Tíminn - 29.04.1986, Side 11

Tíminn - 29.04.1986, Side 11
Tíminn 11 10 Tíminn ÍÞRÓTTIR Frá Gudmundi Karfssyni í Fýskalandi: Ásgeir Sigurvinsson hefur skrifað undir sainning við Stuttgarl lil fjög- urra ára. Þessi undirskrilt bindur enda á margskonar sögusagnir um að liann væri að fara hingað og hangað. Hann verður áfram hiá Stuttgart. Kuntz markahæstur Stcfán Kuntz varð markahæsti leikmaður í 1. deild í Þýskalandi. Hann gerði 22 mörk á tímabilinu. Kuntz þessi er á leið til Bayer Uerdingcn og mun leika með Lárusi i framlínu liðsins á næsta keppnis- tímabili. Allgöver varð næst markahæstur með 21 mark og í þriðja sæti varð Neubarth frá Brem- en með 20 mörk. ÓliLár.fráKR Svo getur farið að Olafur Lárus- son, einn af máttarstólpum KR-Iiös- ins í handknattleik, spili ekki ineð sínu gamla félagi á næsta keppnis- tímabili. Hann mun hafa nokkurn áhuga á þjálfun og vitað er að citt 2. deildarlið og 3. dcildarlið hafa átt í viðræðum við Ólaf um þjálfun og spilamennsku á næsta tímabili. Það yrði mikill missir fyrir KR- inga fari svo að Ólafur leiki ekki með þeim næsta vetur. Bikarkeppni HSÍ Lokastórleikur í handknattleikn- um á þessu langa og stranga keppn- istímabili verður á morgun. Þá lcika Víkingur og Stjarnan til úrslita í bikarkeppni HSI. Leikurinn verður kl. 20.00 í Laugardalshöll cn á undan honum, kl. 18.45, leika ÍR og FH til úrslita í bikarkeppni 2. flokks. Víkingar eru núverandi bikar- meistarar og reyndar urðu þeir líka íslandsmeistarar 1986 og stefna þvU að tvöföldum sigri í ár. Stjarnan hefur enn ekki unnið til meiriháttar verðlauna í handknattleik cn liðið átti mjög gott keppnistímabil og hver veit nema að komið sé að þeirra tíma til að ná sér í titil. Eins og fyrr segir þá hefst leikurinn í Höllinni kl. 20.00. Frá Tækninefnd HSÍ Tækninefnd HSÍ boðar til fundar í íþróttamiðstöðinni Laugardal þriðjudaginn 29. apríl, kl. 20.00. Á fundinum mæta þau Stefán Carlsson læknir. Andrés Kristjáns- son sjúkraþjálfari og Kristín Guð- mundsdóttir sjúkraþjálfari og munu Í>au flytja fyrirlestra sem hér segir: þróttameiðsl: Stefán Carlsson Tapingar: Andrés Kristjánsson Teygingar: Kristín Gudmundsdóttir Tækninefnd hvetur alla er áhuga hafa á þessu að mæta og bendir sérstaklega þeim er hug hafa á þjálfun og liðstjórn á að mæta þar sem kunnátta í þessum efnum getur reynst mjög gagnleg. Þriðjudagur 29. apríl 1986 ÍÞRÓTTIR Sigrún Bjarnadóttir fylgist með er meðspilari hennar Kristín Njálsdóttir neglir kúluna yfir borðið. Þær stöllur unmi tvíliðaleik kvenna. A neðri myndinni eru þeir nafnar Tómas Guðjónsson og Sölvason í úrslitaleiknum í tvíliðaleik karla. Tímamynd Pétur íslandsmótið í borðtennis: Þrefalt hjá Sigrúnu - og Tómas varð tvöfaldur meistari í meistaraflokki karla Tómas Guðjónsson og Sigrún Bjarnadótt- ir voru sigurvegarar á Islandsmótinu í borð- tennis sem lauk í Laugardalshöll um helgina. Tómas sigraði í einliðaleik karla og einnig í tvíliðaleik karla ásamt Tómasi Sölvasyni. Sigrún bætti um hetur. Hún vann einliðaleik kvenna og tvíliðaleik ásamt Kristínu Njáls- dóttur og í tvenndarleik sigraði hún ásamt Stefáni Konráðssyni. Tómas og Stefán Konráðsson spiluðu hörkuspennandi úrslitaleik í einliðaleik karla. Lokatölur urðu 3-2 fyrir Tómasi og