framkvæmd og skipu-
lagningu Afríkuhlaups 1986.
Sebastian Coe frcmstur
í flokki félaga sem æfa
sig fyrir hlaupið þann
25. maí.
4*° b
LITIÐ STYKKI (250 g.) KR.
STÓRT STYKKI (500 g.) KR.
SMJÖRASKJA (400g.)KR.
igíf
t- '
S8&Í
Gefum þeim mikið af mjólk!
Nœstum allt það kalk sem Ifkaminn þarfnast í uppvextinum fer til uppbyggingar tanna og beina. Skorti
barnið kalk getur það komið niður á því sfðar sem alvarlegir sjúkdómar í beinum og baki, auk þess sem
hœtta á tannskemmdum eykst. Foreldrar œttu að hafa í huga að nœr vonlaust er að fullnœgja kalkþðrf
líkamans án þess að barnið neyti nœgs mjólkurmatar. Tvó mjólkurglðs á dag innihalda lágmarksskammt af
kalki svo bamið vaxi og þroskist eðlilega. Ónóg kalkneysla getur stuðlað að beinþynningu síðar á œvinni.
•Mjólk: Nýmjólk, léttmjólk, eða undanrenna.
Mjólk í hvert mál
Aldurshópur Ráðlagður dagskammtur afkalkiímg Samsvarandi kalk- skammtur í mjólkur- glösum(2,5dlglös)* Lágmarks- skammturí mjólkurglösum (2,5 dl glös)**
Bóm I-I0óra 800 3 2
Ungllngarll-18ára 1200 4 3
Ungt fólk og fullorðið Ófrlskarkonurog 800”* 3 2
brjóstmœður 1200— 4 3
• Hér er gert réð fyrlr að allur dagskammlurlm af kalkl koml úr mjélk.
"Að sjölfsögðu er mðgulegt að fá allf kalk sem llkamlnn þarf úr öðtum matvœlum en mjólkurmat en sllkt krefst
nðkvœmrar þekklngar á nœrlngarfrœðl. Hér er mlðað vlð neysluvenjur elns og þœr tlðkast I dag hór á landl.
“Marglr sérfrœðlngar telja nú að kalkþörf kvenna eftlr tlðahvárf sé mun melri eða 1200-1500 mg á dag.
""Nýjustu staðlar fyrlr RDS I Bandarlkjunum gera ráð fyrir 1200 tll 1600 mg á dag fyrir þennan hóp.
Mjólk Innlheldur meira kalk en nœr allar aðrar fœðutegundlr og auk þess B-vItamln,
A-vltamln, kallum, magníum, zink og fleiri efni. Um 99% af kalkinu notar llkaminn tll vaxtar
og viðhalds beina og tanna. Tœplega 1 % er uppleyst I llkamsvökvum, holdvefjum og
frumuhimnum, og er það nauðsynlegt m.a. fyrlr blóðstorknun, vöðvasamdrótt, hjartastarfseml
og taugaboð. Auk þess er kalklð hluti af ýmsum efnaskiptahvðtum. Til þess að Ifkaminn geti
nýtt kalklð þarf hann D-vItamln, sem hann fœr m.a. með sólböðum og úr ýmsum fœðuteaundum,
t.d. lýsi. Neysla annarra fœðutegunda en mjólkurmatar gefur sjaldnast meira en 300-400 mg
á dag, en það er langt undlr ráðlögðum dagskammti. Úr mjólkurmat fœst miklu melra kalk,
t.d. 800 mg úr u.þ.b. þremur glösum af mjólk.
TBSaik
MJÓLKURDAGSNEFND