Tíminn - 29.04.1986, Side 5

Tíminn - 29.04.1986, Side 5
Þriðjudagur 29. apríl 1986 Tíminn 5 Suður-Kórea Óróalogarnir breiðast út Mótmælin gegn Chun forseta og stjorn hans halda áfram - Tveir stúdentar kveiktu í sér Seoul-Reuter Tveir stúdentar kveiktu í sér í gærmorgun og lögregla handtók 300 manns í miklum mótmælaaðgerðum gegn stjórn Suður-Kóreu fyrir utan háskólann í Seoul. Háttsettur embættismaöur í stjórnarflokk Chun Doo Hwans forseta sagði skömmu eftir mót- mælaaðgerðir róttækra stúdenta að þær gætu vel farið úr böndunum ef svo færi fram sem horfði. Mótmælin fyrir utan Seoulháskóla fylgdu í kjölfarið á mótmælagöngu í borginni Chongju. Þar réðust rúm- lega þúsund stúdentar að óeirðalög- reglu. Táragas var notað til að dreifa stúdentunum. Um 400 manns voru samankomin fyrir utan háskólann í Seoul. Tveir karlmenn úr hópi stúdenta klifruðu upp á þak, helltu yfir sig bensíni og kveiktu í sér. Þeir eru báðir á sjúkrahúsi, illa brenndir og annar meiddur eftir að hafa reynt að kom- ast hjá handtöku. Róttækir stúdentar hafa að undan- förnu verið atkvæðamestir í mót- mælunum gegn Chun forseta og stjórn hans. Mótmælaaðgerðirnar hafa þó náð til fleiri en stúdenta og krefst stjórn- arandstaðan m.a. aukinna mannrétt- inda og að fyrirkomulagi forseta- kosninganna verði breytt. Núver- andi lög gera ráð fyrir að 5000 manna kosningaráð kjósi forseta í stað þess að þjóðin fái þar ráðið um. Særðir Contra-skæruliðar spila Ólsen Ólsen eða eitthvað þvíumlíkt. Contrakapparnir hafa orðið fyrir talsverðu manntjóni og meiðslum síðan frá áramótum. Nicaragua: Contrakappar eiga í vök að verjast Managua-Reuter Stjórnvöld í Nicaragua sögðu um helgina heri sína hafa fellt ellegar sært um þúsund uppreisnarmenn frá byrjun þessa árs. Uppreisnar- mennirnir eru hinir svokölluðu Contra-skæruliðar sem Bandaríkja- stjórn styður við bakið á. Rósa Pasos herforingi sagði frétta- manni Reuters að herir sandinista hefðu á sama tíma einungis misst 300 manns úr bardagasveitum sínum. Flestir bardagarnir áttu sér stað í norðurhéruðunum Jinotega og Matagalpa. Pasos sagði fámenna skæruliða- hópa hafa á síðasta mánuði ráðist inn í Nicaragua frá stöðvum sínum í nágrannaríkinu Honduras. Hún sagði um 1800 Contra-skæruliða nú vera í Nicaragua. Paraguay: Lítið um lýðræði í ríki Strössners V-þýskur sendiráðsstarfsmaður og fjórir fréttamenn fangaðir og barðir Asuncion-Reuter Talsmaður vestur-þýska sendi- ráðsins í Paraguay sagði í gær þar- lenda lögreglu hafa barið sig og fjóra fréttamenn um helgina. Barsmíð- arnar áttu sér stað eftir að lögreglan hafði bundið enda á mótmælagöngu með því að beita táragasi, kylfum og vatnsbunum á þátttakendur göng- unnar, sem skipulögð var af bönnuð- um stjórnarandstöðuflokk. Armin Steuer, blaðafulltrúi v- þýska sendiráðsins, sagði lögreglu hafa farið með hann og fjóra erlenda blaðamenn til höfuðstöðva sinna eftir að mótmælaaðgerðirnar höfðu verið bældar niður. Að sögn Steuers voru fimmmenningarnir þar barðir með kylfum. „Það virðist sem í Paraguay sé ekkert til sem heitir friðhelgi sendi- ráðsmanna," sagði Steuer. Vestur-þýsk stjórnvöld sögðu í gær að þau myndu mótmæla bar- smíðinni kröftuglega við yfirvöld í Paraguay. Alfredo Strössner forseti hefur stjórnað landinu síðan 1954 og er Paraguay ásamt Chile einu ríki Suður-Ameríku þar sem ekki hefur verið nein breyting í lýðræðisátt á síðustu árum. Nokkur órói