fór lokahrinan 22-20. Stefán og Gunnar Valsson töpuðu fyrir Tómusunum 0-3 í tvíliðaleik. Sigrún vann Kristínu stöllu sína í einliða- leik 3-0 og þær unnu síðan Hafdísi Ásgeirs- dótturog Elísabetu Ólafsdóttur í tvíliðaleik. Stefán náði síðan loks í gull ásamt Sigrúnu í tvenndarleik er þau unnu Tómas og Kristínu. í 1. flokki karla sigraði Kjartan Briem en í 1. flokki kvenna varð Anna Sigurbjörns- dóttir hlutskörpust. Óskar Ólafsson sigraði síðan í 2. flokki karla. ■ Ekki er víst að hlaupadrottningin unga Zola Budd muni geta tekið þátt í Samveldis- leikunum sem fram eiga að fara í Edinborg á þessu ári. Ástæðan er sú að hún hefur ekki dvalið í Bretlandi nógu lengi að undanförnu. Budd þarf að hafa verið í Bretlandi í minnst sex mánuði árið fyrir leikana. Er á mörkun- um að hún fullnægi þeirri kröfu. ■ Um síðustu helgi fór fram í París all sérstætt uppboð. Uppboðshlutirnir voru knattspyrnuskyrta sem Platini hafði átt, tennisspaði frá Birni Borg, reiðhjól Bernard Hilault og margt hluta í þessum dúr. Ástæð- an fyrir uppboðinu var að safna aurum fyrir hungraða í Afríku og með sölu hlutanna náðist að hala inn um fimm miiljónir króna. Það var tennisstjarnan franska Yannick Noah sem stóð fyrir uppboðinu. ■ Fyrir stuttu veittu frönsk íþróttasamtök verðlaun til þess íþróttafólks sem þótti skara framúr á síðasta ári. Eru verðlaun þessi viðurkennd um allan heim. Að þessu sinni hlaut sovéski stangastökkvarinn Sergei Bubka aðalverðlaunin í karlaflokki en Mar- ita Koch frá A-Þýskalandi hirti verðlaunin í kvennaflokki. ■ Bretar hafa tekið sig til og ákveðið að um 500 bestu íþróttamenn landsins skuli teknir í lyfjapróf án viðvörunar nokkrum sinnum á ári án tillits til hvort þeir séu að keppa á stórmótum eða ekki. Þannig geta þeir átt á hættu að verða lyfjaprófaðir hvenær sem er og ef þeir neita að gangast undir prófið þá fara þeir sjálfkrafa í keppn- isbann. ■ Franska Knattspyrnusambandið setti fram tillögur í þá átt að koma í veg fyrir að félög í 1. og 2. deild færu á hausinn á fundi sínum fy rir stuttu. Tillögurnar eru tilkomnar vegna þess að í vetur varð að bjarga einu liðanna í 1. deild, Batista, frá gjaldþroti. Meðal þess sem lagt er til er að félög í 1. deild verði ekki með fleiri en 20 ieikmenn á kaupskrá hjá sér. Þá verða lið sem spila í Evrópukeppnum að deila hluta af tekjum sínum af þeim leikjum með öðrum liðum. Jón Diðriksson sigraði í víðavangshlaupi f R sem fram fór á sumardaginn fyrsta að venju. Jón kom í mark rétt á undan Sigurði P. Sigmundssyni. Már Hermannsson var í þriðja sæti. í kvennaflokki sigraði Marta Emstdóttir. FH-ingar höfðu yfirburði í sveitakeppninni. Alls hlupu um 140 í hlaupinu sem fyrir löngu hefur skipað sér fastan sess í borgarlífinu á sumardaginn fyrsta. Á mynd Péturs kemur Jón í mark en að baki honum glittir í Sigurð P. Sigmundsson og Má Hermannsson. Skárup til Fram Framarar hafa fengið til sín danska landsliðsmanninn fyrrverandi Per Skárup til að þjálfa og spila með 1. deildarliði sinu í handknattleik næsta vctur. Skárup skrifaði undir samning við félagið um helgina. Er ekki að efa að hann mun styrkja lið Fram mjög mikið. Gunnar á lappir Gunnar Gíslason, sem fór illa á ökla í viðureign KR og Fylkis á Reykjavíkur- mótinu í knattspyrnu fyrir stuttu, vonast eftir að verða byrjaður að hlaupa eftir u.þ.b. tvær vikur. Meiðslin voru ekki eins slæm og á horfðist. WestHamvannCity Frá Orra Smárusyni á Selfossi: Vítaspyrna frá Ray Steward í fyrri hálfleik hélt möguleikum West Ham á Englandsmeistaratign á floti. Steward setti vítaspyrnuna á réttan stað og West Ham vann Manchester City 1-0. Þennan leik vantar inní töfluna á bls. 12. V-þýsk knattspyrna: Bayern meistarar - Ásgeir átti frábæran leik sem hjálpaði til að vinna Bremen - Lalli skoraði tvö Frá Guömundi Karlssyni í V-Þýskalandi: Bayern Múnchen varð þýskur meistari í níunda sinn og getur liðið þakkað það Ásgeiri Sigurvinssyni og félögum hjá Stuttgart. Ásgeir átti frábæran leik er Stuttgart sigraði Werder Bremen 2-1 en Bremen nægði jafntefli til að hljóta meistara- titilinn. Ásgeir fékk einn í einkunn í öllum blöðum og var valinn í lið V-þýskur handknattleikur: Siggi með tólf - og Kristján gerði 10 er Hameln komst á toppinn Frá Guömundi Karlssyni í Þýskalandi: Vinstrihandarskytturnar íslensku stóðu sig aldeilis vel í þýska hand- knattleiknum um helgina. Sigurður Sveinsson skoraði 12 mörk í sigri Lemgó og Kristján Arason skoraði Pétur góður Frá Ma)>núsi Magnússyni í Noregi: Pétur Arnþórsson vakti athygli fyrir mjög góðan leik með Víkingi frá Stavanger er liðið gerði jafntefli við meistara fyrra árs, Rosenborg, í fyrsta leiknum í norsku 1. deildinni í knattspyrnu um helgina. Pétur sýndi góða baráttu og mikla vinnslu á miðjunni í leik án marka. Það voru 6200 áhorfendur á heimavelli Vík- inganna cnda áhuginn mikill í Sta- vanger. Brann, með þá Bjarna Sigurðsson og Sævar Jónsson á vellinum og Tony Knapp við stjómvölinn, sigraði Mjölden 2-0 í fyrsta leik sínum í 2. deild. íslendingarnir áttu ágætan lcik. í Svíþjóð byrjaði deildarkcppnin í knattspyrnu líka. Teitur Þórðarson stjórnaði liði Öster í 1-1 jafntcfli gcgn Hammarby en Eggert Guð- mundsson fékk á sig þrjú mörk er Halmstad steinlá 0-3 í fyrsta léik. 10 er Hamlen komst upp að hlið Dormagen í 2. deild- á toppinn. Essen náði að vinna Schwabing á útivelli en fyrir leikinn voru liðin í efsta sæti deildarinnar. Lokatölur urðu 16-13 fyrir Essen. Alfreð skor- aði 2 mörk en aðalhetja liðsins var markvörðurinn Hecker. Lemgo sigraði Dortmund 20-15 og þar var Sigurður í öllu sínu veldi. Hann gerði 12 mörk og aðeins tvö úr vítum. Er víst óhætt að segja að Sigurður hefði átt góða möguleika á að halda markakóngstigninni ef hann hefði ekki orðið fyrir alvarleg- um meiðslum í vetur. Hofwciger fór illa með Pál og félaga hjá Dankersen og sigraði 30-19. Páll mátti sín lítils. Hanr. skoraði aðeins þrjú mörk og öll úr vítum. 1 2. deild náði Hamlen að sigra efsta liðið Dormagen 22-20 og þar skorai Kristján 10 mörk. Með þess- um sigri þá komst Hameln upp að hliðinni á Dormagen á toppi deildar- innar en Dormagen er með betra markahlutfall. Kristján fór á kostum í leiknum. Bjarni Guðmundsson og félagar hjá Wanne sigruðu Ferden 29-20. Bjarni lék vel og skoraði sjö mörk þar af tvö úr vítum sem hann venjulega tekur nú ekki. vikunnar í Kicker í sjöunda sinn. Má búast við að hann verði í liði ársins hjá Kicker. Bayern sigraði „Gladbach" 6-0 og má segja að sá leikur hafi verið úti er Matheus