hefur verið að undan- förnu í Paraguay og hefur fólk krafist aukinna stjórnmálalegra rétt- inda. Áðurnefnd mótmælaganga, sem um þúsund manns tóku þátt í, er síðasta dæmi aukinnar ólgu. Sérfræðingar töldu aukna geislavirkni á Norðurlöndum líklega stafa af leka í sovésku kjarnorkuveri. Sovésk yfir> völd tilkynntu síðar í gær um einn slíkan leka. Á myndinni má sjá eitt kjarnorkuvera Sovétmanna. Norðurlönd: Aukin geislavirkni Orsökin slys í sovésku kjarnorkuveri Stokkhólmur-Reutcr Vart varð við aukna geislavirkni í Svíþjóð, Danmörku, Noregi og Finnlandi í gær. Embættismenn sögðu geislavirknina líklega vera afleiðingu leka í sovésku kjarn- orkuveri. Síðdegis í gær tilkynntu svo Sovét- menn um slys í kjarnorkuveri norður af Kiev í Ukraínu. Sovéska frétta- stofan Tass skýrði frá að aðgerðir væru þegar hafnar til að koma í veg fyrir að afleiðingar slyssins yrðu alvarlegri. Fréttastofan sagði sjúkra- hjálp hafa verið veitta þeim sem verst fóru út úr slysinu. Sænskir embættismenn höfðu áður sagt vinda líklega hafa borið geislavirknina yfir hafið og margt virtist benda til að leki hafi komið upp í einu kjarnorkuvera Sovét- manna í einhverju Eystrasaltslýð- veldanna. „Við höldum að þetta komi frá Sovétríkjunum... einhvers konar leki frá kjarnorkuveri," sagði Inge- mar Vintersved starfsmaður rann- sóknamiðstöðvar varnarmálaráðu- neytisins sænska. Mesta geislavirknin mældist í Finnlandi en þar var hún sex sinnum meiri en venjulega á sumum stöðum í mið- og norðurhluta landsins. í Danmörku mældist geislavirknin fimm sinnum meiri en venjulega og í Osló var hún helmingi meiri. Talsmaður sænska kjarnorkuráðs- ins sagði þó almenning ekki vera í neinni hættu og lcki frá kjarn- orkuveri væri líklega eina ástæðan fyrir geislavirknisaukningunni. Geislavirknin í Stokkhólmi mun hafa verið svipuð að magni og sú sem mældist eftir kjarnorku- sprengjutilraunir Kínverja ofanjarð- ar um miðjan síðasta áratug. Aukinnar geislavirkni varð fyrst vart í Forsmark kjarnorkuverinu um 100 kílómetra norður af Stokkhólmi. Fyrst var haldið að þar væri um leka að ræða en þegar fréttir unt aukna geislavirkni fóru að berast alls staðar frá nágrannaríkjunum varð ljóst að orsakarinnar var annars staðar að leita. Bandaríkin: Læðst yfir landamæri í leit að betra lífi Washington-Reuter Ólöglegir innflytjendur frá Mexíkó og öðrum löndunt Mið- Ameríku hreinlega streyma inn yfir landamærin til Bandaríkjanna í leit að betri lífskjörum og stöð- ugara stjórnmálaástandi. Á þessu ári hafa 43% fleiri ólöglegir innflytjendur komið til Bandaríkjanna sé miðað við sama tíma í fyrra. Þá voru alls 1,2 milljónir manna handteknar á ár- inu fyrir að koma yfir landamærin án passa. Haldist innflytjendaflæð- ið eins mikið og nú er munu um 1,8 milljónir manna verða handteknar á þessu ári fyrir að koma inn í Bandaríkin án leyfis. Að sjálfsögðu komast svo margir yfir landamærin án þess að verða handteknir en líklegt er talið að um 12 milljónir ólöglegra innflytj- enda búi nú í Bandaríkjunum. OPIÐ HÚS1. MAÍ Frambjóðendur Framsóknarflokksins við borgarstjórnarkosningarnar hafa opið hús fimmtudaginn 1. maí n.k. að Hótel Hofi kl. 15.30-18.00. Kaffiveitingar verða í boði frambjóðenda. Ávörp flytja: Sigrún Magnúsdóttir og Alfreð Þorsteinsson. Vísnasöngkonan Ðergþóra Árnadóttir skemmtir. Allir velkomnir Framjóðendur.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.