skoraði eftir nokkrar sekúndur. Höness skoraði tvö og Wolfarth einnig og loks skoraði Kögel. Síðustu mínútur leiksins fóru aðallega í það að fylgjast með stórri ljósatöflu þar sem inn komu nýjar fréttir frá Stuttgart jafnt og þétt. Fögnuðurinn var mikill í Múnchen er flautað var til leiksloka. Allgöver skoraði bæði mörk Stutt-' gart sem komst í 2-0 áður en Burgs- múller skoraði á 80. mínútu. Vörn Stuttgart hélt síðan út. Uerdingen, með þá Atla og Lárus í fararbroddi vann sigur á Dusseldorf 5-2 og tryggði sér þriðja sætið í deildinni og sæti í Evrópukeppni næsta ár. Lárus skoraði 2 mörk í leiknum og hcfur gert 9 mörk á tímabilinu. Ásgeir Sigurvinsson skoraði 10 mörk á þessu tímabili. Lokastaðan í deildinni. Bayern Munich . . . Werder Bremen. . . Bayern Uerd..... Borussia M...... Stuttgart....... Bayern Leverk. . . . Hamburg......... Waldhof Mannh. . Bochum.......... Schalke ........ Kaiserslautern . . . Nuremberg....... Cologne......... Fort. Duesseld. . . . Eintracht Frankf. . Borussia Dortm. . . Saarbruecken . . . . Hannover ....... 34 21 34 20 34 19 34 15 34 17 34 15 34 17 34 11 34 14 34 11 34 10 34 12 34 9 34 11 34 7 34 10 34 6 34 5 6 5 8 7 10 9 12 11 12 4 16 8 15 10 14 5 17 11 14 7 16 14 13 8 16 9 19 8 21 82 31 49 83 41 49 63 60 45 65 51 42 69 45 41 63 51 40 52 35 39 41 44 33 55 57 32 53 58 30 49 54 30 51 54 29 46 59 29 54 78 29 35 49 28 49 65 28 39 68 21 43 92 18 Einar þjálfar IR ÍR-ingar hafa ráðið Einar Bollason, landsliðsþjálfara, sem þjálfara I. dcildarliðs félagsins í körfuknattleik fyrir næsta keppn- istímabil. Einar hefur undanfarin ár verið með Hauka í Hafnarfirði og gert þar góða hluti. Er ekki að efa að hann gerir einnig góða htuti í Breiðholtinu þar sem efni- viður ÍR-inga er nægur. M0LAR M0LAR NBA-körfuknattleikurinn: Styttist í úrslitin - Lakers og Pétur nánast vísir um sæti þar - Pétur með um helgina Pétur Guðmundsson og félagar hjá L.A. Lakers í NBA körfuknatt- leiknum sigruðu í fyrrinótt í fyrstu viðureign sinni við Dallas Mavericks í 2. umferð í úrslitakeppni NBA. Lokatölur urðu 130-116 og gerði Pétur tvö stig í leiknum en hann spilaði ekki mikið. Það lið sem fyrr vinnur fjóra leiki kemst áfram í úrslitaleikina í Vesturdeildinni. Valur til Þórs? Þórsarar á Akureyri hala verið í sambandi við Val Ingimundar- son frá Njarðvík varðandi þjálfun á 1. deildarliöi Þórs í körfuknatt- leik næsta vetur. Er þá ætlunin að Valur bæði þjálfi og spili nieð. Eftir því sem Tíminn hleraði þá hafa viðræður átt sér stað en ekkert hefur verið ákveðið aö svo stöddu. Ekki þarf að taka fram hversu niikill gróði það yrði fyrir Þórsara og mikið tap fyrir Njarð- víkinga ef Valur færi norður. Robson velur Bobby Robson, landsliðsþjálfari Englands, hefur nú valið þá 22 leikmenn sem taka þátt í HM í Mexíkó. Reyndar er ekki Ijóst enn hvaða hópur mun að lokum taka þátt í leikjunum þar sem nokkrir lykilmenn eru meiddir. Má nefna Robson og Reid. Hópurinn lítur þannig út: Shilton, Woods, Bailey-Ander- son, Stevens (Everton), Stevens (Tottenham), Sansom, Butcher, Martin, Fenwick-Röbson, Wilkins, Hoddle, Hodge, Steven, Reid-Lin- eker, Hateley, Beardsley, Dixon. Barnes, Waddle. Fram sigraði Einn leikur var á Reykjavíkurmót- inu í knattspyrnu á sunnudagskvöld- ið. Fram sigraði Þrótt létt 4-0. Stað- an í hálfleik var 1-0 og gerði Pétur Ormslev mark Fram. í upphafi síðari hálfleiks var einum Þróttara vísað af leikvelli og eftirleikurinn var auð- veldur. Guðmundur Steinsson skor- aði tvívegis og nafni hans Torfason bætti við marki. Fram spilar við Val í undanúrslitum en KR og Víkingur eigast við í hinum leiknum. Austurríki vann Um helgina lauk í Kaupmanna- höfn öðrum riðlinum í C-Evrópu- keppninni í körfuknattleik. Eins og kunnugt er þá sigruðu íslendingar í hinum C-riðlinum sem fram fór hér á Fróni. í Danmörku voru það Austurríkismenn sem sigruðu með fullu húsi. Þeir unnu Lúxemborg í síðasta leiknum 73-60 og þar skoraði Haid mest fyrir Austurríkismenn eða 24 stig. England varð í öðru sæti í Danmörku en heimamenn urðu þriðju. Lúxemborgarar urðu fjórðu og Kýpurbúar ráku lestina. Ármenningar 50 ára Nú í ár minnast Armenningar 50 ára afmælis skíðadeildar sinnar, en aldur hennar miða þeir gjarnan við árið 1936 er þeir þá á Jónsmessunni lögðu hornstein að skíðaskála Ármanns í Jósefsdal. Ármenningar minnast hinn 30. apríl næstkomandi þcssara merku tímamóta með vcglegri veislu á Hótei Sögu. AHirfélagar í skíðadeild Ármanns og sérstak- lega þeir eldri eru hvattir til þess að mæta. Aðgöngumiðar fást hjá Hall- dóri Sigfússyni, rakara og í versl- uninni Útilíf. Núverandi formaður skíða- deildar Ármanns er Ómar Kristj- ánsson, endurskoðandi. Sennilega mæta Lakers Houston í þeim leik en Houston sigraði Denver í fyrsta leik liðanna í 2. umferð úrslitanna 126-119. I Austurdeildinni kljást Boston Celtics og Atlanta Hawks. Boston vann lyrstu viðureignina 103-91 og þar skoraði Kevin McHale flest stig eða 24 fyrir Boston. Milwaukee Einar Vilhjálmsson sigraði í spjótkasti á móti sem San Ántonio- háskólinn hclt í Walnut í Kaliforníu. Einar, sem var að keppa í fyrsta sinn með nýrri gerð af spjóti, kastaði 78,60. Þess má geta að Sigurður Einarsson sent kastað hefur þessu spjóti nokkuð að undanförnu á best 79,24. Á þessu móti í Walnut sigraði fjórfaldi ólymptumeistarinn Carl Lewis bæði í 100 m hlaupi og Vésteinn Hafsteinsson sigraði í kringlukasti á móti sem Drake há- skólinn í lowa hélt um helgina. Vésteinn kastaði 61,78 m. Egget't Bogason varð fjórði á mótinu með kast uppá 57,14. Þá varð Sigurður Einarsson annar í spjótkasti. Hann mætir 76ers í hinum leikjununt í 2. umferð í Austurdcildinni cn 76ers unnu Bullets 134-109 í síðasta leik liðanna í I. umferð. Enn sem fyrr veðja helstu spá- menn á að Lakers og Boston mætist í keppninni um Heimsmeistaratitil- inn þriðja árið í röð. Ekki þarf þó að vera sérfræðingur til að spá því. langstökki án þess að ná ncma þokkalegum árangri á hans mæli- kvarða. Lewis var að keppa í fyrsta sinn eftir meiðsl sem hann hlaut á síðasta ári. Þá vakti einnig athygli á þessu móti að Evelyn Ashford sigr- aði í 100 m hlaupi en hún keppti ekkert á síðasta ári eftir fæðingu dóttur sinnar. Loks má geta að Judd Logan setti nýtt bandarískt met i sleggjukasti er hann grýtti sleggjunni 77,60 m. Fyrra metið var 77,24. kastaði 73,04 en sigurvegari varð Mwinnkelly frá Tanzaníu með kast upp á 74,60 mctra. íris Grönfcld sigraði í spjótkasti kvenna með52,48 m kast. Islendingarnir kepptu allir fyrir Alahama Háskólann. ■ Spánverjinn Severiano Ball- cstcros klúðraði þriðju golf- keppninni i röð nú um helgina. Þá varð hann að sætta sig við að verða annar á Opna Madrid-niót- inu eftir að hafa haft forystu lengst af. Howard Clark frá Bret- landi sigraði í Madrid. Ballestcr- os missti niöur forskot í Mastcrs- keppninni í Bandaríkjunum og einnig í Opna Cannes-mótinu fyrir stuttu. ■ Mexíkanar unnu æfingaiitla Kanadamcnn í æfingaleik í knatt- spyrnu um hclgina. Leikurinn endaði 3-0 en það var ekki fyrr en á síöustu fimm mínútum leiksins sem Mcxíkanar settu inn tvö markanna. Kanadamenn voru þá þreyttir mjög. Spilað var í Mex- íkó. Aguirre, Flores og Negrete skoruðu. ■ Curtis Strange sigraði Calvin Peete í bráöahana á Opna Hous- ton-mótinu í golfi um helgina. Þeir félagar voru jafnir eftir 72 liolur en Strange hafði betur í þriggja holu bráðabana. ■ Cibona Zagreb, núverandi Evrópumeistarar í körfuknatt- leik, urðu að sætta sig við að tapa mcistaratitlinum í Júgóslavíu til Zadar et'tir spennaiidi úrslitaleik þessara félaga. Lcikurinn endaði 111-110 og gekk mikið á. ■ V-Þýski undrastrákurinn í tennis, Boris Beckcr, skrifaði undir nýjan saiiming við fyrirtæki það í íþróttavörum sem hann auglýsir fyrir (Puina). Þetta er sex ára samningur og muiiu skór og tcnnisspaöar auk annars bera nafn Beckcrs. Hann fær í sinn lilut dágóða fúlgu en samningur- inn er talinn virði um 600 milljóna ísl. króna. ■ Nú er tckiö að hitna undir þjálfara sovéska knattspyrnu- landsliðsins Malol'cycv. Sovét- menn hafa tapað tjórum leikjum í röð og aöcins skorað eitt mark. Er víst að íþróttaráö Sovétríkj- anna cr að kíkja á málin og velta stöðunni fyrir sér. ■ Danir töpuðu fyrir Indónes- íumönnum í lokakeppni HM í badminton sem nú stendur yfir í Jakarta á Indónesíu .. Indónesíu- menn unnu alla einliðaleikina og mæta nú Malasíumönnum í undanúrslitum á meöan Danir mæta Kínverjum í hinum undan- úrslitalciknum. ■ Sovétmenn sigruðu Banda- ríkjamenn í fimlcikakeppni i bæði kvenna og karlaflokki um helgina. Landskeppni þessi fór fram í Worcester í Massachusetts og munaði þremur stigum á karla- keppninni en tvcimur í kvenna- keppninni. ■ írakar sigruðu íra í vináttu- landsleik í knattspyrnu í Bagdad í gær. Leikurinn fór 1-0 og skor- aði Radhi markið á 34. mínútu. Um 25 þúsund manns sáu leikinn. Hér er sannkallaður fréttamannaskellur í uppsiglingu. Samúel Örn Erlingsson úr úrvalsliði íþróttafréttamanna skcllir hér gegn landsliðsmönnunum Guö- mundi Pálssyni og Páli Svanssyni í viðureign pressuliös og landsliðs í hlaki sem fram fór í Digranesi um heigina. Landsliðið vann naumlega 3-2 og úrslitahrinuna 15-9. Liðin spiluðu síðan aukahrinu og þá vann pressan. Tímamynd Pétur Hlutabréf til sölu Hlutabréf í íshúsfélagi ísfirðinga h.f., eru til sölu. Um er að ræða hlutabréf í eigu Togaraútgerðarfélags ísafjarðar h.f., sem eru að nafnverði kr. 1.272.110.- og teljast 13,5% af heildarhiutafjáreign. Tilboð skal senda Tryggva Guðmundssyni hdl., Hrannargötu 2, ísafirði. Sími 94-3940, sem jafnframt veitir nánari upplýsingar ef óskað er. Frjalsar í Kaliforníu: Einar sigraði - Kastaði nýja spjótinu í fyrsta sinn í keppni Vésteinn vann í lowa

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.